Morgunblaðið - 28.02.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
28. febrúar 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.92 100.4 100.16
Sterlingspund 140.43 141.11 140.77
Kanadadalur 79.09 79.55 79.32
Dönsk króna 16.565 16.661 16.613
Norsk króna 12.8 12.876 12.838
Sænsk króna 12.279 12.351 12.315
Svissn. franki 106.97 107.57 107.27
Japanskt jen 0.9369 0.9423 0.9396
SDR 145.19 146.05 145.62
Evra 123.35 124.05 123.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.7746
Hrávöruverð
Gull 1332.75 ($/únsa)
Ál 2188.0 ($/tonn) LME
Hráolía 67.29 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Georg Lúðvíks-
son, forstjóri Men-
iga, verður ekki í
framboði til stjórn-
ar Icelandair Group
á aðalfundi félags-
ins sem fram fer 8.
mars næstkom-
andi. Hann tók sæti
í stjórninni í kjölfar
aðalfundar í fyrra.
Í samtali við Morgunblaðið staðfestir
Georg þá fyrirætlun sína og að hann
hyggist helga sig starfi sínu á vettvangi
Meniga að fullu. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að stærstu eigendur
fyrirtækisins hafi þrýst á hann að sækj-
ast ekki eftir endurkjöri og beina kröft-
um sínum alfarið að uppbyggingu Men-
iga. Aðrir núverandi stjórnarmenn hjá
Icelandair bjóða sig fram til áframhald-
andi setu. Það eru þau Úlfar Stein-
dórsson, Ómar Benediktsson, Ásthildur
Margrét Otharsdóttir og Katrín Olga Jó-
hannesdóttir.
Georg hyggst hverfa úr
stjórn Icelandair Group
Georg Lúðvíksson
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Af 20 stærstu hluthöfum Skeljungs
eru 11 lífeyrissjóðir. Þeir halda á
46,7% hlutafjár. Minni lífeyrissjóðir
eiga beint og óbeint einnig hluti í fé-
laginu og því er eignarhald sjóðanna
um eða yfir 50% í því. Af 20 stærstu
hluthöfum N1 eru 9 lífeyrissjóðir.
Samanlagt fara þeir með ríflega 58%
hlutafjár í olíufélaginu. Í þeirri tölu er
ekki tekið tillit til mögulegs eignar-
halds minni lífeyrissjóða í fyrirtæk-
inu.
Þessi aðkoma lífeyrissjóðanna að
olíufélögunum tveimur er meðal
ástæðna þess að Samkeppniseftirlitið
hefur tekið til rannsóknar samruna á
smásölumarkaði sem nú stendur fyrir
dyrum þar sem Hagar, sem m.a. reka
Bónus og Hagkaup hafa ákveðið að
kaupa Olís og N1 hefur ákveðið að
kaupa Festi sem m.a. á og rekur
Krónuna, Nóatún, Kjarval, Elko og
fleiri fyrirtæki. Á tímabili leit einnig
út fyrir að Skeljungur, myndi kaupa
Baskó, sem m.a. á 10/11 verslanirnar.
Þriðja félagið í sigtinu
Verði af kaupum Haga á Olís
kemst þriðja olíufélagið á markaðn-
um í eigu félags sem að meirihluta er í
eigu lífeyrissjóðanna. Af 20 stærstu
hluthöfum Haga eru 11 lífeyrissjóðir
og þeir halda á ríflega 56% hlutafjár í
fyrirtækinu. Í dag eiga lífeyrissjóð-
irnir ekkert í Olís. Fyrirtækið er að
fullu leyti í eigu sjávarútvegsfyrir-
tækjanna FISK Seafood og Sam-
herja.
Þá munu kaup N1 á Festi einnig
tengja með skýrum hætti eignarhald
lífeyrissjóðanna á þessum markaði.
Ljóst er að ef fyrrnefnd viðskipti
ganga í gegn mun það leiða til tölu-
verðrar samþjöppunar á markaði
þar sem olíuverslun og smásala
verður samtvinnuð með meira afger-
andi hætti en áður. Af þeirri ástæðu
hefur Samkeppniseftirlitið sent
Högum og N1 andmælaskjöl þar
sem fram kemur að fyrirhugaðir
samrunar fyrirtækjanna við Olís
annars vegar og Festi hins vegar,
geti ekki gengið í gegn að öllu
óbreyttu. Þannig telur stofnunin, á
grundvelli frumniðurstöðu rann-
sóknar sinnar, að samrunarnir raski
samkeppni á þeim mörkuðum sem
fyrirtækin starfa á.
