Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018 ✝ Magnús S.Oddsson fædd- ist í Steinsholti í Leirársveit 30. nóvember 1925. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 15. febrúar 2018. Foreldrar hans voru Oddur Odds- son, f. á Krossi í Borgarfirði 2. októ- ber 1889, d. 21. ágúst 1932, og Kristín Magnúsdóttir, f. í Efra- voru Jón, f. 13. október 1911, d. 1987, og Sigurveig, f. 22. mars 1923, d. 1986. Hálfsystkini sam- mæðra eru Guðrún Erla Hall- dórsdóttir, f. 31. janúar 1942, gift Þorsteini Björnssyni, f. 1942, og Oddur Kristinn Halldórsson, f. 8. febrúar 1946. Magnús flutti ungur að árum úr Borgarfirðinum á Akranes ásamt systkinum sínum, móður og föðurömmu og síðan til Reykjavíkur. Hann lauk ung- lingaprófi frá Austurbæjarskóla. Byrjaði ungur að vinna hjá Vald. Poulsen og starfaði hjá því fyr- irtæki alla sína starfsævi í rúm 60 ár. Hann var ógiftur og barnlaus. Magnús verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. febrúar 2018, klukkan 15. Skarði í Borgarfirði 6. apríl 1902, d. 6. október 1973. Al- systkini Magnúsar eru Sigríður Oddný Oddsdóttir, f. 11. nóv. 1926, gift Gunnari Ásmunds- syni, f. 1922, d. 2006, og Ásta Sig- rún Oddsdóttir f. 26. okt. 1928, d. 2009, gift Hans Blomsterberg f. 1928, d. 2005. Hálfsystkini Magnúsar samfeðra Það var bara einn Maggi frændi og þvílík lukka fyrir okkur barnabörn ömmu Siggu, eftirlifandi systur hans Magga, að hafa haft hann í lífi okkar. Maggi var einstaklega hress og skemmtilegur karakter. Hann var duglegur að mæta í hin ýmsu fjölskylduboð, vopnaður Olympus-filmumyndavélinni sinni og smellti af við hvert tækifæri, framkallaði og sýndi okkur afraksturinn í næstu boðum á eftir. Þá var Maggi mikill sögumaður og hafði sér- staklega gaman af að segja sögur frá því í gamla daga, okkur fjölskyldumeðlimum til gamans. Maggi var frændinn sem gaf okkur fallegar barnabækur í jólagjöf á hverju ári, og seinna meir laumaði hann að okkur pening til að viðhalda þeirri hefð gagnvart börnunum okkar. Í dag er sérstaklega gaman fyrir okkur að geta dregið upp barnabók fyrir kvöldlesturinn, jafnvel merkta sem jólagjöf frá Magga frænda fyrir um 20 árum. Maggi bjó einn en var ein- staklega félagslyndur og vina- margur. Hann var duglegur að synda, keyrði út um allan bæ á milli staða þar sem hann hitti kærar vinkonur sínar í bridds og fór í sumarbústaðaferðir með þeim. Maggi frændi var einstakur maður sem við minnumst fyrst og fremst sem góðrar og skemmtilegrar manneskju, hann var yndislegur og mik- ilvægur bróðir ömmu okkar Siggu. Þau áttu einstaklega fallegt systkinasamband og er það ákveðin huggun harmi gegn að hann hafi fengið að kveðja með hana sér við hlið. Elsku Maggi, takk fyrir allt og allt. Þínar frænkur, Kristín Brynja Gústafsdóttir Erla Tinna Stefánsdóttir. Maggi frændi er fallinn frá á 93. aldursári. Hann var bróðir hennar mömmu og hafa þau alltaf verið mjög náin og fylgst að og með hvort öðru í gegnum tíðina. Þau systkinin fæddust að Steinsholti í Borgarfirði og á þessar slóðir fórum við þrjú á hverju ári. Byrjað var á að fara í Leirárkirkjugarð að leiðum föður þeirra og afa. Einnig var keyrt um sveitina og heim að hlaðinu í Steinsholti. Þá kom í ljós hve vel Maggi þekkti til allra staðhátta í sveitinni sinni. Við enduðum ferðina hjá frændfólki okkar á Skaganum og farið yfir gamla tíma. Ein- staklega skemmtilegar