Morgunblaðið - 17.02.2018, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
PISA, Programme
for International Stud-
ent Assessment, er al-
þjóðleg rannsókn á
hæfni og getu 15 ára
nemenda í lestri, nátt-
úrufræði og stærð-
fræði. Fræðilegur
rammi PISA-
rannsóknarinnar
byggist á hugtakinu
læsi. Hugtakið vísar til
getu nemenda til þess að beita þekk-
ingu sinni og hæfni í lykilnáms-
greinum og til þess að greina, skilja
og tjá á skilvirkan hátt lausnir á
ýmsum viðfangsefnum í mörgum
mismunandi aðstæðum.
Staðan
Umræða um PISA-rannsóknina
hefur komið upp í kjölfar fregna um
skýrslu sem segir að Íslendingar
standi sig verst Norðurlandaþjóða í
téðri rannsókn. Framan af PISA-
rannsókninni í upphafi aldarinnar
voru íslenskir nemendur yfir
OECD-meðaltali í stærðfræði og
stóðu sig betur en nemendur annars
staðar á Norðurlöndum að frátöld-
um Finnum. Það þótti ekki í frásög-
ur færandi og pólitískur forystumað-
ur talaði um miðjumoð. Öll árin frá
2003 hafa Íslendingar staðið sig eilít-
ið betur en Norðmenn og Svíar í
stærðfræði, þar til í síðustu könnun
2015 er Íslendingar höfnuðu í neðsta
sæti.
Þýskir nemendur voru töluvert
neðan við OECD-meðaltal árið 2003
en nú hefur árangur Þjóðverja stór-
batnað. Þýsk skólayfirvöld hrukku
við yfir árangrinum í stærðfræði í
PISA-rannsókninni 2003. Rann-
sóknarniðurstöður voru greindar.
Þá kom fram að árangur barna inn-
flytjenda var lakari en annarra. Átak
var gert til að ná til þeirra með góð-
um árangri og nú standa Þjóðverjar
sig betur en Íslendingar. Svipað
þyrfti að gera hér. PISA-verkefnin
eru sett fram með lestexta og skilj-
anlegt að hann sé þröskuldur.
PISA-rannsóknin er ekki keppni
milli þjóða eða íbúa landshluta.
Markmiðið er ekki að þjálfa íslenska
nemendur til að ná efsta sæti eins og
á EM, HM eða Eurovision svo að
þjóðin geti fagnað.
Markmiðið er að upp-
lýsa yfirvöld um hvern-
ig vinna og fjármunir
sem lagðir eru í skóla-
kerfin skila sér. Er ver-
ið að fara rétt að? Hvað
má betur fara til að
styrkja læsi nemenda
og hæfni til að greina,
skilja og tjá lausnir á
viðfangsefnum sem lífið
mun bjóða þeim?
Mælir PISA úrelta
þekkingu?
Sumir segja ekkert að marka
PISA. Rannsóknin sé að mæla úr-
elta þekkingu. Fróðlegt væri sjá
rökstuðning fyrir þeirri skoðun. Er
úrelt að temja sér læsi til skilnings?
Hvenær varð það úrelt að greina,
skilja og tjá lausnir á viðfangsefnum
á skilvirkan hátt? Þarf ekki að tjá sig
skilmerkilega svo að fólk skilji hvert
annað? Hvernig væri umhorfs á Al-
þingi og í stjórnkerfinu ef fólk legði
sig ekki fram um að leita lausna og
tjá sig um þær, eða á venjulegum
heimilum þar sem vandamálin væru
skilin eftir óleyst og látin danka?
Haft er eftir nýkjörnum formanni
Félags grunnskólakennara að þekk-
ingin, sem mæld er í PISA-rann-
sókninni, geti orðið úrelt á morgun
og menntun eigi að ydda og auka
mennskuna. Árið 1999 komu út nám-
skrár í öllum námsgreinum grunn-
skóla og framhaldsskóla. Lífsleikni
varð þá ný námsgrein. Ítarleg nám-
skrá og fjölbreytt verkefni voru tek-
in saman til að auka leikni ung-
menna í að takast á við lífið og
vonandi að auka og ydda mennsk-
una. En gerir lífsleiknin lesskilning
og læsi í stærðfræði og náttúrufræði
óþörf og úrelt? Ekkert er einhlítt í
mannlegum samskiptum og eflingu
mennskunnar nema ef vera skyldi
gullna boðorðið; að fólk komi fram
við aðra eins og það vill að komið sé
fram við sig.
