Morgunblaðið - 31.03.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.03.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 Lykilverslun við Laugaveg – Áratuga þekking og reynsla INNRÉTTINGA- OG SKÁPAHÖLDUR Opið virka daga 9-18 laugardaga 10-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is UM 400 gerðir að velja úr Ný vefverslun brynja.is Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Það er ekki amalegt fyrir þásem langar prófa aðrækta matjurtir inni hjásér að njóta leiðsagnar Zia Allaway, skref fyrir skref. Al- laway er kona sem kann sitt fag. Alveg upp á sínar tíu grænu fingur. Hún er menntaður garðyrkjufræð- ingur, garðhönnuður, ritstjóri Beautiful Gardens Magazine, skrif- ar reglulega í Homes & Gardens, Garden Design Journal, The Gu- ardian og ýmis kvennatímarit og vefsíður. Þá hefur hún skrifað bæk- ur um garðrækt þar sem hún legg- ur sérstaka áherslu á að allir geti ræktað nánast hvað sem þeim dett- ur í hug. Svipað er uppi á ten- ingnum í nýjustu bókinni, Inni- ræktun matjurta, sem nýkomin er út hjá Forlaginu. Bókin kann því að vera eins og himnasending fyrir þá sem hefur skort ráð og kannski dáð til þess að koma sér upp inni- matjurtagarði sem bragð er að. Leiðbeiningarnar eru svo skil- merkilegar að tæpast er hægt að fara út af sporinu. Fjölbreytnin á sér líka fá takmörk og samkvæmt bókinni virðist vera leikur einn að rækta ótrúlega margar tegundir – einnig í litlum blokkaríbúðum ef því er að skipta, enda aðalatriðið að plönturnar njóti góðs atlætis svo þær vaxi og dafni. Á ljósmyndum í bókinni má svo sjá hversu salatið, kryddjurtirnar og ávaxtatrén taka sig ljómandi vel út og lífga upp á heimilið í misstórum krukkum, Inniræktun er krydd í tilveruna Borgarlandbúnaður er sú iðja borgar- og þéttbýlisbúa stundum kölluð að rækta matjurtir innandyra heima hjá sér. Breski garðyrkjufræðingurinn Zia Allaway, höfundur nýútkominnar bókar, Inniræktun matjurta, segir flesta hafa græna fing- ur og geta ræktað jafnt krydd sem ávexti og grænmeti innan veggja heimilisins. Lítil blokkaríbúð sé enginn þröskuldur. Minta Fjólur Steinselja Rósmarín Fjólur Á Ísafirði og í nágrenni er engin logn- molla um páskana þetta árið frekar en þau fyrri. Rokkhátíð alþýðunnar Aldrei fór ég suður, sem lýkur í kvöld, ber þar jafnan hæst, og áratugahefð er fyrir skíðaviku Ísfirðinga. Dag- skráin á göngu- og svigskíðasvæð- unum er að vanda býsna þétt og sömuleiðis er ýmislegt fleira um að vera í bænum. Á vefsíðunni www.westfjords.is kemur m.a. fram að milli kl. 10 og 12 í dag, laugardag 31. mars, verður páskaeggjamót HG í Tungudal fyrir börn fædd 2006 eða síðar, kl. 11-16 furðufataball fjölskyldunnar á Selja- landsdal og síðdegis, eða kl. 14, er páskabingó í Félagsheimilinu Hnífs- dal. Og fjörið heldur áfram því undir miðnætti byrja böllin, en þá spila Ba- bies flokkurinn í Krúsinni, 200.000 naglbítar á Vagninum og Made in sveitin í Edinborg. Páskadagur er heldur ekki viðburðalaus fyrir vestan eins og lesa má á fyrrnefndri vefsíðu. Vefsíðan www.westfjords.is Morgunblaðið/ Halldór Sveinbjörnsson Skíðagarpar Skíðavikan á Ísafirði hefur verið haldin hátíðleg um páska í 70 ár. Viðburðaríkt fyrir vestan Veðurguðirnir virðast ætla að leika við hvern sinn fingur um páskana, eða að vera víðast hvar mestan part til friðs. Fyrir þá sem ekki eru upp um fjöll og firnindi um helgina er upplagt að taka sér heilsubót- argöngu í sínu nærumhverfi. Sumir vilja ganga einir og hlusta þá gjarnan á tónlist eða sögur, á meðan aðrir kjósa félagsskap. Grafarvogsbúar geta til dæmis slegist í gönguhóp sem Safnaðarfélag Graf- arvogskirkju gengst fyrir kl. 11 í dag, laugardaginn 31. mars, og síðan annað slagið, næst 14. apríl. Farið verður rólega af stað og gönguferðirnar að- lagaðar þörfum fólks, færð og veðri. Auk heilsubót- arinnar er markmiðið að þátttakendur fái tækifæri til að kynnast grönnum sínum og meira að segja hundunum þeirra líka, en séu þeir í bandi eru þeir velkomnir með. Fólk með börn í kerrum og vögnum getur líka tekið þátt í göngunni, sem hefst við Graf- arvogskirkju. Endilega … … farið í göngutúr Morgunblaðið/Ómar Í göngutúr Með voffa í göngutúr á góðum degi. Rithöfundurinn og sagnamaðurinn Einar Kárason stígur á svið á Sögu- loftinu í Landnámssetrinu í Borg- arnesi kl. 20 í kvöld, laugardags- kvöldið 31. mars, og flytur Grettis- sögu. Sagan um ógæfumanninn Gretti Ásmundarson er trúlega ein af vinsælustu Íslendingasögunum. Grettir var mikill óeirðamaður og skapstór. „Ódæll í uppvexti sínum, fátalaður og óþýður, bellinn bæði í orðum og tiltektum … fríður maður sýnum, breiðleitur og skammleitur, rauðhærður og næsta freknóttur, ekki bráðger meðan hann var á barnsaldri,“ eins og sagt var um hann. Þetta er sjötti flutningur Einars í Landnámssetrinu, en mörgum er enn í fersku minni flutningur hans á Skáldinu Sturlu og Óvinafagnaði. Hægt er að kaupa miða á www.land- nam.is. Einar Kárason stígur á svið í Landnámssetrinu í Borgarnesi Sagan af ógæfumanninum Gretti sterka Ásmundarsyni Gamla pakkhúsið Landnámssetrið er í tveimur af elstu húsum Borgarness sem tengd eru með tengibyggingu. Söguloftið er í risinu á gamla pakkhúsinu. Morgunblaðið/Kristinn Sagnamaður Einar Kárason. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.