Morgunblaðið - 17.02.2018, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
✝ IngigerðurKristín Jóns-
dóttir fæddist 21.
september 1930 á
Öndólfsstöðum í
Reykjadal. Hún lést
á Heilbrigðis-
stofnun Norður-
lands á Húsavík 8.
febrúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Stef-
ánsson, f. 8.4. 1900,
d. 24.6. 1989, og Þórveig Kristín
Árnadóttir, f. 5.9. 1908, d. 23.6.
1935. Síðari kona Jóns var Guð-
rún Jónsdóttir, f. 15.7. 1899, d.
11.5. 1988. Systkini Ingu eru:
Stefán Þengill, f. 26.4. 1929, d.
19.3. 2001, Steingerður Sólveig,
f. 8.5. 1935, d. 12.11. 2015, Árni
Guðmundur, f. 10.11. 1933, d.
18.12. 2004, og Hólmfríður Val-
gerður (hálfsystir), f. 19.12.
1944.
Hinn 3.12. 1955 giftist Inga
Þormóði Ásvaldssyni, f. 6.3. 1932
á Breiðamýri. Foreldrar hans
voru Ásvaldur Þorbergsson frá
Litlu-Laugum og Sigríður Jóns-
dóttir frá Auðnum.
Börn Ingu og Þormóðs eru 1)
Þórveig Kristín, f. 11.5. 1956.
Sonur hennar er Freyr Ingi
Björnsson, f. 2.3. 1981, sambýlis-
kona hans er Þórhildur Guð-
steinsdóttir, f. 26.1. 1974, börn
þeirra eru Saga Sól, f. 21.8. 2013,
og Frosti Valur, f. 16.8. 2017. 2)
Ásvaldur Ævar, f. 15.3. 1958,
eiginkona hans er Laufey Skúla-
dóttir, f. 19.5. 1958. Börn þeirra
eru Aðalgeir, f. 13.9. 1985, eigin-
kona hans er Lucia Cabrera, f.
12.11. 1988, dóttir þeirra er
Kara Ísabella, f. 29.11. 2017; og
Arney, f. 7.7. 1989, sambýlis-
maður hennar er Kristján Sigur-
ólason, f. 14.10. 1988, dóttir
þeirra er Bjarkey, f. 10.10. 2014.
3) Jón Sigurður, f. 9.3. 1959, eig-
inkona hans var Sólveig Jóns-
dóttir, f. 8.8. 1963, d. 14.4. 2011.
Börn þeirra eru
Inga Ósk, f. 1.12.
1993, og Jón Þór, f.
1.11. 1995. 4) Sig-
ríður Sólveig, f.
12.10. 1961, eigin-
maður hennar var
Sigurbjörn Þor-
steinsson f. 11.11.
1958, þau skildu.
Dóttir þeirra er
Kristín Rut, f. 11.2.
1996. 5) Svala Guð-
rún, f. 18.7. 1963, eiginmaður
hennar er Baldur Þorgilsson, f.
29.8. 1962. Börn þeirra eru Þor-
gils Jón, f. 31.5. 1997, og Ugla
Þuríður, f. 12.8. 1999. 6) Jörgen
Heiðar, f. 25.11. 1966, eiginkona
hans er Gerður Ólafsdóttir, f.
18.11. 1967. Börn þeirra eru
Ólafur Tröster, f. 14.1. 1988,
sambýliskona hans er Þóra El-
ísabet Kristjánsdóttir, f. 3.1.
1983, sonur þeirra er ónefndur,
f. 4.2. 2018, sonur Ólafs er Tinni
Tröster, f. 28.2. 2015, en sonur
Þóru er Hallgrímur Máni Karls-
son, f. 6.9. 2004; og Gígja, f. 2.1.
1993. 7) Sigurveig Dögg, f. 20.1.
1972, sambýlismaður hennar er
Jóhann Sigmarsson, f. 9.12.
1969. Sonur þeirra er Sigmar
Þorri, f. 20.9. 2011.
