Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Ármúla 11
108 Reykjavík
Sími 568-1581
ÞÓR FH
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 9:00 - 18:00
Lokað um helgar
Tölvuverslun - Reykjavík: Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Hraðari & hagkvæmari kynslóð af WorkForce
NÝR EPSONWORKFORCE
Helstu kostir:
• Hraðvirk hágæða prentun
Allt að 24 síður á mínútu í svörtu og í lit.
• Prentar, skannar, ljósritar og faxar.
4 tæki í 1 með og prentar beggja megin.
• Miklir tengimöguleikar
Þráðlaust net, WiFi Direct, NFC, USB og venjul. nettenging.
• Stór blekhylki
Hægt að prenta út allt að 5000 blaðsíður með stóru hylki
• Prentun og skönnun beint úr síma
Ókeypis app til að prenta og skanna beint úr síma.
EPSONWORKFORCE PROWF-C5710DW
A4
10.9cm
24
ppm
ISO
1200
Ný kynslóð af þráðlausum EPSONWorkForce fjölnotatækjum
(Prentari/skanni/ljósritun), ný hönnun, hraðari prentun, hagkvæmara blek
og umhverfisvænni umbúðir. A4 4.800 x 1.200 dpi Upplausn.
PrecisionCore prenthaus og 4 stök blekhylki (DURABrite Ultra)
Hægt að tengja með USB, Ethernet/WiFi eða með iPhone/android Appi.
Prentar og skannar báðum megin (Duplex) - Þægilegur snertiskjár
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra
Íslands í Rússlandi, segir að starf-
semi sendiráðsins í Moskvu sé með
hefðbundnu sniði og hafi ekkert
breyst eftir að ríkisstjórn Íslands
ákvað á fundi sínum 26. mars sl. að
taka þátt í samstilltum aðgerðum
ríkja Evrópusambandsins og NATO
gagnvart Rúss-
landi vegna efna-
vopnaárásar á
rússneska gagn-
njósnarann Serg-
ei Skripal og Yul-
iu dóttur hans í
enska bænum
Salisbury í byrj-
un marsmánaðar.
„Við erum á
fullu að vinna að
undirbúningi
vegna HM. Ég hef ekkert verið köll-
uð til fundar við rússnesk stjórnvöld
vegna þessarar ákvörðunar íslensku
ríkisstjórnarinnar,“ sagði Berglind í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Líkt og Morgunblaðið greindi frá
á forsíðu 28. mars sl. höfðu rúss-
neskir fjölmiðlar eftir rússneska
þingmanninum Mikhail Degtjarjev,
sem er formaður nefndar um
íþrótta-, ferða- og æskulýðsmál í
neðri deild rússneska þingsins, að
ákvörðun íslenskra ráðamanna um
að sniðganga HM í Rússlandi í sum-
ar bæri þess merki að Ísland væri í
raun ekki fullvalda ríki.
Berglind var spurð hvort frekari
umfjöllun um ákvörðun íslensku rík-
isstjórnarinnar hefði birst í rúss-
neskum fjölmiðlum: „Nei. Við höfum
ekki séð neina slíka umfjöllun.
Það er gaman að segja frá því að
það nýjasta þar sem Ísland hefur
verið í sviðsljósinu hérna er að Eiður
Smári Guðjohnsen var fenginn til
þess að opna sérstakan „fan-zone“
(aðdáendasvæði) í Rostov. Sá at-
burður fékk mikla athygli og mikla
umfjöllun. Það eru mörg lið sem
munu keppa í Rostov á HM í sumar
en Eiður Smári var fenginn sérstak-
lega til þess að opna svæðið af því að
hann er svo mikil stjarna og það
voru birtar myndir af honum úti um
allt. Við erum búin að setja einar 15
myndir frá viðburðinum inn á face-
booksíðu sendiráðsins,“ sagði Berg-
lind Ásgeirsdóttir að lokum.
Ljósmyndir/Sendiráðið í Moskvu
Tilþrif Eiður Smári Guðjohnsen sýndi fantatilþrif þegar hann vígði aðdáendasvæðið í Rostov í Rússlandi.
Eiður Smári fékk stjörnu-
meðhöndlun í Rússlandi
Sendiherra Íslands í Moskvu segir að starfsemin sé með hefðbundnu sniði
Brugðið á leik Það er nauðsynlegt í bland að geta grínast svolítið.
