Morgunblaðið - 28.02.2018, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Elsku amma.
Það er eiginlega
ólýsanlegt hvað það
er erfitt að setjast
niður og skrifa þessi orð því nú
ertu farin frá okkur. Það að við
getum ekki lengur séð fallega
brosið þitt og fundið einstaka
hlýjuna sem þú gafst frá þér er
skelfileg tilfinning. Af því að þú
varst besta og brosmildasta
manneskjan sem við áttum í lífi
okkar.
Þú brostir alltaf þínu blíðasta
þegar við vorum hjá þér og afa.
Alveg sama hvað það var þá
gerðir þú alltaf allt fyrir okkur
brosandi allan tímann.
Það er erfitt að nefna eitthvað
eitt sem kemur í hugann þegar
við hugsum um þig, þar sem hver
einasta minning er góð. Þú tókst
alltaf þátt í öllu, bara til þess að
vera með og skemmta þér með
okkur. Til dæmis settir þú það
aldrei fyrir þig að spila með okk-
ur fótbolta, þrátt fyrir takmark-
aða hæfileika á því sviði, og svo
allar spilastundirnar sem við átt-
um saman. Ekkert var skemmti-
legra en að eyða helginni uppi í
bústað og spila við ykkur afa,
sérstaklega þar sem okkur grun-
ar að þú hafir oftast leyft okkur
að vinna. Hvort sem við fórum í
veiðimann, ólsen-ólsen eða
bústaðaspilið gúrku, þá var alltaf
mikið hlegið (og svindlað).
Okkur leið alltaf vel þegar við
vorum hjá þér. Dillandi hláturinn
þinn var aldrei langt undan, og
smitaði hann vel út frá sér. Sam-
verustundirnar í bústaðnum uppi
í Ölveri eru margar og dýrmæt-
ar. Þú varst alltaf eldandi eða
bakandi þegar við komum til þín
og er stórskrýtið að við urðum
ekki þéttari en við erum í dag því
maturinn sem þú eldaðir ofan í
okkur var undantekningarlaust
frábær. Snilldarréttir á borð við
kjúkling í brúnni, steiktar fiski-
bollur og eðalrétturinn pylsur í
sósu kemur ofarlega í huga þeg-
ar við rifjum upp bústaðamats-
eldina.
Svo má ekki gleyma öllum
stundunum sem við vörðum í
berjamó í Ölveri. Það var eitt af
því sem þér fannst svo gaman að
gera með okkur. Þú vildir meina
að krækiber og rjómi væri það
allra besta í heiminum.
Við eyddum einnig ófáum
stundum með ykkur í Engihjall-
anum, sem varð eiginlega okkar
annað heimili. Við hlökkuðum
alltaf til þess að mæta í pössun
til ykkar. Þar fengum við að yf-
irtaka sjónvarpið og myndbands-
tækið og fengum við alltaf pen-
ing til þess að hlaupa yfir í
myndbandaleiguna til þess að
leigja spólu og kaupa glás af
nammi. Eins var gaman að
glamra á skemmtarann, þó við
kynnum aldrei neitt á hann og
framkölluðum bara einstaklega
leiðinlegan hávaða, þá stóðstu
bara hjá okkur og brostir. Eins
þótti okkur alltaf vænt um og
biðum með eftirvæntingu eftir að
þú og afi birtust í glugganum
þegar við fórum frá ykkur og
veifuðuð okkur þar til bíllinn
hvarf úr augsýn. Þó svo að við
værum leið yfir því að fara, þá
tókst ykkur samt að gleðja okkur
þegar við fórum.
Elsku amma, við eigum eftir
að sakna þín svo óstjórnlega
mikið. Þú varst svo hjartahlý,
brosmild, þolinmóð, örlát og í
alla staði svo ótrúlega góð við
alla sem voru í kringum þig. Allt
það góða sem býr í okkur eigum
Kristín
Jónsdóttir
✝ Kristín Jóns-dóttir fæddist
17. nóvember 1939.
Hún lést 16. febr-
úar 2018.
Útför Kristínar
fór fram 27. febr-
úar 2018.
við þér að þakka.
Þú kenndir okkur
að vera alltaf góð
við alla í kringum
okkur og sýndir það
líka í verki. Við eig-
um ykkur afa svo
mikið að þakka, við
hefðum ekki getað
beðið um betri
ömmu og afa.
