Morgunblaðið - 31.03.2018, Síða 37

Morgunblaðið - 31.03.2018, Síða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 Reykjavíkurborg auglýsir eftir myndlistarmönnum til að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um gerð listaverks/listaverka í Vogabyggð. Lögð er áhersla á að listaverk verði hluti af heildarhönnun almenningsrýma í hverfinu einkum á svæðum sem skilgreind eru sem þemavellir og andrými. Sjá nánar skýringarmynd. Myndlistarmenn sem áhuga hafa á að taka þátt í samkeppninni eru beðnir um að senda inn umsókn um þátttöku þar sem fram kemur nafn höfundar/höfunda, kennitala, heimilisfang og símanúmer, ásamt greinargóðum upplýsingum um listferil og myndum af fyrri verkum. Samkeppnin er haldin samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Forvalsnefnd velur úr innsendum umsóknum allt að átta myndlistarmenn eða hópa til þess að gera tillögur að listaverkum. Dómnefnd velur síðan eina eða fleiri tillögur til útfærslu. Dómnefnd er heimilt að hafna öllum tillögum. Nánar um samkeppnina: reykjavik.is/listaverk-vogabyggd Við val á listaverkum verður haft að leiðarljósi að tillögur styðji það markmið að myndlist verði veigamikill og afgerandi hluti umhverfis og mannlífs í Vogabyggð og að listaverk stuðli að því að skapa örvandi umhverfi fyrir alla aldurs- og þjóðfélagshópa. Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/listaverk-vogabyggd Andrými Þemavöllur Umsóknir um þátttöku í samkeppninni skulu berast á netfangið vogabyggd.samkeppni@reykjavik.is Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 2. maí 2018. Samkeppni um útilistaverk í Vogabyggð Fyrir nokkrum ár- um var lögum um málefni aldraða breytt á þann veg að einstaklingar sem eru yngri en 67 ára geta nú búið á hjúkrunar- heimilum fyrir aldr- aða, enda hafi þeir verið metnir í þörf fyrir slíka dvöl af færni- og heilsumats- nefnd. Í dag eru um áttatíu ein- staklingar yngri en 67 ára búsettir á hjúkrunarheimilum. Það geta ver- ið einstaklingar í sérstökum geð- hjúkrunarrýmum eða einstaklingar með heilabilun. Hluti þessa hóps er ungt fólk með einhvern sjúkdóm eða hreyfihömlun sem gerir það að verkum að viðkomandi þurfa um- talsverða umönnun og geta ekki búið sjálfstætt þrátt fyrir að andleg færni sé í góðu lagi. Þurfa sérúrræði Eðli málsins samkvæmt getur þetta unga fólk búið á hjúkrunar- heimilum árum og jafnvel áratug- um saman. Þó að mjög æskilegt sé að viðkomandi einstaklingar fái bú- setu þar sem veitt er þjónusta við hæfi veltum við því mjög alvarlega fyrir okkur hvort hjúkrunarheimili fyrir aldraða séu rétta búsetuúr- ræðið fyrir þennan hóp, sem hefur sínar þarfir, þrár og væntingar um lífsgæði sem að vonum eru allt aðr- ar en almennra íbúa hjúkr- unarheimila þar sem meðalaldurinn er um 85 ár. Þarfir hópsins eru oft aðrar en þær sem hjúkrunarheimili geta sinnt þar sem þjónustan er sérhæfð að þörfum og áhuga fólks sem er vel yfir áttrætt. Ungir ein- staklingar hafa almennt mun meiri þörf fyrir samneyti við aðra; vilja komast í bíó, á kaffihús eða nám- skeið og hafa annan tónlistarsmekk og matarsmekk og vilja njóta sam- veru með sínum jafningjum og jafnöldrum. Í röngu umhverfi Einstaklingur sem flyst í hjúkr- unarrými í dag sökum öldrunar og afleiðinga sjúkdóma er í allt ann- arri stöðu. Kröfur til hjúkr- unarheimila, skyldur þeirra og skipulag miðast við þennan hefð- bundna heimilismann, hinn aldraða einstakling. Ungt