Morgunblaðið - 17.02.2018, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavél tekur 17 kg og
þurrkari tekur 10 kg
Amerísk
gæða
heimilistæki
Við hjónin fórum til
Möltu í nóvember
2016, sem er ekki í
frásögur færandi. Það
sem knýr mig til að
setja þessi orð á blað
er óheiðarleiki þessara
tveggja flugfélaga.
16. nóvember 2016
áttum við hjónin pant-
að flug með Lufthansa
frá Möltu til Frank-
furt klukkan 13.10.
Mættum tímanlega og vorum kom-
in að réttu hliði tveim tímum fyrir
brottför. Þá var skráð seinkun á
skjá, til klukkan 13.30. Flugvélar
komu og fóru og við biðum. Klukk-
an 13.30 eru allir kallaðir að brott-
fararhliði, þar beðið í 20 til 30 mín-
útur. Þá er tilkynnt um meiri
seinkun. Flugvélar koma og fara.
Vel flestir farþegar voru gamalt
fólk, Þjóðverjar, margir í hjólastól-
um. Einn farþeginn sagðist hafa
heyrt um vont veður, en hvar vissi
hann ekki. Klukkan 14.00 spurði ég
starfsmann við brottfararhliðið
hvort eitthvað væri að. „Nei, þín
vél var að lenda“. Flugvélar koma
og fara.
Rétt seinna er tilkynnt að okkar
flug sé fellt niður, ná í farangurinn
og mæta í brottfararsal. Þeim boð-
um hlýtt. Hvað svo? Allir í röð, 180
farþegar, afgreiðsluborð í fjarska
og þrír starfsmenn þar að reyna að
bjarga gamalmennunum. Kona
kemur með blað – fara aftur niður í
bæ, þar á hótel og koma aftur eftir
hádegi á morgun og þá verði önnur
vél til Frankfurt. Ég sagði konunni
að ég væri þá að missa af flugi
mínu til Íslands með WOW. Stutt
svar „Þitt vandamál“.
En var þá flug með WOW þar-
næsta dag frá Frankfurt til Ís-
lands. Hringja í WOW. Eftir að
hafa hlustað á Bylgjuna í síma
WOW í um 20 mínútur gáfumst við
upp á óvissunni. London, þaðan eru
margar ferðir á dag til Íslands. Air
Malta flugvél var að fara til Lond-
on, ekki truflaði veðrið þá. Vélin
var að fara svo ég
hringdi í dóttur mína á
Íslandi, vel enskumæl-
andi, til að fá hana til
að ná sambandi við
WOW og breyta ferð-
inni okkar. Þegar við
lentum á Heathrow
eftir tvo og hálfan
tíma kom svar dóttur-
innar um að hún væri
búin að vera í síman-
um nánast allan tím-
ann síðan ég hringdi í
hana og að henni hefði
loksins tekist að fá
Indverjann, sem svaraði í símann
fyrir WOW, til að skilja að það var
beðið um breytingu á farseðlum frá
London í staðinn fyrir Frankfurt.
Loksins breytti hann farinu okkar,
en var jafn skilningssljór vegna
breytingarinnar. En breytingin
kostaði sitt. Við vorum búin að
borga Frankfurt-Ísland 34.195 en
breytingin kostaði 28.792 krónur.
Flug hjá WOW var því London
-Keflavík 62.987. Til að bíta höfuðið
af skömminni var auglýsing í blaði
um borð í WOW-vélinni: London
-Keflavík með WOW 9.900 aðra
leið. Okkar fargjald því rúmlega
300% hærra. Lággjaldaflugfélag,
nei ekki í mínum huga.
Lufthansa endurgreiddi strax
fluglegginn Malta-Frankfurt en
ekkert annað og bar fyrir sig
vondu veðri, en þá eru flugfélög
stikkfrí. Tap okkar var hótelið í
Frankfurt, algert þjónustuleysi
WOW, flugfar til London og okur á
lélegri þjónustu WOW. Heildar-
aukakostnaður okkar var því um
200.000 krónur.