ferðir sem voru tilhlökkunarefni hverju sinni. Maggi flutti úr sveitinni á Akranes og síðan til Reykjavík- ur. Lengst af bjó Maggi og stórfjölskyldan á Kárastíg 8. Árið 1979 keypti hann íbúð í Valshólum 4 sem var byggð af VR. Þar bjó hann til dauða- dags. Hann hóf störf 15 ára gamall hjá Vald. Poulsen og starfaði þar í 62 ár. Til stóð að hann byrjaði að vinna á laug- ardegi en eitthvað var hann illa fyrir kallaður og kaus að byrja á mánudegi. Mánudagur til mæðu hvað. Árið 1996 í nóvember fóru foreldrar mínir, Maggi og ég til Dublin að horfa á landsleik í fótbolta. Þar nutum við þess að skoða borgina og þar náði hann frændi minn sér aldeilis á skrið. Mikill áhugi á sögu og landa- fræði og þekking hans og stál- minni á því efni sem hann hafði lesið í gegnum tíðina kom þar berlega í ljós. Að vera saman á leiknum var líka upplifun og gleði og lauk leiknum með jafn- tefli. Maggi var mikill áhugamað- ur um íþróttir og hefur fylgst vel með öllum fjölskyldumeð- limum í gegnum tíðina. Hann var mjög frændrækinn og var hann alls staðar aufúsugestur. Mikill samgangur var hjá hon- um við fjölskyldu Vald. Poulsen fyrirtækisins. Iðulega sáum við myndir af þeim því eitt af áhugamálum hans var að taka ljósmyndir við öll tækifæri úr lífi fólksins í kringum hann. Maggi var fastagestur í Breið- holtslaug og spilaði bridds víða og þótti vel liðtækur við bridds- borðið. Heima fyrir var hann með bækur og blöð í kringum sig, útvarpið og sjónvarpið í gangi á sama tímanum. Hann hafði áhyggjur af því hvað yrði um allar bækurnar eftir hans dag og minntist á það mjög reglu- lega við okkur. Einnig tefldi hann mikið og hittust þeir bræður, hann og Oddur, til að taka í skák. Áður fyrr tefldi hann við systur sínar og borg- aði þeim túkall fyrir. Þær skák- ir stóðu stutt yfir. Eins og sjá má voru áhugamálin margvís- leg og lifði hann frændi minn lífinu lifandi og alltaf var hann í góðu skapi og viðræðugóður. Ég þakka fyrir þennan góða frænda og allar góðu minning- arnar. Hvíl í friði. Guðrún Gunnarsdóttir. Kurteis, glöggur, fjölfróður, heiðarlegur, vingjarnlegur, traustur, áreiðanlegur og skemmtilegur. Allt eru þetta lýsingar á Magnúsi Oddssyni, Magga frænda, sem nú hefur horfið á vit feðra sinna 92 ára að aldri. Maggi var reyndar ekki frændi minn heldur móð- urbróðir Völu eiginkonu minn- ar. Magnús var ókvæntur og barnlaus og bjó einn öll sín bú- skaparár. Hann starfaði alla sína starfsævi hjá Vald. Poulsen, hóf störf þar 15 ára gamall og starfaði þar sleitulaust í um 60 ár. Það segir mikið um mann- inn og staðfestu hans. Magnús fylgdist vel með ættingjum sín- um og börnum þeirra og pass- aði upp á að börnin fengu jóla- gjafir frá sér. Og alltaf var myndavélin með þegar fjölskyldan kom saman. Hann var duglegur að framkalla og sýna myndirnar sínar. Hann var mjög fróður og ég er viss um að hefði hann á sínum tíma átt þess kost að ganga menntaveginn hefði hann komist langt á einhverju fræðasviðinu. Hann las mikið og átti gott bókasafn. Hann var einstakur sögumaður og lifnaði allur við þegar spurt var út í söguleg atriði. Þá var hann í essinu sínu. Það var einnig gaman að heyra hann segja frá ferðalögum sínum, en hann ferðaðist mikið bæði innanlands og erlendis. Maggi var öflugur bridds- spilari og tók reglulega þátt í mótum og félagsstarfi á þeim vettvangi. Í fjölskyldu minni höfum við hlegið mikið að þeim tíma þegar við vorum að hefja búskap og Maggi gaf mér gamlan Lödubíl þegar hann endurnýjaði sinn. Stór göt voru í gólfinu á bílnum og Erlu, elsta barninu okkar, þótti gaman að sulla í pollinum sem myndaðist aftur í bílnum. Þessi gjöf undirstrikaði hversu góður og umhyggjusam- ur Magnús var. Það var gaman að fylgjast með systkinunum, tengdamóður minni og Magga. Þau töluðu reglulega saman og áttu í afar góðu sambandi. Og nú er þessi öðlingur farinn yfir í Sumarlandið. Við fjölskyldan erum þakklát fyrir að hafa fengið að ferðast með og kynn- ast Magnúsi Oddsyni. Guð geymi minningu hans. Stefán Snær Konráðsson. Magnús S. Oddsson, eða Maggi frændi eins og við fjöl- skyldan kölluðum hann, er lát- inn. Hann var yndislegur fyrir svo margt, sanngjarn og rétt- sýnn maður, mikill grúskari og mjög fróður. Hann var mikill bókmennta- maður og jólagjafirnar frá hon- um einkenndust af góðum barnabókum hér á árum áður. Hann fylgdist með börnunum í fjölskyldunni og spurði alltaf þegar við hittumst hvernig gengi. Síðustu ár hafa verið breyt- ingar á bókagjöfum frá Magga frænda en þegar kom að því að aðstoða við kaup á jólagjöfum til barnanna okkar Benna fannst okkur spil frá Magga frænda vera réttast í stöðunni, enda var Maggi frændi spila- maður mikill og gekk mjög vel í bridsinu enda mikill bridsspil- ari. Ég hef alist upp við það að Maggi frændi og Oddur frændi komi í mat til ömmu á jóladag þar sem pabbi minn heitinn hjálpaði til við uppstúfinn og ég kíkti í kirkjugarðinn og svo til ömmu á Suðó að hitta Magga og Odd. En í ár var það öðru- vísi. Í heimsókn minni til Magga frænda rétt fyrir áramót voru bækurnar á sínum stað á stofu- borðinu, en hann var hálfslapp- ur svona eins og hann sagði sjálfur og heilsan mætti vera betri en ekki kveinkaði hann sér. Jæja, er mjúkur pakki í ár Sigga mín? Já, sagði ég. Fékkstu ekki svolítið af bókum? Jújú og Maggi taldi þær upp fyrir mér, hann var byrjaður að lesa og njóta. Einstaklega hæglátur og ljúfur maður hann Maggi frændi og hugsaði örugglega meira en hann tjáði sig um. Hann var fróður maður og vildi láta lítið fyrir sér fara. Maggi frændi hafði einstakt lag á ljósmyndun og þar var nú ekki tækninni fyrir að fara en hann var einn af þeim fáu sem voru með myndavél í eldri kantinum og sendu í framköll- un. Hann var duglegur að sýna okkur hinum myndirnar þegar þær komu úr framköllun og segja frá. Við minnumst Magga frænda með þakklæti. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Maggi frændi, minn- ing þín lifir og takk fyrir allt og allt Þín frænka, Sigríður Ólafsdóttir og fjölskylda. Magnús Oddsson var vinnu- félagi okkar um áratuga skeið og varð í raun hluti af stórfjöl- skyldunni. Hann hóf störf sem sendi- sveinn hjá Verzlun Vald. Poulsen hinn 1. maí 1940, þá 14 ára gamall, og vann þar óslitið til 30. apríl 2001, eða samtals í 61 ár. Það er einstakt lán fyrir stjórnendur fyrirtækis að hafa slíkan mann innanbúðar, sem kunni allt og þekkti alla og ekki var síður mikilsvert að kynnast svo ljúfum og lífsglöðum manni sem Maggi var. Hann var ungur þegar hann missti föður sinn og kom til Reykjavíkur ásamt móður sinni og tveim systrum. Þótt skóla- gangan væri ekki löng hélt hann áfram að mennta sig, og lærði bæði dönsku og ensku, var til dæmis áskrifandi að Newsweek, og las tæknibækur á þeim tungumálum. Á 61 ári breyttist margt bæði í umhverfi