Inga sótti nám í Héraðsskól-
anum á Laugum og Húsmæðra-
skólanum á Laugum. Þá vann
hún við Sjúkrahúsið á Akureyri
einn vetur, var sumarlangt í
kaupavinnu í Hólmatungu í Jök-
ulsárhlíð og einn vetur ráðskona
við Héraðsskólann á Laugum.
Inga og Þormóður voru bænd-
ur á Ökrum alla tíð. Inga var fé-
lagi í Ungmennafélaginu Efl-
ingu, sat um árabil í stjórn
Kvenfélags Reykdæla og
Krabbameinsfélags Suður-
Þingeyinga og söng í kirkjukór
Einarsstaðakirkju í yfir 60 ár.
Útför Ingu fer fram frá
Einarsstaðakirkju í dag, 17.
febrúar 2018, klukkan 14.
Inga tengdamóðir mín var
bóndi og húsfreyja. Hún tók
bæði störfin alvarlega og leysti
þau vel af hendi. Þegar ég fór
að koma í Akra reyndi ég að
hjálpa henni eins og ég gat við
mjaltir og skítmokstur. Við
mjaltirnar þurfti réttu handtök-
in. Þrátt fyrir mikla aðstoð frá
henni hef ég sennilega aldrei
náð þeim, hún var bara miklu
fljótari sjálf. Ég hélt að sökum
stærðar minnar myndi ég geta
afgreitt skítmoksturinn sæmi-
lega en það var ótrúlega erfitt
að hafa í við þessa lágvöxnu en
harðduglegu konu. Viljinn var
tekinn fyrir verkið og mér var
leiðbeint.
Annað var uppi á teningnum
þegar kom að inniverkunum. Ef
manni datt í hug að hreyfa ryk-
sugu, eiga við uppþvott eða
reyna að elda var hún alveg
ómöguleg, fannst hún eiga að
gera þetta sjálf og að eiginlega
væru þetta ekki karlsmanns-
verk. Þarna skynjaði maður
sterkt verkaskiptingu fyrri ára.
Inga var þar fyrir utan með ein-
dæmum ósérhlífin og vinnusöm.
Allir voru alltaf velkomnir, jafn-
vel í kvöldmat. Það var ekkert
mál að vera skyndilega með 15
manns í mat við tvísetið eldhús-
borðið. Svo þegar allir voru
búnir fannst henni sanngjarnt
að hún sæi um uppvaskið. Með
tímanum fannst mér hún linast í
afstöðu sinni til kynjaskiptingar
verkanna og jafnvel sjá skyn-
semina í því að piltar tækju til
hendinni inni þótt hún hafi
kannski aldrei sætt sig alveg við
þetta.
Inga mátti ekkert aumt sjá
og vildi allt fyrir alla gera. Hún
gat ekki sest við matarborðið
fyrr en allir aðrir voru búnir að
fá sæti. Og þegar hún loksins
settist hafði hún meiri áhyggjur
af því hvort aðrir hefðu nú feng-
ið nóg af öllu á diskinn sinn en
að borða sjálf. Hún var alltaf
boðin og búin að leggja vinnu og
peninga til hinna ýmsu góð-
gerðamála og vildi helst halda
viðskiptum í dalnum. Óþarfi var
að keyra til Húsavíkur þegar
nóg fékkst í Dalakofanum og
maðurinn á ísbílnum fór aldrei
vonsvikinn frá Ökrum. Þrátt
fyrir þetta voru tveir hlutir sem
hún vildi hafa á ákveðinn hátt. Í
fyrsta lagi þurfti að heyra
veðurskeytin. Þetta var senni-
lega mjög áríðandi fyrir bændur
sem eru háðir veðrinu, sjálfur
náði ég ekki að halda athyglinni
nógu lengi til að heyra skeytin
frá Staðarhóli. Í öðru lagi var
það Óskastundin á Rás 1 á
föstudagsmorgnum. Þá mátti
helst ekki tala. Mikið var gaman
að sjá hana ljóma upp við gömlu
lögin sem hún þekkti svo vel.
