Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018 Stundum er erfitt að skilja gang lífs- ins. Það er bæði sár og undarleg tilfinn- ing að sjá á bak elsku systur minni Dúu Stefaníu fyrir rúmum mánuði og nú eiginmanni hennar, mági mínum og kærum vini, Arnóri Eggertssyni. Dúa systir mín er í minning- unni sú sem barnsminnið segir mér að hafi stutt mig og leitt heima á Siglufirði, þar sem við fæddumst og ólumst upp. Síðar varð það hennar hlutskipti að eignast þann sómadreng að eig- inmanni, sem við kveðjum nú, Arnór Eggertsson. Frá upphafi var ljóst að þar fór mannsefni, enda hefur Arnór staðið í stafni, sem góður eiginmaður, faðir þriggja dætra og sjö annarra af- komenda, allt hið gjörvilegasta fólk. Reyndar verð ég að viður- kenna, að hafa verið á varðbergi í upphafi heimsókna Arnórs á heimili okkar á Brávallagötunni, en það lagaðist er fram í sótti, enda ljóst að Dúu systur varð ekki haggað. Hugur hennar og kær- leikur stóð til þessa unga og gjörvilega manns og þurfti engan að undra, sem síðar kom á daginn. Það var líka gott að eiga þau að á mótunarárum mínum, en þá bjuggu þau í Sörlaskjólinu og þangað lágu spor mín oft. Eftir stúdentspróf hóf Arnór nám í end- urskoðun og lauk því á tilskildum tíma. Síðan varð það hlutskipti hans að vinna hjá Endurskoðun Björns E. Árnasonar, þar til leiðir skildi og Arnór vann sjálfstætt eftir það. Mikil ásókn var að kom- ast í viðskipti hjá Arnóri og þeir sem einu sinni komust inn fyrir þröskuldinn voru þar eftir aufúsu- gestir, sum meðal stærstu fyrir- tækja landsins. Sagt er um endur- skoðunina, að þeir sem ekki hafi þolinmæði og þrek ættu að fá sér aðra vinnu. Báða eðliskostina hafði mágur minn til að bera í rík- um mæli. Mér er t.d. ekki eðlis- lægt að halda utan um bókhalds- gögn og skjöl og þaðan af síður að skila öllu af mér í einu, en þetta var allt til staðar hjá mér? Svör endurskoðandans voru skýr. Nei, elsku drengurinn minn, engu verður lokið fyrr en tilheyrandi skjöl koma í hús og þá fyrst var „minn maður“ sáttur. Þrátt fyrir annir átti Arnór sér áhugamál sem hann rækti eftir getu. Hann var liðtækur hand- boltamaður á yngri árum og ekki má gleyma KR, sem, að fjölskyldu og vinum undanskildum, stóð huga hans næst. Arnór var góður bridsspilari og var vinahópurinn, sem kom reglu- lega saman um áratuga skeið, honum mjög kær. Arnór var góð- ur skotveiðimaður, naut þess að ganga til rjúpna þegar færi gafst. Í seinni tíð hafði Arnór ánægju af að spila golf. Ekki get ég skilið við mág minn án þess að minnast á pólitík, en við sem teljumst til þessarar fjölskyldu erum þekkt fyrir skoðanir á því sviði. Því mið- ur voru systkini mín oft ósammála mér, en þegar allt ætlaði um koll að keyra reyndi Arnór að bera klæði á vopnin. Arnór og Dúa höfðu mikla ánægju af að ferðast innanlands sem utan og ógleymanleg er sigl- ing okkar Ingu með þeim fyrir fjórum árum um Miðjarðarhaf. Þegar ég nú ígrunda hve sam- heldin og dugleg þessi góðu hjón, Dúa og Arnór, voru, hjálpsöm og áreiðanleg, verður manni hugsað til foreldra okkar, sem blásnauð komu í heiminn norður í Fljótum og ekki síður til Arnórs heitins, sem einstæð móðir kom til manns, Arnór Eggertsson ✝ Arnór Egg-ertsson fædd- ist 6. júlí 1941. Hann lést 20. febr- úar 2018. Útför Arnórs fór fram 26. febrúar 2018. sem allir vildu eiga að vini er kynntust honum vegna mann- kosta hans og dugn- aðar. Erfið og þungbær veikindi hafa að sönnu reynt á okkur öll. Nú hefur verið lögð líkn við þraut. Við sendum fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Ágústa Inga og Jónas Hallgrímsson. Ég kvaddi Arnór, mág minn, þremur dögum áður en hann dó. Sat hjá honum drjúga stund. Beið eftir myndum sem hafa verið mér ofarlega í huga lengi. Ég sit í amerískum kagga með Arnóri, Svenna Kjartans og Gvendi Björns. Þetta voru miklir gæjar. Ég er einn af þeim. Bíllinn svífur um Vesturbæinn og niður á rúntinn. Það er talað um allt milli himins og jarðar. Loksins fékk maður að komast inn í veröld þeirra sem höfðu frá svo mörgu spennandi að segja, MR, öllum sætu stelpunum sem þeir voru bálskotnir í, hinum fræknu hetjum í KR og öllu því forboðna sem drengur rétt fermdur varð heillaður af. Um stund varð maður hluti af lífi þessara lífsglöðu ungu manna. Já, óskaplega var það skemmtilegt að trúa því um stund að maður væri að verða átján. Það sem einkenndi Arnór á þessum árum var hvað hann var gjafmildur á tíma sinn til okkar, systkina Dúu. Allt frá því að Arn- ór kom inn í fjölskyldu okkar elsk- uðum við hann öll. Mest fyrir mannkosti hans, góða nærveru og vinsemd. Líklega þótti mömmu samt vænst um hann. Spurð af hverju henni þætti svona mikið til um Arnór, svaraði hún eftirminni- lega: Hann hreinsar svo vel af sviðahausum. Slíkir menn eru vandfundnir og oft góðmenni, sagði hún. Það voru sannmæli. Aðra mynd á ég af Arnóri þeg- ar hann undirbjó stórkostlega veiðiferð okkar að Gíslholtsvatni þar sem ég átti að læra silungs- veiði. Við vatnið vorum við dag- langt í dýrlegu veðri. Ég hafði í lok dags fengið bestu kennslu í veiði- skap, hafði dregið níu silunga en hann tvo. Þetta er skrýtinn dagur, sagði hann. Í barnsminni mínu var þetta ævintýri. Við sátum tveir einir heilan dag saman og spjöll- uðum. Jafningjar. Fyrir nokkru rifjaði Torfi, bróðir Arnórs, það upp með mér að Arnór, stóri bróðir, hefði sagt við hann ungan að hann hlakkaði til þeirrar stundar þegar Torfi yrði nógu þroskaður til að lesa bókina Veröld sem var eftir Stef- an Zweig. Þessi gersemi evr- ópskra bókmennta er eftirlæti allra frelsisunnandi jafnaðar- manna. Torfi taldi þetta vera til marks um hvað jöfnuður var Arnóri mikils virði. Það væri á ábyrgð hans að koma þessum boð- skap til yngri bróður síns. Arnór var mikill útilífsmaður og íþróttaunnandi alla tíð. En mest af öllu unni hann fjölskyldu sinni. Hún var ætíð í fyrirrúmi. Það var líka alltaf gaman að heim- sækja Dúu og Arnór og njóta gestrisni þeirra og vinarþels til okkar og barna okkar. Við eigum líka einn Arnór sem barnabarn og það er ekki erfitt að finna fyrir- myndina. Börnin okkar Köru eiga öll góðar minningar um Arnór og góða nærveru hans og góðvild. Meðan við Kara vorum ung og áttum ekkert nema hvort annað, voru Arnór og Dúa hluti af örygg- isneti okkar. Þá þurfti að skrifa upp á skuldbindingar fyrir eigna- laust fólk. Alltaf sjálfsagt af þeirra hálfu og hluti af þeirri góðu arf- leifð sem fylgdi þeim báðum til systkina og barna. Fyrir allt þetta erum við Kara þakklát. Við munum sakna Arn- órs. Hann kvaddi bara allt of snemma. Þráinn og Kara. Góður vinur er fallinn frá. Ég hitti Arnór fyrst fyrir tæp- um sjötíu árum vestur á Báru- götu. Hann nýfluttur þangað með Jóhönnu móður sinni, indælli konu sem ég kynntist vel. Okkur varð strax vel til vina og þar bund- umst við þeim vináttuböndum sem aldrei rofnuðu. Það var gaman að vera stráklingur í Vesturbænum á þessum árum. Fótbolti á Landa- kotstúni og á Framnesvegsvelli, ævintýraferðir út í Örfirisey eða veiðar á smábátabryggjunum svo eitthvað sé nefnt. Nú eru breyttir tímar frá því sem þá var. Arnór dvaldi í sveit á sumrin, eins og þá var algengt, hjá móð- urfólki sínu prestshjónunum í Vatnsfirði og sagði hann mér ný- lega að það hefði verið góður tími sem gaf honum mikið og hann hefði ekki viljað missa af. Arnór var góður íþróttamaður. Á sínum yngri árum lék hann knattspyrnu með Val, reyndar fyrir misskilning því hann var mikill KR-ingur og lék handbolta með KR. Fyrir nokkrum árum hóf hann svo að spila golf og hafði af því mikla ánægju. Haustið 2015 heimsótti hann okkur Þorbjörgu ásamt spilafélögum okkar til Ed- inborgar þar sem við spiluðum saman golf í viku tíma og naut hann þess til hins ýtrasta. Snemma árs 1965 stofnuðum við bridsklúbb ásamt Birni Bjarnasyni og Guðjóni Margeirs- syni. Spilað var einu sinni í viku á veturna í yfir hálfa öld og ekki féll úr spilakvöld nema vegna fjar- vista erlendis. Alltaf var tilhlökk- unin jafn mikil enda félags- skapurinn góður. Í hálfa öld þáðum við góðar veitingar hjá konum okkar, sem nú er þakkað fyrir, þar á meðal Dúu konu Arn- órs sem lést í janúarmánuði sl. eft- ir erfið veikindi Eftir stúdentspróf hóf Arnór nám í endurskoðun og að því námi loknu starfaði hann sem endur- skoðandi hjá Endurskoðunar- skrifstofu Björns E. Árnasonar þar sem hann síðar varð meðeig- andi og svo hjá Deloitte þar til eft- irlaunaaldri var náð. Arnór var fær endurskoðandi og sérlega vinnusamur. Það var gott að leita til hans um aðstoð þegar á þurfti að halda. Arnór kynntist Dúu konu sinni á menntaskólaárunum. Þau giftu sig árið 1964 og urðum við Þor- björg þess heiðurs njótandi að eiga með þeim skemmtilega kvöldstund á brúðkaupsdaginn. Síðan er liðinn langur tími og við hjónin erum lánsöm að hafa átt þau að vinum öll þessi ár. Þau eignuðust þrjár góðar dætur, Arn- dísi, Jóhönnu og Valdísi, sem hafa reynst foreldrum sínum einstak- lega vel í erfiðum veikindum þeirra beggja. Við Þorbjörg sendum dætrun- um og öðrum ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur vegna fráfalls þeirra. Guðmundur Björnsson. Með söknuði kveð ég minn góða vin, Arnór Eggertsson. Okkar fyrstu kynni voru sem smá guttar, þegar safnast var saman á Landakotstúni eða Framnesvelli þar sem ótal mörg strákaknattspyrnulið úr Vestur- bænum kepptu sín í milli frá morgni til kvölds. Arnór var hetja í öllu sem hann kom nálægt og átti það bæði við leik og störf. Hann var bæði ná- kvæmur, heiðarlegur, ákveðinn og setti sér ætíð há markmið. Þetta þekki ég sem vinur hans í árarað- ir. Hann var e.t.v. seintekinn en var traustur vinur vina sinna og undir hægu yfirborðinu leyndist glettinn og einstaklega ljúfur drengur. Þegar við vorum komnir rétt yfir tvítugsaldurinn var stofnaður bridsklúbbur með sameiginlegum vinum okkar þeim Birni Bjarna- syni og Guðmundi I. Björnssyni. Herbert Haraldsson kom í klúbb- inn þremur árum eftir stofnun en hætti fljótlega vegna starfa er- lendis. Þessi ágæti spilaklúbbur okkar starfaði á tímabilinu september til loka apríl og sleitulaust í 52 ár. Þá var bæði spilað af kappi og rætt um landsins gagn og nauðsynjar og málefni sem uppi voru á hverj- um tíma. Í minningabankanum eru líka skemmtilegar ferðir sem við félagarnir fórum til London til að fylgjast með fótboltanum og núna nýlega ljúf minning frá golf- ferð til Edinborgar. Þessi ár sem spilaklúbburinn starfaði voru ótrúlega skemmtileg og er margs að minnast frá þeim tíma. Því mið- ur koma þeir góðu tímar ekki aft- ur en þá er gott að eiga dýrmætar minningar. Arnór byrjaði að spila golf fyrir nokkrum árum með okkur félög- unum. Það var hrein unun að fylgjast með hve ótrúlegum fram- förum hann náði á stuttum tíma, enda kappsamur og ástundunin góð. Nutum við góðs af því fé- lagarnir þar sem hann dreif okkur með sér. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (GJ) Arndís, Jóhanna,Valdís og fjöl- skyldur, ég bið ykkur Guðs bless- unar. Kæri vinur, farðu í Guðs friði og megi hið eilífa ljós vísa þér veginn. Guðjón Margeirsson. Við andlát vinar míns, Arnórs Eggertssonar, birtast í huga mín- um óteljandi ánægjuleg minning- arbrot frá liðnum áratugum. Leiðir okkar Arnórs lágu fyrst saman þegar ég kom suður, til náms í Háskóla Íslands, að af- loknu stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri, vorið 1963. Samstúdent minn, vinur og bridsfélagi úr MA, Guðmundur Björnsson, þekkti tvo álitlega drengi sunnan heiða, þá Arnór og Guðjón Margeirsson. Svo fór, að við fjórmenningarn- ir mynduðum spilaklúbb í janúar 1965. Síðan þá höfum við spilað nær vikulega alla vetur, síðast þann 13. mars síðastliðinn, eða í liðlega 52 ár. Öll þessi ár hefur alltaf verið jafn gaman að hitta félagana og aldrei hefur skugga borið á vinátt- una. Arnór var mjög áhugasamur skotveiðimaður og þar lágu áhugasvið okkar vel saman. Þær voru óteljandi ferðirnar sem við fórum saman, vítt og breitt um landið, til rjúpna- og gæsaveiða. Margar af ferðum þessum voru ógleymanlegar æv- intýraferðir í misjöfnum veðrum og færð. Oft þurfti að losa bíla úr sköflum og aurbleytu og þá komu sér vel þolinmæði og þrautseigja Arnórs. Betri veiðifélaga en Arnór var vart hægt að hugsa sér. Hin síðari ár ánetjaðist hann golfíþróttinni, ef til vill fullseint á ævinni, en áhuginn var mikill og ánægjan einnig. Í golfinu áttum við einnig góða samleið. Og ekki má gleyma KR-ingnum Arnóri og óhætt er að fullyrða, að fáir voru dyggari stuðningsmenn félagsins en hann. Ekki má hjá líða að nefna þá eiginleika sem honum voru svo ríkulega í blóð bornir, hjálpsemi, heiðarleiki, dugnaður og þraut- seigja. Með þessum orðum kveð ég þig, kæri vinur, með þakklæti fyr- ir allar ánægjulegu samveru- stundirnar. Við Hanna sendum Arndísi, Jó- hönnu, Valdísi og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Arnórs. Björn R. Bjarnason. Í dag kveð ég móður mína eftir stutta sjúkrahús- vist. Margt kemur upp í hugann á svona stundu og rifjast upp liðnir tímar, eins og segir „Margs er að minnast, margs er að sakna“. Það var alltaf nóg að gera hjá móður minni meðan þau pabbi bjuggu í sveitinni, næg voru verkefnin og reyndi maður oft að rétta hjálp- arhönd eftir bestu getu. Minnis- stætt er þegar ég var barn að við fórum saman á haustin í berjamó og var ekki hætt að tína fyrr en var búið að fylla þær fötur sem við vorum með. Hún sagði oft við mig: voðalega eru fljót að fylla fötuna þína,. Já, sagði ég það er vegna þess að ég tíni bara stóru berin. Svo gerði hún sultu og saft. Hún var einstaklega lagin við að elda góðan mat og var listakokk- ur og einnig bakaði hún góðar kökur og voru kleinurnar hennar sérstaklega góðar og pönnukök- urnar. Þegar ég var unglingur settumst við niður á kvöldin með handavinnu og hlustuðum á kvöldsöguna í útvarpinu, þetta voru okkar sérstöku samveru- stundir og gott að grípa í handa- vinnu eftir eril dagsins, því það var nóg að gera í sveitinni og ekki tími til að sitja við útsaum eða Guðrún Hjartardóttir ✝ Guðrún Hjart-ardóttir fædd- ist 5. október 1923. Hún lést 30. janúar 2018. Útför Guðrúnar fór fram 16. febr- úar 2018. prjónaskap að degi til. Mamma var mik- il hannyrðakona og