Morgunblaðið - 17.02.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Lítil heildverslun sem er að vaxa mjög hratt í spennandi merkjum í
mat- og drykkjarvörum leitar að meðfjárfesti sem getur gert henni
kleift að ná metnaðarfullum markmiðum sínum í sölu.
• Leiðandi fyrirtæki í sölu á legsteinum og tengdum vörum. Ársvelta
160 mkr. og mjög góð afkoma.
• Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur
véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig
öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr.
og EBITDA 25-40 mkr.
• Þekkt verslun með tölvur, síma og fylgihluti á frábærum stað. Velta
yfir 300 mkr.
• Vel innréttað kaffihús á góðum stað í Reykjavík. Tækifæri fyrir öfluga
aðila að byggja enn frekar upp.
• Fjölskyldufyrirtæki sem vinnur að hönnun, prentun og framleiðslu
vara og lausna til fyrirtækja. Velta um 70 mkr. og hátt
hagnaðarhlutfall.
• Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika
fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
• Sérhæfð fiskvinnsla í vönduðu 350 fm. leiguhúsnæði á höfuðborgar-
svæðinu. Velta um 260 mkr. Hagnaður af rekstri.
• Verslun sem byggir á erlendri skartgripalínu með tvær verslanir í
borginni. Stöðugur rekstur og góð afkoma.
• Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og
sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug
undanfarin ár og jákvæð afkoma.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hornsteinar arkitektar ehf. hafa
lagt fram umsókn til Reykjavíkur-
borgar um breytingu á deiliskipulagi
vegna lóðarinnar nr. 22 við Skógar-
hlíð. Á þessari lóð stendur þekkt hús
í burstabæjarstíl, Þóroddsstaðir.
Hér er því um að ræða nýjan þétt-
ingarreit í borginni.
Í breytingunni felst að skilgreina
notkun lóðarinnar undir íbúðabyggð
og heimila uppbyggingu húsnæðis.
Heimilt verði að byggja allt að 18
íbúðir á lóðinni, að hámarki 6 íbúðir í
núverandi húsi (Þóroddsstöðum) og
að hámarki 12 íbúðir í nýbygging-
unni. Útlit á að taka mið af formgerð
Þóroddsstaða. Miðað er við að íbúð-
irnar verði litlar.
Umhverfis- og skipulagsráð sam-
þykkti að auglýsa framlagða tillögu
en vísaði málinu áfram til borgar-
ráðs. Ráðið tók málið fyrir á fundi
sínum á fimmtudaginn en frestaði
afreiðslu þess.
Deiliskipulagssvæðið allt afmark-
ast af Litluhlíð til suðausturs, Miklu-
braut til norðvesturs, Eskihlíð og
lóðum Eskihlíðarblokka (Skógar-
hlíð) til norðausturs og Bústaðavegi
til suðvesturs. Breyting á núgildandi
deiliskipulagi (frá 2001) lítur að lóð-
inni Skógarhlíð 22 (áður Eskihlíð 28)
og er alls um 1.397 fermetar að
stærð.
Í greinargerð kemur fram að á
lóðinni stendur eitt hús, Þórodds-
staðir; hluti af gömlu býli frá fyrsta
fjórðungi síðustu aldar, sem í dag er
nýtt fyrir blandaða starfsemi. Húsið
er 499 fermetrar að stærð.
Þóroddsstaðir eru í rauðum flokki
Húsverndarskrár Reykjavíkur, en
rauður flokkur er skilgreindur sem
„Einstök hús, húsaraðir og götu-
myndir sem lagt er til að vernda með
hverfisvernd í deiliskipulagi vegna
byggingarlistarlegrar, menningar-
sögulegrar og/eða umhverfislegrar
sérstöðu þeirra“.
Þóroddsstaðir eru þrílyft steinhús
í burstabæjarstíl reist árið 1927 sem
erfðafestubýli. Miklar endurbætur
hafa verið gerðar á húsinu í gegnum
tíðina samfara breyttri notkun þess.
Setuliðið tók húsið yfir árið 1942 og
breytti fjósinu og hlöðunni í baðhús.
Eftir stríð var trésmíðaverkstæði
starfrækt í húsinu í langan tíma. Síð-
ustu árin hafa Þóroddsstaðir verið
nýttir undir ýmiss konar þjónustu.
„Guðmundur H. Þorláksson bygg-
ingameistari teiknaði húsið og er
það í burstabæjarstíl, en í byrjun
steinsteypualdar (1915-1930) voru
gerðar ýmsar tillögur að stein-
steyptum húsum sem sóttu fyrir-
mynd í hinn íslenska burstabæ og
eru Þóroddsstaðir eitt þekktasta
dæmið,“ segir í greinargerðinni.
