Morgunblaðið - 31.03.2018, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 31.03.2018, Qupperneq 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 ✝ Unnur Andr-ésdóttir fædd- ist 1. maí 1929 á Ferjubakka í Borg- arhreppi. Hún lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borg- arnesi 24. mars 2018. Foreldrar henn- ar voru Lilja Finns- dóttir, f. 17.9. 1905, d. 19.3. 1998, og Andrés Guðmundsson, f. 26.6. 1900, d. 16.4. 1985. Maki Unnar er Jóhann Óskar Sigurðsson, f. 9.11. 1925. Þau gengu í hjónaband 31.7. 1954 og eignuðust sjö börn: 1) Lilja, f. 1951, maki Guðmundur Þorgils- son, þau eiga þrjú börn. 2) Sig- urður, f. 1952, maki Ólöf Anna Guðbrandsdóttir, þau eiga tvö börn. 3) Andrés Björgvin, f. 1953, maki Hrafn- hildur Sigurð- ardóttir, þau eiga fjögur börn. 4) Guð- rún, f. 1954, maki Sigursteinn Sig- ursteinsson, látinn, þau eiga tvö börn. 5) Steinunn, f. 1959, í sambúð með Sig- urði Ingvarssyni, hún á þrjú börn. 6) Jóhann Óskar, f. 1961, í sambúð með Guðrúnu Þorsteinsdóttur, hann á tvö börn. 7) Helga, f. 1964, maki Ás- björn Kjartan Pálsson, þau eiga þrjú börn. Langömmu- og langalangömmubörnin eru 38 talsins. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 31. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku amma nú ertu farin okkur frá, en við munum að sá sem góða ömmu á, hún dvelst ætíð okkur hjá, já! (Skerðingarnir) Þær eru margar minningarn- ar sem renna í gegnum hugann þessa dagana, en einhvern veg- inn vilja þær bara ekki festast á blaði. Alltaf var nú gott að koma í ömmu- og afahús og fá eitthvað gott í gogginn og standa þar helst upp úr pönnukökurnar hennar sem voru engu líkar, eng- inn sem bakar þær eins og amma. Þau voru ófá ráðin og aðstoðin við prjóna- og saumaskap sem amma gaf manni og stendur upp úr brúðarkjóllinn minn sem amma saumaði fyrir mig. Þegar maður kom til þeirra varð alltaf að taka hring um húsið til að at- huga hvort ekki væri allt á sínum stað og athuga hvað amma væri með á prjónunum eða að sauma. Jólaboðin voru ómissandi þáttur af jólunum þegar allir mættu í litla gula húsið á jóladag, þegar maður hugsar til baka undrar maður sig á því hvernig allir komust fyrir en í minning- unni var nóg pláss fyrir alla. Eftir að við fluttum vestur í Dali varð að koma við á Borg- arbrautinni þegar farið var í Borgarnesferðir. Það er krökk- unum mjög minnisstætt þegar amma dró fram bláa matarstellið sem þau fengu að borða af og þá yfirleitt pylsur. Einnig var það ómissandi þáttur að fara með ömmu löngu eins og við kölluðum hana í gullgönguferðir í Skalló, alltaf varð að hafa meðferðis plastpoka til að koma öllum könglunum og gullinu, sem fannst í ferðinni, heim. Alltaf var til apaís í frystinum hjá ömmu og var hann alltaf í boði, sama hvort það var í forrétt, aðalrétt, eft- irrétt eða millimál. Þegar komið var að heimferð aftur vestur í Dali laumaðist amma með okkur inn í búr til þess að tína til nesti sem oft voru hlaupbangsar, snakk eða Werther’s original- brjóstsykur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku amma, takk fyrir allt saman. Hvíl í friði. Bjargey, Jón Egill, Alexandra Rut, Ragnheiður Hulda, Sigurdís Katla og Ólafur Oddur. Unnur Andrésdóttir Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET MARÍA VÍGLUNDSDÓTTIR, Ásgarði 77, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík laugardaginn 3. mars. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk Elísabetar Maríu. Þökkum starfsfólki á V-2 á Grund fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Víglundur Sigurðsson Margrét Rósa Sigurðardóttir Þórhildur Sigurðardóttir Guðrún S. Sigurðardóttir Sigurður Sigurðarson Halldór Sigurðsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI MARTEINSSON, Merkinesi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 20. mars. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. apríl klukkan 13. Guðborg Kristjánsdóttir María Bjarnadóttir Sigurður Ingvarsson Kristján Bjarnason Ástrós Hjálmtýsdóttir Kristín Bjarnadóttir Gísli Harðarson Þóra Björk Bjarnadóttir Finnur Tryggvi Sigurjónsson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI KRISTINN SIGURÐSSON bifvélavirki, Lækjasmára 2, Kópavogi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 22. mars. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 4. apríl klukkan 13. Kristiana Kristjánsdóttir Kristján Henry Guðnason Heiðar Þór Guðnason Katrín N. Jónsdóttir Agnar Jón Guðnason barnabörn og langafabarn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL SVEINSSON, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 22. mars síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 4. apríl klukkan 13. Þóra Birna Karlsdóttir Þórarinn Eggertsson Úlfar Þórðarson Salóme Gunnarsdóttir Iris Rán Þorleifdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURVEIG RAGNARSDÓTTIR, Sléttuvegi 21, Reykjavík, lést á Grund á skírdag, 29. mars. Útförin verður auglýst síðar. Ragnar Sigurðsson Margrét Jónsdóttir Markús Sigurðsson Kristín Kristinsdóttir Styrmir Sigurðsson Halldóra G. Ísleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Minn kæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN ÞORBJÖRNSSON, bifvélavirkjameistari, kvaddi 16. mars. Jarðsungið verður frá Garðakirkju föstudaginn 6. apríl klukkan 15. Aðstandendur þakka öllum sem komið hafa að aðhlynningu Guðjóns sl. ár fyrir góða umönnun og hlýhug. Hulda Árnadóttir Valdís Guðjónsdóttir Ossa Günter Ossa Þorbjörn Guðjónsson Sóley Björg Færseth Elskuleg mágkona mín og föðursystir okkar, NANNA EMILSDÓTTIR, Dalbraut 20, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 28. mars 2018. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 5. apríl klukkan 13. Erna Helga Þórarinsdóttir Hafsteinn Daníelsson Marta Árnadóttir Þór Daníelsson Siv H. Franksdóttir Helga Daníelsdóttir Sævar Jónsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, BERGLJÓT GARÐARSDÓTTIR SLEIGHT bókasafnsfræðingur, andaðist föstudaginn langa, 30. mars, á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Jarðarför auglýst síðar. Þórunn Patricia Sleight Barry Charles Woodrow Peter Garfield Sleight Eileen Wozny Sleight Magnús Már Björnsson Sleight Erik Anthony Sleight Elsku Inga. Nú þegar komið er að leið- arlokum sendum við þér innilegar þakkir fyrir allt. Það okkur er til rauna hve ógjarnt var að launa, við könnumst við það klökk. En fyrir allt sem ertu um eilífð blessuð vertu! Og haf þú okkar hjartans þökk. (G.J.G.) Við sendum öllum ættingjum Ingu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Unnsteinn, Jóhanna og fjölskylda. Elín Inga Jónasdóttir ✝ Elín Inga Jónasdóttir fæddist 29.október 1934. Hún lést 18. mars 2018. Útför Ingu fór fram 27. mars 2018.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.