Líkt og fram kom í Morgunblaðinu
í gær er talið mögulegt að Samkeppn-
iseftirlitið grípi til þess ráðs varðandi
fyrirhugaða samruna að setja þeim
ströng skilyrði sem m.a. kunni að fel-
ast í því að lífeyrissjóðirnir sem um-
svifamestir eru innan fyrirtækjanna,
einkum Gildi og LSR, afsali sér at-
kvæðisrétti á aðalfundum fyrirtækj-
anna.
Geta afsalað sér atkvæðisrétti
Morgunblaðið beindi þeirri fyrir-
spurn til Fjármálaeftirlitsins hvort
eitthvað í lögum um lífeyrissjóði
kæmi í veg fyrir þá ráðstöfun. Í svari
stofnunarinnar kom fram að ekkert
væri því til fyrirstöðu að þeir afsöluðu
sér atkvæðisrétti með þeim hætti.
Hafa áhyggjur af eignarhaldinu
Í nýlegri skýrslu sem starfshópur á
vegum forsætisráðuneytisins skilaði
af sér í janúar um hlutverk lífeyris-
sjóða í uppbyggingu atvinnulífsins,
var áhyggjum lýst af víðtæku eign-
arhaldi sjóðanna í hagkerfinu. Bendir
nefndin á að hætta sé á því að „kraft-
ur fari úr samkeppninni, framboð á
vöru eða þjónustu minnki, verð hækki
og hvati til nýsköpunar minnki þegar
sömu eigendur eru að fyrirtækjum
sem keppa á markaði.“ Nefndin taldi
þó í niðurstöðu sinni að eignarhlutir
ríkisins í innlendum eignum muni
minnka nú í kjölfar afnáms hafta og
um leið minnki „sú ógn sem sam-
keppni stafar af umsvifum þeirra.“
Stefnir í víðtækt eignarhald
lífeyrissjóða í olíugeiranum
Eignarhald lífeyrissjóðanna á smásölumarkaði
Hagar Olís N1 Festi Skeljungur
Gildi 12,95% 0% 9,22% 9,9% 9,2%
LSR 14,22% 0% 11,44% 4,16% 10,39%
LIVE 7,12% 0% 13,3% 0% 0%
Frjálsi 3,44% 0% 0,2% 6,3% 6,54%
Stapi 5,04% 0% 2,98% 7,14% 4,37%
Festa 3,36% 0% 0% 5,36% 3,76%
Birta 5,65% 0% 6,24% 0% 3,52%
Almenni 0,9% 0% 5% 5,5% 0,1%
Lífeyrissjóðir stórir eigendur í N1 og Skeljungi Gætu einnig orðið stórir í Olís
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,6% í febrúar sem var í takti við
spár greiningardeilda. Ársverðbólga
mælist nú 2,3% en var 2,4% í janúar.
Í Morgunkorni Íslandsbanka segir
að útlit sé fyrir að verðbólga verði
áfram við 2,5% markmið Seðlabank-
ans næstu mánuði.
Í Hagsjá Landsbankans segir að í
síðustu verðbólguspá bankans hafi
verið gert ráð fyrir því að verðbólga
yrði 2,6% í mars. Gangi það eftir
verði það í fyrsta skipti frá því í jan-
úar 2014 eða í rúmlega fjögur ár
sem verðbólga mælist yfir markmiði
Seðlabankans.
Vísitalan án húsnæðis hækkaði
einnig um 0,6% milli mánaða. Í
Hagsjá Landsbankans segir að á
þann mælikvarða mælist 0,9% verð-
hjöðnun á ársgrundvelli. Dregið hafi
úr verðhjöðnun án húsnæðis á und-
anförnum mánuðum. Fyrir fimm
mánuðum, í september, mældist
3,1% verðhjöðnun.
Íslandsbanki segir að áhrif út-
söluloka á verðbólgu séu ætíð veru-
leg í febrúar. Húsgögn og heimilis-
búnaður hækkaði um 5,8% milli
mánaða og hafi vegið einna þyngst
til hækkunar á verðbólgu í febrúar.
Einnig hækkuðu föt og skór um
4,9%. Bent er á að áfengi og tóbak
hafi hækkað um 0,86% á milli mán-
aða.
Í Hagsjá Landsbankans segir að
næsta stýrivaxtaákvörðun verði birt
miðvikudaginn 14. mars næstkom-
andi. Verðmælingin hafi verið í sam-
ræmi við spár og því sé ólíklegt að
hún ein og sér leiði til þess að pen-
ingastefnunefnd ákveði að breyta
vöxtum í mars. helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Verðbólga Áhrif útsöluloka á verð-
bólgu eru ætíð veruleg í febrúar.
Verðbólga jókst
um 0,6% í febrúar
Landsbankinn
spáir 2,6% ársverð-
bólgu í mars
Þarftu að framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRA
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is