Mín skoðun er hins vegar sú að
Lufthansa átti við skæru-verk-
fallsaðgerðir flugmanna sinna að
stríða. Þeir hafa líklega sett merki-
legri flugleið businessmanna í
stopp, en stjórnendum Lufthansa
þótt betra, fjárhagslega, að láta
ellibelgi, sem voru í orlofi á Möltu,
vera eina nótt í viðbót þar, það
væri ódýrara fyrir Lufthansa.
Starfsmenn Lufthansa komu veður-
kvittinum af stað á flugvellinum á
Möltu, veðri sem enginn tók eftir
og þegar ég skoðaði flightradar í
símanum mínum var bullandi flug-
umferð í og við Möltu og Frankfurt
og flugvélar að koma og fara af
flugvellinum á Möltu. Ég skoðaði
líka veðrið á netinu og hvergi var
neitt að sjá að veðri á fyrirhugaðri
flugleið okkar.
Af hverju er ég að skrifa þetta
15 mánuðum eftir að atburðir áttu
sér stað. Jú, ég er búinn að standa
í skrifum við nánast vel flesta sem
að flugmálum koma norðan mið-
baugs. Allir boðnir og búnir að
þjónusta mig og mína líka, nema
Lufthansa sem svara öllu með yfir-
drifinni kurteisi um óveðrið á
Möltu og sakleysi þeirra. Þeir
sendu mér nokkrar blaðsíður af
skýringum sem sérfræðingar einir
skilja. Bjóða mér að njóta þjónustu
þeirra aftur. Nei, takk, ég læt ekki
svíkja mig og klóra í veskið mitt
aftur af þeirra hálfu. Lufthansa og
WOW fara á válista hjá mér. Lág-
gjaldaflugfélag, neytendaþjónusta –
nei takk, það er ekki til þarna.
Hrakfarir í viðskiptum
við Lufthansa og WOW
Eftir Önund
Jónsson » Starfsmenn Luft-
hansa komu veður-
kvittinum af stað á flug-
vellinum á Möltu, veðri
sem enginn tók eftir.
Önundur
Jónsson
Höfundur er fyrrverandi yfirlög-
regluþjónn á Ísafirði
kjarrholt6@simnet.is
Hún er einkennileg
árátta sérvitringanna
í borgarstjórninni að
vilja sífellt troða sér-
visku sinni og ein-
kennilegum uppá-
tækjum upp á okkur
borgarana án þess að
spyrja okkur einu
sinni álits, og virðist
ekki koma skoðanir
okkar neitt við. Nú á
aftur að reyna að
koma því til leiðar, að ýmis dýr
geti fengið far með strætó. Það er
víst áreiðanlegt, að margir munu
ekki koma inn í strætisvagna
borgarinnar eftir það. Flestir hafa
nú haldið, að strætisvagnar væru
fyrst og fremst fyrir fólk, og til
þess voru þeir gerðir, en með því
að leyfa dýraflutninga með strætó
er ljóst, að það mun verða minna
pláss fyrir fólk í vögnunum, þar
sem dýr og það í búrum taka sitt
pláss þar, sem sérvitringarnir í
Ráðhúsinu hugsuðu greinilega
ekki út í, þannig að þau sæti, sem
fólk notar daglega í dag, munu
verða lögð undir búrin með dýr-
unum. Er það eitthvert vit? Ég á
líka eftir að sjá, hvernig það getur
farið saman að hafa ketti, páfa-
gauka og mýs í sama vagni, jafn-
vel þótt allt sé í búrum. Ég geri
heldur ekki ráð fyrir, að fólk, sem
hefur gargandi páfagauka heima
hjá sér, kæri sig mikið um að hafa
það yfir sér í strætisvögnunum
líka, og fyndist nóg að hafa þann
hávaða heima hjá sér. Einhvers
staðar verður að vera friður fyrir
þessu. Mér er líka spurn: Til