„Hlustaðu! Þetta er Rósin hans
Fikka.“ Og svo söng hún með.
Það var ákaflega ánægjulegt
að fá að fara með henni í henn-
ar fyrstu og einu utanlandsferð.
Þá var farið í Svissnesku Alp-
ana. Þar var landbúnaðurinn
kunnuglegur en frábrugðinn því
sem hún þekkti og var hún for-
vitin um ýmsa hluti: Kýr og
kúabjöllur, strútar, refir og
aldagamlar hallir með sínum
innanstokksmunum. Margoft
minntist hún á þessa ferð við
mig og það varð mér æ ljósara
hve vænt henni þótti um að hafa
farið.
En nú er Inga farin annað og
lengra og ég sit eftir og ylja
mér við fallegar minningar. Ég
sendi Þormóði og öðrum að-
standendum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Baldur Þorgilsson.
Elsku amma mín Inga, nú er
komið að kveðjustund og er þá
svo margs að minnast og ótrú-
lega margt að þakka.
Þegar ég var lítil komum við
fjölskyldan frá Húsavík á hverj-
um laugardegi til ykkar afa í
Akra þar sem við borðuðum
grjónagrautinn þinn, sem var sá
allra allra besti. Að ógleymdu
súra slátrinu sem einnig var það
besta og ómissandi með grautn-
um. Í kaffinu var alltaf jólakaka
á boðstólum og þú varst alltaf
jafn hissa að ég skyldi ekki
borða rúsínurnar úr kökunni,
því þær voru bestar að þinni
sögn, svo hlóstu og borðaðir all-
ar rúsínurnar sem ég skildi eft-
ir. Þér féll aldrei verk úr hendi
og var alltaf jafn gaman að
koma að gista í sveitinni og
bralla ýmislegt með þér og læra
af þér. Við vorum ýmist að gá
að hænunum, steikja flatbrauð
eða kleinur eða þú að segja mér
til í einhverri handavinnu. Á
kvöldin sofnaði ég svo á dýnu á
gólfinu hjá þér við að þú söngst
Ó Jesú bróðir besti og bauðst
svo góða nótt.
Þú máttir aldrei neitt aumt
sjá og vildir öllum vel. Þú
geymdir texta á litlum miða í
hnífaparaskúffunni og last
stundum fyrir mig og baðst mig
að hafa alltaf að leiðarljósi:
Gerðu allt það góða sem þú getur,
með öllum þeim ráðum er þú getur,
á allan þann hátt er þú getur,
alls staðar þar sem þú getur,
öllu því fólki er þú getur,
eins lengi og þú framast getur.
(John Wesley)
Ég veit að núna hefur þú það
gott. Fylgist vel með hvort allir
eru búnir að fá sér að borða,
passar upp á það að enginn fari
niður að á eða keyri af stað í
vondu veðri og ert sko aldeilis
forviða, alveg nákvæmlega eins
og þú átt að vera.
Takk fyrir allar stundirnar
sem við áttum saman, þær eru
mér ómetanlegar.
Þín
Inga Ósk.
Elsku Inga amma.
Ég get ekki annað en raulað
vísurnar um hann Gutta þegar
ég hugsa til þín, elsku amma, og
fjósaferðanna okkar saman.
Með fjósakonuslæðu á höfðinu,
alveg eins og þú.
Við mæðgur, Bjarkey og ég,
yljum okkur við góðar minn-
ingar um þig, í ullarsokkunum
sem þú prjónaði svo fallega
handa okkur.
Hvíldu í friði, elsku amma
mín.
Arney.
Þó svo að það hljómi kannski
undarlega er varla hægt að
hugsa sér að borða tómata,
gúrku eða vínber án þess að
vera þér ævinlega þakklátur
fyrir allt sem þú hefur gefið
okkur.
Þú hefur án efa hlýjað öllum
um hjartarætur sem hafa ein-
hvern tímann komið í Akra.
