Morgunblaðið - 17.02.2018, Page 35
MINNINGAR 35Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er Guðmundur
Guðmundsson. Kvennakór Akureyrar
syngur. Organisti er Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safn-
aðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr. Hild-
ur Eir Bolladóttir og Hjalti Jónsson.
AKURINN kristið samfélag | Sam-
koma í Núpalind 1, Kópavogi, kl. 14.
Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Þór Hauksson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir
söng undir stjórn Krisztinu Kalló org-
anista. Sunnudagaskóli á sama tíma í
safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sig-
ríðar og Aðalheiðar. Kaffi og spjall eftir
stundina.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 í umsjá Sigurðar Jónssonar
sóknarprests, Kristnýjar Rósar Gúst-
afsdóttur djákna og Benjamíns Hrafns
Böðvarssonar guðfræðinema. Brúður,
bænir, söngur, sögur.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11.
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Keiths Reed, tónlistarstjóra kirkj-
unnar. Meðhjálpari er Sigurður Þór-
isson og prestur er Hulda Hrönn M.
Helgadóttir héraðsprestur. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma undir stjórn
Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og
samfélag á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Um-
sjón með stundinni hefur Sigrún Ósk.
Konudagsmessa kl. 17 í samstarfi við
Kvenfélag Álftaness í Bessastaða-
kirkju. Kvenfélagskonur þjóna við at-
höfnina, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
prédikar og þjónar ásamt Margréti
Gunnarsdóttur djákna og sr. Hans
Guðberg Alfreðssyni. Lærisveinar
Hans leika undir söng undir stjórn Ást-
valdar Traustasonar. Kvenfélags-
kleinur í boði í messukaffinu.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjón-
ar. Organisti er Örn Magnússon. Fé-
lagar úr Kór Breiðholtskirkju syngja.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Steinunnar Þorbergsdóttur og Stein-
unnar Leifsdóttur. Eftir messu er kaffi-
sala Hollvinafélags Breiðholtskirkju
Ensk messa kl. 14. Sr. Toshiki Toma
þjónar, organisti er Örn Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Hreiðar Örn, Ragnar Bjarni, Jónas
Þórir og Pálmi leiða samveruna. For-
eldrar og afar og ömmur hvött til þátt-
töku með börnunum. Guðsþjónusta
kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur, Jón-
as Þórir við hljóðfærið. Messuþjónar
aðstoða. Prestur Pálmi Matthíasson.
Heitt á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Gunnar Sigurjónsson. Ávextir
andans leiða söng. Sunnudagaskóli í
kapellu á neðri hæð. Veitingar í safn-
aðarsal að messu lokinni.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa sunnud. kl. 8.30
á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13
á pólsku og kl. 18 á ensku. Messa
virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 (vi-
gilmessa).
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra
Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar.
Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu í um-
sjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns.
Dómkórinn og organisti er Kári Þor-
mar. Bílastæði við Alþingishúsið.
Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Fritz Már
leiðir stundina, Díana Ósk fer með
hugleiðingu og Kristján Hrannar sér
um tónlistina.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Kristín
Kristjánsdóttir djákni þjónar og flytur
hugvekju. Kór kirkjunnar syngur létt
lög undir stjórn Arnhildar Valgarðs-
dóttur organista. Reynir Þormar spilar
á saxófón. Meðhjálpari Kristín Ingólfs-
dóttir. Í tilefni dagsins bjóða karlar
upp á nýbakaðar vöfflur með rjóma
eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson leiðir stundina. Fríkirkju-
bandið og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni organista. Fermingarbörn og
fjölskyldur þeirra eru hvött til að
mæta.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Stefanía Guðlaug
Steinsdóttir þjónar. Sameiginlegt upp-
haf í messu. Kór Glerárkirkju leiðir
söng undir stjórn Valmars Väljaots org-
elleikara. Umsjón með sunnudaga-
skóla: Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir
djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson
prédikar og þjónar. Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng og organisti er Hákon
Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í
Spöng | Selmessa kl. 13. Séra Grétar
Halldór Gunnarsson prédikar og þjón-
