Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Aðdáendur Stjörnustríðsmyndanna
hafa hrundið af stað undirskrifta-
söfnun þar sem biðlað er til stjórn-
enda fyrirtækjanna Disney og
LucasFilm ásamt leikstjóranum JJ
Abrams að fá Meryl Streep til að
taka að sér hlutverk Lilju prinsessu
sem Carrie Fisher gerði frægt. Frá
þessu greinir BBC.
Næsta kvikmynd í Stjörnustríðs-
bálkinum er væntanleg í kvikmynda-
hús í desember 2019 og talið er að
Lilja prinsessa verði í lykilhlutverki í
allri framvindu. Fréttir herma að
handrit myndarinnar hafi verið end-
urskrifað eftir andlát Fisher í árslok
2016 og haft hefur verið eftir fram-
leiðendum að ekki standi til að end-
urskapa Fisher í hlutverki Lilju með
hjálp tölvutækninnar.
Í upphafi vikunnar höfðu 8.500
manns lagt ofangreindri tillögu lið
með undirskrift sinni. Forsvarsmenn
undirskriftarsöfnunarinnar segja
Streep tilvalinn kandídat, enda hafi
hún nú þegar unnið til Óskarsverð-
launa þrisvar og verið tilnefnd tutt-
ugu sinnum. Ferill hennar sé því
langur og farsæll.
„Sem náinn vinur Carrie Fisher er
Meryl Streep sennilega undir mikl-
um þrýstingi um að leika Lilju. Við
trúum því sannarlega að hún sé okk-
ar besta von um að sjá arfleifð Car-
rie Fisher í níunda kaflanum,“ segir
í tilkynningu. Þar er vísað til þess að
Meryl Streep hafi leikið í kvikmynd-
inni Postcards From the Edge frá
árinu 1990 sem Carrie Fisher skrif-
aði handritið að. „Í Postcards From
the Edge fór Meryl Streep hlutverk
Suzanne Vale sem talið er byggt á
Carrie Fisher sjálfri. Sökum þessa
má segja að Meryl Streep sé að túlka
Carrie Fisher. Myndin skilaði Streep
ekki aðeins óskarsverðlaunatilnefn-
ingu fyrir bestan leik í aðalhlutverki
heldur leiddi hún til þess að Meryl
Streep og Carrie Fisher bundust
sterkum vinaböndum.“ Samkvæmt
frétt BBC hafa engin viðbrögð borist
frá þeim sem ávarpaðir eru í undir-
skriftabeiðninni.
AFP
Flott Meryl Streep á rauða dregl-
inum þegar Óskarinn var afhentur.
Vilja að Meryl Streep
leiki Lilju prinsessu
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir mánudaginn 16. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla,
brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og
brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu.
Brúðkaupsblað
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 20. apríl
ICQC 2018-20
Hvað gera konur og karlarþegar gagnrýnandinnkemst aldrei norður? Þauverða að koma suður! Í
aðdraganda tónleikanna mátti lesa í
dagblöðum nokkuð fjálglega um liðs-
söfnun Norðlendinga ásamt einvala-
liði að sunnan og frá öðrum löndum –
u.þ.b. 100 manns alls; að lands-
byggðin hygði á innrás í höfuðstaðinn
með Matteusarpassíuna sem jafnan
gengur undir viðheitinu drottning
allra tónverka. Fyrri tónleikarnir
fóru fram á skírdag í Hofi, menning-
arsetri Akureyringa, en seinni tón-
leikanna fengu höfuðborgarbúar og
nærsveitamenn að njóta á sjálfan
langafrjádag í Hallgrímskirkju.
Flutningur tónverksins, þriggja kóra
tak með tveimur samhverfum hljóm-
sveitum – jafnan talið krúnudjásn lút-
erskra kirkjutónbókmennta, varð að
dýrindis gjöf til höfuðborgarbúa! Ein
breyting var gerð í hópi flytjenda
milli flutninga. Stúlknakór Akureyr-
arkirkju, sem Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir stjórnar, söng í Hofi, en í
Hallgrímskirkju var það Barna- og
unglingakór Hallgrímskirkju sem
Ása Valgerður Sigurðardóttir stjórn-
ar.