hvers ætti fólk að vera með páfa-
gaukana sína og önnur smádýr í
strætisvögnum? Varla færi fólk
með þetta í vinnuna eða hvað? Ég
veit ekki til þess, að dýr séu leyfð
á vinnustöðum almennt, enda
mundi verða lítill friður fyrir slíku
þar. Ég veit heldur ekki til þess,
að atvinnurekendur hafi leyft slíkt
til þessa. Hvað á fólk þá að taka
þetta með sér í strætisvagna – og
hvert? Þess utan verður alltof
mikil hávaðamengun af þessu í
strætisvögnunum, svo og þungt
loft. Ég sé líka fyrir mér, að for-
eldrar með smábörn í kerrum
mundu varla geta nýtt sér strætis-
vagnaþjónustuna eftir þetta, þar
sem það verður varla pláss fyrir
kerrur og vagna í vögnunum inn-
an um búrin. Það er því ljóst, að
fólk mun nota einkabílana í enn
meira mæli eftir þetta, auk þess
sem leigubílastöðvarnar munu
stórgræða á þessu líka. Það segir
sig sjálft, enda mun
stór hópur, sem ann-
ars hefur ekkert á
móti dýrum yfirleitt,
ekki geta hugsað sér
að vera með þessu í
strætisvögnum í því
þunga lofti og hávaða-
mengun, sem leiðir af
þessu, ekki síst of-
næmissjúkir, fyrir nú
utan plássleysið fyrir
fólkið, sem óhjá-
kvæmilega yrði við-
varandi meðan á
þessu stendur. Það er því nokkuð
ljóst, að mannlegum farþegum
mun fækka stórlega á þessu
reynsluári, og tilraunastarfsemin
dæmd til að mistakast. Það segir
sig sjálft. Hins vegar má til sanns
vegar færa, að ef leyfa ætti nokkr-
um dýrum að vera í vögnunum, þá
ættu svokallaðir blindrahundar að
hafa þar algeran forgang. Þeir eru
leiðsöguhundar hinna blindu og
sem slíkir vinnuhundar, sem trufla
engan neins staðar. En að hafa
alls konar óskyld dýr inni í vögn-
unum hver innan um önnur er al-
gert rugl, finnst mér, enda ekki
við öðru að búast, þar sem þessi
borgarmeirihluti er annars vegar,
og virðast ekki vera annað nú orð-
ið en jólasveinar og álfar út úr
hól.
Þar sem ég er ein þeirra, sem
hafa ofnæmi fyrir dýrum, þá mun
ég láta mig vanta í strætisvagnana
næsta árið, meðan þessi tilrauna-
starfsemi með dýraflutninga
stendur yfir, enda verður líka
áreiðanlega lítið um sæti þar fyrir
fólk eftir það.
Ég hefði svo gaman af því að
vita, hvað nýkjörnum oddvita
sjálfstæðismanna í komandi kosn-
ingum, þeim skynsama Eyþóri
Arnalds, finnst um þetta uppá-
tæki. Í framhjáhlaupi vildum við,
sem berjumst fyrir friðun og varð-
veislu Víkurkirkjugarðs, vita, hvar
Eyþór stendur í þeim málum og
álit hans á hóteli á þeim helga
stað. Ég vona líka, að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði ráðandi afl í
borginni eftir kosningarnar að
vori komanda, svo að eitthvert viti
borið fólk verði þar við stjórnvöl-
inn næsta kjörtímabil. Mál er að
linni vitleysunni, sem hefur verið
þar við lýði alltof lengi.
Um dýrastrætó
og fleira
Eftir Guðbjörgu
Snót Jónsdóttur
Guðbjörg Snót
Jónsdóttir
»Einhvers staðar
verður að vera frið-
ur fyrir þessu.
Höfundur er guðfræðingur
og fræðimaður.
Allt um
sjávarútveg