Morgunblaðið - 17.02.2018, Side 51
Dalbúa og var mjög virk í skátastarfi
til 17 ára aldurs.
Sumarið 1972 var Sigríður au pair
á Long Island í New York-ríki, hjá
frænku sinni, Guðrúnu Ólafsdóttur
Regan, og manni hennar, James
Regan. Sumrin 1974 og 1975 stundaði
hún afgreiðslustörf í Önske Isen á
Fredriksberg í Kaupmannahöfn, en
móðursystir hennar, Aðalheiður
Gunnlaugsdóttir, og maður hennar,
Georg Vogeley, ráku þar bakarí og
konditorí. Sumrin 1976 og 1977 vann
hún við skógrækt hjá Skógræktar-
félagi Reykjavíkur í Fossvogi.
Sigríður var kennari við Nesja-
skóla í Hornafirði 1978-79, var aug-
lýsingastjóri hjá Frjálsu framtaki
1979-81, var aðstoðarmaður flug-
umferðarstjóra sumrin 1982 og 1983
og vann í vélsmiðjunni Listsmiðjunni,
m.a. við logsuðu, næsta sumar.
Árið 1979 flutti Sigríður og tveir
félagar hennar til landsins tveggja
sæta flugvél af gerðinni Cessna 150.
Flugvélin fékk einkennisstafina TF-
ICE. Árið 1981 seldi hún hlut sinn í
TF-ICE og keypti hlut í TF-IFR sem
var af gerðinni Skylane, Cessna 182.
TF-IFR var aflmikil 4 sæta flugvél
með blindflugstækjum. Báðum þess-
um vélum flaug hún mikið en hún tók
m.a. að sér innheimtu auglýsinga-
reikninga úti um allt land fyrir
Frjálst framtak og Dagblaðið, til að
hafa upp í rekstrarkostnað vélanna.
Sigríður var fyrst íslenskra kvenna
til að gera flugmannsstarfið að ævi-
starfi og fyrsta konan sem varð flug-
maður og flugstjóri hjá Flugleiðum.
Hún hóf störf hjá Flugleiðum í des-
ember 1984 með 500 klst. í flug í far-
teskinu. Hún fór sitt fyrsta flug á
Fokker Friendship F-27, hinn 25.2.
1985, en það flug var til Egilsstaða.
Árið 1988 fékk Sigríður þjálfun á
Boeing 727 og flaug þeirri þotu í tvö
ár. Vorið 1990 fór Sigríður í sex vikna
þjálfun hjá Boeing í Seattle þar sem
hún öðlaðist réttindi á Boeing 757.
Eftir sex ára starf í millilandafluginu
flutti Sigríður sig yfir í innanlands-
flugið þar sem hún fór sitt fyrsta flug
sem flugstjóri 9.3. 1996 á Fokker 50.
Sigríður var flugstjóri í fyrsta flug-
inu sem var skipað kvenáhöfn, hinn
29.6. 1996, en sú ferð var til Akur-
eyrar. Eftir þriggja ára starf í innan-
landsfluginu fór Sigríður að fljúga
sem flugstjóri í millilandafluginu, Bo-
eing 757 frá 1.4. 1999 og Boeing 767
frá því í mars 2005.
Auk starfa Sigríðar fyrir Flugleiðir
og síðar Icelandair, hefur hún unnið
fyrir Loftleiðir Icelandic í ýmsum
leiguflugsverkefnum, s.s. frá Kúbu,
Dóminíska lýðveldinu og Venesúela.
Hún hefur einnig verið í leiguflugs-
verkefnum frá Ítalíu um Miðjarðar-
hafið og í verkefnum frá Boston til
eyja í Karíbahafinu. Minnisstæðast
er þó leiguflugsverkefni frá Papúa
Nýju-Gíneu til Filippseyja. Á 33 ár-
um hefur Sigríður flogið 15.000
klukkustundir.
Sigríður sat í stjórn Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna (FÍA)
1991-93, hefur setið í stjórn Sjúkra-
sjóðs FÍA frá 2015, sat í trúnaðarráði
FÍA 1990-91 og frá 2015 og átti sæti í
skólanefnd Fjölbrautaskóla Garða-
bæjar 2011-2014.
„Ég hef lengi haft áhuga á útivist
og ferðalögum, ekki síst léttum
hreyfiferðum, s.s. skíða- og hjólaferð-
um að ógleymdum menningar-
ferðum. Ég hef ferðast töluvert til
Suðaustur-Asíu undanfarin ár og eru
minnisstæðastar ferðir um Víetnam,
Indónesíu og Bútan.“
Fjölskylda.
Dóttir Sigríðar er Sóley María
Bogadóttir, f. 21.5. 1987, BA í hag-
fræði og BSc í fjármálum frá Uni-
versity of Colorado í Boulder og fast-
eignasali í Denver.