Hvað er hægt að gera?
Foreldrar ættu að taka höndum
saman og íhuga hvert markmið
skólastarfs er, hvað sé unnt að gera
innan veggja skólanna, og hvað utan
skólanna geti stuðlað að því að
markmið náist. Telji foreldrar að
lesskilningur barna og læsi í stærð-
fræði og náttúrufræði séu viðfangs-
efni skólanna ættu þeir að vera sam-
taka um að styðja kennara til þeirra
verka. Kennari sem kennir 18-25
börnum í senn getur sjaldnast sinnt
einstökum börnum af sömu nánd og
foreldrar og aðstandendur. Það er
heldur ekki hlutverk kennaranna.
Hlutverk þeirra er að kenna. Þeir
eiga að sýna skjólstæðingum sínum
bestu hlið mennsku sinnar í sam-
skiptum en þegar skóla lýkur fer
hver til síns heima og sinnir sínum
málum. Samskipti foreldra og kenn-
ara ættu að hafa skýran ramma á
ákveðnum tímum svo að kennarar
geti dregið línu milli starfs síns og
einkalífs. Styðjum góða kennara til
að gera það sem þeir geta gert best:
að hrífa nemendur með sér og miðla
þeim af áhuga sínum á námsgrein-
unum. Það verður aldrei úrelt.
Skólayfirvöld geta stutt kennara
til að búa nemendur undir þátttöku í
PISA-könnuninni. Stjórnendur
skóla ættu líka að leita leiða til að
gera nemendum eftirsóknarvert að
taka þátt í könnuninni með fullri at-
hygli og einbeitingu og sýna sínar
bestu hliðar.
Foreldrar og forráðamenn geta
stuðlað að læsi og málskilningi barna
sinna með merkingarbærum sam-
tölum um dagleg viðfangsefni í starfi
eða frístundum og fyrirbæri í sam-
félagi, bókmenntum, listum og nátt-
úru. Miklar kröfur mæta ungum for-
eldrum, bæði í störfum og einkalífi.
Börnin eru fengin þeim að láni um
stuttan tíma. Fram undan er oftast
langt líf þegar börnin eru flogin og
engu verður breytt. Gott skipulag á
daglegum viðfangsefnum getur
skapað aukið rými fyrir gæðastundir
með börnunum á meðan þau eru ung
og móttækileg.
Hvað er PISA?
Eftir Kristínu
Bjarnadóttur
KristÌn Bjarnadóttir
» PISA mælir læsi í
víðum skilningi: getu
til að beita þekkingu og
hæfni og til að greina,
skilja og tjá lausnir á
viðfangsefnum í mis-
munandi aðstæðum.
Höfundur er fyrrverandi prófessor.
krisbj@hi.is
Lífið snýst ekki um
það að gera aldrei mis-
tök. Það snýst einmitt
um að gera mistök,
viðurkenna þau, læra
af þeim og verða þar
með hæfari í því að
takast á við ný við-
fangsefni. Um þetta
segir í Heilræðavísum
sálmaskáldsins: „aldrei
sá til æru kemst, sem
ekkert gott vill læra“.
Heilu skólaári á eftir
Pisa-könnunin er eina alþjóðlega
samanburðarmælingin sem gerð er
hér á landi á skólakerfinu. Hún gef-
ur veigamiklar og samræmdar upp-
lýsingar um þróun skólastarfs frá
einum tíma til annars. Hún er gerð
á þriggja ára fresti og niðurstöður
hennar voru síðast birtar 2016. Þá
gaf hún ótvíræðar vísbendingar um
að nemendur hér væru heilu skóla-
ári á eftir jafnöldrum sínum í öðrum
löndum, og að árangur íslenskra
grunnskóla væri sá lakasti á
Norðurlöndum.