Stóra passían, eins og hún var köll-
uð innan Bach-fjölskyldunnar, hafði
aldrei áður verið flutt í Hallgríms-
kirkju á föstudaginn langa. Tónverkið
fléttar inn nákvæma frásögn Matte-
usarguðspjalls á píslargöngu Krists;
hugleiðingar og útleggingar á sögu-
þræðinum ásamt því að skeyta inn
leikrænum þáttum, svokölluðum
túrbakórum, auk versa úr lúterskum
sálmum frá 16. og 17. öld í fjórradda
útsetningum Bachs. Passían er þó
ekki aðeins listilega áhrifamikil og
skörp tónamynd heldur einnig augn-
músík. Strax í fyrstu innkomu Jesú í
verkinu mynda tónarnir krosstákn er
undirstrikar kirfilega að nú sé allt að
fara til fjandans og sálmurinn „Ó höf-
uð dreyra drifið“ hljómar í einum
fimm útsetningum þar sem Bach
myndar með tóntegundum torrætt
krosstákn.
Verkið er í tveimur hlutum. Þeir
flétta saman spádóminn um kross-
festinguna, viðbrögð lærisveinanna,
réttarhöldin undir stjórn Kaífasar og
Pílatusar, húðstrýkinguna, kross-
gönguna og lýkur við gröf Jesú sem
hefur verið innsigluð; alls tuttugu og
sjö senur í ekki færri en 68 atriðum
er drífa stökka frásögnina, líkt og
segir í tónleikaskrá, „hægt og rólega
fram með ómótstæðilegum þunga,
djúpri íhugun og rauðglóandi
ástríðu“. Hörður Áskelsson hélt
skörpum fókus út verkið án allrar
skinhelgi. Upphafskórinn var stór-
brotinn; þverskurður verksins, í senn
guðfræðilegur kjarni þess, texta-
byggingar og tónrænnar tjáningar.
Sálmalagið fagra (cantus firmus) „Ó,
Guðs lamb helga hreina“ fléttaðist við
upphafskórinn, fimlega og kröftug-
lega sungið af barnakórnum. Fram-
ganga Kristins Sigmundssonar var
áhrifarík og eftirminnileg; hann tók
sæti fyrir miðri hljómsveit, minnti á
Shakyamuni Búdda (sem dó úr mat-
areitrun) en túlkaði er á leið með
átakanlegum hætti kvalir Jesú sem
dó á krossinum. Valdemar Villadsen
söng guðspjallamanninn lengst af af
stakri yfirvegun og látleysi en sýndi
er á leið leikrænni túlkun, t.a.m. í nr.
38c þegar hann segir frá iðrun og
gráti Péturs.
Einsöngsaríurnar hægðu á frá-
sögninni og opnuðu dýpri ígrundun.
Allir einsöngvararnir skiluðu sínu af
stökum myndarbrag, þ.á m. söng-
dívan Hannah Morrison en það mátti
bæði heyra og sjá að hún söng ekki
fullfrísk og mátti finna lengri leiðir en
ella við að koma nótum hærri radd-
stiga til skila. Þá steig fram Helena
Guðlaug Bjarnadóttir sópransöng-
kona úr Hymnodiu, svo til óundir-
búin, og leysti Morrison glæsilega af í
dúett nr. 27a „So ist mein Jesus nun
gefangen“; „svona verða stjörnur til“
heyrðist einhver segja. Söngur Elm-
ars Gilbertssonar var í senn stökkur
og bjartur, t.d. í aríunni nr. 35 „Ge-
duld“ við samleik Nicholas Milnes á
viola da gamba. Oddur Arnþór Jóns-
son söng af sannfæringu og öryggi
aríuna nr. 42 „Gebt mir meinen Jes-
um wieder!“ við glæsilegan undirleik
Gretu Salóme Stefánsdóttur fiðluleik-
ara.
