Morgunblaðið - 17.02.2018, Page 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
✝ Stefán Pálssonfæddist í Vík í
Mýrdal 11. nóvem-
ber 1946. Hann lést
á Landspítalanum
3. febrúar 2018.
Foreldrar Stef-
áns voru Páll Tóm-
asson verkamaður,
f. 4. ágúst 1900, d.
30. júní 1990, og
Þuríður Guðrún
Stefánsdóttir hús-
móðir, f. 14. október 1907, d. 1.
maí 1982. Systur Stefáns eru
Steinunn, f. 1935, og Elín, f.
1949.
Sonur Stefáns er Einar Krist-
inn, f. 29. september 1971. Móð-
ir hans er Kristín Einarsdóttir.
Eiginkona Einars er Ragnhildur
Hrund Jónsdóttir. Dóttir Ragn-
hildar er Hólmfríður María Þór-
arinsdóttir. Dóttir Einars er
Matthildur, móðir
hennar er Astrid
Björk Eiríksdóttir.
Stefán fæddist
og ólst upp í Vík og
bjó þar nánast all-
an sinn aldur. Hann
vann hin ýmsu
störf í Vík og ná-
grenni. Hann var
sjálfmenntaður bif-
vélavirki og vann á
bílaverkstæði og í
störfum tengdum bílum, smíð-
um og viðgerðum mestalla ævi
sína. Þá vann Stefán m.a. hjá
byggingarfélaginu Klakki, við
smíðar og akstur og hjá Mýr-
dalshreppi. Síðustu ár var Stef-
án kominn á eftirlaun en hélt
áfram vinnu af ýmsu tagi.
Útförin fer fram frá Víkur-
kirkju í dag, 17. febrúar 2018,
klukkan 14.
Í dag er borinn til grafar
góður vinur og nágranni. Mín
fyrstu kynni af Stefáni voru
þegar ég byrjaði að vinna hjá
byggingarfélaginu Klakki í Vík
og ljóst var að þarna var maður
á ferð sem batt sína bagga ekki
sömu hnútum og aðrir. Þegar
við urðum svo nágrannar fyrir
20 árum urðu kynnin eðlilega
meiri og enn á ný lágu leiðir
okkar saman í Klakki í nokkur
ár.
Það var gott að eiga Stebba
að sem nágranna og ef mann
vantaði ráð eða að fá lánuð
verkfæri var rölt yfir. Oftar en
ekki kom hann þá með og að-
stoðaði við verkið svo þetta
væri nú rétt gert hjá stráknum.
Oft rölti Ástþór minn yfir til
hans til að athuga hvað hann
væri að bardúsa og var ávallt
vel tekið og reynt að svara
spurningum stráksa. Það verð-
ur víst ekki oftar spurt um
„bjánann“ eða steypan dæmd
ónýt.
Við þökkum fyrir góð kynni
gegnum árin og sendum fjöl-
skyldu Stefáns innilegar sam-
úðarkveðjur.
Tryggvi Ástþórsson
og fjölskylda.
Skjótt skipast veður í lofti.
Þegar okkur barst sú frétt að
Stefán frændi væri kominn á
spítala undirlagður af krabba-
meini setti mann hljóðan. Rétt
um viku áður sat hann við eld-
húsborðið hér á Vatnsskarðs-
hólum, og í norðausturhorninu
við gluggann eins og svo oft áð-
ur, drakk með okkur kaffi, og
við ræddum um alla heima og
geima eins og vanalega. Það
eina sem vakti eftirtekt, og
hann hafði raunar áhyggjur af
sjálfur, var slæmur hósti sem
hafði ekki lagast eftir að hann
fékk flensu sl. haust.
Stefán var fastagestur og var
alltaf gaman að fá hann í heim-
sókn. Hann kom hér nær viku-
lega og alltaf var hann hress og
húmorinn alltaf með í bland.
Stefán var afar eftirtektar-
samur og hreinskilinn. Hann
sagði jafnan hvað honum fannst
um hlutina og lét menn heyra
það eins og honum einum var
lagið. Einu sinni kom Stefán
inn í smíðahús hjá okkur, þar
sem talsverð óreiða var á hlut-
unum. Stefán litaðist um en lét
svo um mælt að „það mundi nú
ekki skaða að taka hér aðeins
til“. Var greinilegt að frænda
þótti nóg um, en ekki var stór-
yrðunum fyrir að fara í máli
hans þá, frekar en fyrri daginn.
