Morgunblaðið - 17.02.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ég er stelpa fædd í miðbæReykjavíkur og bjó þartil 16 ára aldurs,“ segirBirna Guðmundsdóttir
sem fagnar 66 ára afmæli 22. febr-
úar.
Hún rekur Líkamsrækt B&Ó, í
samstarfi við Ólaf Ágúst Gíslason.
Líkamsrækt B&Ó er partur af
almenningsíþróttadeild Stjörnunnar
og fagnar 30 ára afmæli á næsta ári.
„Það verður að sjálfsögðu hald-
ið upp á afmælið með afmælisferð út
á land,“ segir Birna sem er mennt-
aður íþrótta- og ungbarnasundkenn-
ari. Hún hefur helgað sig íþrótta-
kennslu allan starfsferilinn.
„Mamma var alltaf að finna mig
í hnút eða höfuðstöðu og fór því með
mig í ballett þegar ég var sjö ára. Ég
byrjaði að æfa sund 11 ára og bætti
fimleikum við þegar ég var 13 ára.
Ég æfði sund og fimleika saman í
þrjú ár og hélt svo áfram í fimleikum
þar til ég fór á Íþróttakennaraskóla
Íslands á Laugarvatni,“ segir Birna
sem ákvað 12 ára að verða íþrótta-
kennari.
Birnu fannst gaman að hreyfa
sig og foreldar hennar voru vakandi
fyrir því að hún og systkini hennar
tvö hreyfðu sig og borðuðu hollan
mat.
„Mamma mín var Halla Krist-
insdóttir sem vann við verslunar-
störf hjá Bernharð Laxdal. En hún
fór fyrst út á vinnumarkaðinn þegar
ég var 11 ára gömul. Mamma var bú-
in að eignast okkur systkinin öll 22
ára gömul. Pabbi minn var Guð-
mundur R. Einarsson, tónlistar-
maður í Sinfóníuhljómsveit Íslands,
hann var líka í danshljómsveitum og
spilaði djass með Tríói Ólafs
Stephensen,“ segir Birna.
Hefur skilað góðum
þjóðfélagsþegnum
„Það er mikil tónlist í
börnunum mínum þremur eins og
gefur að skilja. Halla er grunnskóla-
kennari, Stella er danshöfundur og
Arnar er trommuleikari Of Mon-
sters and Men. Þau bera öll ættar-
nafnið Rósenkranz. Ég get ekki ann-
að en verið sátt við uppeldi barn-
anna. Ég er búin að skila af mér
góðum þjóðfélagsþegnum og er
ánægð með það,“ segir Birna stolt.
Birna á þrjú barnabörn og eyðir
eins miklum tíma og hún getur með
þeim.
„Ég fer oft með barnabörnin í
sund um helgar og á sumrin hef ég
meiri tíma til þess að vera með þeim.
Ömmuhlutverkið er mjög gefandi.
Þegar maður verður amma breytist
allt. Ástin frá barnabörnunum er svo
skilyrðislaus.“
Eftir að Birna útskrifaðist sem
íþróttakennari kenndi hún í eitt ár í
Mosfellsbæ en hóf svo íþrótta-
kennslu í Flataskóla í Garðabæ. Árið
2014 hætti Birna störfum sem
66 ára og líður ekki
degi eldri en 39 ára
Birna Guðmundsdóttir hefur stundað íþróttir allt sitt líf og helgað íþróttakennslu
krafta sína. Árið 2014 hætti hún kennslu í Flataskóla sökum aldurs. Nú þjálfar
Birna ýmsa líkamsræktarhópa allt frá ungbörnum til fullorðinna í Mýrinni og
Sjálandslaug. Birna er jákvæður orkubolti sem stundað hefur hreyfingu og hugað
að hollu mataræði frá unga aldri.
Ljósmynd/úr einkasafni
Útivist Birna úti í náttúrunni en hún er mikil útivistar- og fjallamanneskja.
Sjálfsöryggi Móey hoppar örugg til móður sinnar Eydísar Antonsdóttur.