Hvort sem það var með vænt-
umþykju og stóru hjarta eða
ullarleistum, vettlingum, veit-
ingum, gestrisni eða einfaldlega
góðri og hlýrri nærveru þinni
og kærleik sem var þér svo eðl-
islægur.
Þú hefur sannarlega kennt
okkur að vera betri manneskja í
gegnum árin og þín er sárt
saknað. Við munum taka boð-
skap þinn með okkur um
ókomna tíð.
Nú ætlum við systkinin að
kveðja þig með ljóði sem ég
samdi fyrir nokkru.
Stærri en hún gefur sér,
fæðir og klæðir heilan her.
Inga amma af öðrum ber,
sérhver maður sér það hér.
Njóttu hvíldarinnar, elsku
amma mín.
Aðalgeir.
Það hefur verið hefð í Ön-
dólfsstaðaferðum í gegnum tíð-
ina að líta við hjá Ingu frænku
og Þormóði á Ökrum. Setjast á
bekkinn í eldhúsinu, þiggja
kaffisopa, kleinur eða jólaköku
og jafnvel bláber úr brekkunni
ofan við bæinn. Fátt var betra
en súra slátrið hennar Ingu
frænku og voru ófáar sendingar
til okkar systra yfir heiðina með
súru slátri, jafnvel grasystingi,
ullarsokkum eða vettlingum á
okkur eða börnin okkar. Inga
hafði sérstaklega þétt og nota-
legt handtak og glampinn í aug-
um hennar sýndi mikla hlýju og
væntumþykju. Við munum
hversu vel hún hugsaði um
eldra fólkið á Öndólfsstöðum.
Eftir að amma fór á sjúkrahúsið
á Húsavík leit hún reglulega til
afa, þreif allt hátt og lágt, hellti
svo upp á kaffi og bar fram
meðlæti sem hún kom með að
heiman. Inga gekk alltaf rösk til
verks, hvort sem það var utan
heimilis eða innan. Hún var lag-
in í höndunum og einstaklega
hjálpleg og góð.
Hún sagði okkur skemmtileg-
ar sögur úr sveitinni, sögur sem
hún mundi svo ótrúlega vel og
lifnuðu við í frásögninni, falleg-
ar minningar um móður hennar
sem hún missti svo ung og
saknaði sárt.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Elsku Þormóður, Akrasyst-
kin og fjölskyldur, innilegar
samúðarkveðjur til ykkar allra.
Guðrún og Védís
Torfadætur.
Inga frænka okkar á Ökrum
er látin og við, sem eitt sinn
vorum krakkarnir á Öndólfs-
stöðum, kveðjum hana með
söknuði og þakklæti. Hugurinn
leitar til baka til áranna þegar
Inga stjórnaði stóru heimili, sá
um börn og bú, mjólkaði kýrnar
kvölds og morgna, tók virkan
þátt í starfi kvenfélagsins, söng
í kirkjukórnum og var alltaf til
staðar þegar gesti bar að garði.
Það er stutt á milli bæjanna,
Öndólfsstaða, þar sem Inga var
borin og barnfædd, og Akra, og
Inga föðursystir okkar þurfti
ekki lengra en þangað til að
finna sér lífsförunaut, hann Þor-
móð sem við kölluðum oftast
Omma, og saman eignuðust þau
allan krakkaskarann. Okkur
skorti því ekki leikfélaga, vorum
hálfur annar tugur barna, þegar
allir eru taldir, og aldursbilið
tveir áratugir.
