Morgunblaðið - 17.02.2018, Qupperneq 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Sérstök Soundgarden-rokkmessa
verður haldin í kvöld á Gauknum
til heiðurs söngvaranum og Ís-
landsvininum Chris Cornell sem
lést langt fyrir aldur fram í maí í
fyrra.
Á efnisskránni verða helstu lög
Soundgarden sem Cornell fór fyr-
ir á sínum tíma og var að auki
helsti laga- og textahöfundur
sveitarinnar. Einnig mun dúettinn
Bellstop koma fram og leika lög
frá sólóferli og hliðarverkefnum
Cornells.
Soundgarden-heiðurssveitina
skipa Einar Vilberg og Franz
Gunnarsson sem syngja og leika á
gítara, bassaleikarinn og söngv-
arinn Jón Svanur Sveinsson og
trommarinn Skúli Gíslason. Í Bell-
stop eru söngkonan Elín Jóns-
dóttir og gítarleikarinn og söngv-
arinn Rúnar Sigurbjörnsson. Húsið
verður opnað kl. 21 og tónleikarn-
ir hefjast kl. 23.
Miðasala fer fram á tix.is.
Soundgarden-rokkmessa á Gauknum
Morgunblaðið/Eggert
Allur Chris Cornell á tónleikum árið 2007.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýning samvinnuhópsins Hard-Core ,
Kísildraumar, verður opnuð í gallerí-
inu Harbinger á Freyjugötu 1 í dag kl.
18. Hard-Core er sprotasamstarf sem
starfar frá Amsterdam, London og
París, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu um sýninguna og meðlimir þess
eru myndlistarmennirnir Anne de
Boer, Hrafnhildur Helgadóttir, Eloise
Bonneviot og Sæmundur Þór Helga-
son sem njóta handleiðslu fram-
kvæmdastjórans Skyler Lindenberg.
Hópurinn einblínir á þróun sjálf-
virkrar sýningagerðar og markmiðið
er að gera „huglægt ferlið við stjórn og
samsetningu sýninga fullkomlega
sjálfvirkt til þess að koma á lýðræðis-
legra ferli við val á listaverkum og
framsetningu þeirra,“ eins og segir í
tilkynningunni.
Vélræn sýningarstjórnun
Árið 2011 gaf hópurinn út sitt fyrsta
sýningarstjóravélmenni, ASAHI, sem
stýrði í kjölfarið nokkrum sýningum í
Amsterdam sem áttu sameiginlega
óvenjulega framsetningu listaverka og
nýstárlegt samhengi milli þeirra.
ASAHI er útkoma sjö ára rannsókn-
arverkefnis hópsins á vélrænni sýn-
ingarstjórnun, vandlega hannað vél-
menni sem ögrar hinu hefðbundna og
formfasta ferli sýningagerðar, eins og
hópurinn lýsir því. Frá því fyrsta út-
gáfa ASAHI kom út hefur hópurinn
tekið þátt í og skipulagt fjölda sýninga
í Hollandi, Bretlandi, Þýskalandi, Pól-
landi, Sviss og á netinu og tekið þátt í
fyrirlestrum og pallborðsumræðum og
frá árinu 215 hafa meðlimir Hard-
Core starfað sem prófessorar í mynd-
listardeildinni við Gerrit Rietveld-
akademíuna í Amsterdam og leitt þar
áfangann Documentation and Online
Presence.
Verkin á sýningunni eru unnin úr
sílíkoni eða kísli, efni sem mikið er not-
að í hátækniiðnaði, eins og alþekkt er,
vegna leiðandi eiginleika þess og efnið
getur auk þess varið vélbúnað. „Við
erum að vinna að okkar fjórða
sýningarstjóravélmenni, ASAHI 4.0,
og erum að sýna sílikonskinn sem fara
utan um vélbúnaðinn og skoða mis-
munandi fagurfræði hvað varðar
tæknigeirann,“ segir framkvæmda-
stjórinn Skyler Lindenberg. Sýningin
er því á mörkum hönnunar og mynd-
listar. Lindberg segir vélmennið tól til
að setja upp sýningar með lýðræðis-
legri hætti en fólk eigi að
venjast.
– Er vélmennið að
setja upp þessa sýn-
ingu?
„Nei, þetta er hálfgerð
vörukynning/tískusýning
og við erum að skoða mis-
munandi fagurfræði. Okkur
þykir tæknimarkaður-
inn mjög litaður af
karlheimi og sexisma
og erum að skoða
hvernig er hægt að
afkynja fagur-
fræði tækni-
geirans,“ svar-
ar Lindenberg.
Lýðræðislegt
sýningakerfi
Upphaf ASAHI má
rekja til þess er fyrr-
nefndir fjórir mynd-
listarmenn komu
saman í Amsterdam þegar þeir voru
þar í námi og fannst skorta umræðu
um stafræna myndlist. Þeir fóru að
skoða list hver annars, langaði að
halda sýningu saman en þekktu
enga sýningarstjóra. Úr varð að
þeir bjuggu sér til kerfi sem kom í
stað sýningarstjóra. Lindenberg
segir að þá hafi myndlistarmenn-
irnir fundið fyrir þörf til að þróa
áfram slík kerfi, handahófskennd
kerfi til að stilla upp verkum hér
og þar í sýningarrýminu.
„Fólk getur halað upp prófíl í
gagnagrunn sem við erum með á
asahi4.com og þá hefur það mögu-
leika á að vera valið í sýningar sem
er stýrt af þessu vélmenni.
Þannig að fólk af öllum
stigum getur sýnt sam-
an, lengra komið og
þeir sem eru jafnvel
enn að læra eða að
mála í frístundum,“
útskýrir Lindenberg.
Hard-Core verður
með listamannaspjall
í Harbinger á morg-
un, 18. febrúar,
klukkan15. Kísil-
draumar eru hluti
sýningaraðarinnar Við
endimörk alvarleikans
sem er styrkt af Mynd-
listarsjóði.
Kísildraumur Kísill, eða sílikon, getur tekið á sig ýmsar myndir og form og
hér má sjá dæmi tengt sýningunni sem opnuð verður í Harbinger í dag.
Vilja afkynja fagur-
fræði tæknigeirans
Sílikonskinn sýningarstjórnarvélmennis í Harbinger
Skyler
Lindenberg
Sýning á nýjum verkum eftir Kees
Visser, Crux, verður opnuð í Nes-
kirkju eftir messu sem hefst kl. 11 á
morgun, sunnudag. Listamaðurinn
verður viðstaddur opnunina.
Undanfarin ár hafa verið settar
upp áhugaverðar og metnaðar-
fullar sýningar á Torgi kirkjunnar
og nú hefur Kees, sem hefur búið
og starfað hér á landi í áratugi og
haldið hér fjölda sýninga, unnið röð
nýrra verka sérstaklega fyrir sýn-
inguna í Neskirkju. Um er að ræða
verk á pappír þar sem hann vinnur
út frá krossinum í málverkum
virtra listamanna fyrri alda, meðal
annars eftir Giovanni Bellini,
Jordaens, El Greco, Sebastiano del
Piombo og Jan Sanders van Hemes-
sen.
Kees Visser var á sínum tíma
einn stofnfélaga Nýlistasafnsins ár-
ið 1978 en hann var búsettur hér á
landi í um tvo áratugi. Hann sýnir
enn reglulega hér en jafnframt víða
um Evrópu.
Listamaðurinn Kees Visser hefur unn-
ið út frá krossum í gömlum málverkum.
Verk eftir Kees
Visser í Neskirkju
Músíktilraunir 2018 verða haldnar í
Norðurljósasal Hörpu í næsta mán-
uði og þeir sem vilja skrá sig í
keppnina geta gert það frá og með
deginum í dag til 5. mars á vef til-
raunanna, musiktilraunir.is.
Undankvöldin verða frá 18. til 21.
mars og úrslitakvöldið laugardag-
inn 24. mars.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir
tónelska og tryllta til að taka þátt í
skemmtilegum og spennandi við-
burði í glæsilegu umhverfi og
kynna sig og kynnast öðrum í leið-
inni,“ segir í tilkynningu frá Músík-
tilraunum. Keppnin er ætluð ungu
fólki á aldrinum 13-25 ára.
Upphaf tilraunanna má rekja til-
samstarfs Tónabæjar og SATT
(Sambands alþýðuskálda og tón-
listarmanna) sem m.a. stóðu fyrir
maraþontónleikum í kjallara Tóna-
bæjar í nóvember 1982.
Sigruðu Between Mountains fór með
sigur af hólmi í Músíktilraunum í fyrra.
Skráning hefst í
Músíktilraunir
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
Sýnd kl. 8, 10.15
ÓDÝRT Í BÍÓ
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS UM HELGINA.
ATH! TILBOÐSSÝNINGAR ERU MERKTAR MEÐ RAUÐU.
Sýnd kl. 5, 7.50, 10.35
Sýnd kl. 10.30Sýnd kl. 7.50 Sýnd kl. 2, 3.50, 6Sýnd kl. 1.40, 2.30, 3.50, 5.35
SÉRBLAÐ
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 16. mars
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 12. mars.