Stefán fylgdist af vakandi at-
hygli með því sem á döfinni var
í heimasveit hans og það var
jafnan fróðlegt að heyra skoð-
anir hans á þeim málum. Og
alltaf sýndi hann því áhuga sem
í gangi var hverju sinni á okkar
bæ, ekki síst verklegum
framkvæmdum, og sagði hann
þá jafnan sitt álit á viðfangs-
efninu. Við leituðum oft í
smiðju frænda og komum aldr-
ei að tómum kofunum. Hann
var jafnan ráðagóður, enda lag-
inn í höndum, bæði á tré og
járn, og mjög góður viðgerð-
armaður á bifreiðar, vélar og
önnur tæki.
Stefán átti með Kristínu
Einarsdóttur frá Presthúsum
einn son, Einar Kristin, sem
hann var alla tíð mjög stoltur
af. Á liðnu vori var okkur hjón-
um boðið í sveitabrúðkaup Ein-
ars Kristins og Ragnhildar
Jónsdóttur, sem haldið var í
Reyniskirkju hér í Mýrdal. Það
var góður dagur, brúðkaupið
fallegt og yndislegt, og sam-
veran skemmtileg og eftir-
minnileg. Þá var Stefán mjög
glaður og stoltur af syni sínum
og tengdadóttur.
Í stuttum en mjög erfiðum
veikindum frænda kom vel í
ljós hve ungu hjónin voru hon-
um mikill styrkur og hugsuðu
vel um hann á sjúkrahúsinu,
allt til hinstu stundar. Margir
munu vafalaust sakna þessa
hægláta manns, sem sett svip
sinn á samfélag okkar og lagði
því til langt og gott ævistarf,
þar sem alúð og vandvirkni
voru aðalsmerkin.
Í okkar bæ er nú tómarúm
þegar Stefán hættir að koma í
kaffi og hressandi samræður.
Að leiðarlokum þökkum við
áralanga tryggð Stefáns, um
leið og við minnumst góðs og
trausts vinar, sem gott var að
eiga að. Við sendum fjölskyldu
hans innilegar samúðarkveðjur.
Margrét og Þorsteinn.
Í dag, 17. febrúar, verður
kvaddur frá Víkurkirkju Stefán
Pálsson. Ég vann með Stefáni
hjá byggingafyrirtækinu Klakk
í Vík. Ef litið er yfir Víkina eru
allmörg hús er við Stefán unn-
um við að byggja og endurbæta
í Víkurþorpi, svo sem elliheim-
ilið Hjallatún og læknisbú-
staðurinn. Byggðum hús fyrir
Víkurprjón og seinna byggingu
yfir Hótel Vík.
Einnig vann ég með Stebba í
nýbyggingum í Skarðshlíð und-
ir Eyjafjöllum og við byggingu
safnahúss fyrir byggðasafnið í
Skógum.
Það var oft gott að eiga góð-
an vin í vinnunni sem hægt var
að leita til eins og við frágang á
vinnutímaskýrslum þannig að
það væri frágengið fyrir hana
Kollu hjá Klakk svo bókhaldið
væri klárt og hún gæti inn-
heimt af verkkaupendum.
Stebbi átti ýmsa drauma og
fylgdi þeim eftir. Alloft talaði
Stebbi um að hann ætlaði að
flytja í aðra landshluta, því
miður gerði hann það ekki og
bjó í Víkinni alla tíð. Var einn
af Víkurunum sem ég minnist
með ánægju og vona að hann sé
nú fluttur í sumarlandið og lifi
þar góðu lífi.
Einar Kristinn Stefánsson og
fjölskylda, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð vegna pabba
þíns.
Njörður Helgason.
Stefán Pálsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Melási 12, Garðabæ,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
föstudaginn 9. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. febrúar
klukkan 13.
