Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
Michelle Obama, fyrrverandi for-
setafrú Bandaríkjanna, upplýsti á
Twitter fyrr í vikunni að væntanleg
endurminningabók hennar muni bera
titilinn Becoming. Bókin kemur út á 24
tungumálum 13. nóvember á vegum
Penguin Random House. Samkvæmt
frétt The Guardian er talið að útgáfu-
samningar að væntanlegum bókum
Obama-hjónanna nemi 65 milljónum
bandaríkjadala.
Í fyrrnefndu tísti Michelle Obama
segist hún binda vonir við að frásögn
hennar veiti öðrum innblástur til að ná
markmiðum sínum í lífinu. Í endur-
minningunum segir hún frá uppvexti
sínum í suðurhluta Chicago og hvernig
henni hafi tekist að finna jafnvægi milli
móðurhlutverksins og starfsframa
sem og frá tíma sínum í Hvíta húsinu.
„Það hefur verið djúpstæð persónuleg
reynsla að skrifa Becoming. Skrifin
veittu mér, í fyrsta sinn, rými til að
íhuga einlæglega hina óvenjulegu
stefnu sem líf mitt hefur tekið,“ skrifar
Michelle Obama á Twitter og tekur
fram að hún hlakki til að deila reynslu
sinni með lesendum. Hún hyggst
fylgja útgáfunni eftir með ferðalögum
víðs vegar um heiminn. Frá því Lady
Bird Johnson sendi frá sér endur-
minningabók að tíma sínum í Hvíta
húsinu loknum hafa allar fyrrverandi
forsetafrúr, að Pat Nixon undanskil-
inni, sent slíkar bækur frá sér.
AFP
Hjón Michelle og Barack Obama.
Vill vera öðrum hvatning
Sú heimsmynd sem birtist íeinni þekktustu bók Marg-aret Atwood, Handmaid’sTale eða Sögu þernunnar,
vakti mikla athygli þegar bókin kom
fyrst út, árið 1986. Vestrænir les-
endur þess tíma, á
áratug almennrar
bjartsýni og hressi-
leika, hefðu líklega
fæstir gert sér í
hugarlund að árið
2018, rúmum 30 ár-
um síðar, væri
skuggalega margt
sem bæri í sér fræ
þessarar óhugnanlegu heimsmyndar
ofstækis og kreddna.
Í þeim framtíðarheimi sem Atwood
dregur upp hafa konur aðeins það
hlutverk að fæða börn í ánauð og
þjóna karlmönnum. Sumar eru þó í
útlegð í nýlendunum, þær sem þykja
engum gagnast.
Landfræðilega er ríkið Gíleað stað-
sett þar sem Bandaríkin voru og ekki
er langt síðan aðalsöguhetjan bjó við
hefðbundið frelsi bandarískrar nú-
tímakonu. Hún átti eiginmann og
barn en var svipt frelsi sínu og fjöl-
skyldu þegar byltingarmenn, með
kristilega bókstafstrú og ofbeldi í far-
arbroddi, gerðu valdarán.
Þegar sagan hefst er söguhetja
okkar skilgreind sem þerna. Konur í
Gíleað eru ýmist skilgreindar sem
eiginkonur, og þeirra eina hlutverk er
að þóknast eiginmanni sínum; Mört-
ur, sem sinna starfi vinnukvenna; og
frænkur, sem sjá um að þjálfa og
heilaþvo síðastnefnda hópinn, svokall-
aðar þernur. Þernur eru þær konur
sem taldar eru geta orðið ófrískar, á
tímum þar sem ófrjósemi er stórt
vandamál.
Þernum er úthlutað til heimila
giftra valdamanna þar sem þeir
reyna að eignast með þeim börn. Ef
barn kemur undir eru þær eftir fæð-
ingu og nokkurra mánaða brjóstagjöf
sendar á næsta ófrjósama heimili þar
sem reynt er að endurtaka leikinn.
Þernur sem hnepptar eru í þrældóm
á þennan hátt eru taldar hafa lifað
ósiðlegu lífi áður, til dæmis með því
að hafa verið fráskildar eða í hjóna-
bandi með manni sem var giftur áður.
Saga þernunnar er afskaplega vel
úthugsaður heimur hryllings. Vald-
stjórnin ræður tungumálinu, þar sem
það skal helgað guði, bækur og tíma-
rit sem eru án trúarlegs tilgangs hafa
verið brennd, klæðnaður, afþreying
og allt frelsi til hvers kyns athafna er
ákvarðað af ofstækismönnum Gíle-
aðs. Hryllingurinn er áferðarfagur á
óviðfelldinn hátt, því þrátt fyrir op-
inberar aftökur og kúgun er guðlegt
tungumálið kurteislegt; það er reisn
yfir umhverfi heimilanna með sínum
himnasængum og heldri húsgögnum.