Takk fyrir allt,
elsku amma. Minn-
ing þín mun ávallt lifa í hjörtum
okkar. Þó að þú sért ekki á með-
al okkar lengur þá verður þú
alltaf hjá okkur. Við kveðjum þig
með bæninni sem þú kenndir
okkur og fórst alltaf með þegar
við gistum hjá þér:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jóns.)
Hafsteinn (Haddi), Villimey
og Hrafnkell Allan.
Amma Stína er besta kona
sem ég hef kynnst, hjá henni
fann maður bara ást, og hún
kenndi mér helling á lífið. Manni
leið alltaf vel hjá henni ömmu,
hún vildi allt fyrir mann gera og
var alltaf til staðar, sama hvað.
Ég man hvað það var alltaf gam-
an að koma til ömmu og afa í
Engihjallanum, eyða deginum í
að teikna, horfa á spólur með
ömmu og fá ísblóm eftir matinn.
Ég vona að ég sjái heiminn
eins og þú, því lífi með svona
miklum kærleika hefur verið vel
lifað.
Allan Gunnberg
Steindórsson.
Elsku amma Stína okkar.
Minningarnar sem við eigum
um þig eru svo góðar og
skemmtilegar. Takk fyrir að
vera svona góð amma. Takk fyrir
að vera svona góð við okkur allt-
af. Takk fyrir að fara með okkur
í sumarbústaðinn ykkar. Takk
fyrir að elda besta grjónagraut-
inn handa okkur.
Takk fyrir að fara og tína ber
með okkur. Takk fyrir að sækja
okkur svona oft í leikskólann.
Þú áttir alltaf eitthvað gott,
það var svo gott að vera hjá þér.
Takk fyrir allt, elsku amma
Stína, okkur fannst þú heimsins
best.
Við vitum að þú vakir yfir okk-
ur og passar upp á okkur. Við
elskum þig.
Þínir strákar,
Steindór Mar, Kristían Mar,
Daníel Mar og Baltasar
Mar.
Elsku amma Stína.
Engin orð fá því lýst, hvað ég
sakna þín.
Það er svo margt sem mig
langar að segja þér. Það eru svo
margar dýrmætar minningar.
Allar góðu stundirnar uppi í
bústað, þú og afi voruð svo dug-
leg að vera með okkur barna-
börnin.
Ég man alltaf þegar þú
skammaðir afa fyrir að hlæja að
því þegar ég sagðist elska þig, þú
sagðir við hann að kannski
mundi hann aldrei segja þetta
aftur við mig.
Þú last alltaf Stubb fyrir mig.
Þú kenndir mér faðirvorið.
Þú passaðir alltaf upp á að
mér liði vel og öllum í kringum
þig.
Þú bauðst mér alltaf í spergla
þegar ég var heima og hættir
ekki að bjóða manni fyrr en mað-
ur var saddur. Þitt fallega bros
gerði mann alltaf glaðan. Þú
varst svo rosalega góð og hlý.
Þú vildir alltaf hlusta, ég fann
alltaf hvað þér þótti vænt um
mig og alla í kringum þig.
Mér sárnar að dætur mínar
fái ekki að kynnast ömmu Stínu,
þú varst einfaldlega einstök
kona. Ég er svo innilega þakk-
látur fyrir að hafa átt þig fyrir
ömmu.
Ég kveð þig með miklum
söknuði. Ég mun minnast þín
með gleði í hjarta og miklu þakk-
læti fyrir þann tíma sem ég átti
með þér.
Ég elska þig af öllu hjarta.
Þinn dóttursonur,
Guðmundur Jóhann
Steindórsson.
„Ég skil þetta ekki, nú er
mamma þín svona skemmtileg
og pabbi þinn skemmtikraftur,“
sagði amma við mig þegar ung-
lingaveikin stóð sem hæst. Stutt,
laggott, hnitmiðað og fyndið.
Amma kunni sko að orða hlutina
– þar með hætti unglingaveikin,
að minnsta kosti í kringum hana
ömmu.
Amma Stína var stórkostleg
kona, mig skortir lýsingarorð
sem lýsa henni nógu vel en fyrir
mér var hún heimsins best. Hún
kenndi mér ótal margt og við átt-
um margar dásamlegar stundir
saman og mun ég ylja mér við
þær minningar um alla eilífð.
Amma var kraftmikil kona sem
geislaði af hlýju, hún hvatti mig
og okkur öll sem stóðum henni
næst til dáða. Það var ekki að
spyrja að því þegar ég var að
efast um eitthvað sem ég ætti að
gera, hvort sem það var í námi
eða starfi að þá sagði amma að
ég gæti allt sem ég vildi. Hún
hafði óbilandi trú á fólkinu sínu
og elskaði ekkert heitar en okk-
ur.
