Morgunblaðið - 31.03.2018, Side 57
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Atari, fyrsta plata Rari Boys, kom út
í rafrænu formi 19. mars sl. og varð
strax aðgengileg á tónlistarveitunni
Spotify. Ísleifur Eldur Illugason,
einn liðsmanna Rari Boys, segir
hópinn hafa verið í mótun í um það
bil ár en þó með hléum. Rari Boys
komu fram á Iceland Airwaves og
segir Ísleifur að eftir það hafi hóp-
urinn farið að sinna verkefninu af
meiri alvöru. „Fyrst var þetta bara
algjört flipp,“ segir hann.
Úr ólíkum áttum
Rari Boys eru allir fæddir árið
1999 og því á nítjánda aldursári.
Spurður að því hvernig þeir hafi
kynnst segir Ísleifur að þeir hafi
komið úr ólíkum og mörgum áttum.
„Við erum hver úr sínum bæjarhlut-
anum og það eru flóknar tengingar.
Einn er úr Mosó, einn úr Hafnar-
firði, ég er úr 101 …“ telur Ísleifur
upp. Hópurinn geti því ekki kennt
sig við eitt bæjarfélag eða hverfi
eins og svo margar hipphopp-sveitir.
„Sumir hittust af því þeir vissu að
þeir væru að gera tónlist, aðrir voru
vinir, það eru alls konar tengingar
og allar mismunandi,“ segir Ísleifur
sem gengur undir listamannsnafn-
inu Izleifur en auk hans skipa Rari
Boys þeir Andri Gunnarsson sem
kallar sig Hlandra, Funi Kun eða
Bleachekid, Gabríel Gísli sem kallar
sig Icy G, Máni sem kallar sig $leazy
og Dagur sem notar listamanns-
nafnið Moscigo.
„Við erum sex en það er samt eng-
in hljómsveitarpæling þannig að
þetta er eiginlega allt í lausu lofti
með lög, það þurfa ekkert allir að
vera að öllu, þetta er meira svona
„collective“,“ útskýrir Ísleifur. „Við
erum fáránlega ólíkir en náum að
púsla þessu saman í einhverja
skemmtilega útkomu.“
Þurftu að finna nafn með hraði
Ísleifur segir tónlist Rari Boys
hipphopp en um leið mjög poppaða
og R&B-kennda. „Sumt er líka bara
eitthvað allt annað sem ég veit ekki
hvað á að kalla. Þannig að þetta er-
um bara við að leika okkur og ekkert
að reyna að heilla neinn ákveðinn
hóp.“
–Það virðist ekki vera nein föst
verkaskipting hjá ykkur?
„Nei, ekki nema að við Andri
vinnum í „production“, gerum tón-
listina undir, mixum allt og svoleið-
is,“ svarar Ísleifur og bætir við að
þeir Andri taki líka lögin upp.
–Þetta nafn, Rari Boys, hvaðan
kemur það?
„Það er skondin saga. Í stuttu
máli er hún þannig að við áttum að
fara að spila á fyrstu tónleikunum
okkar fyrir ári og nokkrum tímum
áður þurftum við að finna eitthvert
nafn, vorum ekki með neitt nafn og
þurftum að velja eitthvað einn, tveir
og þrír. Þetta er lína úr einhverju
lagi, við erum ekkert að keyra um á
Ferrari,“ segir Ísleifur sposkur.
Atari-tölvu leitað
„Ein af stóru ástæðunum fyrir því
að við erum að gefa út þessi lög er að
fólk hefur heyrt einhverja búta úr
lögum og vill heyra meira. Við setj-
um alltaf demóin okkar inn á Sound-
cloud og svo endar sá linkur úti um
allt. Þannig verður þetta alltaf til,
við gerum eitthvert demó að kvöldi
og næsta dag er allt í einu búið að
spila það 300 sinnum, án þess að við
höfum vitað af því,“ segir Ísleifur.
Prufuupptökurnar verði oftar en
ekki að lögum og nú hafi sjö þeirra
ratað á plötuna Atari.
Blaðamaður minnist með hlýhug
Atari-leikjatölvunnar sálugu, enda
fæddur árið 1974, og spyr Ísleif
hvort hann eða einhver annar í Rari
Boys eigi slíka tölvu. „Við erum að
vinna í því,“ svarar hann kíminn.
