Morgunblaðið - 17.02.2018, Side 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Dásamlegur þvottur
- einfalt, íslenskt
stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar fylgja.
Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn
í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Þvottavél 119.990 kr.
Þurrkari 149.990 kr.
Valdís Blöndal á 90 áraafmæli í dag. Hún erfyrrverandi leiðsögu-
kona, en það var hennar að-
alstarf utan heimilis þar til
hún lét af störfum 86 ára. „Ég
hafði ákaflega gaman af leið-
sögninni, að segja frá og sýna
ferðamönnunum okkar fallega
land. Þegar ég byrjaði rétt eft-
ir þrítugt voru ferðamenn
mun færri hérlendis.“
Valdís hefur líka farið með
Íslendinga til útlanda og eldri
borgara til Kanarí og Mall-
orca. „Það leiddi til þess að ég
fór að læra spænsku og æfði
mig þegar út var komið. Hér
heima leiðsagði ég aðallega á
þýsku en einnig á ensku og
Norðurlandamálum. Hæg voru
heimatökin, mamma var þýsk og foreldrarnir töluðu þýsku á heim-
ilinu. Ég var svo í skóla í Svíþjóð eftir að námi lauk í Verzlunarskól-
anum og eftir að ég gifti mig flutti ég með manninum mínum til
Kaupmannahafnar þar sem hann var í framhaldsnámi í verkfræði.
Þar fæddist okkar fyrsta barn, dóttirin Nína, síðan eignuðumst við
tvo drengi eftir að við fluttum heim, þá Ragnar og Gunnar.“ Eigin-
maður Valdísar var Birgir G. Frímannsson byggingarverkfræðingur
og rak hann eigið byggingafyrirtæki.
Valdís fæddist á Álafossi og voru foreldrar hennar Ilse Blöndal og
Ragnar H. Blöndal, stórkaupmaður í Reykjavík. Ragnar var í vefn-
aðarverkfræðinámi í Þýskalandi þegar hann hitti Ilse. Þau giftu sig
árið 1926, komu til Íslands sama ár og settust að á Álafossi þar sem
Ragnar tók við stjórn ullarverksmiðjunnar til 1929. Þá fluttu hjónin
til Reykjavíkur og hann stofnaði verslunina R.H. Blöndal, til húsa í
Austurstræti. Hjónin eignuðust þrjú börn, Valdísi, Hönnu og
Kjartan.
Óhætt er að segja að helsta áhugamál Valdísar sé ferðamennska.
„Ég hef verið svo lánsöm að geta ferðast oft, farið víða og upplifað
mikið. Eftir að maðurinn minn lést 2001 ferðaðist ég með systur
minni og áttum við dásamlegan tíma saman þar til hún lést. Skíða-
íþróttin hefur verið mín vetraríþrótt langt fram eftir aldri, bæði hér
heima á Ítalíu, í Austurríki og í Colorado í Bandaríkjunum.
Þetta eru orðin löng og dásamleg æviár og þakka ég góðri heilsu
fyrir. Í dag mun ég fagna með minni góðu fjölskyldu og kærum
vinum.“
Leiðsögumaður Valdís Blöndal.
Mikil tungumála-
manneskja
Valdís Blöndal er níræð í dag
S
igríður Einarsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 17.2. 1958
og ólst upp á Skólavörðu-
holtinu í Reykjavík fyrstu
árin. Fjölskyldan flutti
síðan í Kleppsholtið árið 1966 og síðar
í Seljahverfið.
Sigríður var í Miðbæjarskólanum
og Langholtsskóla, lauk landsprófi
frá Ármúlaskóla 1974, stúdentsprófi
frá MS 1978, öðlaðist réttindi leið-
sögumanns 1980, nam bóklegar
greinar flugnáms við flugliðabraut
FS 1980 og lauk þaðan bóklegu blind-
flugs- og atvinnuflugmannsprófi,
stundaði verklegt flugnám við Flug-
skólann Flugtak hf. í Reykjavík 1977-
81 og lauk þá verklegu atvinnuflug-
mannsprófi en blindflugsprófi 1983.
Hún var þriðja konan til að ljúka
námi í vélaverkfræði frá HÍ 1986, öðl-
aðist réttindi sem verðbréfamiðlari
2006, lauk MBA-námi frá HR 2010 og
hefur lokið námskeiðum í listasögu,
ensku og spænsku við HÍ.
Sigríður gekk 11 ára í skátafélagið
Sigríður Einarsdóttir flugstjóri – 60 ára
Mæðgur Sigríður og Sóley María njóta veðurblíðunnar
á skíðum í Colorado, en Sigríður fer oft í skíðaferðir.
Brautryðjandi í at-
vinnuflugi á Íslandi
Mæðgin Sigríður og Einar Páll, nýkomin úr útsýnis-
flugi yfir Seattle, á afmælisdegi hans, 31.7. 2017.
Flugstjórinn Sigríður í farþegaflugi yfir suðurodda Grænlands. Hún segist
alltaf hlakka til að mæta í vinnuna, enda vinni hún með frábæru starfsfólki.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.