Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
Frá
morgnifyrir allafjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Laugarnar í Reykjavík
NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL
AF KVIKMYNDUM
Hulda Rós Guðnadóttir
Við Íslendingar höfum eignast okk-
ar eigin Skömm. Það kom í ljós í
myrkum sal í Húsi menninga heims-
ins í Berlín síðastliðinn fimmtudag.
Kvikmynd leikstýrunnar og Berl-
ínarbúans Maríu Sólrúnar, Adam,
var þá frumsýnd þar í flokknum
„Kynslóð14+“ eða „Generation-
14plus“ á Kvikmyndahátíðinni í
Berlín. Flokkurinn er tileinkaður
kvikmyndum fyrir ungt fólk frá fjór-
tán ára aldri og er lögð áhersla á að
bera á borð fyrir þau nýjar uppgötv-
anir og myndir af háum gæðastaðli
víðsvegar að úr heiminum.
Kynslóðarflokkurinn er hugsaður
sem vettvangur þar sem fólk á öll-
um aldri mætist með það göfuga og
um leið mikilvæga markmið að
leiðarljósi að gefa börnum og ung-
lingum tækifæri til að taka þátt í
umræðu um fagurfræði kvikmynda.
Það má segja að það hafi tekist. Á
hverju ári sækja um 65.000 áhorf-
endur sýningar á kvikmyndunum
undir þessum hatti. Frekar en að
fara á frumsýningu Adam ákvað
fréttaritari Morgunblaðsins að fara
frekar á aðra sýningu myndarinnar
í meginstraumskvikmyndahúsinu
Cinemax á Potsdamer Platz klukk-
an 11 á föstudagsmorgni. Og ef
dæma má af fjölda unglinga í saln-
um þá má draga þá ályktun að
heimsókn á kvikmyndahátíðina þyk-
ir mikilvægur liður í að mennta
krakkana í sjónlistum og myndmáli.
Þetta er ekki bara spurning um að
horfa á kvikmyndina heldur bjóða
umræður áhorfenda, kvikmynda-
gerðarmanna og fagfólks að sýningu
lokinni upp á tækifæri fyrir ung-
linga til að þjálfa sig í gagnrýnni
nálgun á kvikmyndir og sjá kvik-
myndir frá öðru sjónarhorni en
vanalega gefst í meginstraums-
kvikmyndahúsum.
María Sólrún vinnur í flæði
Adam er Berlínarmynd eða nánar
tiltekið Neukölln-mynd – og ef við
eigum að vera alveg nákvæm Wes-
erstrasse-mynd. Neukölln er hverfi
í suðausturhluta borgarinnar þar
sem margir ungir listamenn borg-
arinnar hafa fundið sína hillu í lífinu.
Weserstrasse er aðalgatan í þessari
kreðsu og er nágrönnum á götunni
þakkað í lok myndar. Leikstjóri og
aðalleikari búa þar í íbúð sem verð-
ur einmitt svið kvikmyndarinnar.
Þetta er stórborgarmynd sem, eins
og norsku sjónvarpsþættirnir
Skömm, tekur á raunsæjan hátt á
heimi unglings. Við undirbúning
Skammar var leitast við að fá til
þátttöku unglinga vítt og breitt um
Noreg í handrits- og hugmyndaskrif
og svipað gerðist í vinnslu Adam.
Aðalleikari myndarinnar, Magnús
Maríusson, er sonur Maríu. „Magn-
ús var að klára kvikmyndaskóla. Við
vorum með þessa íbúð og okkur
langaði að gera kvikmynd. Mánuði
eftir að hugmyndin vaknaði fóru
fyrstu tökur fram. Við tókum upp
efni og klipptum smá og tókum svo
upp meira efni. Þannig var myndin
unnin án handrits en í flæði þess
sem gerðist á milli þess sem við tók-
um upp efni,“ segir María þegar
hún er spurð út í vinnslu myndar-
innar. Einskonar spunaleikur hér á
ferð og kallast þannig á við vinn-
ingsmynd hátíðarinnar Touch Me
Not þó myndirnar séu ólíkar. Það
sýnir hugrekki Maríu, sérstaklega í
ljósi þess hvað hún er fær handrits-
höfundur, en handritsskrif og -ráð-
gjöf hefur verið hennar aðalstarf um
árabil. Hún fer ekki auðveldu leiðina
heldur skorar sjálfa sig á hólm með
góðum árangri.
