Morgunblaðið - 31.03.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 31.03.2018, Qupperneq 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 Sóðaskapur Af illum brunni kemur óhreint vatn er kunnur málsháttur og vart verður sagt að draslið við Hörpu í gær, föstudaginn langa, sé góður vitnisburður fyrir Reykjavíkurborg. Ómar Óskarsson Ríkisstjórnin lagði ríka og um leið tíma- bæra áherslu á innviða- uppbyggingu í stjórn- arsáttmálanum enda hafa innviðir landsins látið verulega á sjá á undanförnum árum. Í byrjun apríl kemur fram áætlun um fjár- mál ríkisins til næstu fimm ára. Þar hlýtur ríkisstjórnin að sýna vilja sinn í verki og má búast við mik- illi aukningu á framlögum til vega- mála til þess að vinna á þeirri gríð- armiklu uppsöfnuðu þörf sem hefur myndast um land allt. Margt hvílir á samgönguinnviðum Iðnaðarframleiðsla og sjávar- útvegur frá hinum ýmsu byggðum hafa myndað meginstoðir útflutnings á síðustu áratugum og borið uppi vel- megun. Á öðrum áratug 21. aldar er þá svo komið að aðdráttarafl ís- lenskrar náttúru skapar umtals- verðar útflutningstekjur og hefur lagt grunninn að styrkri stoð í hag- kerfinu. Vísbendingar eru um að sam- gönguinnviðir spili stærra hlutverk í verðmætasköpun íslenska hagkerf- isins en gengur og gerist. Þeir hafa tengt strjálar byggðir og Ísland við umheim- inn og miðlað verðmæt- um hvaðanæva til end- anlegra notenda. Aðstæður okkar sem fámenn þjóð í stóru landi leggja okkur lín- urnar og Íslendingar eiga samgöngu- innviðum margt að þakka. Þetta end- urspeglast í fjárfest- ingu íslenska hagkerf- isins í samgönguinnviðum sem er mjög mikil í alþjóðlegum samanburði og fjallað er um í nýlegri skýrslu Samtaka iðnaðarins, Ísland í fremstu röð – eflum samkeppnis- hæfni. Skýr vilji ráðherra Fjárveitingar til vegamála hafa verið allt of litlar undanfarin ár og stórátak þarf til að bæta úr. Afleið- ingarnar blasa við okkur víða um land þar sem vegir eru illa farnir eða bíða uppbyggingar. Samgöngu- ráðherra kynnti nýlega niðurstöður þar sem kemur fram að yfir 200 millj- arða vantar til fjárfestinga og við- halds í íslenska vegakerfinu. Af þeirri tölu eru rösklega 60 milljarðar í uppsafnað viðhald á vegum lands- ins. Er það í takt við mat Samtaka iðnaðarins. Til viðbótar við þessa tölu kemur reglubundið viðhald á hverju ári sem hleypur á milljörðum króna. Ljóst er, miðað við fjárframlög síð- ustu ára, að tugi ára mun taka að vinna á uppsöfnuðum vanda, að óbreyttu. Það er ráðherranum til hróss að horfast í augu vandann og sýnir skýran pólitískan vilja til að bæta úr. Fjárfestum í öryggi Samkvæmt öryggisúttekt Euro- Rap á íslenska þjóðvegakerfinu fengu um 3.000 km af íslenska þjóð- vegakerfinu eina til tvær stjörnur af fimm mögulegum. Vegirnir eru stór- hættulegir og verulega er vegið að öryggi vegfarenda. Fækkun slysa er forgangsmál og ráðast þarf í upp- byggingu innviða til að bæta þarna úr. Fjárfestum í auknum lífsgæðum Aukinn tími í umferðinni skerðir lífsgæði og dregur úr framleiðni fyr- irtækja. Umferð á höfuðborgar- svæðinu í febrúar 2018 jókst um 21% frá febrúar 2013. Samfara þessu jókst meðalferðatími til vinnu um 40% á árunum 2007-2016. Tölur fyrir árið 2018 hafa ekki verið birtar en líklegt er að meðalferðatími hafi auk- ist enn meir. Þessari þróun verður að mæta og snúa við. Það verður ein- göngu gert með fjárfestingu í sam- gönguinnviðum og öðrum aðgerðum, t.d. skilvirkari ljósastýringu. Fjárfestum í hagvexti framtíðar Greiðar samgöngur eru forsenda verðmætasköpunar í grundvallar- atvinnugreinum. Fiskur er fluttur á vegum landsins á leið sinni til er- lendra neytenda og vöxtur ferða- þjónustu og iðnaðar ýmiss konar er samofinn innviðauppbyggingu. Með fjárfestingu í vegakerfinu er því lagð- ur nauðsynlegur grunnur að framtíð- arvexti og stutt við núverandi verð- mætasköpun. Nú er rétti tíminn til uppbygg- ingar. Seðlabankinn spáir hægari vexti hagkerfisins á næstu árum. Þar að auki hefur Landsvirkjun boðað framkvæmdahlé næstu árin og útlit er fyrir hægari uppbyggingu í ferða- þjónustu eftir umtalsverða og nauð- synlega fjárfestingu undanfarinna ára. Þar með losnar um fram- leiðsluþætti sem hægt er að nýta til uppbyggingar vegakerfisins. Skilvirk fjárfesting í innviðum dregur einnig úr framleiðsluspennu í gegnum framleiðniaukningu. Þar skiptir þó forgangsröðun meginmáli. Lyfta þarf grettistaki á næstu ár- um til að koma þessum mikilvægu innviðum í ásættanlegt horf. Of lengi hefur löngu tímabæru viðhaldi og ný- framkvæmdum vega verið slegið á frest. Með því að forgangsraða í þágu innviðauppbyggingar er fjárfest í ör- yggi, auknum lífsgæðum og hagvexti framtíðarinnar. Verkefnið er brýnt. Tíminn er núna. Eftir Sigurð Hannesson »Með því að forgangs- raða í þágu innviða- uppbyggingar er fjár- fest í öryggi, auknum lífsgæðum og hagvexti framtíðarinnar. Sigurður Hannesson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vegi í forgang Samgönguinnviðir, %VLF 71% 49% 39% 22% 21% Noregur (16 íbúar/km2) Ísland (3 íbúar/km2) Danmörk (134 íbúar/km2) Bandaríkin (33 íbúar/km2) Bretland (271 íbúi/km2) Hlutfall af vergri landsframleiðslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.