Morgunblaðið - 28.02.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
Eftir úrkomu og leysingar að und-
anförnu er stór hluti borgarlands-
ins umflotinn vatni. Þannig hafa
myndast stöðuvötn sitt hvorum
megin við Suðurlandsveg á Sand-
skeiði og við Rauðhóla. Þar eru stór
tún farin undir vatn og dýpið sums
staðar það mikið að girðingar-
staurar eru á kafi eða rétt standa
upp úr.
Hólmsá við Rauðhóla og Norð-
lingaholt hefur flætt yfir bakka
sína og er stórt landsvæði þar und-
irlagt vatni.
Þá hafa Elliðaár flætt yfir bakka
sína með þeim afleiðingum að
göngu- og hjólastígar hafa á köfl-
um farið á kaf. Undirgöngin við
Sprengisand hafa einnig verið um-
flotin og illfær.
Dregið hefur úr úrkomunni og
spáð er kólnandi veðri næstu daga.
Því gætu vötnin orðið ísilögð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stöðuvötn hafa myndast á Sandskeiði eftir úrkomuna að undanförnu
Borgin
umflotin
vatni
„Upp með sokkana“ er yfirskrift
Mottumars í ár, árlegs árveknis- og
fjáröflunarátaks Krabbameins-
félagsins tileinkað baráttunni gegn
krabbameinum í körlum.
Umgjörð átaksins er byggð á rak-
arastofunni og hefur Krabbameins-
félagið látið hanna sokka í einkenn-
ismynstri og -litum rakarastofunnar
og verða þeir seldir til styrktar átak-
inu. Yfirvaraskegg hafa verið ein-
kennismerki Mottumars frá upphafi
en ákveðið var að breyta til í ár og
færa áhersluna yfir á eitthvað sem
bæði kynin geta auðveldlega tekið
þátt í, samkvæmt upplýsingum frá
Krabbameinsfélaginu. Rakarastofan
gefur tilvísun í karlmennskuna og
yfirvaraskeggið, svo það er ekki al-
veg horfið þó það sé í bakgrunni
þetta árið.
„Ástæðan fyrir breyttu sniði
Mottumars í ár er tvíþætt. Annars
vegar höfum við fundið fyrir því að
áhugi á yfirvaraskegginu hefur verið
á undanhaldi. Við höfum fundið fyrir
minni áhuga karlmanna á að safna
yfirvaraskeggi og þátttaka í Mottu-
keppninni fór minnkandi. Hin
ástæðan er að okkur langaði að vera
með vöru sem gæfi öllum tækifæri
til að sýna stuðning við karlmenn og
krabbamein, eins og Bleika slaufan
gefur öllum tækifæri til að sýna
stuðning í verki,“ segir Sigríður Sól-
an Guðlaugsdóttir, kynningar- og
fjáröflunarstjóri Krabbameins-
félagsins.
Mottumars hefst á morgun og er í
ár tileinkaður krabbameini í blöðru-
hálskirtli og fræðslu um það. Safnað
er fyrir „Karlaklefanum,“ vefgátt
fyrir karlmenn um allt sem við-
kemur krabbameinum. Mottudag-
urinn verður svo haldinn hátíðlegur
16. mars. ingveldur@mbl.is
Út með mottuna,
upp með sokkana
Ljósmynd/Krabbameinsfélagið
Mottumars Sokkarnir líta svona út
sem seldir verða í mánuðinum.
Breytt snið á
Mottumars er hefst
á morgun
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is