Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
EmmanuelMacron varraketta
franskra stjórn-
mála. Hann var
ráðherra efnahags-
mála í óvinsælli ríkisstjórn Hol-
lande forseta. Óvinsældir for-
setans skvettust ekki á
ráðherrann unga. Áður fyrr
gegndi Macron stjórnarstörfum
fyrir atvinnurekendur og á milli
þess og ráðherradóms var hann
borinn á gullstól bankaheimsins
og kom þaðan með fúlgur fjár
eftir aðeins rúm 3 ár.
Í forsetakosningum í apríl og
maí 2017 tókst að festa þá
ímynd að Macron væri maður
nýrra tíma. Fylgið sem flúði
Hollande flýtti sér þangað. Það
gerði fylgið lengra til vinstri
einnig! Altæk stimplun á póli-
tískum eiginleikum Marine Le
Pen styrkti þessa myndskreyt-
ingu. Le Pen var og er andvíg
evrunni, en þó ekki meira en svo
að hún segir að þjóðaratkvæði
um myntina eigi að ráða og hún
muni una niðurstöðunni. Le Pen
hefur efasemdir um veru
Frakklands í ESB en heldur því
þó opnu að breytingar sem gæfu
þjóðunum aukið vægi á ný gæti
gert útgöngu úr því óþarfa. Hún
hefur þá skoðun að innflytj-
endamál séu komin í ógöngur í
Frakklandi. Það þarf alvar-
legan snert af afneitun að kann-
ast ekki við að það geti verið
rétt.
Vegna þessara atriða þá hafa
fjölmiðlamenn, nánast eins og
hjörð, stimplað Le Pen sem
„hægri öfgakonu“ í stjórn-
málum. En í þeim málum sem
marka hægri og
vinstri í pólitík er
Le Pen næstum
óþægilega langt til
vinstri að mati
frjálslyndari
flokka. Hún er veik fyrir öfl-
ugum verkalýðsfélögum og vill
tryggja lægstu laun og styrkja
stöðu þeirra sem standa veikast
á vinnumarkaði.
Eftir að Macron náði forseta-
embættinu með glæsibrag og í
kjölfarið meirihluta í þinginu
setti hann sér tvö höfuðmark-
mið: Fá yrði Þjóðverja með sér í
leiðangur um að stórauka fjár-
hagslega yfirstjórn ESB á rík-
isfjármálum aðildarríkja! Mart-
in Shulz, sem ætlaði sér stóra
hluti sem formaður þýskra
krata fagnaði þessum áformum
forsetans mjög. En staða
þýskra krata hefur versnað
mjög og vægi ríkisstjórnar
„stóru flokkanna“ í Þýskalandi
einnig eftir afhroð í kosningum
á síðasta ári. Við bætast úrslit
ítölsku kosninganna og vaxandi
andstaða annarra ríkja ESB.
Hitt stóra mál Macron var að
brjóta upp staðnaða umgjörð
fransks efnahagslífs. Hann hef-
ur nú lagt á þann bratta og hef-
ur mikið til síns máls. En mót-
mælaöldur rísa nú óðum.
Starfsmenn járnbrauta hefja
leikinn og boða stigvaxandi öng-
þveiti. Háskólastúdentar eru
farnir að hita upp. Þeir eru
drjúgir. Og þar sem að Macron
ætlar að þrengja að lífeyrisaldri
og eftirlaunum gætu „hófsamari
öfl“ látið til sín taka. Síðara
stóra stefnumálið kann að
stranda líka.
Glæstar vonir
lukkuriddarans
riða til falls }
Stór áform í andbyr
Börn og ungling-ar sækja mjög
í síma og spjaldtölv-
ur. Þetta þarf ekki
að koma á óvart
enda um gagnleg og
skemmtileg tæki að
ræða. Engu að síður þarf að hafa
í huga að þetta eru ný tæki og
áhrifin af mikilli notkun þeirra
er ekki vel þekkt.
Björn Hjálmarsson, barna- og
unglingageðlæknir hjá Barna-
og unglingageðdeild Landspít-
alans, fjallar um spjald-
tölvunotkun ungmenna í samtali
við mbl.is og segir: „Skjátími
barna og unglinga er þegar orð-
inn langur, þannig að þegar
spjaldtölvuvæðingin í skólanum
kemur ofan á, þá verður hann
enn lengri.“
Björn segir að börn sem koma
inn á Barna- og unglingageð-
deildina eigi mjög gjarnan í erf-
iðleikum með snjalltækjanotkun
sína og hann hvetur til að könn-
un verði gerð á aukinni notkun
þessara tækja í skólum.
Sjálfsagt er að taka þessar
ábendingar alvarlega og huga að
því hvort foreldrar
og menntastofnanir
þurfa að gæta
meira hófs þegar
kemur að notkun
barna og unglinga á
slíkum tækjum.
Vissulega eru foreldrar og skól-
ar að búa börn sín undir líf og
störf á 21. öldinni og þess vegna
er mikilvægt að þau verði fær
um að nýta sér tækni á borð við
þá sem snjalltæki bjóða upp á.
