Morgunblaðið - 05.04.2018, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
VANDAÐ LÍN FYRIR HÓTEL,
HEILBRIGÐISSTOFNANIR OG HEIMILI
Fastus býður upp á vandað lín s.s. handklæði, þvottastykki og baðmottur, vönduð 250 þráða
sængur- og koddaver fyrir hótel, ferðaþjónustur og heilbrigðisstofnanir á sanngjörnu verði.
Kíktu á úrvalið í verslun okkar og í vefverslun fastus.is
TILBOÐ
20-40%
AFSLÁTTUR
AF LÍNI
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það gerir ungbörnum ekki gott að fá
enga huggun þegar þau gráta. Stef-
anía B. Arnardóttir, sérfræðingur í
fjölskylduhjúkrun og einn stofnenda
Miðstöðvar foreldra og barna
(www.fyrstutengsl.is), segir það
mýtu að það geti hert og þroskað
yngstu börnin að láta þau gráta út.
„Ungbörn hafa ekki þroska til að
hugga sig sjálf
við erfiðar að-
stæður, og þurfa
utanaðkomandi
stuðning,“ segir
Stefanía og bend-
ir á að á und-
anförnum tveim-
ur áratugum hafi
vísindin leitt í ljós
að álag og streita
bæði í móðurkviði
og í frumbernsku
geti haft langvarandi áhrif á þroska
taugakerfisins. „Með því að hugga
börnin og róa þau er verið að hjálpa
þeim að tempra kerfið og þroska það
á viðeigandi hátt. Ef streitan sem
veldur gráti barns minnkar vegna
huggunar foreldris eða forráða-
manns temprast tilfinningin og
breytist í vellíðan. Þessi styðjandi
samskipti ýta undir heilbrigðan
þroska og hjálpa barninu að læra
smám saman að hugga sig sjálft.“
Gerir börnin ekki sterkari
Stefanía segir þetta stangast á við
harkalegar uppeldisaðferðir fyrri
tíma, þegar talið var hollt að spara
hlýju og umhyggju svo að börn yrðu
harðari af sér. „En það sem við vit-
um í dag er að streitukerfi ungbarna
er viðkvæmt og óþroskað og ef þau
búa við viðvarandi streitu á meðan
þetta kerfi er að þroskast geta þau
átt erfiðara með að bregðast við
álagi síðar á ævinni. Þau geta þá t.d.
átt erfiðara með að þekkja tilfinn-
ingar sínar og stjórna þeim svo það
kemur fram í skapgerð þeirra. Þess-
ir einstaklingar eiga líka ekki eins
auðvelt með að ráða við tilfinn-
ingalegt álag og þeir sem hafa búið
við skilningsríka umönnun í frum-
bernsku á meðan heilinn er í örust-
um þroska. Er brýnt að koma í veg
fyrir að þennan þroskavanda, og að
hann þróist jafnvel yfir í hegðunar-
eða geðheilsuvanda.“
Þetta þýðir samt ekki að þurfi allt-
af að hlaupa til strax og ungbarn
byrjar að gráta. „Vissulega þarf að
hafa hugann hjá þeim, en þau eru oft
bara að láta heyra í sér og ráða við
það. Finna þarf út hver þörf hvers
barns er og með vaxandi aldri og
þroska er gott að foreldrar gefi
barninu færi á að hugga sig sjálft,“
segir Stefanía og bætir við að fyrstu
þrjá mánuðina sé ágætt að miða við
um fimmtán sekúndna biðtíma.