Það er notalegt að rifja upp
allar góðu stundirnar sem við
höfum átt með Akrafjölskyld-
unni. Allt frá þeim tíma þegar
gamla eldhúsið á Ökrum þjónaði
stórfjölskyldunni þar á bæ og
virtist ekkert muna um þótt við
krakkarnir kæmum þangað inn
eftir leiki sem oftar en ekki fóru
fram þegar vetur voru snjó-
þungir og túnin á milli bæjanna
samfellt svell. Það var stór og
skemmtilegur leikvöllur. Við
munum ekki eftir að Inga sett-
ist niður, en einhvern tíma hlýt-
ur hún að hafa átt sínar rólegu
stundir. Ommi var alls ólíkur
henni, gat gleymt sér við að
leggja kapal eða við lestur. Í
gríni hafði Inga það jafnvel á
orði að engum yrði nokkuð úr
verki nema hún minnti á að
hlutirnir gerðust ekki af sjálfu
sér. Ekki er hægt að minnast
Ingu án þess að kleinurnar
hennar komi upp í hugann, því
þær voru í algjörum sérflokki.
Flatbrauðið sömuleiðis, annálað
um alla sveit. Okkur fannst við
einkar heppin að eiga frænku
sem var alls ekki jafn ströng og
foreldrar okkar, enda átti hún
það til að lauma að okkur ein-
hverju sem hún vissi að var í
uppáhaldi, til dæmis linsoðnum
eggjum. Oft var hún alvarleg,
rétt eins og pabbi okkar, en þau
systkinin gátu líka hlegið svo
dátt saman að tárin tóku að
streyma. Og sönggleðina áttu
þau í sameiningu.
Í tímans rás tók Akraheimilið
breytingum eins og heimili
gera, en einhvern veginn var
Inga alltaf eins, var glöð í
bragði þegar okkur bar að garði
með lífsförunauta og börn sem
komu í heiminn og fengu líka að
njóta þess að heimsækja frænd-
fólkið á Ökrum. Það var alltaf
jafn kærkomið að setjast inn í
eldhús til Ingu, fá þar kaffi og
kleinur og spjalla um stund. Og
ekki má gleyma öllu prjónles-
inu, vettlingum og sokkum, sem
hafa í áranna rás yljað okkur á
höndum og fótum.
Árin liðu, áratugir, og einn
daginn var Inga frænka okkar
orðin gömul og lúin. Samt alltaf
sjálfri sér lík innst inni. Við sjálf
orðin rígfullorðið fólk, en samt
alltaf líka krakkarnir sem við
eitt sinn vorum. Og þannig lifir
Inga frænka okkar í minning-
unni, sístarfandi og vakandi yfir
velferð annarra. Má vera að hún
tylli sér á hornið á eldhúsbekk,
þegar enginn sér til og öllu ver-
aldarvafstri og kleinubakstri
ævinnar er lokið.
Hlýjar kveðjur sendum við
Þormóði og Akrafjölskyldunni
allri. Blessuð sé minning Ingu
okkar á Ökrum.
Öndólfsstaðakrakkarnir;
Aðalsteinn, Þórveig,
Sighvatur, Alma, Sólveig
og Arngerður.
Fyrir góðum sextíu árum
kom ung og falleg stúlka frá
næsta bæ, Öndólfsstöðum, og
settist í húsmóðursæti á Ökrum.
Þó að hún hafi ekki verið langt
að komin hefur þessi flutningur
örugglega kallað á miklar breyt-
ingar og ekki allar léttar í lífi
þessarar ungu, duglegu og heil-
steyptu konu. Fyrst í stað var
sérbýli þeirra Þormóðs bróður
okkar og Ingu ekki stórt, eitt
herbergi og aðgangur að eldavél
og eldhúsborði í 60 fermetra
húsi þar sem tengdamóðirin og
hennar börn fylltu aðra íveru-
staði. Og þó að húsakynnin hafi
verið þröng var sambúð Ingu og
móður okkar alveg einstaklega
góð því báðar virtu og mátu vel
kosti hinnar.
Og ástin sigrar flesta erfið-
leika því við þessar aðstæður
voru börn Þormóðs og Ingu orð-
in fimm áður en langt um leið
og hún eignaðist sitt eigið eld-
hús í nýju húsi.
Og bæði börnum og búfénaði
átti eftir að fjölga. Hægt og síg-
andi fækkaði í okkar ættlið eftir
því sem við systkinin fluttumst
að heiman en leikir og ærsl ást-
kærra systkinabarna okkar og
barna fylltu heimilið lífi og
gleði.
Og nýja eldhúsið hennar
Ingu átti eftir að verða eins og
lítil félagsmiðstöð þegar frá leið.
Sjaldnast voru munnarnir færri
en tíu sem að matborðinu sóttu
og alltaf stóð hún vaktina og
framreiddi hollan og góðan mat
fyrir hópinn sinn. Gestakomur
við eldhúsborðið voru líka tíðar
og margt spjallað því bæði Inga
og Þormóður voru mjög fróð um
menn og málefni.
En Inga var ekki bara
myndarleg húsmóðir, hún var
líka mjög góður og duglegur
bóndi. Hún gekk til allra verka
við búskapinn með Þormóði og
börnunum og oftar en ekki fór
hún fremst, en rólynt Akrakyn-
ið fylgdi eftir. Á minninguna
leita margsögð orð hennar þeg-
ar Þormóði hafði dvalist við
spilakapalinn eða spjall; „Ja
hérna Þormóður, ég hélt þú
værir löngu farinn út.“ Það var
aldrei hennar háttur að geyma
til morguns það sem hægt var
að gera í dag.
Henni féll aldrei verk úr
hendi, ef stund var milli stríða
tók hún fram handavinnuna og
það var ekki bara fjölskyldan,
heldur einnig gestir og gang-
andi sem nutu góðs af sokka-
skúffunni hennar. Þátttaka
hennar í félagsstörfum var mik-
il, hún starfaði í Kvenfélaginu,
sat í stjórn Krabbameinsfélags
Suður-Þingeyjarsýslu og ekki
má gleyma Kirkjukór Einars-
staðasóknar, þar sem hún söng í
meira en 60 ár. Hún var mjög
músíkölsk og hafði fallega og
góða söngrödd.
Við erum þakklát Ingu mág-
konu okkar fyrir langa og
ánægjulega samferð. Sextíu ár
eru langur tími og margt hefur
breyst frá komu hennar í Akra.
Núna við brottför hennar frá
Ökrum standa ónýtt mörg
uppbúin rúm og svefnherbergi,
en í eldhúsinu sýslar bóndinn og
ber gestum sínum neskaffi til
veitinga.
Þormóði bróður okkar og
börnum hans færum við inni-
legar samúðarkveðjur. Þó að
missir þeirra sé mikill munu
minningar um góða eiginkonu
og móður ylja þeim um ókomin
ár.
Þuríður, Ingjaldur og
Þorbergur Ásvaldsbörn.
Ingigerður Kristín
Jónsdóttir
✝ Þórólfur fædd-ist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 2.
mars 1982. Hann
lést 4. janúar 2018.
Eftirlifandi
eiginkona hans er
Eva Morales og
eignuðust þau eina
dóttur sem heitir
Roxanna Kittý
Morales Þórólfs-
dóttir. Fyrir átti Þórólfur tvö
börn af fyrra hjónabandi, þau
Bjart Tandra Þórólfsson og
Viktoríu Líf Þór-
ólfsdóttur.
Foreldrar Þór-
ólfs eru Valur Þór
Valtýsson og Am-
anda Sunneva
Joensen.
Systkini hans
eru Guðmundur
Þór Valsson, Svava
María Valsdóttir og
Guðrún Sóley Vals-
dóttir.
Útför Þórólfs fer fram frá
Reyðarfjarðarkirkju í dag, 17.
febrúar 2018, klukkan 14.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Þín vinkona
Aðalsteina (Alla Lára).
Í dag kveðjum við með söknuði
elsku Þórólf Valberg Valsson.
Mig langar að kveðja þig með
þessum orðum og votta fjöl-
skyldu þinni og vinum mína
dýpstu samúð.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þinn vinur,
Aðalsteinn Guðmundsson
(Alli Bróa).
Þórólfur Valberg
Valsson