Morgunblaðið - 05.04.2018, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 Ford F-150 Platinum
3.5 lítra Ecoboost, 375 HÖ og 470 Lb-ft
torque,10 gíra skipting.
Algjörlega glæsilegir!
Vel útbúnir bílar
VERÐ FRÁ
12.000.000 m.vsk
2018 GMC Denali
Litur: Red quartz, svartur að innan. 6.6L
Duramax Diesel, 445 HÖ, Nýr 2018 Denali
(nýja útlitið). Vel útbúinn t.d. upphitað stýri,
sóllúga, geymsluhólf undir aftursæti BOSE
hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og
loftkæld sæti og heithúðaður pallur.
VERÐ
10.090.000 m.vsk
2017 Chevrolet High Country
Litur: Graphite metal, svartur að innan.
Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE
hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og
heithúðaður pallur. 35 breyttur
VERÐ
9.490.000 m.vsk
2018 GMC Denali
Litur: Frost white, svartur að innan. 6.6L
Duramax Diesel, 445 HÖ, Nýr 2018 (nýja
útlitið). Vel útbúinn t.d. upphitað stýri,
sóllúga, geymsluhólf undir aftursæti BOSE
hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og
loftkæld sæti og heithúðaður pallur.
VERÐ
10.090.000 m.vsk
Hvað er helst er spurt um?
„Í gegnum tíðina sem starfandi
innanhússhönnuður hef ég að sjálf-
sögðu fengið ótal spurningar. Marg-
ar hins vegar eru þær sömu og því
sömu hlutir sem fólk er að velta fyrir
sér þegar það vill bæta umhverfi
sitt. Á námskeiðinu fer ég m.a.
markvisst í gegnum þessa þætti og
spurningar sem ég er mest spurð.
Sömuleiðis þá þætti sem mér finnst
skipta máli og þann hugmyndaheim
sem ég vil opna hjá fólki til að það
finni meira öryggi og dýpri hugsun
þegar kemur að því að breyta og
bæta umhverfi sitt.“
Aðspurð hvert markmiðið sé með
námskeiðunum segir Halla Bára að
það sé fyrst og fremst til að fá fólk til
að hugsa öðruvísi. Ekki apa allt upp
eftir næsta manni.
„Hjá mér er markmiðið til dæmis
að fá fólk til að hugsa út fyrir ramm-
ann og þora að brjóta óskráðar regl-
ur þegar kemur að innanhússhönnun.
Þær eru lífseigar og halda fólki niðri,
setja hömlur, þegar kemur að því að
skapa umhverfi sem virkilega gleður
okkur og eykur ánægju okkar. Ég vil
líka virkja fólk í að sækja innblástur
alls staðar að. Horfa með gagnrýnu
en jákvæðu auga á hlutina og vera
vandfýsið þegar kemur að því að
velja eitthvað til að hafa heima.
Sömuleiðis að hugsa út fyrir normið
og vinna með og virkja eigin stíl.“
Námskeiðin eru haldin á laug-
ardögum og fimmtudögum. Á laug-
ardögum mæta gestirnir klukkan
11.00 og tekur námskeiðið um þrjá
tíma.
„Á fimmtudögum koma gestir
klukkan sex. Ég býð upp á léttar veit-
ingar og drykki og í lokin fara gestir
heim með smágjöf.
Námskeiðið er fyrir litla hópa og
áhugasama einstaklinga sem vilja
koma saman, hlusta, spjalla og læra
um það hvernig heimilið verður aldr-
ei fullkomið heldur hugsað sem ein-
ing sem heldur utan um okkur og
þróast með breyttum aðstæðum.
Þá býð ég líka upp á það að taka
lokaða hópa, s.s. saumaklúbba og
hvað annað, hingað heim eða heim-
sækja aðra. Sem og að sérsníða nám-
skeið að þörfum þeirra,“ segir hún.
Það hefur verið svo góð aðsókn að
námskeiðunum hjá Höllu Báru að nú
ætlar hún að bæta við námskeiði
næsta laugardag og síðan 26. og 28.
apríl. Auk þess verður hún með
nokkur námskeið í maí. Þeir sem vilja
fræðast betur geta sent Höllu Báru
póst á hallabara@hallabara.com.
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson