Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Fróðir menn segja flóknara aðfinna siðprúða kvikmynda- mógúla en hitt. Sumir afsaka girnd- argaurana og benda á að siðferði- legt þrek þurfi til að krækja sér ekki í ber í eigin berjalandi þar sem allt sé krökkt.    Harvey varð ekkiá hvers manns vörum fyrr en bróð- ir hans „lak“ hátta- lagi hans í valdaspili bræðranna um billj- ónafyrirtækið, framferði hans var í áratugi verst geymda leyndarmál í Hollywood.    Vinir hans í demókrataflokknumþekktu það, en töldu hans pen- inga ekki verri fyrir það, fyrr en eftir fjaðrafokið.    Þá harmaði flokkurinn þessar„óvæntu“ fréttir og sagðist láta seinasta framlagið ganga til fé- laga sem styðja laskaðar konur. Nú komst upp að flokkurinn endur- sendi Weinstein 23.000 dollara framlag hans frá fyrra ári. Sá hefur vissulega sýnt áhuga á málefnum kvenna.    Flokkurinn segir, eftir að uppkomst, að þetta séu færslumis- tök. Til sé afrit af ávísun sem sýni að fjárhæðin hafi sannanlega verið send kvennasamtökum. Hnýsni blaðamanna í bókhaldið hefur því kostað flokkinn 23.000 dollara aukalega.    En á móti koma stuðnings-framlög Harveys áratugum saman, auk sérstakra stórframlaga til frambjóðendanna, Obama og Hillary, sem voru aufúsugestir heima hjá mógúlnum og þá greiddu stjörnurnar meðal gestanna vel í pottinn. Harvey Weinstein Hræsni hefnir sín STAKSTEINAR Veður víða um heim 27.2., kl. 18.00 Reykjavík 7 alskýjað Bolungarvík 8 alskýjað Akureyri 7 skýjað Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 4 léttskýjað Ósló -9 skýjað Kaupmannahöfn -6 snjókoma Stokkhólmur -12 snjókoma Helsinki -17 heiðskírt Lúxemborg -5 léttskýjað Brussel -1 léttskýjað Dublin 2 skúrir Glasgow 0 skúrir London -1 skúrir París -2 alskýjað Amsterdam -1 léttskýjað Hamborg -4 léttskýjað Berlín -5 skýjað Vín -7 skýjað Moskva -15 heiðskírt Algarve 17 skýjað Madríd 3 rigning Barcelona 2 snjókoma Mallorca 5 alskýjað Róm 2 heiðskírt Aþena 16 léttskýjað Winnipeg -10 heiðskírt Montreal 1 léttskýjað New York 9 heiðskírt Chicago 8 skýjað Orlando 23 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:39 18:43 ÍSAFJÖRÐUR 8:49 18:42 SIGLUFJÖRÐUR 8:32 18:25 DJÚPIVOGUR 8:10 18:11 „Stálið er sterkt og gott, en báturinn þarf þó margs svo hann geti öðlast það hlutverk sem við viljum,“ segir Böðvar Eggertsson, sem situr í stjórn Hollvinasamtaka Magna. Hinn gamli hafnsögubátur, sem á sitt fasta pláss í Vesturhöfninni við Grandagarð nærri Sjó- minjasafninu, var í gær dreginn til skoðunar upp í brautina í slippnum við Reykjavíkurhöfn. Vitað er að þótt byrðingur bátsins sé góður og járnið traust þarf að laga flest sem er innanborðs í bátnum, sem var tekinn í notkun árið 1955. Hann var lengi not- aður í Reykjavíkurhöfn, m.a. við að draga og færa til skip og þurfti því stóra vél. Sú var 1.000 hestöfl og dugði til 1987 þegar hún bræddi úr sér og þar með var báturinn úr leik og hefur ekki verið not- aður síðan. Nú er ætlun hollvina Magna að setja nýja og stærri vél í bátinn svo hann megi nota til dæmis í skemmtisiglingar og til kennslu. „Við gefum þessu endurbótaverkefni fimm ár. Þetta kostar sitt og fyrirhöfnin er talsverð – en það er líka áhugavert að fá Magna aftur í notkun,“ segir Böðvar Eggertsson. sbs@mbl.is Magni er kominn í dráttarbrautina Morgunblaðið/Hari Tilfæringar Magni var dreginn til í Reykjavíkurhöfn í gær og verður nú ástand hans kannað.  Endurbætur á dráttar- bátnum gamla hafnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.