Sjöfn Lárusdóttir
Hólmfríður Magnúsdóttir
Þorlákur Magnússon Þórhildur Pétursdóttir
Guðrún Þóra Magnúsdóttir Óskar Knudsen
ömmubörn og langömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
frá Veiðileysu,
lést mánudaginn 12. febrúar á Hrafnistu
Reykjavík. Útförin fer fram frá Fella- og
Hólakirkju fimmtudaginn 22. febrúar klukkan 11.
Halldór Sverrir Arason
Ragnheiður Halldórsdóttir
Magnús Emil Bech
Ari Halldórsson Björn Alexandersson
Jóhann Reynir Halldórsson Hilda Julnes
Kristinn Þórður Halldórsson Katrín Elly Björnsdóttir
Helga Halldórsdóttir Brjánn Birgisson
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GUNNAR JÓHANNSSON
vélfræðingur,
Svalbarði 1, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 10. febrúar á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útförin verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
21. febrúar klukkan 13.
Unnur Jóhannsdóttir
Kristjana Júlía Jónsdóttir
Berglind Jónsdóttir Kristján Þór Kristjánsson
Hrafnhildur Martin Patrick Martin
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra
KRISTÍN MARSIBIL
AÐALBJÖRNSDÓTTIR
frá Siglufirði
lést 12. febrúar á dvalarheimilinu Sunnuhlíð
í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 22. febrúar
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sunnuhlíð í
Kópavogi (skrifstofuna).
Aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN FRIÐRIK ZÓPHONÍASSON
frá Stokkseyri,
lést á dvalarheimilinu Sólvöllum,
Eyrarbakka, þriðjudaginn 13. febrúar.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju miðvikudaginn 21. febrúar
klukkan 14.
Rannveig Hansína Jónasdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær dóttir okkar, móðir, tengdamóðir og
vinkona,
LINDA ANTONSDÓTTIR,
sem lést á Landspítalanum 10. febrúar,
verður jarðsungin frá Seljakirkju
miðvikudaginn 21. febrúar klukkan 13.
Anton Kristinsson Sólveig G. Gunnarsdóttir
Andri Már Helgason Ragna Lind Rúnarsdóttir
Ævar Þór Helgason
Valdís Halldórsdóttir Lilja Jónsdóttir
Helgi Valur Árnason
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
PÉTUR SIGURÐSSON
efnafræðingur,
Funafold 48,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
fimmtudaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 22. febrúar
klukkan 13.
Jóhanna Ólafsdóttir
Helgi Pétursson Guðný Unnur Jökulsdóttir
Tryggvi Pétursson Kristín Hrönn Guðmundsdóttir
Þorkell Pétursson
barnabörn
Yndislegi drengurinn okkar,
HENRIK BJARNASON,
Álftamýri 69,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 14. febrúar.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 23. febrúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð Barnaspítala
Hringsins.
Elísabet Guðrún Björnsdóttir Bjarni Jónsson
Björn Elí Bjarnason
Vigdís Harðardóttir Gestur Gíslason
Björn A. Harðarson Nanna Ólafsdóttir
Lilja Árnadóttir Jón Bjarnason
langafar og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir afi og
langafi,
ÓLAFUR ÞÓR JÓHANNSSON,
Búðardal,
lést 14. febrúar. Útförin fer fram frá
Hjarðarholtskirkju laugardaginn 24. febrúar
klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Ragnheiður Hallgrímsdóttir
Okkar ástkæri vinur og frændi,
INGI GUÐMUNDUR EINARSSON,
Framnesvegi 57,
lést föstudaginn 9. febrúar.
Útför hans fer fram frá Bænhúsi Fossvogs-
kirkju mánudaginn 19. febrúar klukkan 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pjetur Gudmundsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SOFFÍA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Leirubakka 18,
Reykjavík,
andaðist mánudaginn 12. febrúar á
Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 27. febrúar
klukkan 13.
Hafdís Bára Eiðsdóttir Jakob Friðþórsson
Kolbrún Ólafsdóttir
Ottó Eiður Eiðsson Birna Theódórsdóttir
Björg Eiðsdóttir Sturla Birgisson
Sigurjón Eiðsson Jóhanna Magnúsdóttir
Bjarni Eiðsson Ragnhildur Árnadóttir
Auður Eiðsdóttir
Jón Helgi Eiðsson Björg Guðmundsdóttir
Kristinn Eiðsson Þórunn Haraldsdóttir
ömmubörnin