Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk VIÐTAL Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Við byrjuðum vorið 2017 en það á sér lengri aðdraganda. Reglugerðin var sett í ESB árið 2016 með tveggja ára innleiðingarfresti í Evr- ópu. Við vorum því með þetta „á ratsjánni“ en byrjuðum í vor að keyra þetta í gang hjá okkur,“ segir Kristján Hákonarson, öryggisstjóri hjá Advania, um undirbúning fyr- irtækisins fyrir innleiðingu nýrrar reglugerðar ESB um persónu- vernd. Aðspurður hvernig kröfur reglu- gerðarinnar muni snerta tölvukerfi á Íslandi, sem geyma og vinna per- sónuupplýsingar, telur Kristján að svörin eigi enn eftir að koma end- anlega fram. „Það á eftir að reyna á hvernig sum atriði reglugerðarinnar verða túlkuð og innleidd af íslenskum stjórnvöldum en almennt eftir orðanna hljóðan nær hún til allra upplýsinga sem eru persónugrein- anlegar. Það eru upplýsingar sem má rekja til einstaklinga. Við notum kennitölur á Íslandi, en það veitir okkur svo sem ekki neina sérstöðu. Persónulega finnst mér of langt gengið í kennitöluskráningum, best væri ef hægt væri að komast hjá því að skrá persónuupplýsingar. Í flestum tilfellum er engin ástæða til að rekja t.d. viðskipti niður á ein- staklinga, svo sem þegar fólk fer í klippingu eða pantar sér pitsu.“ Hann segir að í vaxandi mæli sé verið að notast við smáforrit í sím- um til að safna persónuupplýsing- um eins og símanúmerum, netföng- um og öðrum auðkennum. „Upplýsingum er líka safnað um staðsetningu og hegðun. Reglu- gerðin er e.t.v. hugsuð til að stemma stigu við þessum vinnu- brögðum og við Íslendingar ættum að taka þeim skilaboðum. Við hjá Advania byrjuðum á að skoða kerfi með marga viðskiptavini, t.d. bók- halds- og launakerfin. Það sem ég reikna með að gerist í þjóðfélaginu er vitundarvakning, fólk fari að ræða þetta af alvöru og skynsemi. Kröfurnar munu koma skýrar fram og taka örugglega einhver misseri í innleiðingu hérlendis. Við erum enn í því ferli að ræða við okkar við- skiptavini hvað sé skynsamlegast að gera.“ Ekki ástæða til að örvænta Kostnaður geti orðið tvennskon- ar, annarsvegar í formi stjórnvalds- sekta ef í ljós kemur að reglunum hefur ekki verið hlítt og hinsvegar í formi innleiðingar- og rekstrar- kostnaðar við að hlíta þeim. „Ég tel þó enga ástæðu til að ör- vænta, þetta er hugarfars- og þjóð- félagsbreyting sem mun taka tíma svipað og vinnuverndarlöggjöfin á sínum tíma. Við erum búin að gera hlutina á ákveðinn hátt í mörg ár og breytingarnar munu gerast hægt.“ Kristján mælir að lokum með að lítil og meðalstór fyrirtæki í al- mennri starfsemi leiti upplýsinga t.d. á vef Persónuverndar en stofn- anir og fyrirtæki sem eru stór eða hafa vinnslu persónuupplýsinga sem meginstarfsemi fái aðstoð sér- fræðinga á sviði persónuverndar. Breytt hugarfar gæti tekið tíma  Advania byrjaði innleiðingarferli persónuverndarreglna í fyrravor  Of langt gengið í skráningu persónuupplýsinga hérlendis  Vinnsluaðilar leiti á vef Persónuverndar eða fái sérfræðiaðstoð Morgunblaðið/Kristinn Vinnsla persónuupplýsinga Við söfnun og vinnslu upplýsinga um einstaklinga þarf hugarfarsbreytingu. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Ég held að allir sem starfa í leik- skólum séu sammála um að leikskóla- börn séu of mikið í leikskólanum,“ segir Soffía Guðmundsdóttir, leik- skólastjóri á Seltjarnarnesi, við Morgunblaðið en viðvera barna í leik- skólum á Seltjarnarnesi er talsvert yfir meðaltali hér á landi, en 92,7% leikskólabarna eru átta tíma eða lengur í skólunum, að því er fram kom í Nesfréttum nýverið. Árið 1998 voru 40,3% leikskóla- barna hér á landi átta tíma eða lengur í leikskóla að meðaltali, en árið 2016 var meðaltalshlutfallið komið í 87,3%. Skýrsla Efnahags- og framfara- stofnunar Evrópu (OECD) frá 2016 vitnar um met Íslendinga í dvalar- tíma leikskólabarna í leikskólum, bæði í dagafjölda og klukkutímum. Börnum sem dvelja átta tíma á dag eða lengur fjölgi stöðugt. Niðurgreidd pláss fullnýtt „Rætt er um að grunnskólabörn fái vetrarfrí til að hvíla sig frá skóla- starfinu, en það hefur ekki verið rætt fyrir leikskólabörn.