Morgunblaðið - 17.02.2018, Page 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hafðu varann á í samningaviðræðum
og viðskiptum. Þú ættir að gera meira af því
að hvíla þig. Góður svefn er gulli betri.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þjarkar og þrælar en þegar upp er
staðið eru það litlu hlutirnir sem skipta máli.
Mundu að allir hafa eitthvað til síns ágætis.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að tjá hug þinn, fólk les
alla jafna ekki hugsanir. Vinur þinn kemur
þér á óvart í vikunni. Borðaðu kökuna,
kauptu skóna, lífið er stutt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allar breytingar eru eðlilegur þáttur
af tilverunni svo taktu þeim fagnandi. Eyddu
peningum þínum vegna eigin langana, ekki
annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er hætt við erfiðleikum í nánustu
samböndum þínum á næstunni. En vanda-
mál eru til að leysa þau, þú ferð létt með
það.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Jafnvel flóknasta viðfangsefni, eins
og að láta samband ganga upp, er gert með
litlum en raunhæfum skrefum. Einhver hrós-
ar þér, þakkaðu fyrir það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Kurteisi kostar ekki neitt. Vertu þolin-
móð/ur og þá muntu ná markmiðum þínum.
Allir hafa gott af einveru af og til.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fólk heldur oft að það viti hvað
öðrum er fyrir bestu en ekki þú. Þú berð
virðingu fyrir öðrum og þeirra ákvörðunum.
Ekki láta stjórna þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Búðu þig undir reglulega
ánægjulegan dag þar sem allt fer sam-
kvæmt áætlun. Vertu örlát/ur við vini og
vandamenn, greiði eða símtal slær alltaf í
gegn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú mátt alveg reikna með því að
stíga ofan á tærnar á einhverjum þegar þú
berst fyrir framgangi máls þíns. Ekki fresta
framkvæmdum heima, hálfnað er verk þá
hafið er.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fortíðinni fær enginn breytt og
umfram allt verða menn að sætta sig við
orðinn hlut. Ef þú stendur sjálfa/n þig að því
að dreyma um eitthvað haltu þeim draumi
vakandi, hann rætist einn góðan veðurdag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Endaðu vikuna á að gera eitthvað
óvenjulegt. Þú ert harður/hörð í horn að
taka þegar þú bítur eitthvað í þig. Stattu
fast á þínu.
Gátan er sem endranær eftir Guð-mund Arnfinnsson:
Kalla má það krakkaskinn.
Kannski er það sauðurinn.
Sama öll við erum kyn.
Ærin sú er næsta lin.
Knútur H. Ólafsson en ekki Ósk-
arsson eins og misritaðist fyrir viku
sendi þessa ráðningu:
Blessuð veri barnkindin,
besta fæða sauðkindin,
miklu skartar mannkindin,
en mesta hörmung linkindin.
Helgi Seljan svarar:
Þetta kalla ég krakka má,
kennda við sauðinn finn ég á.
„Gjörvöll mannkind“ í sálmi sá,
svoddan linkind er af og frá.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Kind er lítið krakkaskinn.
Kind er líka sauðurinn.
Mannkind síðan erum öll.
Ei mun linkind klífa fjöll.
Þá er limra:
Menn telja, að Egill á Teigi
talsvert af lausafé eigi,
hann á kindur og kú
og kynduga frú
og hlöðu, sem full er af heyi.
Og síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Árla dags úr rekkju rís,
rekinn úr drauma paradís
hef nú gátu saman sett,
sú mun þykja býsna létt:
Dauði manns og dýrs er það.
Dramb er jafnan þessu næst.
Hreyfing sjávar sitt og hvað.
Svo við messu getur bæst.
Ármann Þorgrímsson var nú í vik-
unni upptekinn við „morgunverkin“:
Elliglöp ég á mér finn
annar týndur sokkurinn
hefur linast hugur minn
hættur að segja andskotinn.
Davíð Hjálmar Haraldsson gaf
honum holl ráð:
Ákall til fjandans forðast má.
Fáðu þér heldur sæti
og gáðu hvort báðir eru á
einum og sama fæti.
Páll Vídalín orti:
Fyrir þreyttum ferðasegg
fölskvast ljósin brúna.
Ráði Guð fyrir oddi og egg,
ekkert rata ég núna.
Þangskála-Lilja orti:
Kviknar gaman, konan ber
kaffi, brauð og sykur,
allt í sama sjóðinn fer
sem er framan til á mér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margt er kvikra kinda kyn
Í klípu
„MANNESKJAN SEM VAR AÐ ÞRÓA ÁFRAM
TRYGGÐARKLÚBBINN OKKAR VAR AÐ
HÆTTA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ VERA VAKINN Í
FYRRAMÁLIÐ, HERRA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja að þessi
stund endist að eilífu.
ÉG ER GÓÐUR Í
ÞVÍ SEM ÉG GERI
Ó,
ÉG LÍKA
ÞETTA ER ÞAÐ
SEM VIÐ GERUM
FYRIR MÍNA SÖNNU ÁST!
GISP
HRÓLFUR, ERTU MEÐ
SEKTARKENND YFIR
EINHVERJU?
MEINARÐU EINHVERJU ÖÐRU
EN AÐ STELA BLÓMUNUM?
Víkverja finnst hann ekki mjöggamall en hann man samt eftir
öskupokum og bolluvöndum. Það
var fastur liður að föndra bolluvendi
sem síðan voru notaðir til að vekja
foreldrana eldsnemma á bolludag-
inn. Núna er þetta öfugt og foreldr-
arnir þurfa að vekja börnin, reyndar
með hefðbundnum aðferðum, enda
börnin vansvefta ef eitthvað er að
marka nýjustu rannsóknir.
x x x
Víkverji minnist með ánægjuöskudagsskemmtana æskunnar
en verslunin Kjöt og fiskur í Selja-
hverfi stóð jafnan fyrir skemmti-
legum viðburðum á þessum dagi. Þá
fór maður í búning en var líka með
tilbúna öskupoka til að festa í grun-
lausa gesti. Krakkar fara mikils á
mis af því að þekkja ekki öskupoka.
Krökkum finnst nefnilega svona
laumupúkastand svo skemmtilegt,
sérstaklega þegar fullorðna fólkið
spilar með og þykist ekki taka eftir
neinu.
x x x
Öskupokasiðurinn er nú að mestuhorfinn en börn klæða sig í bún-
ing á þessum degi og fara út að
sníkja nammi, oftar en ekki sam-
hliða söng. Öskudagur hefur því á
einhvern hátt runnið saman við
hefðir hrekkjavökunnar eins og þær
eru í Bandaríkjunum. Nema núna
eru íslenskir krakkar líka farnir að
halda upp á hrekkjavökuna að
bandarískum sið með því að klæða
sig í grímubúning og sníkja nammi.
Íslensk börn fá því tvennt af þessu
enda er allt mest og best (að minnsta
kosti miðað við höfðatölu) hér á
landi. Þetta hefur gert það að verk-
um að meira er lagt upp úr hryllileg-
um búningum hér á hrekkjavöku en
börn í Bandaríkjunum klæða sig á
ýmsa frumlega vegu á þessum degi.
x x x
Fleiri en Víkverji vilja halda viðöskupokahefðinni en á Facebook
er að finna síðuna „Öskupokinn snýr
aftur“. Í lýsingu síðunnar stendur að
komið sé að upprisu öskupokans og
hingað til hafi sú gróusaga gengið að
títuprjónar bogni ekki lengur en
hver saumakona viti að það sé ekki
satt. vikverji@mbl.is
Víkverji
Þótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika væri ég hljóm-
andi málmur eða hvellandi bjalla
(Fyrra Korintubréf 13.1)