voru margar mynd- ir hengdar upp á vegg hjá henni og ég tala nú ekki um alla púðana sem hún hefur saumað. Hún saumaði líka föt á okkur krakkana þegar við vorum lítil og var einstaklega lagin við að nýta þau efni sem hún hafði til að sauma úr. Þegar þau fluttu til Reykjavík- ur fór ég oft með henni í hann- yrðabúðir svo hún gæti keypt sér eitthvað fallegt til að sauma. Þeg- ar hún átti orðið erfitt með að fara út sendi hún mig til að kaupa fyrir sig einhvern útsaum, þetta var hennar besta afþreying. Þeg- ar hún var orðin slæm í höndun- um þá sagði hún oft við mig: „Æ viltu ekki taka þetta og klára fyr- ir mig?" Þá var það eitthvað sem var svo fínlegt að hún réð ekki við að sauma það. Ég gæti rifjað upp margt, margt fleira en segi þetta gott. Það má segja að hún hafi verið búin að skila sínu þegar hennar tími kom. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir) Minning þín lifir. Ingunn. Morguninn 1. febrúar vaknaði ég á mínum venjulega tíma eins og alla virka morgna. Nema þennan dag átti ég af- mæli. Mér leið allan tímann á meðan ég var að gera mig til- búna í daginn eins og eitthvað vantaði. Fann fyrir einhverju tómarúmi. Svo þegar ég er á leiðinni út tekur pabbi á móti mér í forstofunni og segir mér að þú hafir kvatt þennan verald- lega heim fyrr um nóttina. Mér leið í smástund eins og tíminn hefði stoppað í nokkrar sekúnd- ur. Það var rosalega erfitt að heyra þessi orð og ná að með- taka þessar fréttir. Ég er að reyna mitt allra besta til þess að vera sterk fyrir þig en það er mjög erfitt. Héðan í frá verður þessi dagur ekki bara minn dag- ur heldur verður hann dagurinn okkar. Elsku afi minn, ég sit hér og hugsa til baka eins langt og ég get munað. Rifja upp þær minn- ingar sem ég á sem eru mér svo dýrmætar. Það er mér mjög erf- itt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Að ég muni aldrei geta talað við þig aftur. En á sama tíma get ég ekki ann- að en fyllst af þakklæti. Þakk- læti fyrir það að hafa fengið að vera hluti af lífi þínu. Það var alltaf gaman að koma Jóhannes Her- mann Ögmundsson ✝ Jóhannes Her-mann Ög- mundsson fæddist 8. júlí 1930. Hann lést 1. febrúar 2018. Útför Jóhann- esar fór fram 9. febrúar 2018. til ykkar ömmu. Maður gat alltaf treyst á það að þeg- ar maður kom til ykkar tókst þú á móti manni með bros á vör og faðm- lagi. Það sem ég myndi gefa fyrir bara eitt afaknús í viðbót. Þú varst einstakur karakter enda afi minn. Minningarnar sem ég á um þig eru mér ómetanlegar. Öll áramótin sem við eyddum hjá þér og ömmu í Hrauntungunni, eða eins og í minningunni var það í höllinni hjá ömmu og afa. Því að jú, þetta var eins og höll þegar maður var svona lítil. Það fyrir mér voru bestu áramótin. Eða þegar við krakkarnir lékum okkur saman hjá ykkur þegar við vorum yngri. Allar sumar- bústaðaferðirnar sem við fórum saman bæði í bústaðinn ykkar og í húsið úti á Snæfellsnesi. Ég var svo heppin að hafa fengið að fara með ykkur ömmu ein til Spánar. Vá hvað ég man að mér fannst það ekkert smá spennandi. Fá að fara til lands sem ég hafði aldrei komið til áð- ur og án mömmu og pabba. Allir göngutúrarnir sem við fórum saman að skoða sveitina, markaðirnir sem við fórum á. Í þessari ferð brölluðum við ým- islegt skemmtilegt saman. Þær eru svo ótrúlega margar góðar og fallegar minningar sem ég á að ég gæti hent í heila bók. Þess- ar minningar mun ég varðveita um ókomna tíð. Takk fyrir allt, elsku afi minn. Þangað til næst. Þín Hjördís (minni).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.