Vilja byggja 12 íbúða
hús við Þóroddsstaði
Er eitt þekktasta dæmið um hús í burstabæjarstíl
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þóroddsstaðir Þrílyft steinhús í burstabæjarstíl sem reist var árið 1927.
Tölvumynd/Hornsteinar
Tillagan Nýbyggingin á að verða í vinkil við Þóroddsstaði og verður með sömu formgerð. Húsið verður þrjár hæðir.
Sena Live hefur gengið frá kaupum
á Iceland Airwaves-tónlistarhátíð-
inni af Icelandair og mun sjá um
rekstur hátíðarinnar héðan í frá.
Fyrirtækin hafa gert með sér
samning um að Icelandair verði
áfram helsti styrktaraðili hátíðar-
innar og mun styðja við markaðs-
setningu hennar.
Iceland Airwaves verður haldin
dagana 7.-11. nóvember 2018 og er
miðasala hafin. Stefnt er að því að
opna 1. mars fyrir umsóknir fyrir
tónlistarfólk sem vill koma þar fram.
Hátíðin hefur verið haldin í Reykja-
vík frá árinu 1999 og verður næsta
hátíð sú tuttugasta í röðinni. Hátíðin
hefur vaxið mikið á þessum tíma. Í
fréttatilkynningu segir að markmið
hátíðarinnar hafi verið að halda tón-
listarhátíð á heimsmælikvarða,
fjölga ferðamönnum utan háanna-
tíma á Íslandi og efla útflutning ís-
lenskrar tónlistar.
ÚTÓN, útflutningsskrifstofa ís-
lenskrar tónlistar, mun áfram sjá
um ráðgjöf varðandi erlenda fjöl-
miðla og fagaðila og sjá um ráð-
stefnuhluta hátíðarinnar og tengsla-
myndun þar sem íslenskum tón-
listarmönnum gefst kostur á að bóka
fundi með fulltrúum alþjóðlega tón-
listargeirans sem sækja hátíðina, en
á dagskrá ráðstefnunnar hafa einnig
verið umræður, fyrirlestrar og fleira
tengt viðskiptum með tónlist sam-
kvæmt tilkynningunni.
Sena Live tekur við
Iceland Airwaves
Næsta hátíð verður sú tuttugasta
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Airwaves 2017 Lido Pimienta var
meðal þeirra sem þar komu fram.
Febrúar er nú hálfnaður og hefur
hann verið nokkuð kaldur miðað við
hin síðari ár og jafnframt illviðra-
samur. Þetta kemur fram í yfirliti
sem Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur hefur tekið saman.
Tiltölulega lágur hiti, snjór og
hvassir vindar hafa valdið því að
skafrenningur er trúlega með meira
móti – sérstaklega á fjallvegum, seg-
ir Trausti. Vegir hafa ítrekað lokast
eins og fram hefur komið í fréttum.
Úrkoma hefur verið í meira lagi í
febrúar, hefur mælst um 57 milli-
metrar í Reykjavík (20% umfram
meðallag síðustu 10 ára), en 47 mm á
Akureyri og er það um 70% umfram
meðallag.
Meðalhiti í Reykjavík er -0,7 stig,
-0,3 stigum neðan meðallagsins
1961-1990, en -1,8 undir meðallagi
síðustu tíu ára. Hann er í 14. hlýj-
asta sæti (af 18) á öldinni. Sömu dag-
ar voru mun kaldari bæði 2002 og
2009 og auk þess voru þeir líka kald-
ari en nú 2008 og 2016.
Sé lítið til lengri tíma er mánuð-
urinn hingað til í 83. sæti af 144 á
langa listanum. Fyrri hluti febrúar
var hlýjastur 1932, meðalhiti var þá
+4,5 stig, en kaldast var 1881, með-
alhiti -5,9 stig.
Á Akureyri er meðalhiti það sem
af er mánuði -0.8 stig, +1,7 stigum
ofan meðallags 1961-1990, en -0,8
neðan meðallags síðustu tíu ára.
Samkvæmt spám Veðurstofunnar
hlýnar í bili. Á mánudaginn er því
spáð að hiti verði 2 til 7 stig. Hins
vegar má búast við að næsta vika
verði umhleypingasöm á landinu.
sisi@mbl.is
Kaldur og illviðrasamur
Morgunblaðið/Hari
Illviðri Björgunarsveitir hafa komið mörgum bíleigendum til aðstoðar.
Skafrenningur
með meira móti í
þessum mánuði