viðskiptanna og innan fyrirtækisins. Magnús var alltaf með á nótunum og aðlagaðist öllum breytingum. Sem dæmi má nefna að hann handskrifaði allt verð í verzl- uninni inn í innbundnar bækur en lærði allt verðið jafnóðum. Því var oftast fljótlegra að fletta upp í honum en bókun- um. Þegar kom að því að verzl- unin tölvuvæddist fór hann beint í tölvuna og skrifaði út reikninga eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Magnús hafði þann sjald- gæfa eiginleika að hann lét við- skiptavinina alltaf finna að þeir væru velkomnir og þyrftu ekki að bíða lengi eftir afgreiðslu. En þótt fyrirtækið, kúnnarnir og eigendurnir ættu hug hans hafði hann mörg önnur áhuga- mál. Hann hafði gaman af íþrótt- um, sundi og ekki síst brids. Hann fór á Ólympíuleikana í Róm og í margar utanlands- ferðir með góðu fólki. Annar sérstakur eiginleiki var hans góða geð, sem gerði hann eftirsóttan bridsfélaga. Hann gerði oft góðlátlegt grín að þeim sem eyddu meiri tíma í að rífast en í spilin. Magnús var ógiftur og barn- laus en átti fallegt heimili og var vinmargur. Hann átti gott líf og náði 92 ára aldri. Við fjöl- skyldan og vinnufélagar minn- umst hans með hlýhug og þakklæti fyrir allt sem hann gaf okkur. Ingólfur Árnason og fjölskylda. Magnús S. Oddsson Langri og giftu- ríkri ævi er lokið. Dídí, tengdamóðir mín, varð 94 ára. Hún hélt reisn sinni til hinstu stundar. Til marks um það, þá var henni ekkert um að nota göngugrind, eins og „gamla fólk- ið“, því hún var hrædd um að verða háð henni. Hún var einnig vel með á nótunum miðað við ald- ur, var sílesandi alla tíð og hafði alltaf bókastafla nærri sér. Dídí var sterkur persónuleiki og hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum, sem ekki var auðvelt að hnika. Fyrir sjö árum fór Dídí í hjartaskurðaðgerð og dró þá úr veraldarvafstri hennar og er ekki laust við að kjarkur og lífsgleði hafi þá minnkað, sérstaklega eft- ir að lífsförunautur hennar til 68 ára, Magnús Guðmundsson, lést fyrir þremur árum. Í kjölfar fót- brots 2015 fór Dídí á Hjúkrunar- heimilið Mörk og lifnaði þá held- ur betur yfir henni, því hún varð óþreytandi í heimsóknum, kaffi- húsaferðum og öðru útstáelsi með sínum nánustu eftir það. Fjölskylda Dídíar var henni afar náin og heimsótti hana oft og hvatti hana til dáða. Er þar á eng- an hallað þó minnst sé á Stefán, dótturson hennar, sem var óþreytandi við að koma við hjá ömmu sinni og fá hana út á meðal fólks, þó ekki væri nema á kaffi- hús. Oftar en ekki lá leiðin heim til Lillýjar, systur Dídíar og Guð- rúnar Drafnar, dóttur Lillýjar, í matarkræsingar og langt og gott spjall um dægurmál og gamla daga. Þær stundir voru Dídí afar kærar og var hún Stefáni mjög þakklát fyrir ræktarsemina. Ég kynntist Dídí fyrst fyrir 15 árum, þegar ég og Una Þóra, dóttir hennar, rugluðum saman reytum, þó ég hafi þekkt vel til fjölskyldunnar og ættingjanna frá Ísafirði alla tíð. Ég er þakk- látur fyrir, hve mér var vel tekið af þeim öllum og þakka Dídí fyrir alltof stutt, en elskuleg kynni. Blessuð sé minning hennar. Hörður Högnason. Elsku fallega amma mín. Mik- ið er leiðinlegt að þú sért farin frá okkur. Það leynir sér ekki að það er nokkuð tómlegt án þín og á eft- ir að taka smá tíma að átta sig á Agnete Simson ✝ Agnete Simson(Dídí) fæddist 9. september 1923. Hún lést á 23. jan- úar 2018. Útför Agnete fór fram 16. febrúar 