Morgunblaðið - 28.02.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 28.02.2018, Síða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018 Z-brautir & gluggatjöld Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Nýtt frá PT Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Þegar Sigurður Bessason, formaður Eflingar – stétt- arfélags, ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi forystu var ljóst að uppstilling- arnefnd félagsins var vandi á höndum að finna arftaka hans til að veita þessu forystu- félagi íslenskrar verka- lýðshreyfingar forystu sem sæmdi til að viðhalda því hlutverki. Sú ákvörð- un nefndarinnar að leita eftir fram- boðum eða tilnefningu á trúnaðar- ráðsfundi í desember var tekin í þeim tilgangi að gefa félagsmönnum kost á að hlutast til um skipan nýrrar for- ystu. Frekar dræmar undirtektir voru við þessum tilmælum, en einn ágætur félagi og fyrrverandi stjórnarmaður Eflingar, Ingvar Vigur Halldórsson, verkamaður hjá Efnamóttökunni og reyndur félagsmálamaður sem ávallt hefur verið reiðubúinn til þeirra starfa sem leitað hefur verið eftir, lýsti sig reiðubúinn að takast á við þetta veigamikla embætti. Uppstillingarnefnd taldi þessi málalok mjög ákjósanleg og gerði til- lögu til stjórnar um Ingvar Vigur sem formann ásamt sjö öðrum til stjórnarsetu. Stjórn Eflingar sam- þykkti tillöguna einróma. Átti öllum félagsmönnum Eflingar sem lesa fréttablað Eflingar, sem all- ir félagsmenn fá sent heim til sín, að vera ljóst í des. sl. að formaður gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Í 6. tbl. blaðsins sem út kom í desember kom frétt þar um að Sig- urður gæfi ekki kost á sér aftur. Þessi frétt kom einnig í mörgum öðrum fjölmiðlum þar sem rætt var við Sig- urð um ástæður þess að hann léti af formennsku. Þessi listi uppstillingarnefndar og stjórnar var síðan samþykktur ein- róma í trúnaðarráði 18. janúar og var algjör einhugur á fundinum um listann. Niðurstaða trúnaðarráðs virðist hafa orðið þess valdandi að upp sprettur hópur sem taldi aðra hæfari til forystu í Eflingu stéttarfélagi og tefldi fram lista fólks sem aldrei, ég endurtek aldrei, hefur haft nein af- skipti eða áhuga á málefnum félags- ins, þau virðast frekar vera einhvers konar strengjabrúður utanaðkom- andi aðila, sem sumir hverjir hafa vafasama fortíð, ekki síst gagnvart ýmsum launþegasamtökum landsins og öðrum sem leggja persónulegan metnað sinn í að splundra samstöðu heildarsamtaka verka- lýðshreyfingarinnar. Gamalt máltæki seg- ir: „Þegar neyðin er stærst er oft hjálpin næst“ sem virðist e.t.v. eiga við í þessu máli. En svo brá við að fljótlega eftir þessi tíðindi tók einn trúnaðarráðs- maður Eflingar að sér visst forystuhlutverk þessa framboðs sem umboðsmaður fram- boðslistans, þrátt fyrir að hafa setið báða fyrrgreinda fundi trúnaðarráðs- ins og staðið að afgreiðslu lista stjórnar á síðari fundinum. Á samfélagsmiðlum sá þessi ágæti maður ástæðu til þess að bera til- hæfulausar og ósannar sakir á stjórn Eflingar og samninganefndar sem hann taldi fámenna einræðisklíku sem öllu réði innan félagsins. Þessi maður, sem er trúnaðarmaður á mjög stórum vinnustað, sat sjö fundi hjá ríkissáttasemjara í aðdraganda kjarasamninga og skrifaði undir síð- ustu