fólk á öldr- unarstofnun er í röngu umhverfi, röngu úrræði og þjónustan er oft á tíðum að takmörkuðu leyti við þeirra hæfi. Fyrir utan þessar borðleggjandi staðreyndir er spurning hvort réttlætanlegt sé að fækka rýmum fyrir aldraða með þeim hætti sem þetta fyrirkomulag hefur í för með sér. Nægur er vandinn fyrir vegna skorts á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða sem fara mun vaxandi á næstu árum. Auðvitað á samfélag okkar að sjá sóma sinn í því að bjóða ungu fólki með mikla þjónustuþörf sérstök bú- setuúrræði sem hentar betur en al- menn hjúkrunarheimili fyrir aldr- aða, ef viðkomandi einstaklingar geta á annað borð ekki fengið þjón- ustu heim til sín. Nú hefur heilbrigðisráðherra boðað lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir að gildandi aldursmörk, sem einskorða þjónustu dagdvalarrýma við aldraða, verði numin úr gildi og farið verði að bjóða yngra fólki í dagdvalir sem hingað til hafa verið ætlaðar öldruðum. Enda þótt hið nýja fyrirkomulag henti örugglega í einhverjum tilvikum væri samt ánægjulegra að sjá það boðað að setja eigi á fót sérstakar dagdvalir fyrir þá sem yngri eru. Við höfum því miður ekki orðið þess áskynja að slíkt standi til. Líkt og með hjúkrunarheimilin væri slík starf- semi talsvert ólík núverandi al- mennum rekstri dagdvalar þar sem biðlistar aldraðra hafa lengst veru- lega á síðustu árum. Ungir ein- staklingar sem væntanlegir eru í núverandi dagdvalir, fái frumvarp ráðherra brautargengi, verða í mörgum tilfellum í röngu úrræði stóran hluta lífsins þar sem erfitt er að bjóða bæði umhverfi og þjón- ustu sérstaklega við þeirra hæfi. Stefnuleysi Í nýútkominni skýrslu Ríkisend- urskoðunar um starfsemi Sjúkra- trygginga Íslands segir: „Það stefnuleysi sem einkennir mála- flokkinn hefur leitt til þess að áherslur fjárlaga hverju sinni, tíma- bundin átaksverkefni og úrlausn til- fallandi vandamála hafa mótað ákvarðanir um samninga um heil- brigðisþjónustu og þar með þróun heilbrigðiskerfisins.“ Þetta einkenni stefnuleysis í málaflokknum má einnig heimfæra á fleiri reglugerðir og löggjöf stjórnvalda undanfarin ár. Nýr heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir að vinna við heildstæða stefnu í málaflokknum sé í gangi í ráðuneyti sínu og eru það mjög ánægjuleg tíðindi. Þeirri vinnu er hins vegar ekki lokið. Slík stefnu- mótun hefur ekki verið lögð fram og hefur ekki fengið þá rýningu og umræðu sem hún kallar á. Það liggur því ekki fyrir nein heildstæð stefna um hvert hlutverk hjúkr- unarheimila og dagdvalar í sam- félaginu okkar eigi að vera til fram- tíðar litið eða hvort slík heimili séu þau úrræði sem við teljum ákjós- anleg fyrir unga veika einstaklinga. Á meðan þetta er staðan teljum við ótímabært að leggja fram stefnu- mótandi lagafrumvarp eins og það sem boðað hefur verið. Erum við sátt við þau úrræði sem ungu fólki verður boðið upp á nái frumvarpið fram að ganga? Á ungt veikt fólk með mikla þjónustuþörf virkilega ekki betra skilið af velferðarsam- félaginu? Getum við ekki gert betur en þetta? Getum við virkilega ekki gert betur? Eftir Pétur Magn- ússon og Eybjörgu H. Hauksdóttur » Á ungt veikt fólk með mikla þjónustu- þörf virkilega ekki betra skilið af velferðar- samfélaginu? Pétur Magnússon Höfundar eru formaður og fram- kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Eybjörg H. Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.