Ég er svo þakklát fyrir ömmu
Stínu, fyrir ástina, umhyggjuna,
faðmlögin, dansana við Elvis,
kaffisopana, bakstursstundirnar,
skemmtilegu hreinskilnina og
ástina. Amma Stína á og mun
alltaf eiga stóran hluta af mínu
hjarta og ég veit að hún mun
fylgja mér og stelpunum mínum
alla daga.
Takk fyrir allt, elsku amma,
ég elska þig og mun sakna þín að
eilífu.
Þín
Eva Laufey Kjaran
Hermannsdóttir.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku hjartans amma Stína.
Takk fyrir samfylgdina,
hlýjuna og allar dásamlegu
minningarnar.
Þín barnabörn
Sigríður Hrund
Snorradóttir,
Hjalti Heiðar Jónsson,
Harpa Jónsdóttir.
Elsku Stína frænka er dáin.
Stína átti alltaf sérstakan sess
í mínu hjarta. Ófáar stundirnar
sem ég eyddi á Sunnubrautinni
með Rósu hjá Stínu og Allani.
Stína var alltaf svo flott kona,
klæddi sig alltaf eins og tísku-
drottning og var bara falleg að
innan sem utan.
Alltaf var Stína þessi ljúfa og
góða kona, það var alveg sama
hvað við Rósa brölluðum, aldrei
skipti Stína skapi, ekki einu sinni
þegar við klipptum öll sumar-
blómin hennar í garðinum og
seldum í nágrenninu til að kaupa
okkur eyrnalokka í Drangey svo
fátt eitt sé nefnt.
Hún var umburðarlynd og góð
kona og öllum sem kynntust
henni þótti svo ofur vænt um
hana. Hún var mikil fjölskyldu-
manneskja, mikil húsmóðir og
alltaf stutt í brosið og hláturinn.
Síðustu ár hafa ekki verið
heilsufarslega góð hjá elsku
Stínu og það tók sinn toll af
henni og hennar nánustu.
Þá sýndi sig hvað hún átti
góða að, bæði Allan og börnin
þeirra ásamt barnabörnum
hjálpuðust að við að gera henni
lífið bærilegra.
Síðast þegar ég leit til þín á
Höfða gerði ég mér ekki grein
fyrir hvort þú þekktir mig en ég
er því fegin að hafa fengið að
halda í höndina þína og innst inni
kveðja þig í huganum.
Eftir áratuga löng kynni
þakka ég þér, elsku Stína mín,
fyrir allt það sem þú varst mér
og sendi Allani, Rósu, Silju,
Svenna og Nonna ásamt þeirra
fjölskyldum innilegar samúðar-
kveðjur og megi allar góðu minn-
ingarnar um Stínu lifa með okk-
ur alltaf.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
(Ingibjörg Sigurðard.)
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Hún Stína frænka er dáin og
maður grætur örlög hennar sárt.
En minningarnar um Stínu
munu lifa og við munum varð-
veita þær í hjörtum okkar um
ókomin ár. Neðangreint ljóð
Sigurbjörns Þorkelssonar finnst
mér lýsa Stínu frænku minni ein-
staklega vel.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endur-
gjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Ég votta Allani, börnunum og
barnabörnunum mína dýpstu
samúð. Guð blessi ykkur öll.
Margrét Rósa Pétursdóttir
og fjölskylda.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
– Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Hún var alltaf kölluð Stína.
Stína í Guðnabæ. Hún var æðru-
laus og lítillát, skemmtileg, kát
og lífsglöð. Og svo var hún Stína
með eindæmum falleg kona. Hún
var rokkari og dansari en hún
var fyrst og fremst fjölskyldu-
manneskja. Með fólkinu sínu
naut hún sín best. Hún byggði
upp einstakt samband við börnin
sín og barnabörn. Einnig átti
hún vináttu margra systkina-
barna sinna. Það sýndi sig best
nú þegar kveðjustundin nálgað-
ist. Þá fékk hún til baka alla þá
ást og umhyggju sem hún hafði
veitt svo ríkulega af. Nú á
kveðjustund vil ég þakka Stínu
tengdamömmu samfylgdina, ást-
ina og umhyggjuna mér og mín-
um til handa. Megi minningin um
einstaka konu lifa með okkur.
Heiðrún Janusardóttir.
Elsku amma.
