Morgunblaðið - 31.03.2018, Page 54

Morgunblaðið - 31.03.2018, Page 54
Listbandalagið post-dreifing gaf fyrir stuttu út safnplötuna Drullumall 1 sem hægt er að nálgast á Bandcamp-vefsíðunni. Fjórtán tónlistarmenn úr ýmsum áttum eiga þar lög. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Í „gamla daga“ voru það kassett- urnar sem studdu best við útgáfu bílskúrs- og svefnherbergis- tónlistarmanna, þær voru m.ö.o. hentugasta leiðin til að koma efni í umferð. Fagurfræðilegi vinkill- inn á þessum kassettum er meira eins og eftiráhugmynd, varð eig- inlega til í krafti nostalgíunnar en er líka hluti af því að yngri kyn- slóðir sjá gamla hluti sem svala. Fyrir okkur sem upplifðum þetta voru kassetturnar fyrst og síðast nýtilegt tól, hylki utan um tónlist fremur en nokkuð annað. OK, þetta er mikill útúrdúr (mikil- vægur þó) en það sem ég ætlaði að segja: Þörf listamanna til að koma efni sínu á framfæri hefur ekkert breyst þó að tækin til þess atarna hafi gert það. Netið hefur þannig leyst kassetturnar af og síður eins og t.d. hin mjög svo ágæta Bandcamp hýsir nú nokk- urs konar nútíma-kassettuútgáfur. Eins og þá sem ég ætla að gera Lifi grasrótin að umtalsefni hér. Safnplatan Drullumall 1 er „kassetta“ sem lúrir í netheimum og er velkomin viðbót við samskonar útgáfur sem liggja þar einnig (ég nefni La- dyboy Records, Myrkfælni, Why- not? sem hafa sinnt svona hlutum með sóma). Drullumall 1 er nú á Bandcamp og Spotify en er einnig til á geisla- diski. Þessi hópur, post-dreifing, er með viðvist bæði á Bandcamp og Fésbókinni, en hægt var að veiða upp ýmsar upp- lýsingar á hinu síðarnefnda. Þar kemur m.a. fram að hópurinn sé „útgáfukollektíva sem sam- anstendur af ungu listafólki úr hinum ýmsu kimum grasrótarsen- unnar í Reykjavík. Hópurinn hef- ur það að markmiði að auka sýni- leika og sjálfbærni í listsköpun í krafti samvinnu“. Enginn er skráður sem forsvarsmanneskja á síðunni og svo virðist sem hópn- um sé alvara með samvinnu- kraftinum. Tengla má finna á ýmsa listamenn sem plötuna prýða, auglýsingar um tónleika o.s.frv. og áhersla á þann einfalda hlut að koma efninu út (slagorðið „dreifing er hafin“ kemur oft fyr- ir). Tónlistin sjálf er af margvís- legum toga og nærfellt öll nöfnin eru ný fyrir mér. Hot Sauce Comm- ittee hefur leik með skringilegu indírokki á meðan Tobolsk Catwalk Orchestra leikur tilraunakennda raftónlist. K-óla á nokkuð áhrifaríkt lag (og myndband er til við herlegheitin, á youtube- rás post-dreifingar). Bagdad Brot- hers leggja sig eftir krúttlegu indípoppi í anda C86 og Gróa er kvennatríó og maður hugsar um Raincoats og Slits og þá heilnæmu kvennabylgju sem í gangi er akk- úrat núna. Lögin fjórtán sveiflast þannig á milli hrárra skrítirokks- laga og sýrðra raftóna og aldrei leiðist manni ferðalagið. Sprota að hinu og þessu er hér að finna, » Þörf listamannatil að koma efni sínu á framfæri hef- ur ekkert breyst þó að tækin til þess atarna hafi gert það. 54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2018 VIÐTAL Aldís Arnardóttir aldisarn@internet.is Skaftfell á Seyðisfirði er til húsa í reisulegu húsi sem var byggt árið 1907 en hjónin Garðar Eymundsson og Karólína Þorsteinsdóttir gáfu húsið undir menningar- og lista- starf í bænum árið 1997. Garðar rak áður trésmíðaverkstæði í hús- inu og Tinna Guðmundsdóttir, for- stöðukona Skaftfells, segir að það hafi verið í frekar bágu ástandi, þannig að fyrstu árin fór mikil orka í að gera það upp. Húsið var gefið svokölluðum Skaftfellshópi sem stóð að uppbyggingu menningar- starfsemi í húsinu. Árið áður eða 1996 var fyrsta sýningin sett upp, sýning Boekie Wokie-hópsins, en myndlistarmaðurinn heimskunni Dieter Roth, sem fór að venja kom- ur sínar til Seyðisfjarðar um 1990, var í tengslum við hópinn. Lista- mennirnir Cornelia Hoedeman, Rúna Þorkelsdóttir, Henriette van Egten, Jan Voss og fleiri tóku þátt í sýningunni. Formlegt sýning- arhald hófst síðan árið 1998, sama ár og Dieter lést. Tinna segir að til hafi staðið að Björn Roth sonur hans og Pétur Kristjánsson héldu sýningu um