ar. Vox Populi leiðir söng og organisti
er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli, Daníel Ágúst, Ásta og
Sóley taka á móti börnunum í mess-
unni sem hefst kl. 11 og svo fara þau í
sitt starf. Í messunni þjónar sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir ásamt messu-
þjónum. Samskot til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Organisti er Ásta Haralds-
dóttir og félagar úr kirkjukór Grens-
áskirkju syngja. Kaffi á undan og eftir
messu. Bænastund kl. 10.15. Hvers-
dagsmessa á fimmtudag kl. 18.10-
18.50.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur Sigurjón Árni Eyjólfsson. Org-
anisti Hrönn Helgadóttir og kvennakór
Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
umsjá Sigurðar Óskars og Hákons
Darra. Kirkjuvörður Lovísa Guðmunds-
dóttir. Kaffisopi í boði eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Konu-
dagsmessa kl. 11. Karlakórinn Þrestir
syngur undir stjórn Ástvaldar Trausta-
sonar. Prestur Stefán Már Gunn-
laugsson. Organisti Guðmundur Sig-
urðsson. Sunnudagaskóli kl. 11 með
Erlu Björgu og Hjördísi Rós. Súpa,
kaffi og djús á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Umsjón með barnastarfi hafa Hreinn,
Karítas Hrundar og Ragnheiður. Bæna-
stund mánud. kl. 12.10. Fyrirbæna-
guðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár-
degismessa miðvikud. kl. 8 og
hádegiserindi kl. 12. Gerður Kristný rit-
höfundur talar. Kyrrðarstund fimmtu-
dag kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Séra Helga Soffía Konráðsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kór Háteigs-
kirkju syngur. Organisti er Þorvaldur
Örn Davíðsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. Prestur er Sunna Dóra Möller.
Kór Hjallakirkju leiðir söng og organisti
er Guðný Einarsdóttir. Gengið verður til
altaris. Sunnudagaskóli á sama tíma í
safnaðarheimili undir stjórn Markúsar
og Heiðbjartar.
HRUNAKIRKJA | Messa unga fólks-
ins kl. 11. Ungt fólk syngur, flytur bæn-
ir og ræður og túlkar boðskapinn út frá
sér.
HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa í
Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 14.
Barnakórinn í Sandgerði syngur undir
stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur.
Barn borið til skírnar. Keith Reed við
flygilinn. Messan er fyrir báðar sóknir
prestakallsins.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Kirkjukórinn leiðir söng
undir stjórn Miklósar Dalmay. Jón
Ragnarsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Samkoma á
spænsku kl. 13. Reuniónes en esp-
añol. Samkoma á ensku kl. 14. Engl-
ish speaking service.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma kl. 13 með lofgjörð, fyr-
irbæn og vitnisburðum. Eftir stundina
verður kaffi og samfélag.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Konudags-
messa og sunnudagaskóli kl. 11, sr.
Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum.
Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir (Sigga
Stína) flytur hugvekju. Eftir samveruna
er súpa í Kirkjulundi ásamt brauði.
Miðvikudagur 21. febrúar. Kyrrð-
arstund kl. 12 í kapellu vonarinnar í
umsjón presta og organista. Súpa og
samfélag eftir stundina. Bænastund
með flóttafólki og innflytjendum kl.
13.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14. Kirkjukórinn leiðir söng
undir stjórn Miklósar Dalmay. Jón
Ragnarsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari.
KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
sóknarprestur þjónar fyrir altari og
Ingimar Helgason guðfræðinemi pré-
dikar. Kór Kópavogskirkju syngur undir
stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj-
unnar. Bergljót Arnalds syngur ein-
söng. Sunnudagaskóli í safnaðarheim-
ilinu Borgum á sama tíma, umsjón
hafa Anna Lovísa Daníelsdóttir og Jó-
hanna Elísa Skúladóttir.
KVENNAKIRKJAN | 25 ára afmæl-
ismessa Kvennakirkjunnar í Neskirkju
við Hagatorg klukkan 20. Séra Agnes
M. Sigurðardóttir biskup, séra Elína
Hrund Kristjánsdóttir, séra Jóhanna
Gísladóttir og séra Ninna Sif Svav-
arsdóttir tala ásamt prestum Kvenna-
kirkjunnar. Anna Sigríður Helgadóttir
syngur einsöng og Aðalheiður Þor-
steinsdóttir sér um tónlist. Kvenna-
kirkjukonur í 25 ár eru sérstaklega
boðnar til að halda upp á tímamótin.
Afmæliskaffi í safnaðarheimilinu.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jóhanna
Gísladóttir þjónar og undirleik annast
Bryndís Baldvinsdóttir. Krúttakór Lang-
holtskirkju tekur lagið undir stjórn Auð-
ar Guðjohnsen og Söru Grímsdóttur.
Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður
og messuþjónar aðstoða við helgi-
haldið. Kaffi, djús og kleinur eftir
stundina.
Starf eldri borgara alla miðvikudaga
kl. 12-15.30.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Kór Laugarneskirkju. Sr. Davíð Þór
Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Sunnudagaskóli á meðan. Kaffi og
samvera í safnaðarheimilinu á eftir.
Miðvikudagur 21. febrúar. Helgistund
kl. 14 Félagsmiðstöðinni Dalbraut 18-
20 með börnum úr barnastarfi Laug-
arneskirkju.
Fimmtudagur 22. febrúar. Kyrrðar-
stund kl. 12. Tónlist, hugvekja, altaris-
ganga og fyrirbænir. Súpa og sam-
vera.
Samvera eldri borgara kl. 13.30.
Helgistund kl. 16 Hásalnum Hátúni
10 með sr. Davíð Þór og Hjalta Jóni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl.
20. Kór Lindakirkju syngur undir
stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Dís
Gylfadóttir þjónar.
MOSFELLSKIRKJA í Grímnesi |
Föstumessa 21. febrúar kl. 20.30.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur og
Kristján Valur Ingólfsson Skálholts-
biskup annast prestsþjónustuna.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Sunnudagaskóli. Umsjón Ása Laufey
og Ari. Eftir messu verður myndlistar-
sýningin Crux opnuð, en á henni eru
verk eftir hollenska listamanninn
Kees Visser.
SALT kristið samfélag | Sameigin-
legar samkomur Salts og SÍK kl. 17
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar.
Kirkjukórinn og unglingakórinn syngja
undir stjórn Edit Molnár. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í umsjón æskulýðs-
leiðtoga. Sparisúpumáltíð í safn-
aðarheimilinu að messu lokinni til
styrktar kaupum á flygli í kirkjuna.
Lionsmenn gefa öllum konum sem
koma til kirkju eina rós í tilefni konu-
dags.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Konudagurinn haldinn hátíðlegur. Sr.
Kristín Pálsdóttir þjónar. Friðrik Vignir
Stefánsson leikur á orgel. Konur úr
Kvenfélaginu Seltjörn taka þátt. Allir
sálmar sem eru sungnir eru eftir kon-
ur. Leiðtogar sjá um sunnudagaskól-
ann. Félagar í Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju syngja. Kaffiveitingar og
samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Prestur er Egill Hall-
grímsson. Organisti er Jón Bjarnason.
STÓRUBORGARKIRKJA Gríms-
nesi | Bæna- og kyrrðarstund sunnu-
dagskvöld kl. 20.30. Egill Hallgríms-
son sóknarprestur leiðir stundina.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Lilja D. Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra
flytur árvarp. Jóna Hrönn Bolladóttir
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Helgu Björk Jónsdóttur djákna og
messuþjónum. Gospelkór Jóns Vídal-
íns og barnakór Vídalínskirkju syngja
undir stjórn Davíð Sigurgeirssonar og
Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur sem
jafnframt syngur einsöng. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu. Súpa í
safnaðarheimilinu eftir messu. garda-
sokn.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Kvenna-
kór Hafnarfjarðar syngur undir stjórn
Ernu Guðmundsdóttur. Prestur Sig-
finnur Þorleifsson. Sunnudagaskóli
kl. 11. Hressing í safnaðarsalnum eft-
ir guðsþjónustur.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11.
Orð dagsins:
Freisting Jesú.
(Matt 4)
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Grundarkirkja í Eyjafirði
✝ Guðrún fædd-ist í Ölfus-
hreppi 23. ágúst
1921. Hún lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 10. nóvember
2017.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Steinunn Jóns-
dóttir frá Þor-
grímsstöðum í Ölf-
usi, f. 17.5. 1892, d.
13.12. 1985, og Stefán Bjarna-
son frá Vestur-Stokkseyrarseli,
f. 27.10. 1887, d. 22.5. 1935.
Systkini Guðrúnar voru Ólafur,
Lilja, Jón, Bjarni og Stefán. Þau
eru öll látin. Eiginmaður Guð-
rúnar var Ingólfur Gíslason frá
Langagerði í Hvolhreppi, f. 6.4.
