Morgunblaðið - 28.02.2018, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 50. tölublað 106. árgangur
KVIKMYNDIN
ADAM FRUM-
SÝND Í BERLÍN ER MINNI ÞJÓNUSTA MEIRI?
STOCKFISH KVIK-
MYNDAHÁTÍÐIN
HEFST Á MORGUN
SJÁLFSAFGREIÐSLA TEKUR VIÐ 12-13 MARZIBIL SÆMUNDARDÓTTIR 41MARÍA SÓLRÚN 38
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra segir viðhald á veg-
um verða í forgangi framkvæmda
við samgöngumannvirki næstu ár.
„Slit á vegum hefur auðvitað auk-
ist. Við þurfum að leggja mun meiri
áherslu á viðhald mannvirkja svo
þau eyðileggist ekki. Það er í for-
gangi,“ segir Sigurður Ingi.
Hann segir viðhaldið til dæmis
verða framar í röðinni en tvöföldun
stofnbrauta við höfuðborgarsvæðið.
Hefur ekki unnið upp hallann
Vegagerðin og Samtök sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu gerðu
haustið 2016 með sér samkomulag
um aukið viðhald á gatnakerfinu.
Birkir Hrafn Jóakimsson, verk-
efnastjóri hjá Vegagerðinni, segir
auknar fjárveitingar ekki duga til að
vinna upp viðhaldshallann. Votviðrið
undanfarið hafi farið illa með vegi á
höfuðborgarsvæðinu. „Við förum í
bráðabirgðaviðgerðir. Á þessum árs-
tíma getum við ekki farið í almenni-
legar viðgerðir. Það er ekki orðið
nógu hlýtt. Við eigum eftir að taka
saman hversu stór hluti af holu-
myndun undanfarinna vikna fellur
undir almenna viðhaldsáætlun og
hvaða hluti er fyrir utan hana.“
Ámundi Brynjólfsson, skrifstofu-
stjóri framkvæmda hjá umhverfis-
og skipulagssviði Reykjavíkur-
borgar, segir holur hafa birst í göt-
unum um alla borg síðustu daga.
Ámundi segir auknar fram-
kvæmdir við viðhald borgargatna í
ár munu vinna upp viðhaldshalla síð-
ustu ára. Hjólför séu meira vanda-
mál á þjóðvegum á höfuðborgar-
svæðinu en á borgargötum.
Morgunblaðið/Hari
Við Hlíðaskóla Fyllt í holur á hringtorginu á mótum Hamrahlíðar og Lönguhlíðar í Reykjavík. Vegirnir hafa farið illa í vatnavöxtunum undanfarið.
Fjárveitingarnar duga ekki til
Vegagerðin þarf meira fé á höfuðborgarsvæðinu Ráðherra boðar aðgerðir
MNýframkvæmdir … »10
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Tillögur ríkisstjórnarinnar bæta ekki upp þann
forsendubrest sem við teljum að hafi orðið og þess
vegna samþykktum við það á miklum stemnings-
fundi hjá trúnaðarráði að segja samningnum upp,“
segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Hann
mun því ganga inn í daginn með þau skilaboð að
segja upp kjarasamningum Alþýðusambands Ís-
lands og Samtaka atvinnulífsins, en kl. 16.00 í dag
rennur út sá frestur sem ASÍ hefur til að tilkynna
SA um uppsögn samninga.
Ragnar segist þó hafa umboð til að halda samn-
ingum í gildi, verði „forsendubresturinn leiðrétt-
ur“. Hann segir forsendubrestinn ekki einungis
snúast um kjararáð, heldur einnig aðra launaþró-
un sem hafi átt sér stað í samfélaginu.
„Við sáum fréttir í [gær]morgun af launaskriði
stjórnenda fjármálafyrirtækja og hjá Landsvirkj-
un og ég lít þannig á að það sé verið að hafa okkur
að fíflum. Það þarf einhver að stíga niður fæti og ef
það er einhver sem ætti að gera það þá er það
stærsta stéttarfélagið,“ segir Ragnar Þór.
Hann segir að eflaust muni fleira koma fram um
miklar launahækkanir æðstu stjórnenda fyrir-
tækja á næstunni þar sem mörg þeirra séu að skila
inn ársreikningum sínum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vildi seint
í gærkvöldi ekki segja margt um framangreind
ummæli formanns VR. „Þessir samningar eru á
milli ASÍ og SA og það verður bara niðurstaða á
morgun [í dag] og ég tel að stjórnvöld hafi sýnt al-
veg skýran pólitískan vilja til að efla félagslegan
stöðugleika og eiga samtal, en síðan verður bara
hreyfingin að meta það,“ sagði Katrín í samtali við
Morgunblaðið.
Stærsta stéttarfélag
landsins stígi niður fæti
Formaður VR fékk umboð til að segja upp samningum Ræðst fyrir kl. 16
MDugar útspil ríkisstjórnarinnar? »4 og 18
Síðdegis í gær kom til landsins hóp-
ur íraskra flóttamanna, 21 manns úr
fimm fjölskyldum. Þrjár þeirra fóru
strax austur á land og munu setjast
að í Fjarðabyggð, en tvær fjöl-
skyldur fara á Ísafjörð og fljúga
þangað vestur í dag. Fleiri flótta-
menn koma svo á næstu dögum og
fara 23 vestur og 42 austur á firði.
Alls verða þetta því 65; fólk frá Írak
og Sýrlandi sem hefur verið í flótta-
mannabúðum í Jórdaníu. Búið er að
finna fólkinu húsnæði og annað sem
þarf.
„Sveitarfélögin og Rauði krossinn
hafa unnið hörðum höndum að því að
móttökurnar séu sem bestar,“ segir
Linda Rós Alfreðsdóttir í velferðar-
ráðuneytinu. Í heimabæ fær hver
fjölskylda stuðningssveit sér til
halds og trausts. »2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísland Góðar móttökur í Leifsstöð.
Móttökur
verði sem
bestar
Hópur kom í gær
Bið eftir liðskiptaaðgerðum hefur
styst síðan árið 2016, þegar farið
var í sérstakt þriggja ára átak til að
stytta bið sjúklinga. Lítið saxast þó
á fjölda þeirra sem eru á biðlista
eftir aðgerðum hverju sinni og
halda verður áfram með átakið, að
sögn Margrétar Guðjónsdóttur,
verkefnisstjóra á skurðlækninga-
sviði Landspítala.
Meðalbiðtími sjúklinga sem þurfa
á liðskiptaaðgerðum að halda er
um sex mánuðir í dag. Hið sérstaka
átak í þessum efnum hefur gert
Sjúkrahúsinu á Akureyri kleift að
bæta við mannskap og nær tvöfalda
fjölda gerviliðaaðgerða sem þar
eru framkvæmdar. Fjöldi aðgerða
fór úr tæplega 200 árið 2015 og upp
í 363 árið 2017. »6
Morgunblaðið/Ásdís
Biðtími Um 1.100 manns bíða nú eftir því
að komast í liðskiptaaðgerð hér á landi.
Þörf á að halda
áfram með átakið