Um leið verður að hafa hugfast
að grunnurinn er að læra að
lesa, skrifa og reikna. Vitað er
að bækur gagnast vel í þessu
efni þó að eflaust megi nýta
kosti snjalltækjanna við þennan
lærdóm einnig.
Þessi tæki má að auki nýta til
margra annarra hluta. Þess þarf
engu að síður að gæta að ganga
ekki of langt í notkun tækjanna
og kanna eftir því sem unnt er
hvaða áhrif notkunin hefur á
ungmennin. Ef ekkert er hugað
að þessu nú gætu afleiðingarnar
verið orðnar alvarlegar þegar
sannað þætti að taka yrði í
taumana.
Snjalltæki eru gagn-
leg og skemmtileg,
en notkunin getur
farið út í öfgar}
Allt er best í hófi
Þ
egar fjármálaáætlun ríkisstjórn-
arinnar var kynnt í gær voru ef-
laust margir sem biðu spenntir,
reiknuðu með að „sinn málaflokk-
ur“ fengi nú loks yfirlýsingu um
stórauknar fjárveitingar.
Af mörgum mikilvægum málaflokkum þá
beið undirritaður sérstaklega eftir fréttum af
auknum fjárveitingum til uppbyggingar
vegakerfisins. Sú áætlun sem lögð var fram í
gær getur ekki talist annað en stórkostleg
vonbrigði. Ætlunin er að bæta við 5,5 millj-
örðum á ári, 2019-2021, frá því sem nú er,
samtals 16,5 milljörðum í samgöngumál í
heild sinni. Þessi tala innifelur ekki bara
vegakerfið heldur líka fjársvelta innanlands-
flugvelli, hafnir landsins og þar fram eftir
götunum.
Til að setja heildartöluna í samhengi, þá samsvarar
hún kostnaði við eins og ein Hvalfjarðargöng.
Núgildandi samgönguáætlun, fyrir árin 2015-2018, var
undirfjármögnuð á árunum 2017 og 2018 um samtals
15,5 milljarða. Nú ætlar ríkisstjórnin náðarsamlegast að
vinna upp þá vanfjármögnun á árunum 2019-2021 og
bæta einum milljarði við, svona í kaupbæti.
Að öðru leyti verður takturinn eins og verið hefur og
við þekkjum öll hvernig ástand vegakerfisins er í kjölfar
áralangrar vanrækslu, hvað viðhald og nýfjárfestingar
varðar. Þetta er kallað „sérstakt átak í samgöngumálum
sem fjármagnað verður með umframarðgreiðslum“.
Núverandi og fyrrverandi samgönguráðherrar hafa
metið kostnað við nauðsynlega uppbyggingu
um 200-250 milljarða. Sú viðbót sem ætluð er
til „stórátaks“ í vegamálum samsvarar á sama
tíma um helmingi af þeirri viðbót sem Samtök
iðnaðarins telja nauðsynlega til að kerfið nái i
skottið á sér hvað viðhald varðar. Þá eru
nýframkvæmdirnar eftir. Það sér hver maður
að þetta gengur ekki upp.
Það er ljóst að samgönguráðherra er aftur
rétt stutta stráið við ríkisstjórnarborðið enda
ljóst af því sem ráðherrann hefur sagt, síðan
ríkisstjórnin var mynduð, að hugur hans stend-
ur til þess að gera betur en þetta.
Af umræðu liðinna missera um ástand sam-
göngukerfisins má öllum vera ljóst að engin
sátt verður um þann hægagang sem nú er boð-
aður hvað vegabætur varðar.
Í nýlegri skýrslu um innviði landsins bentu
Samtök iðnaðarins á að til að vel væri þyrftu fjárveit-
ingar til viðhalds samgöngukerfisins að aukast, ég ítreka
aukast, frá því sem nú er, um rúma 10 milljarða á ári!
Það er ábyrgðarhluti að leyfa samgöngukerfinu að
grotna niður eins og nú er að gerast. Kostnaðurinn við að
vinna upp það tjón sem er að verða á vegakerfinu er
margfaldur á við það að halda því í forsvaranlegu standi.
Við þetta verður ekki unað og ég skora á ríkisstjórnina
og þingmenn alla að laga þessa villu í glærukynningu
gærdagsins.
Bergþór
Ólason
Pistill
Uppbyggingu vegakerfisins frestað
Höfundur er þingmaður Miðflokksins.
bergthorola@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tölur Hagstofu Íslands ummannfjölda á Íslandi umsíðustu áramót sýna fjölguní öllum landshlutum, þó
breytingin sé mismunandi. Í því felst
veruleg breyting því landshlutar sem
þurft hafa að þola stöðuga fækkun í
mörg ár bæta við sig fólki. Nokkur
sveitarfélög eru þó enn á undanhaldi.
Fram kemur í greiningu
Byggðastofnunar að stóru línurnar í
mannfjöldaþróun undanfarin ár eru
þær að fólki hefur fjölgað mikið á höf-
uðborgarsvæðinu og í nágrenni þess.
