Morgunblaðið - 31.03.2018, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 31.03.2018, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2018  Haldið verður upp á fæðingardag rithöfundarins H.C. Andersens á mánudaginn, 2. apríl, víða um heim og er dagurinn alþjóðlegur dagur barnabókarinnar. Íslandsdeild IBBY mun að venju gefa grunnskólabörn- um nýja smásögu að gjöf í tilefni dagsins en vegna páskaleyfisins verður hún ekki afhent fyrr en fimmtudaginn 5. apríl. Klukkan rúm- lega 9 að morgni mun Ævar Þór Benediktsson frumflytja smásögu sína Pissupásu á Rás 1 og fá grunn- skólarnir söguna líka senda. Í mörg- um skólum hefur myndast hefð fyrir að allir hlusti saman á upplesturinn. Morgunblaðið/Ásdís Pissupása á degi barnabókarinnar Ekki er sennilegt að íslenskir íþrótta- áhugamenn kveiki á nafninu Eddie Eagan. Sá á þó sérstakan sess í íþróttasögunni því Eagan er eini íþróttamaðurinn sem afrekað hefur að vinna til gullverðlauna í ólíkum greinum á bæði sumar- og vetr- arleikum Ólympíuleikanna. Í sögu- stund Kristjáns Jónssonar er farið yfir feril Eagans. »4 Enginn hefur leikið eftir afrek Eddies Eagan Halldór Harri Kristjánsson, fráfarandi þjálfari kvenna- liðs Stjörnunnar í hand- knattleik, segir margt benda til þess að Fram vinni ÍBV og Valur leggi Hauka í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik. Úr- slitakeppnin er á næsta leiti auk þess sem umspilið um laust sæti hefst eftir páska- helgina. Þar er einnig mikið undir. »2 Fara Reykjavík- urliðin í úrslit? „Það væri óðs manns æði að veðja gegn Haukunum þetta tímabilið og því spái ég þeim áfram en vona að Skallar gefi þeim góða seríu og fari með hana í oddaleik,“ skrifar Bene- dikt Guðmundsson, sérfræðingur Morgunblaðsins, í yfirlitsgrein sinni um úrslitakeppnina í körfuknattleik þar sem Helena Sverrisdóttir og sam- herjar í Haukum þykja afar sigur- stranglegar. »2 Haukar þykja afar sigurstranglegir Morgunblaðið kemur næst út þriðju- daginn 3. apríl. Fréttaþjónusta verð- ur á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, yfir páskana. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is. Áskrifendaþjónustan er opin í dag frá kl. 8-12 en lokað er á páskadag og annan dag páska. Símanúmer áskrifendaþjónustunnar er 569-1122 og netfangið er áskrift@mbl.is. Blaðberaþjónustan er opin í dag frá kl. 6-12 en lokað er á páskadag og annan dag páska. Símanúmer blað- beraþjónustunnar er 569-1440 og netfangið bladberi@mbl.is. Hægt er að bóka dánartilkynn- ingar á mbl.is. Skilafrestur minning- argreina til birtingar 3. og 4. apríl er til hádegis á páskadag, 1. apríl. Fréttaþjónusta mbl.is um páskana Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Mér finnst það stórkostlegt. Gaman að sjá að fólk er að vakna til vitundar um þetta. Raunar hafa margir gert þetta í gegnum tíðina en það er mikil bylgja núna,“ segir Eyþór Hannesson, ráðsmaður á Egilsstöðum og plokkari, þegar hann er spurður um þá vitundarvakningu sem nú er áberandi: Fólk fer út að ganga eða hlaupa og tína rusl. Eyþór er utanvegahlaupari og hefur tínt rusl á hlaupum sínum í mörg ár og tekur einnig fyrir svæði í bænum. Orðið plokk er tungu hans ekki tamt, hann segist bara tala um að tína rusl. Ofbýður ruslið meðfram vegunum Eyþór byrjaði í ruslinu þegar hann bjó á Akureyri á árunum 2007 til 2013 og hélt því áfram þegar hann flutti aftur austur. „Ég hljóp oft meðfram