“ Soffía bætir við að rýmið fari minnkandi í leikskól- unum og mikill hávaði geti myndast við það að mörg börn og fullorðnir séu saman rúma átta tíma á dag í þrengslum. Ástæður þróunarinnar telur Soffía m.a. kostnaðarhlut foreldra, sem hafi lækkað úr því að vera um 60% af kostnaði við leikskólavist barnsins í innan við 10% (mismunandi eftir sveitarfélögum). Keypt sé full dvöl fyrir börnin þó fólk sé e.t.v. ekki alltaf að vinna fullan vinnudag. Áður hafi giftir og fólk í skráðri sambúð ekki mátt kaupa fullan dag í leikskólanum og þá þótti hæfilegt að hafa t.d. 18 börn í ákveðnu rými en nú séu þau 27 í samskonar rými. „Leikskólakennarar sem hafa ver- ið lengi í starfi eru sumir farnir að missa heyrn og treysta sér illa til að vinna fullan vinnudag sökum hávaða og áreitis. Maður spyr sig þá hvaða áhrif svona mikil viðvera geti haft á börnin.“ Atvinnuþátttaka hefur aukist „Atvinnuþátttaka foreldra er meiri í dag og líka búið að byggja og bjóða upp á meira af rýmum hjá sveitar- félögunum en var árið 1998,“ segir Kristín Dýrfjörð, dósent í leikskóla- fræðum við Háskólann á Akureyri, um mögulegar ástæður þess að börn í dag eru meira í leikskólanum en áð- ur. Hún segir sum sveitarfélög bjóða upp á grunntíma en láti aukaklukku- stundir kosta meira. „Það eru of mörg börn of lengi í leikskólanum. Lausnin er ekki að fjölga leikskólakennurunum, þá verða bara enn fleiri í litlu rými og enn meiri læti. Nú er það þannig að börnin koma um kl. 8.45 og eru kannski ekkert sótt fyrr en um kl. 16- 17. Í gamla daga var meira um að „dagurinn dó út“. Það þýðir að börnin voru sótt smám saman yfir daginn og þeim fækkaði eftir því sem leið á hann.“ Kristín segir að eflaust megi einnig færa rök fyrir því að það væri gott fyrir þau að hafa lengri vökutíma með fjölskyldunni og að lausnin yrði því ekki að fólgin í að færa börn úr einni vist yfir í aðra. „Börnin eru jafn- vel lengur „í vinnunni“ en foreldrarn- ir, en ferðatími foreldranna bætist við.“ Bæði Kristín og Soffía vonast til að umræða um styttri vinnutíma haldi áfram. Kristín segir m.a. að það hljóti að vera hægt að finna leið til að stytta vinnutíma án þess að framleiðni minnki, en sú umræða þurfi að fara fram í samfélaginu. Leikskólabörnin of lengi „í vinnunni“  Af OECD-ríkjunum er dvalartíminn einna lengstur á Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leikskólar Börn á Íslandi dvelja almennt lengi í leikskóla á dag. Tvöföldun á 20 árum » Árið 1998 voru 40,7% barna 8 tíma eða lengur í leikskóla á dag að meðaltali á Íslandi. » Tuttugu árum síðar er lands- meðaltalið orðið 87,3%. » Viðvera íslenskra barna í leikskóla er með því mesta sem gerist í OECD-ríkjunum. » Leikskólapláss mikið niður- greidd og mögulega meira nýtt en nauðsynlegt er. Átta umsóknir bárust um tvö emb- ætti sóknarprests sem biskup Íslands auglýsti nýlega laus til umsóknar. Fimm sóttu um embætti sóknar- prests Staðastaðarprestakalls á Snæ- fellsnesi. Þeir eru: séra Arnaldur Bárðarson, séra Ursula Árnadóttir og guðfræðingarnir Arnaldur Máni Finnsson, Karen Hjartardóttir og Kristinn Snævar Jónsson. Þrír sóttu um embætti sóknar- prests Patreksfjarðarprestakalls. Það eru guðfræðingarnir Alfreð Örn Finnsson, Arnaldur Máni Finnsson og Kristján Arason. Biskup Íslands skipar í embættin frá 1. mars nk. til fimm ára. Umsókn- ir hljóta umfjöllun matsnefndar um hæfni til prestsembættis og að feng- inni niðurstöðu hennar fjallar kjör- nefnd prestakallsins um umsókn- irnar. Kjörnefnd kýs að því búnu milli umsækjendanna og skipar biskup Ís- lands þann umsækjanda sem hlýtur löglega kosningu. Embætti sóknarprests í Patreks- fjarðarpestakalli var aulýst laust til umsóknar í fyrrahaust og bárust tvær umsóknir. Biskup Íslands komst að þeirri niðurstöðu að veru- legir annmarkar hefðu verið á kosn- ingu kjörnefndar því fjórir fulltrúar af ellefu hefðu ekki verið kosnir á al- mennum safnaðarfundum eins og starfsreglur kveða á um heldur hefðu þeir verið tilnefndir á sóknarnefndar- fundum. Biskup áleit að þessi annmarki gæti ógilt skipun sóknarprests og ákvað að auglýsa embættið að nýju. sisi@mbl.is Átta sóttu um tvö prestsembætti Guðshús Kirkjan á Patreksfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.