1915, d. 14.5. 1992. Börn þeirra
eru: 1a) Steinunn Ingólfsdóttir,
dætur hennar eru: 1) Guðrún,
maki Grímur Gíslason. Dætur
hennar eru Tinna Karen og
Berglind. 2) Inga Hrönn, maki
Benedikt Helgi
Benediktsson. Syn-
ir þeirra eru Bene-
dikt Steinar og
Hrannar Ingi. 3)
Friðrika, sonur
hennar er Steinn
Ingi. 2b) Vigfús
Ingólfsson, dóttir
hans er Guðrún
Inga og börn henn-
ar eru Jóhann Ari,
Elsa Karen, Díana
Lind og Emil Ingi. 3d) Gísli Ing-
ólfsson, maki Linda Hann-
esdóttir. Synir þeirra eru: 1)
Gunnar Ingi, maki Auður Ás-
geirsdóttir. Börn þeirra eru Sól-
veig Lind, Ragnheiður Rós og
Fannar Ingi 2) Sigurður Einar,
maki Elva Dögg Björnsdóttir.
Dóttir þeirra er Rakel. Fyrir á
Sigurður Einar dóttur, Lindu
Kristínu.
Langalangömmu börnin eru
sjö.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Nú ertu farin frá okkur, út í
frelsið, himnasæluna.
Þú kvaddir eins og þú hafðir
óskað þér, sofna að kvöldi og
vakna ekki aftur.
Mamma var falleg og góð
kona, félagslynd, myndarleg til
verka og jafnframt rösk, sama
hvort það var bakstur eða elda-
mennska, hannyrðir eða annað.
Allt var gert af sama skörungs-
skap, sem henni var áskapaður.
Mamma flutti til Vestmanna-
eyja 17 ára gömul. Þar kynntist
hún föður mínum Ingólfi Gísla-
syni matsveini. Faðir minn lést
14. maí 1992, yndislegur maður
og alls staðar vel liðinn.
Mamma flutti á Hrafnistu í
Reykjavík 1997. Hún undi sér
mjög vel þar og tók þátt í öllu
félagsstarfi. Hún stofnaði spila-
klúbb með öðrum íbúum Hrafn-
istu sem margir urðu góðir vin-
ir hennar. Þeir eru allir fallnir
frá á undan henni. Við viljum
þakka starfsfólki Hrafnistu fyr-
ir einstaka umönnun og hlýju.
Far þú í friði, friður Guðs
þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
elsku mamma. Þín dóttir,
Steinunn.
Amma Guðrún, móðuramma
okkar, er fallin frá. Hún lést að
morgni 10. nóvember sl. á
Hrafnistu Reykjavík, 96 ára að
aldri.
Amma fór eins og hún óskaði
helst, sofnaði að kveldi og svaf
áfram, svefninum langa.
Amma var þessi duglega
kona sem gat allt og féll ekki
verk úr hendi. Fram að gosi
(1973) vorum við systur mikið
hjá ömmu og afa Inga á Hóla-
götunni í Vestmannaeyjum.
Minningar úr eldhúsi ömmu
á Hólagötunni koma upp í hug-
ann.
Garðurinn á Hólagötunni var
vel nýttur til leikja og þegar
við urðum svangar fórum við að
eldhúsglugganum hennar
ömmu og alltaf átti hún til eitt-
hvað gott handa okkur, allt
heimagert auðvitað. Amma var
dugleg að sulta og var það
ósjaldan að við fengum volga
rabarbarasultu á brauðið. Heitt
kakó og brauð að dýfa í var í
uppáhaldi eftir skóla á veturna
þegar kalt var í veðri.
Amma bjó á Hrafnistu síð-
ustu árin sín og sagði hún oft
eftir að hún kom þangað fyrst
að henni fyndist hún vera á 5
stjörnu hóteli.
Amma var félagslynd. Hún
var í spilaklúbbi og fór í allar
ferðir sem buðust á vegum
Hrafnistu. Það var stundum
svo mikið um að vera hjá henni
að ekki var alltaf hægt að gera
ráð fyrir að hún væri „heima“
þegar við komum í heimsókn.
Amma var mjög trúuð og var
eftirfarandi bæn í uppáhaldi
hjá henni.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Hvíl í friði, elsku amma.
Guðrún Hjörleifsdóttir
Inga Hrönn Hjörleifsdóttir
Friðrika Hjörleifsdóttir.
Guðrún
Stefánsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir