Morgunblaðið - 17.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
FORD EDGE AWD
VERÐ FRÁ:
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
KR.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford EDGE AWD!
6.990.000
STÆRSTUR!
Ford Edge er sterkur, stæðilegur og gríðarlega
rúmgóður jeppi. Stærstur í sínum flokki ogmeð
20 cm veghæð. Einstaklega rúmgóður, gott pláss
fyrir alla fjölskylduna og einnig fyrir heilmikið
af farangri. Hann er meðal annars búinn SYNC
raddstýrðu samskiptakerfimeð neyðarhringingu
í 112, 8“ snertiskjá, Applink og Apple CarPlay,
regnskynjara í framrúðu, hraðastilli, 230V tengli
o.m.fl. Þú nýtur þess að ferðast hvert á land
sem er í Edge.
ford.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ástandið síðustu vikur er nánast
fordæmalaust,“ segir Jón Brynjar
Birgisson, sviðsstjóri innanlands-
sviðs hjá Rauða krossinum.
Mikið annríki hefur verið hjá
fjöldahjálparteymi Rauða krossins í
vetur vegna
ófærðar, stórra
slysa og bruna
svo eitthvað sé
nefnt. Síðustu tíu
daga eða svo hef-
ur keyrt um
þverbak vegna
veðurs og opna
hefur þurft
fjöldahjálpar-
stöðvar átta
sinnum á suð-
vesturhorninu á þeim tíma.
„Þessar lokanir á vegum á suð-
vesturhorninu eru eiginlega án for-
dæma,“ segir Jón Brynjar, sem seg-
ir margt spila inn í, veðrið og þunga
færð en ekki síður mikla aukningu í
vetrarferðamennsku hér á landi.
Álagspunktar í starfinu gera ekki
boð á undan sér. Mikil reynsla hefur
safnast upp og Jón Brynjar og hans
fólk er viðbúið öllu.
„Við eigum til bedda og teppi fyr-
ir mörg hundruð manns. Svo höfum
við yfir 100 byggingar á landinu
sem eru skráðar sem fjöldahjálpar-
stöðvar sem hægt er að grípa til.
Alla jafna dugar okkur að vera
með 5-10 sjálfboðaliða á hverri
fjöldahjálparstöð, til að mynda þeg-
ar lokað er vegna veðurs. Þá erum
við enda ekki að veita mjög flókna
þjónustu. Við bjóðum upp á veiting-
ar og svo bedda svo fólk geti hallað
sér. Þegar hins vegar verða stór
slys eða náttúruhamfarir þurfum
við á fleira fólki að halda. Þá er
þetta allt flóknara og við þurfum
jafnvel að senda áfallahjálpar-
teymi.“
30 manna viðbragðshópur
Jón Brynjar segir að um land allt
séu sjálfboðaliðar tilbúnir til starfa.
„Við erum með um 700 manns um
allt land tengda þessum fjöldahjálp-
arstöðvum. Þeir hafa flestir sótt
stutt námskeið til undirbúnings en
svo eru sumir með meiri þjálfun.
Á höfuðborgarsvæðinu erum við
með svokallaðan viðbragðshóp sem
skiptir á milli sín vöktum. Þetta er
30 manna hópur af vel þjálfuðu fólki
og það eru að jafnaði 3-4 á vakt
hverju sinni, viku í senn. Það fólk er
með tetrastöðvar svo við getum ver-
ið snögg að kalla það út. Sama fyrir-
komulag er með áfallahjálpar-
teymið. Það eru 2-3 á vakt í senn,
meira og minna sálfræðingar.
Annars vinnum við þetta í gegnum
Neyðarlínuna. Þar getum við skráð
inn hópa og fólk og hægt er að boða
fólk með SMS. Það er sama kerfi og
björgunarsveitir eru kallaðar út
eftir,“ segir Jón Brynjar, sem viður-
kennir að starfið hafi breyst að und-
anförnu.
„Það sem hefur breyst er að út-
köllum hefur fjölgað. Þetta hefur
farið frá því að vera sofandi risi í að
það er eitthvað að gerast í hverri
viku. Það eru alls konar mál sem
þarf að sinna; þessi veðurútköll, það
þarf áfallateymi vegna vinnuslysa og
fleira slíkt. Þetta er oft í viku og
sjaldnast á síðum blaðanna.
Þetta hefur undið mjög upp á sig
og við höfum þurft að auka þjálfun.
En það er það sem sjálfboðaliðar
vilja; það er ekkert gaman þegar
maður er sárasjaldan kallaður út.
Fyrir vikið erum við líka betri í
störfum okkar.“
Með 700 manns í viðbragðs-
stöðu og útköll í hverri viku
Opna hefur þurft fjöldahjálparstöðvar átta sinnum á síðustu tíu dögum vegna
veðurs Alltaf eru 3-4 á vakt hjá Rauða krossinum og hægt að kalla út áfallahjálp
Jón Brynjar
Birgisson
Veitingar Í fjöldahjálparstöðvum er boðið upp á mat og bedda.
Morgunblaðið/Ófeigur
Fjöldahjálparstöð Hægt er að opna fjöldahjálparstöðvar á um 100 stöðum á landinu með litlum fyrirvara.
Sykursýki fer vaxandi jafnt og þétt á
heimsvísu og hér á landi hefur notk-
un sykursýkislyfja þrefaldast það
sem af er þessari öld. Í baráttunni
við þennan far-
aldur er þörf á
úrræðum og hef-
ur Lionshreyf-
ingin ákveðið að
leggja sitt lóð á
vogarskálarnar
næstu árin, segir
í tilkynningu.
Af því tilefni
verður efnt til op-
ins málþings
þriðjudaginn 20.
febrúar kl. 16.30-18.30 í húsakynn-
um Verkís í Ofanleiti 2.
Þar mun Guðrún Björt Yngva-
dóttir, verðandi alþjóðaforseti
Lions, segja frá verkefnum Lions á
þessu sviði. Guðrún tekur við emb-
ætti alþjóðaforseta næsta sumar og
verður fyrsta konan og fyrsti Íslend-
ingurinn til að gegna þeirri stöðu.
Einnig munu sérfræðingar segja
frá rannsóknum og þróun sykursýki
á Íslandi: annars vegar Rafn Bene-
diktsson, prófessor og yfirlæknir
innkirtlalækninga á LSH, og hins
vegar Ragnar Bjarnason, yfirlæknir
barnalækninga á LSH.
Sigríður Jóhannsdóttir, formaður
samtaka sykursjúkra, og Jón Páll
Gestsson, formaður Dropans,
styrktarfélags barna með sykursýki,
segja frá starfsemi þessara tveggja
stuðningsfélaga.
Lions held-
ur fund um
sykursýki
Guðrún Björt
Yngvadóttir
Þrjú þjófnaðarmál voru tilkynnt til
lögreglunnar á Suðurnesjum í vik-
unni. Brotist var inn í dósasöfn-
unarkassa skátafélags en ekki er
vitað um verðmæti þess magns sem
stolið var, segir lögreglan.
Þá var tilkynnt um þjófnað á nær
130 þúsunda króna úlpu úr verslun
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Loks var brotist inn í bílskúr og
þaðan stolið hjólsög og tveimur
borvélum.
Stolið frá skátum
á Suðurnesjum