Það er erfitt að
trúa því að þú sért
farin frá okkur.
Yndislegri og sjálfstæðari
konu er erfitt að finna.
Á tímum sem þessum rifjast
upp óteljandi góðar minningar
sem við áttum saman. Allar úti-
legurnar, afmælisveislur, jól og
áramót, leikhúsferðir, matar-
boð o.fl. og þegar ég hugsa til
baka þá væri ég mikið til í að
þær hefðu verið fleiri.
Það er eitthvað með okkur
ungu kynslóðina í dag, við er-
um alltaf svo rosalega upptekin
og að drífa okkur hingað og
þangað og það er eins og við
höfum aldrei tíma fyrir neitt
annað en okkur sjálf og heim-
ilið, svo líða dagar og mánuðir
frá því að maður hittir þá sem
manni þykir vænst um.
Einn laugardag í desember í
fyrra ákváðum við fjölskyldan
að bruna á Selfoss og kíkja í
kaffi til þín með nýbakaða lakk-
rístoppa sem við Eiríkur Freyr
höfðum bakað kvöldinu áður.
Við spjölluðum heillengi, um
afa, gömlu dagana í Vest-
mannaeyjum, fjölskylduna alla
o.fl.
Þú talaðir einnig um hvað
þér hefði þótt virkilega gaman
þegar Sigþór fór með þig í
dagsferð til Eyja í fyrrasumar
og hvað það hafði verið yndis-
legt að þú hefðir náð að heim-
sækja marga í þessari einu
dagsferð.
Á leiðinni heim í bæinn eftir
Jóna Sigurlásdóttir
✝ Jóna Sigur-lásdóttir fædd-
ist 11. júlí 1940.
Hún lést 10. febrúar
2018.
Útför Jónu fór
fram 22. febrúar
2018.
þessa yndislegu
heimsókn töluðum
við Gunni m.a. um
að við yrðum að
gera þetta oftar og
það væri nú gaman
að taka þig með í
dagsferð til Eyja
núna í sumar.
Þótt söknuður-
inn sé mikill þá er
ákveðin huggun að
hugsa til þess að
nú séuð þið afi loksins sam-
einuð.
Nóttina áður en þú fórst
dreymdi mig afa. Ég var stödd
úti á götu að tala við vinkonu
og í því kemur hann, strunsar
framhjá mér án þess að heilsa.
Hann heldur á blómvendi, er
brosandi og virkilega vel til-
hafður og er mikið að flýta sér
eitthvað.
Daginn eftir hringir mamma
í mig og segir mér fréttirnar,
þá rifjast þessi draumur upp
fyrir mér og þá vissi ég alveg
hvert afi var að fara, hann var
á leiðinni að sækja þig!
Hvíldu í friði, elsku amma,
og knúsaðu afa frá okkur, þín
verður sárt saknað.
Karen Gestsdóttir.
Jóna amma.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordags-
ins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjar-
dóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Elín Gestsdóttir.
Elsku Selma.
Okkur langar til
að minnast Selmu
vinkonu okkar með nokkrum orð-
um. Við vorum enn í foreldrahús-
um þegar við stofunum sauma-
klúbb og fórum að hittast
reglulega heima hjá hvor ann-
arri. Minnst til að sauma en mest
til að masa. Síðan er liðin meira
en hálf öld. Upp úr þessu spratt
vinátta sem aldrei hefur skuggi
fallið á. Selma var dásamleg
manneskja, örlát, greiðvikin og
Selma Ósk
Björgvinsdóttir
✝ Selma ÓskBjörgvins-
dóttir fæddist 10.
desember 1938.
Hún lést 29. janúar
2018.
Útför Selmu fór
fram í kyrrþey 9.
febrúar 2018.
glaðlynd. Oft tókum
við með okkur bil-
aða skartgripi í
saumaklúbb og
Selma tók við þeim
með þessum orðum:
„Hann Úlli minn
lagar þetta“ og ekki
var hægt að fá að
borga fyrir. Eftir að
við urðum fimmtug-
ar fórum við að
ferðast saman og
fórum í sjö utanlandsferðir og oft
í helgarferðir til Stykkishólms.
Selma var frábær ferðafélagi og
vinur. Við munum alltaf sakna
hennar.
Okkar hjartans samúðarkveðj-
ur til Úlla, Össa, Guðrúnar, Sím-
onar og barnabarnanna.
Erna G., Halldóra Jóna,
Ágústa, Halla, Erna M.,
Gréta og Guðrún.