2018 fjarveru þinni. Það var virkilega erfitt að sjá þig svona veika síðustu daga þína. En núna ert þú komin til afa þannig að allt verð- ur miklu betra. Eins góðri og hlýrri manneskju hef ég aldrei kynnst. Hún var hin fullkomna formúla að ömmuímyndinni. Því verður ekki á móti mælt að hún amma lifði mjög þægilegu og góðu lífi. Hún var mikil sögukona og hafði gaman af því að sega frá gamla tímanum. Hún hafði græna fingur og hafði góða hæfi- leika til að mála myndir. Hlíðar- gerði og garðurinn var henni allt. Garðurinn í Hlíðargerði vakti mikla athygli á sumrin enda var hann sem glæsilegastur. Hún lagði mikla vinnu í að halda hon- um við og var það hennar allra helsta áhugamál. Maður á svo margar góðar minningar með ömmu í garðinum á sumrin. Þegar maður kom heim í Hlíðargerði var það fyrsta sem amma spurði um hvort maður væri ekki svangur. Það var mjög fyndið við hana ömmu að alltaf var hún að bjóða manni upp á sætindi, en á sama tíma og hún rétti manni kex þá talaði hún um að maður þyrfti nú að passa sig að fitna ekki. Amma var mjög nægjusöm og stundum einum of, en þegar kom að því að versla í Rúmfatalagernum þá mátti sko eyða enda frábær verslun að hennar sögn. Amma var mikill lestrarhestur og henni fannst mjög gaman að koma á bóka- markaðinn í Perlunni. Í fyrra fór ég með henni á bókamarkað, ég er ekki frá því að hún hafi lesið aftan á allar bækurnar á mark- aðnum. Að lokum langar mig til þess að þakka þér fyrir samveruna síðustu 29 ár og þá sérstaklega síðustu þrjú ár. Við áttum virki- lega góðar stundir saman eftir að þú fórst á Mörkina og munu þær lifa með mér til æviloka. Takk fyrir að hafa alltaf staðið þétt við bakið á mér og stutt mig áfram í lífinu. Takk fyrir þau fallegu orð sem þú sagðir við mig á spítalanum, betra veganesti væri ekki hægt að taka með sér út í lífið. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mér og minna mig á það góða í lífinu. Megi sál þín verða að fallegu blómi sem festir rætur sínar í garðinum í Hlíðargerði, þar sem þér leið best. Stefán Þórarinsson. Hann Lúlli bak- ari er látinn. Það eru margar ljúfar minningar sem renna í gegnum hugann þeg- ar ég minnist hans Lúlla afa (tengdaafi minn) sem lést núna 5. febrúar að verða 88 ára gamall. Á hverju ári eftir að við Stein- ar kynntumst fórum við í Ólafs- víkina og nutum gestrisni og skemmtilegra stunda með Lúlla afa og Sissu ömmu. Fjölskyldan óx og alltaf var jafn mikilvægt að koma aftur að ári. Alveg sama hvenær sólar- hringsins við mættum á svæðið og hversu oft við sögðumst vera Lúðvík Þórarinsson ✝ Lúðvík Þór-arinsson fædd- ist 6. apríl 1930. Hann lést 5. febr- úar 2018. Lúðvík var jarð- sunginn 16. febrúar 2018. búin að borða þegar við komum stóðu kræsingarnar á borðinu og þau tóku brosandi á móti okk- ur. Það var mikill missir þegar Sissa amma dó en móttök- urnar voru enn jafn ljúfar og góðar hjá Lúlla afa. Við kveðjum því ákaflega ljúfan og skemmtilegan mann sem hafði góðan húmor fyrir lífinu og fylgd- ist vel með hvað afkomendurnir voru að bralla. Skemmtilegar samræður um allt milli himins og jarðar, og fannst honum ekki slæmt að koma smá hita í um- ræðuna, sem er auðvitað nauð- synlegt til að hafa gaman af. Við munum ávallt sakna þessara stunda en minningin lifir. Steinar, Guðrún Anna, Finnbogi, Ríkharður Ingi og Sólrún Elsa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.