„Heyrst hefur að við séum að fara að
spila á Atari-tölvuna á Prikinu, við
erum að fara að spila þar. Það er ein-
hver pæling að Prikið sé að fara að
redda Atari-tölvu og það væri gam-
an. En nafnið er bara eitthvert orða-
glens og það er hægt að líkja tónlist-
inni okkar við eitthvað svona
tölvuleikjadót. Mér finnst tölvu-
leikjasánd lýsa ágætlega stílnum
okkar.“ Þess ber að geta að þegar
þetta viðtal birtist eru tónleikarnir á
Prikinu liðnir.
Líf unga fólksins
–Hvað eruð þið að rappa um?
„Það er bara alls konar, líf ung-
dómsins í dag. Það er fullt af rugli í
gangi og líka öðru sem er ekki rugl.
Við erum ekkert feimnir við að tjá
okkur um erfið mál en erum ekkert
að fara út í eitthvað brútal, alls
ekki,“ svarar Ísleifur.
Hvað næstu tónleika varðar segir
Ísleifur að vonandi muni Rari Boys
koma fram á Secret Solstice-hátíð-
inni í sumar en það liggur ekki fyrir,
enn sem komið er.
Þeir sem vilja kynna sér Rari
Boys geta meðal annars gert það á
Facebook, Instagram og Spotify og
myndbönd við lög þeirra má finna á
YouTube.
„Bara við að leika okkur“
Rari Boys senda frá sér fyrstu plötuna, Atari „Við erum fáránlega ólíkir en náum að púsla þessu
saman í einhverja skemmtilega útkomu,“ segir einn Rari Boys, Ísleifur Eldur Illugason, um hópinn
Morgunblaðið/Hari
Afslappaðir Rari-drengir létu fara vel um sig í æfingahúsnæði sínu þegar ljósmyndara bar að garði.
Sú fyrsta Plata Rari Boys, Atari,
er nú aðgengileg í stafrænu formi.
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018
Leikrit Svövu Jakobsdóttur, Loka-
æfing, var frumsýnt á sviði í
Moskvu 10. mars síðastliðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Olgu Alexandersdóttur Markelova,
þýðanda og bókmenntafræðingi, er
þetta í þriðja skiptið sem leikverk
eftir íslenskan höfund hefur verið
sviðsett í Rússlandi.
Leikhópurinn Svojo vremja (Sinn
eigin tími) sýnir Lokaæfingu en
verkið þýddi Olga fyrir nokkrum
árum. Segir hún því hafa verið vel
tekið á frumsýningu og hafi í kjöl-
farið verið sýnt áfram.
„Þess ber að geta,“ skrifar Olga í
pistli, „að íslensk leikrit sem hafa
verið sviðsett í Rússlandi eru miklu
færri en rússnesk leikrit sem nokk-
urntíma hafa borist til íslenskra
áhorfenda.“ Fyrst var sýnt Silfur-
tunglið eftir Halldór Kiljan Laxness
í Malyj teatr árið 1955, undir heit-
inu Vögguvísan sem hefur verið
seld. Þá leið rúmlega hálf öld þang-
að til næsta íslenska leikrit var fært
á svið en það var gamanleikurinn
Að eilífu eftir Árna Ibsen sem var
færður á svið árið 2004 í Æskulýðs-
leikhúsinu (RAMT) undir leikstjórn
Raivo Trass frá Eistlandi.
Olga segir að bæði sviðsetning og
stemningin hafi verið nauðalík því
sem fólk á að venjast á íslenskum
leiksýningum, en hafi hins vegar
ekki verið dæmigerð fyrir sýningar
í Moskvu. Sýningin fékk mjög mis-
munandi dóma hjá gagnrýnendum
en féll ungum áhorfendum vel í
geð.
Hvað varðar nýju uppfærsluna á
leikriti Svövu Jakobsdóttur þá hafa
bæði leikrit hennar sem gefin hafa
verið út á bók, Hvað er í blýhólkn-
um? og Lokaæfing, verið þýdd á
rússnesku á síðustu árum.
Um leikhópinn Svojo vremja seg-
ir Olga hann hafa verið stofnaðan í
Moskvu árið 2010. Tekst hópurinn
á við ólík verk og einkennast sýn-
ingar hans af mikilli fagmennsku
og áberandi innblæstri allra sem
eiga í hlut.
Lokaæfing Svövu
sýnd í Moskvu
Vel tekið Frá uppfærslu Svojo
vremja á Lokaæfingu Svövu.
ICQC 2018-20
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
LÍKA FYRIR STÓRU
HUNDANA
– fyrir dýrin þín