Nokkur stöðugleiki hefur verið á Ak-
ureyri og í allra næsta nágrenni og á
miðhluta Austurlands. Víðast hvar
annars staðar hefur fólki fækkað. Ef
litið er til einstakra landshluta hafa
Vestfirðir og Norðurland vestra orðið
illa fyrir barðinu á fólksflutningum.
Ef þróunin heldur áfram með sama
hætti munu þessir landshlutar láta
mjög á sjá og í verstu tilvikum getur
byggð þar eyðst.
Mismunandi ástæður
Ýmsar skýringar eru á því að nú
fjölgar í öllum landshlutum og
ómögulegt að segja hvort breytingin
merkir viðsnúning til lengri tíma eða
hvort hún sýnir tímabundið innskot.
Athyglisvert er að bera saman
þróunina á Suðurnesjum og Vest-
fjörðum, eins og gert er á meðfylgj-
andi grafi. Mesta fjölgunin á landinu
er á Suðurnesjum. Hraðfara fjölgun
hefur verið þar síðustu árin eftir lægð
sem varð eftir hrun. Sigurður Árna-
son, sérfræðingur á þróunarsviði
Byggðastofnunar, bendir á að því ráði
ekki aðeins nálægðin við höfuðborg-
arsvæðið heldur sýni aðrar upplýs-
ingar mikla tekjuaukningu af flutn-
ingum og þjónustu. Suðurnesin njóta
uppgangs ferðaþjónustunnar, ekki
síst umsvifanna á Keflavíkurflugvelli.
Á Vestfjörðum hefur aftur á
móti verið stöðug fólksfækkun í lang-
an tíma. Þar til á síðasta ári að íbúum
fjölgaði skyndilega um nærri 100.
Raunar hefur fjölgað um 50 til við-
bótar frá áramótum. Sigurður telur
að uppbygging fiskeldis og væntingar
til þess séu að koma fram. Þótt grein-
in sé enn að byggjast upp megi
merkja verulega aukningu tekna.
Fjölgun sem orðið hefur á Suð-
urlandi, ekki síst á svæðinu úr Mýr-
dal til Hornafjarðar, en einnig í upp-
sveitum Árnessýslu og víðar um
svæðið, má að miklu leyti rekja til
aukningar í ferðaþjónustu að mati
Sigurðar. Tölur um aukningu í gist-
ingu og veitingaþjónustu styðja það
mat. Áhrif ferðamanna koma víðar
fram, eins og til dæmis í fjölgun íbúa í
Mývatnssveit.
Uppbygging virkjana og stóriðju
hefur einnig áhrif á íbúaþróun ein-
staka staða, bæði til langs og ekki síð-
ur skamms tíma. Dæmi um það er
mikil fjölgun íbúa á Húsavík. Það er
að stórum hluta vegna starfsfólks við
uppbygginguna þó einnig verði til
langtímastörf við kísilverið og af-
leidda starfsemi. Sama á við um
óvænta mikla fjölgun íbúa Skeiða- og
Gnúpverjahrepps. Sveitarfélagið
dregur að sér íbúa af ýmsum ástæð-
um en stökkið er vegna liðlega 100 er-
lendra starfsmanna sem skráðir eru í
vinnubúðum Búrfellsvirkjunar.
Þriðja dæmið er fjölgun í Ísafjarð-
arbæ vegna 50 starfsmanna við Dýra-
fjarðargöng.
Nokkur sveitarfélög sem ekki
njóta góðs af ferðaþjónustu eða
nálægð við höfuðborgarsvæðið
glíma við fólksfækkun. Stranda-
byggð þar sem Hólmavík er mið-
punkturinn er dæmi um það. Sama
á við sveitahreppa sem ekki
hafa öfluga þétt-
býliskjarna innan sinna
vébanda.
Lax og ferðamenn
bjarga byggðunum
„Ég myndi nota orðið risavið-
snúning. Í upphafi þessa kjör-
tímabils hætti íbúum að fækka
og við sáum aldurspíramídann
breikka aftur, komið var margt
fólk á aldrinum 30 til 40 ára
með börn. Við þurftum til
dæmis að taka á honum stóra
okkar til að leysa leikskóla-
málin í snatri,“ segir Gísli Hall-
dór Halldórsson, bæjarstjóri á
Ísafirði.
Hann segir að starfsfólki við
fiskeldi hafi fjölgað, sér-
staklega hjá Arctic Fish í Dýra-
firði. Um 50 starfsmenn við
jarðgangagerð hafi skráð lög-
heimili sitt í sveitarfélaginu. Þá
sé að aukast áhugi fólks á
að flytja út á land, á fal-
lega staði þar sem líka
er gott að búa. Staf-
ræna byltingin geri það
að verkum að fólk geti
nú valið sér búsetu og
tekið starfið
með sér.
Geta flutt
störfin með
„RISAVIÐSNÚNINGUR“
Gísli Halldór
Halldórsson
Mannfjöldi á Suðurnesjum og Vestfjörðum
1998-2018
’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Heimild:
byggdabrunnur.is
25
20
15
10
5
0
þúsund
1998 2018 Breyting
Suðurnes 15.715 25.770 +10.055 +64%
Vestfirðir 8.556 6.994 -1.562 -18%
Landið allt 272.381 348.450 +76.069 +28%