Þær persónur sem kúga eru jafnvel
viðfelldnar.
Atwood hefur hugað að alls kyns
smáatriðum til að fullkomna mynd
þessa heims sem hún birtir lesand-
anum en um leið skilur hún heilmikið
eftir; fleti sem hann fær sjálfur að
velta fyrir sér og fylla í.
Sagan er spennandi, óvænt og vel
skrifuð og gæti verið ný af nálinni,
svo mjög vísar hún til nútímans.
Þýðing Birgittu Elínar er hnökra-
laus og flæðir vel, bæði snýr hún orð-
færi þessa framtíðarheims tilgerð-
arlaust og skiljanlega yfir á íslensku
og myndmál Atwood kemst lipurlega
og skýrt til skila.
Áhrifamikil „Saga þernunnar er afskaplega vel úthugsaður heimur hryll-
ings,“ segir í rýni um Sögu þernunnar eftir Margaret Atwood.
Skáldsaga
Saga þernunnar bbbbn
Eftir Margaret Atwood.
Birgitta Elín Hassell þýddi. Magnea J.
Matthíasdóttir ritstýrði.
Björt bókaútgáfa – Bókabeitan, Reykja-
vík 2017. Innbundin, 402 bls.
JÚLÍA MARGRÉT
ALEXANDERSDÓTTIR
BÆKUR
Áferðarfagur hryllings-
heimur framtíðar
Hinn breski Ed
Sheeran er sá
tónlistarmaður
sem seldi mest af
tónlist á síðast-
liðnu ári, í föstu
formi platna og
diska, í streymi
og niðurhali, sam-
kvæmt saman-
tekt alþjóða-
samtaka tónlist-
arútgefenda, IFPI. Drake seldi
næstmest af tónlist – hann átti topp-
sætið 2016 – og Taylor Swift var
þriðja söluhæst.
Sheeran átti bæði söluhæstu plöt-
una, Divide, sem fékk platínuplötu á
36 markaðssvæðum, og það lag sem
best seldist, „Shape of You“. Sami
listamaður hefur ekki áður verið
söluhæstur í báðum flokkum.
Ed
Sheeran
Ed Sheeran
seldi mest
Málverk eftir franska impressjónistann Claude Monet
(1840-1926), sem var í eigu japansks safnara en hvarf eft-
ir seinni heimsstyrjöldina, er komið í leitirnar og er nú í
Þjóðarlistasafni Japana í Tókýó. Segir yfirmaður þar
verkið hafa komið í leitirnar í Louvre-safninu í París.
Málverkið er mjög stórt, yfir fjórir metrar á breidd og
tveir á hæð og sýnir vatnaliljur og speglun af tré á tjörn.
Það er stúdía fyrir eitt frægasta málverk Monets af
vatnaliljum en er afar illa farið – er helmingur þess sagð-
ur ónýtur. Gera þarf við verkið af sérstakri vandvirkni.
„Sá hluti verksins sem enn er í lagi er mjög stór og sýnir
vel snilli Monets, ef það er fært í fyrra horf,“ segir hann.
Japanski safnarinn Kojiro Matsukata keypti verkið af
Monet árið 1921. Safn hans var flutt til Parísar á stríðs-
árunum, til varðveislu, en frönsk stjórnvöld gerðu það
upptækt. Flestum verkunum var skilað árið 1959 en
þetta hefur gleymst þar sem það hafði orðið fyrir miklum
skemmdum í geymslu. Það verður sýnt á næsta ári.
Hálfónýtt verk eftir Monet fundið
Illa farið Hluti málverksins eftir Monet, þakið hlífð-
arpappír meðan forverðir vinna að viðgerð.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 20:00 131. s Sun 4/3 kl. 20:00 134. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s
Fös 2/3 kl. 20:00 132. s Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s
Lau 3/3 kl. 20:00 133. s Lau 10/3 kl. 20:00 136. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 2/3 kl. 20:00 56. s Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 60. s
Lau 3/3 kl. 20:00 57. s Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Sun 11/3 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 17. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn
Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka
Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 18.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Faðirinn (Kassinn)
Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn
Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn
Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 Auka
Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 4/3 kl. 13:00 13.sýn Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn
Sun 11/3 kl. 13:00 14.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 1/3 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 22:30
Fös 2/3 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fös 2/3 kl. 22:30 Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 22:30
Lau 3/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?