þrjá vinnustaðasamninga og þó ekki hafður með í ráðum að hans sögn. Ef slíkt er málflutningur og mála- tilbúnaður þessa nýja framboðs er full ástæða til að óttast um framtíð- arstöðu Eflingar sem ætíð hefur sýnt stefnufestu, rökvísi og farsæld í því forystuhlutverki sem það hefur gegnt í verkalýðshreyfingunni og mun svo vera áfram með öruggum sigri A- lista stjórnar og trúnaðarráðs í kom- andi kosningu. Góðir Eflingarfélagar. Oft er þörf en nú er nauðsyn. Ég veit að félags- menn sýna nú þá órofa samstöðu sem ætíð hefur einkennt okkar ágæta fé- lag og tryggja því öfluga forystu fólks með reynslu og þekkingu á innviðum og störfum félagsins. Eftir Magnús Jakobsson Magnús Jakobsson »Ég veit að félags- menn sýna nú þá órofa samstöðu sem ætíð hefur einkennt okkar ágæta félag og tryggja því öfluga for- ystu fólks með reynslu og þekkingu. Höfundur er formaður uppstillingar- nefndar og á langa sögu í félags- störfum fyrir Eflingu – stéttarfélag sem trúnaðarmaður, hann sat lengi í trúnaðarráði og gegndi fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir félagið og þekkir vel til í verkalýðshreyfingunni. Magn- ús starfaði lengi sem bensín- afgreiðslumaður hjá Esso og N1. Oft er þörf en nú er nauðsyn Eftir margra mán- aða undirbúning stétt- arfélaga sjómanna og samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er um þessar mundir verið að hrinda í framkvæmd bókun A sem er sú fyrsta af þremur sem ljúka skyldi fyrir lok gildistíma þess kjara- samnings sem rennur út síðla árs 2019. Kjarni bókunar- innar er eftirfarandi: „Aðilar eru sammála um að fram- kvæma athugun á mönnun og hvíld- artíma um borð í íslenska fiskiskipa- flotanum. Grunnur þessarar athugunar byggir á gildandi ákvæð- um sjómannalaga nr. 35 /1985 og reglugerð nr. 975/2004 um vinnu og hvíldartíma skipverja á íslenskum fiskiskipum“. Í framhaldinu er síðan tíundað hvernig staðið skuli að könnuninni. Mikilvægt að vel takist til Tilurð þessarar at- hugunar er svo sann- arlega ekki að ástæðu- lausu, þótt maður hafi heyrt því fleygt að ákveðnum aðilum finnist þetta óþarfa tilstand og óttaleg vitleysa. Hvað sem því líður þá er þessi gjörningur í burðarliðnum og mjög mikilvægt að allir aðilar málsins standi að þessu af fullri al- vöru og heilindum svo markmiði at- hugunarinnar verði náð, þ.e.a.s. að niðurstöðurnar gefi raunsanna mynd af starfsumhverfi sjómanna á fiski- skipum. Allir sem á annað borð fylgj- ast með framgangi mála í sjávar- útvegi hafa orðið vitni að þeim miklu umskiptum sem átt hafa sér stað á ástandi nytjastofna og stórauknum aflabrögðum í okkar mikilvægustu fiskistofnum. Samfara því hefur árs- afli margra skipa aukist gríðarlega. Á sama tíma hafa snaraukist kröfur um afköst, frágang á afla, ferskleika, hrá- efnisgæði og síðast en ekki síst ör- yggismál og slysavarnir. Í kjölfarið á vel heppnaðri uppbyggingu nytja- stofna, þá eru veiðiferðir mun styttri en áður og mikið fiskað á skömmum tíma. Það þarf því engan Sherlock til að komast að þeirri niðurstöðu að mokfiskirí í örstuttum túrum hafi í för með sér stóraukið vinnuframlag og um leið álag hvers og eins í áhöfninni. Lýðheilsumál Að undanförnu hefur færst í vöxt að skipstjórnarmenn hafi haft sam- band við undirritaðan og lýst