Morgunblaðið - 28.02.2018, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
Stockfish hefst á morgun í Bíó
Paradís og stendur yfir í tíu daga.
Hátíðin er nú haldin fjórða sinni og
að vanda boðið upp á fjölda kvik-
mynda- og heim-
ildarmynda sem
hlotið hafa lof-
samlega dóma og
margar hverjar
verðlaun, auk
stuttmynda.
Þeirra á meðal er
rússneska kvik-
myndin Loveless,
eða Nelyubov á
frummálinu, eftir
leikstjórann And-
rey Zvyaginstev sem hlaut dómara-
verðlaun kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes í fyrra og er framlag Rússa
til Óskarsverðlaunanna í ár og
heimildarmyndin Komunia eftir
pólsku kvikmyndagerðarkonuna
Önnu Zamecka sem hlaut Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunin í fyrra
sem besta heimildarmyndin. Nýj-
asta kvikmynd Óskarsverðlauna-
leikstjórans Agnieszku Holland,
Spoor, verður einnig sýnd og eró-
tískur sálfræðitryllir leikstjórans
François Ozon, L’amant double, svo
nokkrar séu nefndar.
Ástin í ýmsum myndum
„Þetta eru 19 valdar myndir, fyr-
ir utan stuttmyndakeppnina Sprett-
fisk og Örvarpið og dagskrá
bransadaganna okkar,“ segir
Marzibil S. Sæmundardóttir, fram-
kvæmdastjóri Stockfish, spurð að
því hversu margar myndir séu á
dagskrá.
En hvernig kvikmyndir eru
þetta? „Þetta er rosalega fjölbreytt,
við erum með morðgátur og fant-
asíur og alls konar en okkur finnst
ástin svífa svolítið í loftinu núna.“
–Er það tilviljun?
„Já, í rauninni,“ segir Marzibil og
ítrekar að fjölbreytni sé skipuleggj-
endum hátíðarinnar mikilvæg. „Það
eru þarna svarthvítar „film noir“
myndir, heimildarmyndir og morð-
gátur, þrillerar og fleira en það
eru, að ég held, fimm ástarmyndir
á dagskránni. Þær fjalla um leitina
að ástinni eða ástina, sambönd og
eitthvað slíkt.“ Sem dæmi um slík-
ar myndir nefnir Marzibil hinar
frönsku Montparnasse Bienvenue,
L’amant double og Un beau soleil
intérieur og ítölsku kvikmyndina
Cuori puri.
Allar spennandi
Marzibil er spurð að því fyrir
hvaða myndum hún sé sjálf spennt-
ust og gefur hún hið diplómatíska
svar að hún sé spennt fyrir þeim
öllum. Hún nefnir nokkrar í fram-
haldi og m.a. eistnesku kvikmynd-
ina November sem er æði for-
vitnileg og lýst með eftirfarandi
hætti í bæklingi hátíðarinnar:
„Töfrar svífa yfir vötnunum í þess-
ari svarthvítu gotnesku fantasíu-
mynd um ástarþríhyrning þriggja
ungmenna úr ólíkum stéttum.
Galdrar og blekkingar eru notuð til
að sigra ástina í 19. aldar Eistlandi
sem er ásótt af illum öndum og
plágum.“
Marzibil segir heimildarmynd-
irnar tvær á hátíðinni líka mjög
áhugaverðar, Komunia og Golden
Dawn Girls en sú síðarnefnda er
norsk og í henni rætt við dóttur,
eiginkonu og móður fremstu með-
lima hægrisinnaða flokksins Gullin
dögun í Grikklandi sem sitja bakvið
lás og slá. Komunia frá Póllandi
fjallar um fjórtán ára stúlku sem
axlar of mikla ábyrgð á föður sín-
um og einhverfum bróður.