Túlkun og söngur altsöngkonunnar
Hildigunnar Einarsdóttur er næsta
ógleymanlegur, t.a.m. í einni af feg-
urstu stundum verksins, „Erbarme
dich“ nr. 39. Sópranarían „Aus Liebe
will mein Heiland sterben“ var einnig
glæsileg í meðförum flautu og óbóa
úr hljómsveit I. Raunar átti Matthías
Birgir Nardeau óbóleikari ítrekað
stórleik. Kórfélagar áttu einnig
nokkra prýðiseinsöngsspretti.
Matteusarpassían, stundum nefnd
óperan sem Bach skrifaði aldrei, var
nú flutt á nútímahljóðfæri, þ.e. ekki
barokkhljóðfæri líkt og Hörður
Áskelsson – óskoraður leiðtogi við
flutning kirkjutónlistar á Íslandi und-
angengin 20 ár – hefur lagt rækt við.
Túlkunin var engu að síður barokk-
skotin; barokkandinn – þessi dans-
andi dýnamík og sveifla sem aðeins
drífandi gangur nær að framkalla –
skein í gegn líkt og dýrindis suðandi
ljósavél í vorhúminu. Einstaka sinn-
um bar á ósamræmi í ganghraða milli
hljómsveitar og kóra, t.a.m. lokakafla
í fyrri hluta verksins. Samkórarnir
tveir komu þægilega á óvart, þrungn-
ir andagift og áhuga. Heimamenn úr
héraði, allt frá Kópaskeri vestur í
Skagafjörð, virkuðu ögn áttavilltir í
byrjun en vöndust fljótlega nýjum að-
stæðum. Söngurinn, sér í lagi sópran-
raddir, hljómaði voldugur, víðsfjarri
áferð hins hvíta magra hljóms. Tón-
leikaskráin var heldur rýr, í smáu
broti með enn smærra letri og nöfn
kórsöngvara voru hvergi talin upp.
Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni hef-
ur tekist að skapa álitlegasta kamel-
ljón úr Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands sem er fær í flestan sjó; jafnt
barokk sem hollywoodtónlist. Ráða-
menn sem og íbúar Akureyrar hafa
nú úr meiru að moða og montast yfir.
Eftir stendur magnþrunginn og eftir-
minnilegur viðburður sem – ef marka
má viðtökur tónleikagesta er risu á
fætur að honum loknum – mun sitja í
minningu margra þeirra sem fylltu
Hallgrímskirkju þennan fagra en til-
finningaþrungna dag. Hafi Norðlend-
ingarnir og félagar fjórar fylltar
stjörnur fyrir viðvikið og megi sú
fimmta, Pólstjarnan, vaka ósnert yfir
komandi verkefnum.
Himnaríki á jörðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilfinningaþrunginn „Eftir stendur magnþrunginn og eftirminnilegur viðburður sem mun sitja í minningu margra
þeirra sem fylltu Hallgrímskirkju þennan fagra en tilfinningaþrungna dag,“ segir rýnir um flutning passíunnar.
Hallgrímskirkja
Matteusarpassía BWV 244
bbbbn
Eftir Jóhann Sebastian Bach. Hljóm-
sveitarstjóri: Hörður Áskelsson. Ein-
söngvarar: Valdemar Villadsen tenór,
Kristinn Sigmundsson bassi, Hannah
Morrison sópran, Hildigunnur Einars-
dóttir alt, Helena Guðlaug Bjarnadóttir
sópran, Oddur Arnþór Jónsson bassi,
Elmar Gilbertsson tenór, ýmis smærri
hlutverk í höndum kórmeðlima. Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands, Lára Sóley
Jóhannsdóttir konsertmeistari I og
Greta Salóme Stefánsdóttir konsert-
meistari II, Hymnodia sem Eyþór Ingi
Jónsson stjórnar, Kammerkór Norður-
lands sem Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir stjórnar og Barna- og unglinga-
kór Hallgrímskirkju sem Ása Valgerður
Sigurðardóttir stjórnar. Menningarfélag
Akureyrar – MAk í samvinnu við List-
vinafélag Hallgrímskirkju. Hallgríms-
kirkja, föstudaginn langa, 30. apríl
2018, kl. 18.
INGVAR
BATES
TÓNLIST