Morgunblaðið - 31.03.2018, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018
Reykjavíkurborg auglýsir eftir myndlistarmönnum til að taka þátt í forvali að
lokaðri samkeppni um gerð listaverks/listaverka í Vogabyggð. Lögð er áhersla á
að listaverk verði hluti af heildarhönnun almenningsrýma í hverfinu einkum á
svæðum sem skilgreind eru sem þemavellir og andrými. Sjá nánar skýringarmynd.
Myndlistarmenn sem áhuga hafa á að taka þátt í samkeppninni eru beðnir um
að senda inn umsókn um þátttöku þar sem fram kemur nafn höfundar/höfunda,
kennitala, heimilisfang og símanúmer, ásamt greinargóðum upplýsingum um
listferil og myndum af fyrri verkum.
Samkeppnin er haldin samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra
myndlistarmanna (SÍM). Forvalsnefnd velur úr innsendum umsóknum allt að átta
myndlistarmenn eða hópa til þess að gera tillögur að listaverkum. Dómnefnd
velur síðan eina eða fleiri tillögur til útfærslu. Dómnefnd er heimilt að hafna
öllum tillögum. Nánar um samkeppnina: reykjavik.is/listaverk-vogabyggd
Við val á listaverkum verður haft að leiðarljósi að tillögur styðji það markmið
að myndlist verði veigamikill og afgerandi hluti umhverfis og mannlífs í
Vogabyggð og að listaverk stuðli að því að skapa örvandi umhverfi fyrir alla
aldurs- og þjóðfélagshópa.
Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/listaverk-vogabyggd
Andrými Þemavöllur
Umsóknir um þátttöku í samkeppninni skulu berast á netfangið
vogabyggd.samkeppni@reykjavik.is
Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 2. maí 2018.
Samkeppni um
útilistaverk í Vogabyggð
Fyrir nokkrum ár-
um var lögum um
málefni aldraða
breytt á þann veg að
einstaklingar sem eru
yngri en 67 ára geta
nú búið á hjúkrunar-
heimilum fyrir aldr-
aða, enda hafi þeir
verið metnir í þörf
fyrir slíka dvöl af
færni- og heilsumats-
nefnd. Í dag eru um áttatíu ein-
staklingar yngri en 67 ára búsettir
á hjúkrunarheimilum. Það geta ver-
ið einstaklingar í sérstökum geð-
hjúkrunarrýmum eða einstaklingar
með heilabilun. Hluti þessa hóps er
ungt fólk með einhvern sjúkdóm
eða hreyfihömlun sem gerir það að
verkum að viðkomandi þurfa um-
talsverða umönnun og geta ekki
búið sjálfstætt þrátt fyrir að andleg
færni sé í góðu lagi.
Þurfa sérúrræði
Eðli málsins samkvæmt getur
þetta unga fólk búið á hjúkrunar-
heimilum árum og jafnvel áratug-
um saman. Þó að mjög æskilegt sé
að viðkomandi einstaklingar fái bú-
setu þar sem veitt er þjónusta við
hæfi veltum við því mjög alvarlega
fyrir okkur hvort hjúkrunarheimili
fyrir aldraða séu rétta búsetuúr-
ræðið fyrir þennan hóp, sem hefur
sínar þarfir, þrár og væntingar um
lífsgæði sem að vonum eru allt aðr-
ar en almennra íbúa hjúkr-
unarheimila þar sem meðalaldurinn
er um 85 ár. Þarfir hópsins eru oft
aðrar en þær sem hjúkrunarheimili
geta sinnt þar sem þjónustan er
sérhæfð að þörfum og áhuga fólks
sem er vel yfir áttrætt. Ungir ein-
staklingar hafa almennt mun meiri
þörf fyrir samneyti við aðra; vilja
komast í bíó, á kaffihús eða nám-
skeið og hafa annan tónlistarsmekk
og matarsmekk og vilja njóta sam-
veru með sínum jafningjum og
jafnöldrum.