Sonur Sigríðar er Einar Páll
Tryggvason, f. 30.6. 1994, sem er á
lokaönn í sagnfræði við HÍ.
Systkini Sigríðar eru Sigurrós Ein-
arsdóttir, f. 20.10. 1960, þjónustu-
fulltrúi í Reykjavík, og Einar Þór
Einarsson, f. 29.3. 1962, d. 13.3. 2014,
smiður og útsendingarstjóri.
Sigríður er dóttir hjónanna Sól-
veigar Maríu Gunnlaugsdóttur, f.
29.9. 1939, fyrrv. verslunarmanns og
dagmóður í Garðabæ, og Einars Hall-
dórs Gústafssonar, f. 6.2. 1938, fyrrv.
varðstjóra hjá Slökkvistöð Reykja-
víkur.
Sigríður
Einarsdóttir
Svanhvít Sigríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Hólakoti
Þorkell Þorkelsson
útvegsbóndi í Hólakoti
á Miðnesi
Sesselja Sigríður Þorkelsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Gunnlaugur Oddsen V. Eyjólfsson
bifreiðastjóri í Reykjavík
Sólveig María Gunnlaugsdóttir
fyrrverandi verslunarmaður
Sólveig Hjálmarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Eyjólfur Ísaksson
smiður í Reykjavík
Jóhanna Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Fremra-Hálsi
Einar Ólafsson
bóndi á Fremra-Hálsi í Kjós
Sigurrós Lovísa Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Gústaf Adolf Guðjónsson
brunavörður í Reykjavík
Elín Eyjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðjón Kr. Jónsson
múrari í Reykjavík
Úr frændgarði Sigríðar Einarsdóttur
Einar Halldór Gústafsson
fyrrverandi varðstjóri hjá
Slökkviliði Reykjavíkur
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Skál fyrır meistaraJörgen Pétur Jakobsson Hav-stein fæddist á Hofsósi 17.2.1812, sonur Jakobs Havsteen,
kaupmanns á Hofsósi, og Marenar
Havsteen.
Fyrsta kona Péturs var Guðrún,
dóttir Hannesar Stephensen, pró-
fasts og alþingmanns í Ytra-Hólmi.
Með henni átti hann soninn Hannes,
sem lést á þriðja ári, í desember
1850, en Guðrún lést fjórum mán-
uðum síðar. Önnur kona Péturs var
Sigríður, dóttir Ólafs Stephensen,
jústisráðs í Reykjavík og í Viðey, en
þau skildu eftir skamma sambúð.
Hún hafði elskað annan og var nauð-
ug gefin Pétri. Sigríður varð síðar
tengdamóðir Hannesar, sonar Pét-
urs. Þriðja kona Péturs var Krist-
jana Gunnarsdóttir, prests í Laufási
Gunnarssonar, og Jóhönnu, dóttur
Gunnlaugs, sýslumanns á Grund og
ættföður Briemættar. Kristjana var
25 árum yngri en Pétur, vel gefin, og
bjó yfir styrk og jafnaðargeði.
Þau eignuðust níu börn, misstu
tvö elstu börnin í æsku auk þess sem
þrjár dætur náðu ekki þrítugsaldri.
Önnur börn þeirra voru Hannes,
skáld og fyrsti íslenski ráðherrann;
Marinó, sýslumaður á Borðeyri;
Elín, kona Lárusar H. Bjarnasonar,
og Gunnar, bankastjóri í Færeyjum.
Pétur lauk stúdentsprófi frá
Bessastaðaskóla 1835, lauk prófum í
heimspeki frá Hafnarháskóla 1836
og lögfræðiprófi 1840. Hann var
sýslumaður í Múlasýslu 1845-50 og
amtmaður í norður- og austuramt-
inu frá 1850 og sat þá á Möðruvöll-
um í Hörgárdal, en var sviptur emb-
ætti vegna heilsu- og skapgerðar-
brests 1870. Hann var konungs-
kjörinn alþingismaður 1853-57.
Pétur var glæsilegur, röggsamur
og stórhuga embættismaður, fékk
mikið lof Norðlendinga fyrir fram-
göngu sína í fjárkláðamálinu, en það
var hitamál sem tók sinn toll.
Auk þess syrgði hann mjög fyrstu
konu sína og börnin sem hann missti
og flýði þá á náðir Bakkusar.
Pétur lést 24.6. 1875.
Merkir Íslendingar
Pétur
Havstein
Laugardagur
90 ára
Símon Símonarson
Valdís Blöndal
80 ára
Áskell Jónasson
Gunnar Gunnarsson
Haraldur Henrysson
Jón Rafn Sigurjónsson
75 ára
Anna Lilja Kjartansdóttir
Ásmundur Kjartansson
Benth U. Behrend
Hjörleifur Herbertsson
Ingólfur Örn Herbertsson
Júlíus Ingvarsson
70 ára
Edda Ársælsdóttir
Edda Jóhannsdóttir
Elín M. Hjartardóttir
Erna Vilbergsdóttir
Guðmundur G.