áhyggj- um sínum yfir því að þeirra vinnuveit- endur séu með áætlanir um að fækka í áhöfnum, jafnvel um nokkra menn, þrátt fyrir að engin rök, önnur en aukin arðsemi, liggi fyrir. Þetta eigi að framkvæma gegn vilja sjómanna, ekki síst skipstjórnarmanna sem eru óumdeilanlega þeir sem þekkja og bera ábyrgð á skipi, áhöfn og farmi. Þrátt fyrir að nú þegar sé himinn og haf milli hvíldarákvæða sjómanna- laga og reglugerðar um lágmarks- hvíldartíma annarsvegar og þess vinnutíma og vinnuálags sem við- gengist hefur í fiskiskipaflotanum undanfarin ár, þá láta ákveðnir út- gerðarmenn sér detta í hug að fækka í áhöfnum þar sem dæmi eru um að menn séu við erfiðisvinnu allt að 75 % af þeim tíma sem skip er á veiðum þ.e.a.s.15 til 18 tíma í sólahring. Það er því engin tilviljun hversu örorku- tíðni sjómanna er há og að stoðkerf- issjúkdómar séu þar nr. 1 og geðrask- anir nr. 2 yfir algengustu ástæður fyrir örorku sjómanna. Allir sem stundað hafa fiskveiðar á Íslands- miðum vita að þær aðstæður geta komið upp að vinnuframlag manna verður meira en kveðið er á um, en að það verði regla í stað þess að vera undantekning, er óásættanlegt. Áskorun til sjómanna á fiskiskipum og stjórnenda fyrirtækja í sjávarútvegi Eftir Árna Bjarnason Árni Bjarnason »Það þarf því engan Sherlock til að kom- ast að þeirri niðurstöðu að mokfiskirí í örstuttum túrum hafi í för með sér stóraukið vinnuframlag og um leið álag hvers og eins í áhöfninni. Höfundur er formaður Félags skipstjórnarmanna. ab@skipstjorn.is Um daginn var lög- maður og fyrrverandi dómari að tala um gyðju réttlætis. Þá kom upp í hugann:  Í goðafræðinni vara gyðja réttlætis með lepp fyrir aug- um …  Um 1000 var Þor- geir Ljósvetningagoði með voð yfir sig all- an …  Um 1918 var Ísland með kóng yfir sér og hann með dómara undir sér …  Nú höfum við Íslendingar lög- menn sem eru dómarar sem þykj- ast vera gyðjur!  Nú á dögum höfum við Íslend- ingar lög sem segja að lögmenn og þar með dómarar þurfi að vera við hestaheilsu (að minnsta kosti and- lega – grein 6, lög 77/ 1998) alla tíð. Það þarf að endur- skoða stjórnarskrána með tilliti til þess að dómarar eru ekki „gyðjur“ og Ísland er lýðveldi. Lögmenn þurfa að fara til lækna, sálfræðinga, geðlækna, tal- og heyrnarsér- fræðinga eins og venjulegt fólk og öryrkjar og hafa vottorðið um ástand sitt upp á vegg? Ég legg til að ákvæði um æviráðningu dómara verði aflögð og lýðurinn kjósi þá, svo og verði lög um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslu (lög nr. 91/2010) líka af- lögð. Lögmenn eru bara menn/ konur/það og geta líka orðið ör- yrkjar! Það er kominn tími til að lögmenn hafi bæði augu og eyru op- in og í lagi. Lögmenn geta verið heyrnarlausir, sjónlausir og skiln- ingslausir samtímis, án þess að það sjáist utan á þeim. Ætli gyðja rétt- lætis og lögmenn (og dómarar!) séu farin að nota tölvur og upptöku- tæki, eða er það bannað? Eru þess- ar „gyðjur“ með próf í blindralet- urslestri? Eftir Friðrik Ólafsson Friðrik Ólafsson » Það þarf að endur- skoða stjórnar- skrána með tilliti til þess að dómarar eru ekki „gyðjur“ og Ísland er lýðveldi. Höfundur er verkfræðingur. Gyðja réttlætis – kóngur, lögmaður, dómari og leppur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.