þjóðveginum út að Dalvíkur- afleggjara. Mér ofbauð ruslið meðfram veg- inum en þar var sérstaklega mikið af dósum og flöskum,“ segir hann. „Mér ofbýður draslið sem er úti um allt, það er orðið svo mikið. Það fýkur frá fyrirtækjum og jafnvel heimilum og svo er töluvert um að menn hendi drasli út úr bílunum. Ég hef staðið menn að verki með það. Maður sér þetta með- fram þjóðvegunum hér í kring, bæði norður í Fellabæ og í áttina að Hallormsstað. Þetta er orðið óheyrilega mikið,“ segir Eyþór þegar hann er spurður út í ástæður þess að hann leggur það á sig að tína rusl á hlaupum sínum. Hann bætir við: „Mig langaði bara til að gera þetta. Fannst það tilvalið þegar ég var á ferð- inni.“ Eyþór hefur einnig tekið til hendinni á blett- um innanbæjar. „Ég var búinn að vera með ákveðinn stað í sigtinu um skeið en þegar ég lét til skarar skríða lá við að mér féllust hend- ur, ruslið var svo yfirgengilega mikið,“ segir Eyþór. Hann starfar sem ráðsmaður við Heil- brigðisstofnun Austurlands og lendir stundum í því að vera lengi á leiðinni heim til sín vegna þess að ruslið á leiðinni hefur tekið völdin. Megnið af ruslinu sem hann tínir upp er plast en einnig drykkjarvöruumbúðir af öllu tagi og sígarettupakkar. Eyþór segist stundum finna fatnað, til dæmis húfur og vettlinga, og nýlega hafi hann rekist á forláta sjal. Þá hefur hann fundið varahluti úr bílum, til dæmis bíl- ljós í heilu lagi, svo eitthvað sé nefnt. Þarf stundum að láta sækja sig Hann er alltaf með bakpoka á hlaupunum. Hann dugar ekki lengi og þá er gripið til Bón- uspokanna og ef þeir duga ekki þarf að taka til annarra ráða, fylla svarta ruslapoka. Þessi iðja tefur hann vitaskuld mikið á hlaupunum, stundum nær hann aðeins nokkr- um skrefum í einu. Þegar ruslið er sem mest hefur hann þurft að hringja á eiginkonu sína og biðja hana að sækja sig og ruslapokana. „Finnst tilvalið að tína rusl þegar ég er á ferðinni“ Afrakstur Þetta rusl tíndi Eyþór Hannesson innanbæjar á Egilsstöðum 27. apríl á síðasta ári. Þetta var þriggja tíma törn hjá honum, tínslan og flokkunin. Hann tínir þó aðallega rusl meðfram vegunum.  Eyþór Hannesson á Egilsstöðum er einn af frumherjum í plokkinu Eyþór Hannesson finnur fyrir þakklæti sam- borgaranna. Hann hefur til dæmis verið heiðr- aður af Náttúruverndarsamtökum Austurlands. „Það hefur komið fyrir að menn hafa stoppað á veginum og boðist til að taka fyrir mig rusla- pokana og fara með á endurvinnslustöðina. Ég þigg það en bið menn að fara með ruslið heim til mín svo ég geti flokkað það,“ segir Eyþór og tekur fram að hann flokki alltaf ruslið áður en hann fer með það á endurvinnslustöðina. Stoppa og bjóðast til að taka pokana FLOKKAR ALLT RUSLIÐ Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Voru tveir að færa gröfu af vagni 2. Breyttu Krambúð í „Klámbúð“ 3. Varð undir beltagröfu 4. Flippuð árshátíð Origo FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlægari vindur og léttir smám saman til fyrir norðan, en áfram dálitlar skúrir eða él sunnantil á landinu. Hægari vindur í kvöld. Hiti 0 til 6 stig að deg- inum, en víðast næturfrost. Á sunnudag (páskadagur) Fremur hæg breytileg átt. Dálítil snjókoma eða él norð- vestan- og vestanlands, en annars þurrt að mestu. Heldur kólnandi veður. Á mánudag (annar í páskum) Dálítil snjókoma eða él í flestum landshlutum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.