Í röngu umhverfi
Einstaklingur sem flyst í hjúkr-
unarrými í dag sökum öldrunar og
afleiðinga sjúkdóma er í allt ann-
arri stöðu. Kröfur til hjúkr-
unarheimila, skyldur þeirra og
skipulag miðast við þennan hefð-
bundna heimilismann, hinn aldraða
einstakling. Ungt fólk á öldr-
unarstofnun er í röngu umhverfi,
röngu úrræði og þjónustan er oft á
tíðum að takmörkuðu leyti við
þeirra hæfi. Fyrir utan þessar
borðleggjandi staðreyndir er
spurning hvort réttlætanlegt sé að
fækka rýmum fyrir aldraða með
þeim hætti sem þetta fyrirkomulag
hefur í för með sér. Nægur er
vandinn fyrir vegna skorts á
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða sem
fara mun vaxandi á næstu árum.
Auðvitað á samfélag okkar að sjá
sóma sinn í því að bjóða ungu fólki
með mikla þjónustuþörf sérstök bú-
setuúrræði sem hentar betur en al-
menn hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða, ef viðkomandi einstaklingar
geta á annað borð ekki fengið þjón-
ustu heim til sín.
Nú hefur heilbrigðisráðherra
boðað lagafrumvarp sem gerir ráð
fyrir að gildandi aldursmörk, sem
einskorða þjónustu dagdvalarrýma
við aldraða, verði numin úr gildi og
farið verði að bjóða yngra fólki í
dagdvalir sem hingað til hafa verið
ætlaðar öldruðum. Enda þótt hið
nýja fyrirkomulag henti örugglega í
einhverjum tilvikum væri samt
ánægjulegra að sjá það boðað að
setja eigi á fót sérstakar dagdvalir
fyrir þá sem yngri eru. Við höfum
því miður ekki orðið þess áskynja
að slíkt standi til. Líkt og með
hjúkrunarheimilin væri slík starf-
semi talsvert ólík núverandi al-
mennum rekstri dagdvalar þar sem
biðlistar aldraðra hafa lengst veru-
lega á síðustu árum. Ungir ein-
staklingar sem væntanlegir eru í
núverandi dagdvalir, fái frumvarp
ráðherra brautargengi, verða í
mörgum tilfellum í röngu úrræði
stóran hluta lífsins þar sem erfitt
er að bjóða bæði umhverfi og þjón-
ustu sérstaklega við þeirra hæfi.
Stefnuleysi
Í nýútkominni skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um starfsemi Sjúkra-
trygginga Íslands segir: „Það
stefnuleysi sem einkennir mála-
flokkinn hefur leitt til þess að
áherslur fjárlaga hverju sinni, tíma-
bundin átaksverkefni og úrlausn til-
fallandi vandamála hafa mótað
ákvarðanir um samninga um heil-
brigðisþjónustu og þar með þróun
heilbrigðiskerfisins.“ Þetta einkenni
stefnuleysis í málaflokknum má
einnig heimfæra á fleiri reglugerðir
og löggjöf stjórnvalda undanfarin
ár. Nýr heilbrigðisráðherra hefur
lýst því yfir að vinna við heildstæða
stefnu í málaflokknum sé í gangi í
ráðuneyti sínu og eru það mjög
ánægjuleg tíðindi. Þeirri vinnu er
hins vegar ekki lokið. Slík stefnu-
mótun hefur ekki verið lögð fram
og hefur ekki fengið þá rýningu og
umræðu sem hún kallar á. Það
liggur því ekki fyrir nein heildstæð
stefna um hvert hlutverk hjúkr-
unarheimila og dagdvalar í sam-
félaginu okkar eigi að vera til fram-
tíðar litið eða hvort slík heimili séu
þau úrræði sem við teljum ákjós-
anleg fyrir unga veika einstaklinga.
Á meðan þetta er staðan teljum við
ótímabært að leggja fram stefnu-
mótandi lagafrumvarp eins og það
sem boðað hefur verið. Erum við
sátt við þau úrræði sem ungu fólki
verður boðið upp á nái frumvarpið
fram að ganga? Á ungt veikt fólk
með mikla þjónustuþörf virkilega
ekki betra skilið af velferðarsam-
félaginu? Getum við ekki gert betur
en þetta?
Getum við virkilega ekki gert betur?
Eftir Pétur Magn-
ússon og Eybjörgu
H. Hauksdóttur
» Á ungt veikt fólk
með mikla þjónustu-
þörf virkilega ekki betra
skilið af velferðar-
samfélaginu?
Pétur
Magnússon
Höfundar eru formaður og fram-
kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu.
Eybjörg H.
Hauksdóttir