Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Richmmond frá Bellus
Mikið úrval af áklæðum
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Loftárásum og eldflaugaárásum
var haldið áfram á skotmörk í hér-
aðinu Austur-Ghouta, skammt
austur af Damaskus í Sýrlandi,
eftir að fimm stunda vopnahlé átti
að hefjast í héraðinu. Af þessum
sökum var hvorki hægt að koma
hjálpargögnum til íbúa á svæðinu
né flytja þá á brott.
Rússnesk stjórnvöld hvöttu til
þess á sunnudag að gert yrði hlé
daglega á árásum af mannúðar-
ástæðum þar til 30 daga vopnahlé,
sem öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna krafðist á laugardag að yrði
gert, kæmist á.
Sýrlensk mannréttindasamtök
sögðu að ungur drengur hefði látið
lífið í flugskeytaárás á bæinn Jis-
reen í Austur-Ghouta í gær og sjö
manns að auki hefðu særst.
Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar sök-
uðu á móti uppreisnarmenn í hér-
aðinu um að gera árásir á vegi til
að halda óbreyttum borgurum í
gíslingu í héraðinu. Rússnesk
stjórnvöld sögðu í gær að vopna-
hlé í Sýrlandi væri undir
uppreisnarmönnum komið en þeir
hefðu ekki virt mannúðarhléið í
gær og komið í veg fyrir að
óbreyttir borgarar gætu forðað
sér frá héraðinu.
Alls hafa yfir 500 manns látið
lífið síðan sýrlensk stjórnvöld hófu
daglegar árásir á uppreisnarmenn
í héraðinu fyrir 10 dögum.
Fréttastofan AFP sagði í gær að
helstu hópar uppreisnarmanna í
Austur-Ghouta hefðu lýst því yfir í
bréfi til Sameinuðu þjóðanna að
þeir væru reiðubúnir til að vísa ísl-
ömskum stríðsmönnum á brott úr
héraðinu um leið og formlegt
vopnahlé tæki gildi.
Hóta brottrekstri
Um 400 þúsund manns búa í
Austur-Ghouta. Héraðið er undir
yfirráðum nokkurra vopnaðra
hópa. Þeir helstu eru Jaish al-
Islam, Faylaq al-Rahman og
Ahrar al-Sham, allt íslamskir hóp-
ar. Þessir hópar sendu í gær bréf
til Sþ og AFP þar sem forsvars-
menn hópanna lýsa því yfir að þeir
muni reka stríðsmenn úr Hayat
Tahrir al-Sham á brott þegar
vopnahlé kemst á. Í þeim hópi eru
einkum stríðsmenn sem áður
tengdust hryðjuverkasamtökunum
al-Qaeda.
Rætt hefur verið áður um slíkar
brottvísanir en aldrei orðið af
þeim. Uppreisnarhóparnir segja að
brottvísanirnar myndu taka 15
daga.
Áfram átök í Sýrlandi
Hvorki Sýrlandsher né uppreisnarmenn virtu í gær tilmæli um fimm stunda
hlé á árásum í Austur-Ghouta Ekki hægt að koma hjálpargögnum á svæðið
Jisreen
Tahrir-
torg
Forsetahöllin
Austur-
Ghouta
Blóðbað í Austur-Ghouta
DAMASKUS
DAMASKUS
Svæði á
valdi
uppreisn-
armanna
18.-26. febrúar
18.
febrúar
26.
febrúar
Mannfall
Þar á meðal yfir 130 börn
Talið er að 400.000 manns
séu í Austur-Ghouta
Skotmörk í loftárásum í febrúar
Heimild: SOHR
Douma
1 km
SÝRLAND
Erbin
Zamalka
Beit Sawa
Hammuriyeh
Harasta
Hazeh
Gamli bærinn
Kafr
Batna
Saqba
Yfir 550 óbreyttir borgarar látnir
22
127
133
87
73
43 45
1417
Daglegar árásir
» 18. febrúar: Daglegar loft-
árásir hefjast á Austur-Ghouta.