Gerðarsafn stendur vaktina og kemur
til með að hafa ofan af fyrir nem-
endum í grunnskólum Kópavogs á
meðan á árlegu vetrarfríi skólanna
stendur dagana 19. og 20. febrúar.
Nemendum grunnskóla Kópavogs
stendur þá til boða að mæta í Líkam-
leik, sem er danssmiðja undir stjórn
Sögu Sigurðardóttur dansara. Í
smiðjunni verður lögð áhersla á
hreyfingu og möguleika líkamans.
Í Líkam-leik danssmiðjunni verður
innblástur í verkin sem sköpuð verða
sóttur í myndir, liti, tilfinningar og
hljóð.
Að auki verða gerðar tilraunir í
danssmiðjunni til þess að breyta lík-
amanum í skúlptúr.
Öll grunnskólabörn eru velkomin í
smiðjuna, annan daginn eða báða en
smiðjan er opin frá kl. 10.00 til 12.00.
Kostnaður við smiðjuna er enginn og
fullorðnir fylgifiskar eru velkomnir
með.
Danssmiðja í Kópavogi
Leikur Börnum gefst kostur á að breyta líkamanum í skúlptúr í Gerðarsafni.
Líkam-leikur í boði í skólafríinu
Árbæjarsafn stendur fyrir Furðu-
verksmiðju fyrir börn og fullorðna í
fylgd barna á sunnudag milli kl.
13.00 og 16.00
Furðuverksmiðjan fer fram í
Lækjargötu 4, sem er stórt drappað
hús við torgið í Árbæjarsafni.
Í Furðuverksmiðjunni fá þátttak-
endur tækifæri til að skapa sína
eigin furðuveru gerða úr endur-
unnum textílefnum. Þegar furðuver-
an hefur verið sköpuð eru allir
hvattir til að segja söguna af furðu-
verunni og leyfa öðrum að kynnast
henni betur.
Andrea Fanney Jónsdóttir, textíl-
hönnuður og klæðskerameistari,
Erla Dís Arnardóttir, textílhönnuður
og kennari, og Guðný Katrín Einars-
dóttir, textílhönnuður og iðjuþjálfi,
leiðbeina í Furðuverksmiðjunni.
Andrea Fanney, Erla Dís og Guðný
Katrín standa einnig fyrir verkefninu
Handaband sem hefur það markmið
að bjóða upp á skapandi vinnustof-
ur fyrir fjölbreytta hópa.
Í tilefni af 100 ára fullveldis-
afmæli Íslands verða gamlar ljós-
myndir af fólki fyrir hundrað árum
hafðar sem fyrirmyndir og inn-
blástur í smiðjunni.
Furðuverksmiðjan er öllum opin
og ókeypis aðgangur fyrir börn og
fullorðna sem fylgja börnunum.
Gaman saman á sunnudag
Furðuverur skapaðar í Árbæ
Föndur Furðuverur úr endurunnum
textílafgöngum fá nýtt líf um helgina.
Tinna Þórudóttir Þorvaldar er hekl-
kennari sem býður upp á kennslu í
mósaíkmunstrinu II Terrazzo á morg-
un, sunnudag. Tinna hefur heklað og
stundað hannyrðir frá því að hún
man eftir sér. Gefið út þrjár hekl-
bækur, Þóru, Maríu og Havana, auk
þess að ritstýra heklbókinni Hekl-
félaginu.
Tinna hefur haldið heklnámskeið í
átta ár og kennt hundruðum kvenna
og einum karli að hekla.
Á morgun kennir hún áhugasöm-
um að hekla mósaíkmunstur sem
hún segir á fésbókarsíðu sinni að sé
ótrúlega skemmtilegt og einfalt
heklmunstur sem hægt sé að nota í
alls konar verkefni.
Á námskeiðinu á morgun verður
þátttakendum kennt að hekla dúllu
með mósaíkaðferðinni en hana má
nota til þess að hekla teppi, púða
Lærðu að hekla dúlluteppi
Hefur kennt
100 konum og
einum karli
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is