Guðmundsson
Halldóra Bryndís
Viktorsdóttir
Hermann Bjarnason
Jónas S. Svavarsson
Kristín Jónsdóttir
Kristján Helgi Greipsson
Lilja Ágústa
Guðmundsdóttir
Reynir Heiðar Antonsson
Sigurjón H. Sindrason
60 ára
Einar Guðjónsson
Emil Gunnar Einarsson
Guðrún Ásg.
Steingrímsdóttir
Haukur Harðarson
Kristín Sigvaldadóttir
Magnús Guðmundsson
Magnús Másson
Ómar Eyjólfur Sævarsson
Sigríður Einarsdóttir
Sigurður P. Sigurðsson
Sveinn V. Björgvinsson
50 ára
Einar Bragi Sigurðsson
Grímur Örn Jónsson
Guðjón Ólafur Jónsson
Imelda Z. Sta Ana
Kristinn Þór Kristinsson
Páll Pawel Pálsson
Ragnar Jón Grétarsson
Sigurlaug Hrafnkelsdóttir
Skjöldur Pálmason
Valdís Fríða
Manfreðsdóttir
40 ára
Aigars Kalnjanis
Bryndís Björnsdóttir
Camilla Guðjónsdóttir
Ervin Shala
Heiða Sigrún Pálsdóttir
Heimir Óskarsson
Hermann Ingi
Finnbjörnsson
Iwona Czaplinska
Lilja Dögg Jónsdóttir Eldon
Luis F. Godinho G. P. de
Sousa
Piotr Fryderyk Buss
Preeda Sae-Khoo
Unnur María
Guðmundsdóttir
Valérie Marthe Marie
Diémé
30 ára
Dagmara Adamsdóttir
Jakob Valgarð Óðinsson
Lidia Pashkova
Marcin Oledzki
Michal Gryszko
Rúnar Nielsen
Sverrir Grétar Hólm
Sunnudagur
90 ára
Kristján Ólafsson
85 ára
Hákon Magnússon
Hulda Þórðardóttir
Sigurbjörg
Gústafsdóttir
80 ára
Guðrún Þ. Dyer
Gunnar Kristján
Gunnarsson
Helga Guðmundsdóttir
Hrafnhildur Magnúsdóttir
Ragnhildur G. Lúðvíksdóttir
75 ára
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Gunnar Jónsson
Jón Magnús Björgvinsson
Jón Waage
Konráð Guðmundur
Eggertsson
70 ára
Bergdís Lína Jóhannsdóttir
Elsa Anna Bakkmann
Bessadóttir
Hrönn Pálsdóttir
Stefán Kárason
Svanur Baldursson
Valgerður A. Mikkelsen
60 ára
Anna Sigrún
Gunnlaugsdóttir
Einar Sigurður
Sigursteinsson
Guðmundur Tryggvi
Jakobsson
Jón Heiðar Reynisson
Kristín P. Aðalsteinsdóttir
Magnús Rúnar Jónsson
Stefán Örn Magnússon
Unnsteinn Óskarsson
Þórunn Finnsdóttir
50 ára
Aldís Sigurðardóttir
Ásta Rósa Magnúsdóttir
Eggert Arnar Bjarnason
Guðbjörg Jónsdóttir
Guðmundur Jónsson
Júlía Guðrún Ingólfsdóttir
Óðinn Uy Surian
Ragnheiður M. Harðardóttir
Sigríður Þórdís
Reynisdóttir
Sigurbjörn Hansson
Steinunn Jónsdóttir
Vésteinn Þór Vésteinsson
Þórarinn Hauksson
40 ára
Benedikt Helgason
Birkir Fjalar Viðarsson
Erla Rut Magnúsdóttir
Guðmundur H. Jónsson
Hallveig Jónsdóttir
Inga Sveinsdóttir
Ingvar G. Ingimundarson
Jón Ingvar Bragason
Lára Huld Kristjánsdóttir
Norbert Krystian Godlewski
Sandra Dos Santos Ferreira
Sandra María Stefánsson
Sigurjón Helgason
Örn Ævar Hjartarson
30 ára
Athiphong Khod Anu
Aurelija Andruliené
Camilla P. Sigurðardóttir
Denis Kordian Stula
Edda Bergsveinsdóttir
Guðmundur Hafsteinsson
Guðrún Eik Skúladóttir
Héðinn Jónsson
Kolbrún Eva Bjarkadóttir
Kristín Lea Sigríðardóttir
Michal Stepkowski
Rakel Ósk Steindórsdóttir
Robert Pawel Zaczkowski
Sandra Dís Jónsdóttir
Sigurdís Rós Jóhannsdóttir
Unnur T. Flóvenz
Til hamingju með daginn