Læra að ráða við
tilfinningarnar
Þegar börn eru komin á forskóla-
aldur fara þau að gráta af öðrum
ástæðum og óhætt að bregðast við
með öðrum hætti. „Ef þau t.d. fá
ekki eitthvað sem þau langar í er al-
gengt að þau ráði ekki við tilfinn-
ingar sínar og að þær brjótist út með
gráti. Það er allt í lagi, og partur af
eðlilegum þroska að börn á þessum
aldri læri að það gerist ekki alltaf
allt alveg eins og þau myndu helst
kjósa,“ útskýrir Stefanía. „Börnin
eiga auðveldara með að læra þetta ef
foreldrar eru öruggir í að setja mörk
og standa við þau, og ef börnin hafa
fram að þessu fengið stuðning og
hlýju sem kennir þeim að veröldin er
örugg og leyfir þeim bæði að tjá van-
líðan og að geta og gera meira og
meira.“
Aukin þekking á áhrifum um-
hverfis á þroska heila og taugakerfis
barna þýðir bæði að oftar er hægt að
stuðla að því að börn þroskist og
dafni sem best, og líka leiðrétta
skaða sem kann að hafa orðið. „Ef
við skoðum vandann þá kemur í oft í
ljós að það þarf bara stutt inngrip til
að ná fram miklum breytingum,“
segir Stefanía. „Það er ekki bara á
fyrstu árum bernskunnar sem hægt
er að grípa inn í heldur allt fram á
fullorðins ár og eru t.d. unglingsárin
annað veigamikið þroskatímabil sem
nota má til að styrkja börn í vanda
enn frekar.“
Börnin þurfa á huggun að halda
Þegar ungbörn gráta er mikið álag á taugakerfi þeirra og gæti, ef það er langvarandi og ítrekað,
valdið þroskavanda Síðar á ævinni gæti þau t.d. átt erfitt með að hafa stjórn á tilfinningum sínum
Morgunblaðið/Eggert
Veganesti „Með því að hugga börnin og róa þau er verið að hjálpa þeim að tempra kerfið og þroska það á viðeigandi hátt,“segir Stefanía. Úr safni.
Stefanía Birna
Arnardóttir
Álag á taugakerfið í barnæsku kann að skýra
mörg vandamál sem fólk glímir við á fullorð-
insárum. Stefanía segir nýjustu kenningar á
þá leið að frávik í þroska tauga og heila strax
á fyrstu árum ævinnar geti t.d. skýrt hvers
vegna sumu fólki hættir til að verða áfengis-
eða vímuefnafíklar á meðan aðrir geta notað
skynbreytandi efni án þess að þróa með sér
fíkn. „Við erum að læra æ betur að margir
erfiðleikar á fullorðinsárum eru oft á tíðum
þroskavandi sem má rekja til aðstæðna í
barnæsku.“
Í því ljósi segir Stefanía rétt að huga að því
hvaða afleiðingar íslenska efnahagshrunið
kann að hafa haft og hvaða áhrif hraðinn í lífi
íslenskra foreldra nú til dags gæti haft á
heilsu íslenskra barna til lengri tíma litið.
Mikið álag hafi verið á barnafjölskyldum, og
sé enn, og gæti haft ófyrirsjáanlegar og
kostnaðarsamar afleiðingar í för með sér. „Finnar vöruðu við því, eftir að
efnahagskreppa gekk þar yfir á 10. áratugnum, að kröpp kjör fólksins í
landinu myndu leiða til ýmiss konar vandamála hjá ungu fólki seinna
meir. Kom svo í ljós, þegar fólkið sem var börn á erfiðustu árum krepp-
unnar óx úr grasi, að það glímdi í meira mæli en aðrar kynslóðir við ýmis
erfið vandamál.“
Stefanía segir að miðað við það sem við vitum í dag um áhrif umhverf-
is- og umönnunarskilyrða barna sé rétt að staldra við og skoða betur
hvernig samfélagið sinnir börnum og fjölskyldum. „James Heckman fékk
Nóbelsverðlaunin á sínum tíma fyrir að sýna fram á að hver dollari sem
varið er í forvarnir á fyrstu þremur árunum í lífi barna skilar sér nífalt til
baka í öðrum kerfum seinna á lífsleiðinni. Nýjustu kenningar virðast ekki
hafa skilað sér nægilega vel inn í kerfið, eða pólitíkina, því það ætti að
vera forgangsatriði að styðja betur við barnafjölskyldur. Það er fjárfest-
ing sem við fáum margfalda til baka.“
Aðstæður í æsku valda erfið-
leikum á fullorðinsárum
KANN AÐ VERA EIN AF ÁSTÆÐUM FÍKNAR
Óp Líf smábarna er
ekki alltaf dans á rósum.