Sérviðburðir og umræður
Stockfish er líka faghátíð fyrir ís-
lenska kvikmyndagerð enda standa
að henni fagfélög kvikmyndagerð-
arfólks á Íslandi. Virt fagfólk sækir
hátíðina og boðið verður upp á sér-
viðburði og umræður.
„Við erum með vel yfir 20 er-
lenda gesti, það eru leikstjórar og
kvikmyndatökustjórar sem dæmi
og leikarar tengdir myndunum. Svo
eru gestir að koma og taka þátt í
bransadögunum okkar,“ segir
Marzibil og nefnir sérstaklega mál-
þingið Nordic Female Filmmakers
Meeting Point sem fram fer laugar-
daginn 3. mars kl. 18. Á því munu
hæfileikaríkar leikstýrur frá Norð-
urlöndum, sem hlotið hafa mikla at-
hygli og lof fyrir verk sín, ræða
saman um stöðu kynjanna í kvik-
myndageiranum og MeToo-
hreyfinguna en umræðum stýrir
leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir.
Allar upplýsingar um Stockfish
má finna á stockfishfestival.is.
Ástlaus Úr rússnesku kvikmyndinni Nelyubov, á ensku Loveless. Hjón ganga í gegnum erfiðan skilnað og vilja
hefja nýtt líf jafnvel þótt það þýði að þau þurfi að yfirgefa 12 ára son sinn. Dag einn hverfur sonurinn.
Ást og ástleysi
Erótískur sálfræðitryllir og gotneskur ástarþríhyrningur
frá Eistlandi meðal þess sem er í boði á Stockfish-hátíðinni
Marzibil
Sæmundardóttir Spenna L’amant double eftir François Ozon er lýst sem sálfræðitrylli.
Framleiðandinn
og tónlistar-
maðurinn Gil
Cang hefur deilt
reynsluupptöku
með Amy Wine-
house, sem tekin
var upp þegar
hún var 17 ára, á
Youtube. Frá
þessu greinir
Guardian. Í frétt-
inni kemur fram að útgefandi tón-
listarkonunnar hafi fargað öllum
óunnum reynsluupptökum af Wine-
house eftir andlát hennar til að
koma í veg fyrir að gefnar væru út
plötur með áður óútgefnu efni
hennar. Cang samdi lagið „My Own
Way“ í samvinnu við James McMill-
an og söng Winehouse það inn á
upptöku fyrir þá áður en hún gerði
samning við Island Records árið
2003.
Í samtali við Camden New Journ-
al rifjar Cang upp fyrstu kynni sín
af Winehouse. „Amy kom á fund
okkar, opnaði munninn og hreif
okkur. Við vorum strax heillaðir af
hæfileikum hennar,“ segir Cang.
Eftir andlát Winehouse árið 2011
gaf Universal út plötu sem innihélt
B-hliðar og ábreiður Winehouse
undir titlinum Lioness: Hidden
Treastures. Plötunni var ekki vel
tekið og í framhaldinu ákvað David
Joseph, framkvæmdastjóri Univer-
sal í Bretlandi, að eyðileggja það
sem eftir væri af óútgefnum
reynsluupptökum og bar í viðtali
við Guardian 2015 fyrir sig siðferð-
islega skyldu.
Deilir áður óútgefinni reynsluupptöku
Amy
Winehouse
Notalegt í skammdeginu
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Gamaldags
14“‘ lampi,
verð frá 18.350
Fjósalukt, svört, grá
eða rauð, verð 3.980
Glóðarnet og aðrir
varahlutir fyrir Aladdin
lampa fyrirliggjandi
Comet
11“‘ lampi,
verð frá 7.590
Sérpöntum glerkúpla
á olíulampa,
verð frá 9.900
Lampaglös
í úrvali,
verð frá 3.120
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Kveikir
í úrvali,
verð frá
1.120
Ný
vefverslun
brynja.is
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 5.50, 8, 10.45Sýnd kl. 8 - FORSÝNING
Sýnd kl. 7.50, 10.35 Sýnd kl. 10.10 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30