Berglind
Ásgeirsdóttir
Vínnes ehf. hefur, að
höfðu samráði við mat-
vælaeftirlit Heilbrigðis-
eftirlits Reykja-víkur,
innkallað Stella Artois-
bjór í 330 ml gler-
flöskum vegna þess að
hann getur innihaldið
gleragnir. Kemur þetta
fram í tilkynningu sem
send var fjölmiðlum
vegna málsins.
Þar segir ennfremur
að innköllunin taki til
Stella-bjórs sem sé best-
ur fyrir 20. og 21. maí
næstkomandi og er pökkunarnúm-
erið 49. Tímastimpill á flösku er á
milli 08:00-23:59 og 00:00-01:00.
Framleiðandi vörunnar er AB In-
Bev og er framleiðslulandið Belgía.
Innflytjandi er Vínnes ehf. í
Reykjavík og er bjórnum dreift í
Vínbúðir ÁTVR, Fríhöfnina og á
veitingahús.
Gleragnir í
Stella-bjór
Innköllun
Stella
Artois í
gleri.
Ekkert verður af fyrirhugaðri
ferjusiglingu milli leikstaða Ís-
lands á HM í fótbolta í Rúss-
landi í sumar. Þetta kom fram í
Facebook-færslu Ásgeirs Hall-
dórssonar skipuleggjanda í gær.
„Vegna lélegrar skráningar þá
sýnist mér við verða að aflýsa
siglingunni,“ segir Ásgeir.
Ásgeir hafði í samstarfi við
útgerð í Rússlandi og ferða-
skrifstofuna Bjarmaland skipu-
lagt fljótasiglingu með stuðn-
ingsmenn íslenska landsliðsins
frá Moskvu til Volgograd og
þaðan til Rostov. 70 manns
höfðu skráð sig í ferjuna fyrir
mánuði en Ásgeir sagði að hann
þyrfti að ná 100 manns til að
standa undir kostnaði.
Ekki næg
þátttaka
HÆTT VIÐ FERJUSIGLINGU
Vegagerðin hefur að nýju óskað eft-
ir tilboðum í smíði nýrrar brúar yf-
ir Eldvatn á Skaftártunguvegi í
Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Verður nýja brúin 80 metra
löng stálbogabrú og er hún hálfan
kílómetra vestan núverandi vega-
móta hringvegar og Skaft-
ártunguvegar í nýrri veglínu Skaft-
ártunguvegar frá Eystri-Ásum að
nýjum vegamótum við hringveg.
Að sögn G. Péturs Matthías-
sonar, upplýsingafulltrúa Vegagerð-
arinnar, er þetta í þriðja sinn sem
brúin er boðin út en tilboðin sem
bárust í fyrri útboðum hafa þótt of
há. Segir hann að útboðinu hafi ver-
ið skipt upp núna, þannig að aðeins
sé verið að bjóða út brúarsmíðina í
þessu útboði án vegagerðar að nýju
brúnni.
Kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar vegna smíði nýrrar brúar og
lagningar 920 metra vegar var 388
milljónir króna þegar brúin var
boðin út seint á síðasta ári, en til-
boðin tvö sem bárust í verkið hljóð-
uðu upp á rúmlega 600 milljónir
hvort.
Núverandi brú yfir Eldvatn lask-
aðist í Skaftárhlaupi haustið 2015
og er eitt hið stærsta sem komið
hefur úr kötlum Skaftárjökuls í
Vatnajökli. Í hlaupinu gróf undan
eystri stöpli brúarinnar. Var þá
ekki talið óhætt að aka yfir brúna,
en síðar var hún opnuð fyrir um-
ferð bifreiða undir fimm tonnum.
Núverandi brú og vegur vestan nú-
verandi brúar verða fjarlægð að
framkvæmdum loknum.
Skaftárhlaupið 2015 rauf víða
bakka Skaftár og spillti mann-
virkjum, einkum vegum og und-
irstöðum brúa, svo og ræktar- og
beitarlandi. ash@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eldvatn Núverandi brú skemmdist
mikið í Skaftárhlaupinu 2015.
Brúin
boðin út
að nýju
Brúin yfir Eldvatn
skemmdist í hlaupi