» 19. febrúar: 127 manns létu
lífið í árásunum.
» 25. febrúar: Öryggisráð Sþ
krefst tafarlauss vopnahlés.
» 26. febrúar: Rússar fyrir-
skipa daglegt fimm stunda
„mannúðarhlé“ á árásum.
Facebook tilkynnti í gær að félags-
vefurinn myndi standa að baki
þriggja milljóna dollara (300 millj-
óna króna) verkefni til að hjálpa
bandarískum dagblöðum að fjölga
rafrænum áskriftum.
Undanfarið hafa vaknað áhyggjur
af því að Facebook og aðrir sam-
skiptamiðlar hafi náð í það stóran
skerf auglýsinga á netinu að tilvist
fréttaþjónusta sé í hættu.
Hingað til hefur Facebook krafist
þess að fréttamiðlar bjóði efni án
endurgjalds í tenglum á félags-
vefnum, en hefur nú gert útgef-
endum kleift að hvetja notendur
hans beint til að gerast áskrifendur.
Rótgróin bandarísk dagblöð hafa
átt erfitt með að vinna upp á netinu
auglýsingatekjur sem hafa dregist
saman í prentuðum útgáfum þeirra.
Meðal dagblaða sem taka þátt í
þessu verkefni eru Atlanta Journal-
Constitution, Boston Globe, Chicago
Tribune, Miami Herald og San
Francisco Chronicle.
AFP
Facebook Vill vinna að því að fjölga
rafrænum áskriftum dagblaða.
Facebook
á sveif með
dagblöðum
Vorið er í nánd og hindúar á Indlandi fagna vorkom-
unni og sigri hins góða á því illa með mikilli litahátíð,
holi, þegar síðasta vetrartunglið er fullt. Það gerist nú
um mánaðamótin. Þessi mynd er tekin í indversku
borginni Vrdindavan, en þar sjást ekkjur, þaktar marg-
litu dufti, fylgjast með fjörugum dansi.
AFP
Vorinu fagnað með litum
Yfirdómstóll í Leipzig komst að
þeirri niðurstöðu í gær að stjórnvöld
í sveitum og bæjum í Þýskalandi
gætu lagt bann við akstri dísilbif-
reiða til að draga úr loftmengun. Úr-
skurðurinn er talinn valda tímamót-
um og gæti haft áhrif bæði á
bílaframleiðendur og stefnu stjórn-
valda í samgöngumálum.
Dómstóllinn hvatti borgar- og
sveitarstjórnir til að gæta jafnræðis
við framkvæmd slíks banns og yrði
að fara hægt í sakirnar við innleiðslu
þess.
Málið snerist um svæði í Stuttgart
og Düsseldorf þar sem umferðar-
þungi er mikill og
mengun gríðar-
leg. Umhverfis-
verndarsamtök
stefndu stjórnum
borganna og
kröfðust þess að
þau gripu til að-
gerða til að draga
úr útblæstri nit-
uroxíða úr göml-
um dísilbílum.
Stjórnvöld í landinu eru andvíg
slíku banni og óttast reiði milljóna
eigenda dísilbíla. Kvaðst umhverfis-
ráðherra landsins í gær vonast til að
hægt yrði að draga úr mengun án
slíks banns. Talið er að tíu milljónir
dísilbíla, sem slíkt bann myndi ná til,
séu í umferð. Bann við akstri þeirra
myndi ekki aðeins valda þeim óþæg-
indum, heldur leiða til þess að endur-
söluverð bíla þeirra snarfélli.
Eitraður útblástur hefur verið
tengdur við öndunar- og hjartasjúk-
dóma, sem eru taldir valda þúsund-
um ótímabærra dauðsfalla á ári
hverju. Í fyrra mældist nituroxíð að
meðaltali yfir mörkum Evrópusam-
bandsins í 70 borgum í Þýskalandi,
samkvæmt mælingum umhverfis-
stofnunar landsins.
Má banna dísilbíla
Dómstóll í Leipzig segir völdin liggja heima í héraði
Stuttgart
Svifryksmælir.