Magnús vinnur stórsigur
Magnús nær miklum hæðum í
túlkun sinni á hinum heyrnarlausa
Adam sem er að fást við móður-
missi. Móðirin, teknólistakona um
fertugt, hefur fengið heilabilun og
er að týnast inni í sjálfri sér á stofn-
un í hverfinu. Myndin fjallar um
hörmulegar aðstæður en verður
samt aldrei melódramatísk. Hún
kemur hinsvegar sífellt á óvart og
er fyndin á frumlegan hátt. Magnús
lifir sínu lífi og verður ástfanginn á
Tinder, á sama tíma og hann er að
kljást við ákveðna valþröng sem
skilaboðaskjóða frá móður hans í
fortíð hefur komið honum í. Í kvik-
myndinni er velt upp til hvers má
ætlast af ástvinum, sérstaklega
börnum sínum. Rammi kvikmyndar-
innar í skapandi iðu Neukölln,
himnaríki unglingsins, er samhengi
sem gerir unglingum dagsins í dag
auðveldara með að finna til hlut-
tekningar en oft gerist með amer-
ískt unglinga- og barnaefni. Heim-
urinn er nær þeim og ekki er verið
að tala niður til þeirra. Hér er partí
á ferðinni en persónan Adam er
marglaga og flókin og það er
ánægjulegt fyrir unglinginn að fá að
spegla sig í flækjunni.
Þetta er heimilismynd eða sjálfs-
fjármögnuð kvikmynd og gerð með
aðstoð vina og fjölskyldu. Tónlistin
var í höndum dóttur og tengdasonar
leikstýrunnar, Magneu og Haraldar
Þrastarsonar, og Magnús sá einnig
um framleiðslu. Það hefur ekki nei-
kvæð áhrif á gæði myndarinnar
heldur þveröfugt. Þeim hefur tekist
að finna aðferð og nálgun sem gerir
heimilisframleiðslu að kosti frekar
en takmörkun. Myndin tók þrjú ár í
vinnslu og fór að lokum í eftir-
vinnslu í Mexíkó en aðalframleið-
endur kvikmyndarinnar eru þaðan
og annast Kvikmyndamiðstöðin í
Mexíkó sölu á henni. Kvikmyndin er
tileinkuð móður Maríu og ömmu
Magnúsar og Magneu sem lést árið
2012.
Ný kvikmynd Maríu Sólrúnar, Adam, var frumsýnd á Kvikmyndahátíðinni í Berlín í liðinni viku
Leikstýran „fer ekki auðveldu leiðina heldur skorar sjálfa sig á hólm með góðum árangri“
Ljósmynd/Hulda Rós Guðnadóttir
Leikstjórinn María Sólrún mætir á rauða dregilinn fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar Adam í Berlín.
Big Key Film/Joanna Piechotla Ljósmynd/Hulda Rós Guðnadóttir
Veggspjöld Adam kynnt með myndum í flokknum „Kynslóð14+“.Adam Magnús Maríuson í aðalhlutverkinu. Myndin var tekin í Berlín.
Okkar eigin Skömm
Sýning Guðlaugar Gunnarsdóttur, 17. júní, hefur verið
opnuð í Liststofunni að Hringbraut 119 og er það sjötta
einkasýning hennar.
Í tilkynningu segir að í verkunum sínum leitist Guð-
laug við að finna kjarna tilveru sem sameinar lifandi
verur náttúrunni í hinu stóra samhengi hlutanna. Sak-
leysið, lífið, dauðinn, ljósið og myrkrið leika stór hlut-
verk í list hennar. Á sýningunni eru tvær seríur, jarðar-
faraskreytingar unnar í kol, þar sem lykilblóm mynda
form sem getur haft ákveðna táknræna þýðingu, og op-
inberum portrettum merkisfólks úr íslensku þjóðlífi,
sem prentuð eru á ljósritunarpappír, er umbreytt í dýr
með kolum og krít.
Guðlaug nam í Danmörku og lauk framhaldsnámi í Nice í Frakklandi.
Hún hefur sýnt víða í Evrópu á undanförnum árum.
Guðlaug Gunnarsdóttir í Listastofunni
Eitt verka
Guðlaugar.