Taka ekki mark á mælingum
Allir ábyrgir stjórnmálamenn
bregðast tafarlaust við slíkri fall-
einkunn með greiningu á vandanum
og átaki til úrbóta. Þetta hafa
sveitarfélög gert hér á landi með
góðum árangri, s.s. Seltjarnarnes og
Reykjanesbær. Hjá borgarstjórnar-
meirihlutanum í Reykjavík kveður
hins vegar við annan tón. Þau skella
skuldinni á prófið. Þegar við sjálf-
stæðismenn lögðum fram tillögu í
borgarstjórn um að Pisa-niðurstöð-
urnar yrðu greindar og kennslu-
hættir styrktir í þeim þremur grein-
um sem könnunin nær til, var til-
lögunni vísað til skóla- og frístunda-
sviðs Reykjavíkur. Til hennar hefur
ekkert spurst á annað ár. Þegar til-
laga okkar var til umfjöllunar lagði
meirihlutinn fram dæmigerða bók-
un þar sem lítið er gert úr áreiðan-
leika Pisa-mælinganna. Í bókun
meirihlutans segir: „Eins og margir
fræðimenn hafa bent á er PISA-
könnunin hvorki algildur né sérlega
nákvæmur mælikvarði á gæði skóla-
starfs en niðurstöðurnar gefa vís-
bendingar sem mikilvægt er að taka
alvarlega jafnt á landsvísu sem og í
borginni í því augnamiði að bæta
þurfi námsárangur í lestri, náttúru-
vísindum og stærðfræði.“
En í þessum efnum hefur bara
ekkert verið tekið alvarlega hjá
borgaryfirvöldum. Það sýna best
niðurstöður lesskimunar í öðrum
bekk, árið 2017, sem benda til þess
að 63% barna við lok annars bekkj-
ar geti lesið sér til gagns, sem er
4,5% lægra hlutfall en árið 2016. Sú
könnun sýnir einnig að staða reyk-
vískra grunnskóla er hér afar mis-
munandi í þessum efnum. Í þeim
skóla sem best stendur geta 85%
nemenda lesið sér til gagns, sam-
kvæmt fimm ára meðaltali 2013-
2017, en einungis 40% í þeim skóla
sem verst stendur.
Þetta sýnir mikla
afturför.
Erlendir nemendur
standa verr en
íslenskir
Skýrsla Norrænu
ráðherranefndarinnar
sem birt var fyrir fá-
einum dögum lýsir vel
alvarlegu ástandi í ís-
lenskum grunnskólum:
Brottfall úr skóla er
hér langmest á Norð-
urlöndum. Brottfall
hér á landi er tæplega tvisvar sinn-
um meira en meðaltal brottfalls í
Evrópu. Menntunarstig hér á landi
er lægst af öllum löndunum á
Norðurlöndum. Í skýrslunni er
áréttað að grunnskólanemendur
komi hér langverst út úr Pisa-
könnunum og að Ísland sé eina
landið á Norðurlöndum sem sé und-
ir meðaltali OECD.
Síðast en ekki síst sýna Pisa-
prófin að hér er mestur munur á
getu nemenda sem hafa íslensku að
móðurmáli og þeirra sem hafa það
ekki. Einkunnir þeirra nemenda
sem hafa íslensku að móðurmáli
voru 23% hærri en hinna og er mun-
urinn hvergi meiri. Skólakerfið hef-
ur því brugðist skyldu sinni hrapal-
lega gagnvart börnum sem hafa
annað móðurmál en íslensku. þau
hafa ekki fengið þann kennslu-
fræðilega stuðning sem þau þurfa. Í
kennslu minni á grunnskólastigi til
margra ára varð mér ljóst hve slík-
ur stuðningur er mikilvægur til að
þessi börn hafi sömu tækifæri til að
afla sé menntunar rétt eins og þeir
nemendur sem hafa íslensku að
móðurmáli.
Falleinkunn meirihlutans
Auðvitað er Pisa-könnun ekki „al-
gildur“ mælikvarði. Engin könnun
er það. En hér ber samt allt að
sama brunni.
Samanburður er forsenda allra
framfara og forsenda þess að hug-
tökin framför eða afturför hafi
merkingu en séu ekki innantóm
slagorð. Þeir sem hafa dálæti á slag-
orðum, sýna samanburði og rann-
sóknum yfirleitt tómlæti. Skætingur
og tómlæti borgaryfirvalda gagn-
vart alvarlegum niðurstöðum einnar
virtustu alþjóðamælingu á árangri
skólastarfs, sem um getur, og tóm-
læti þeirra gagnvart eigin mæl-
ingum á lestrargetu grunnskóla-
barna, verður vonandi til þess að
kjósendur gefi borgarstjórnarmeiri-
hlutanum falleinkunn.
Skollaeyru
í skólamálum
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur
» Allir ábyrgir stjórn-
málamenn bregðast
tafarlaust við slíkri fall-
einkunn með greiningu
á vandanum og átaki til
úrbóta.
Marta
Guðjónsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.