sumarið en þau plön breyttust við skyndilegt fráfall Die- ters. Menningarbærinn Seyðisfjörður „Ákveðið var þá að halda sam- sýningu 70 listmanna sem hét „Sýning fyrir allt – til heiðurs Diet- er Roth“ sem er vísun í tímaritið Review for Everything, sem Dieter gaf út,“ segir hún. Tekið var á móti öllu efni til birtingar í tímaritinu, sem var án ritstjóra og þar var allt leyfilegt. Upp úr þessu var mynd- listarmiðstöðin formlega orðin til og í fyrstu fundargerðinni kemur fram að starfseminni er ætlað að efla menningu og listir á Seyðisfirði. Eftir andlát Dieters var farið af fullum krafti í að móta starfsemina og koma bistróinu í gang. Fyrstu árin voru haldnar frá einni og upp í þrjár sýningar á ári. Fjöldi ferða- manna kemur á hverju ári til Seyðisfjarðar til að kynna sér þá menningarstarfsemi sem Skaftfell hefur upp á að bjóða. „Í dag erum við með þrjár til fimm sýningar á ári og stundum sex,“ segir Tinna. „Ég veit ekki nákvæmlega hvað koma margir gestir á ári en þeir gætu verið ná- lægt tíu þúsund, flestir yfir sum- arið. Bærinn hefur gott orðspor og hefur hlúð vel að menningar- starfseminni, sem hefur skilað sér í efni til ferðamanna.“ Um aldamótin síðustu fór af stað markviss áætlun um menningartengda ferðaþjónustu á Seyðisfirði undir heitinu Alda- mótabærinn Seyðisfjörður. „LungA, listahátíð ungs fólks á Austulandi, verður til á svipuðum tíma og Bláa kirkjan – sumar- tónlistarröð. Hér eru núna starf- andi LungA-lýðháskólinn og Tækniminjasafnið en þetta eru stærstu póstarnir í menningarlíf- inu sem vinna náið saman,“ segir Tinna. Innt eftir því hvað standi fyrir dyrum í Skaftfelli á afmælisárinu segir Tinna að það séu nokkur við- fangsefni í farvatninu, bæði minni og stærri verkefni. Vegleg dagskrá framundan „Sýningardagskráin verður veg- leg og við fórum þá leið að bjóða nýjum aðilum til samstarfs um af- mælissýningu sem myndi koma með nýja snertifleti á samstarf Skaftfells og Tækniminjasafnsins, á milli Skaftfells og íslensks og er- lends listalífs. Sú sýning hefur fengið heitið K A P A L L en lista- Nálægðin við náttú Ljósmynd/Paula Prats Þjónusta Í bistrói Skaftfells, sem hannað er af Birni Roth, gefst gestum kostur á að kaupa veitingar. Þar er líka bókasafn með lista- og fræðibókum.  Seyðisfjörður er listamannanýlenda  Tuttugu ár síðan Skaftfell – myndlistarmiðstöð Austurlands tók til starfa Ljósmynd/Paula Prats Forstöðukonan Tinna Guðmunds- dóttir stýrir starfsemi Skaftfells. Anna Jónsdóttir sópran, Þóra Pas- sauer kontraalt, Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari og Páll Einarsson sellóleikari flytja Stabat Mater eftir Giovanni Battista Pergolesi í Seltjarnarneskirkju í dag kl. 17. Verkið þykir undurfag- urt og er í 13 köflum þar sem á skiptast samsöngur og einsöngur. Tónverkið fjallar um raunir Maríu meyjar þar sem hún stendur við kross Jesú Krists á Hausa- skeljahæð og syrgir son sinn. Pergolesi samdi Stabat Mater árið 1736 þegar unnusta hans féll frá ung að aldri. Það varð hans þekkt- asta verk, gefið oftar út en nokk- urt annað tónverk á 18. öld. Verkið samdi hann við gamlan latneskan texta. Flytjendur Þóra Passauer, Anna Jónsdóttir, Páll Einarsson og Friðrik Vignir Stefánsson flytja Stabat Mater í Seltjarnarneskirkju í dag. Stabat Mater flutt í Seltjarnarneskirkju Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR 16.2. - 24.6.2018 KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018 - Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign ORKA 14.9. - 29.4.2018 Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. Opnunartímar yfir páskana: 29. mars – 31. mars, opið frá kl. 11–17. Páskadagur 1. apríl, opið frá kl. 11–15. Annar í pásum 2. apríl, lokað. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 13.5.2018 Opnunartímar yfir páskana: Laugardagur 31. mars, opið kl. 14–17 Páskadagur 1. apríl, lokað. Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 29.04.2018 Opnunartímar yfir páskana: Laugardagur 31. mars, opið kl. 14–17 Páskadagur 1. apríl, lokað. Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.