Morgunblaðið - 05.04.2018, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
7.00 Vakna hress … er mjögmorgunhress, vek börn-
in og Brynjar minn en á meðan þau
vakna í rólegheitum fer ég fram,
bursta tennurnar og sjæna mig.
Fer fram, tek vítamínin mín og
kalla á fólkið að koma sér á fætur.
Klæði mig í fötin sem liggja á stól
frammi en ég tek fötin mín alltaf til
kvöldið áður, gríp hafragrautinn úr
ísskápnum og skelli honum í töskuna
mína. Klæði börnin og við drífum
okkur út í daginn.
7.40 Keyri af stað að heimanmeð krakkaormana
mína í skólann, fyrst fylgi ég eldri
stráknum að dyrunum í skólanum og
svo fer ég í leikskólann með litlu
kerlinguna mína. Þvílíkur lúxus að
hafa skólana hlið við hlið og nú er
eins gott að njóta því að í haust á ég
ekki leikskólabarn lengur.
8.00 Mætt í vinnuna á K100,ég byrja á því að ná mér
í kaffi og fylla brúsann sem fylgir
mér um allt með vatni. Mjög mik-
ilvægt að vökva sig vel á daginn svo
maður vaxi. Næ mér yfirleitt í eina
appelsínu og banana í eldhúsið til
hennar Emilíu og skunda upp á efri
hæðina.
… nei, ég tek ekki lyftuna! Sest
við tölvuna og byrja að undirbúa
daginn. Undirbúningur á þættinum
„Í beinni með Sigga Gunnars“, sam-
félagsmiðlapælingar, fundir og ým-
islegt fleira er á verkefnalistanum
dag hvern. Það sem er svo skemmti-
legt við starfið mitt að ég geri alls-
konar og það er alltaf skemmtilegt.
8.30 Morgunmaturinn tek-inn upp úr töskunni og
borðaður af bestu lyst, overnight oat
hafragrautur með súkkulaði og rús-
ínum með kaffinu og banani á kant-
inum. Gerist ekki betra!
9.00 Vinnuaðstaðan færðinn í stúdíóið því að
þátturinn hans Sigga er að byrja. Er
með Sigga í útsendingu til kl. 12 en
rúmlega 11 tökum við á móti Friðriki
Dór og þá sé ég um að stjórna
myndavélunum í stúdíóinu og síðan
að klippa viðtalið og setja inn á
k100.is
12.30 Fer í CrossfitReykjavík til að æfa
eftir prógramminu mínu, tek upp
litlu stílabókina mína þar sem æf-
ingaplanið er hripað niður
og sé hvert verkefni dagsins er. Í
dag eru það ólympískar lyftingar,
fimleikastyrktaræfingar og 10 km á
róðrarvélinni. Ekkert smá skemmti-
legt!
14.00 Bruna ég að sækjadrenginn minn og fer
með hann á fimleikaæfingu, á meðan
hann æfir þá les ég mér til um hvað
er nýjasta nýtt á samfélagmiðlum og
horfi á drenginn brillera á æfingu.
15.30 Fer að sækja Sörumína í leikskólann og
við förum heim í smá stund, fáum
okkur matarbita og Heiðar Berg
klárar að lesa heima. En stoppið er
stutt.
16.45 Ég og krakkarnirbrunum í Crossfit
Reykjavík þar sem móðirin er að
fara að þjálfa gormatíma, en í
gormatíma eru Crossfit-krakkarnir
mínir sem ég þjálfa tvisvar sinnum í
viku í góðum félagsskap með einni af
mínum bestu, Sólveigu sem er líka
æfingafélaginn minn. Það er stund-
um eins og að smala köttum að þjálfa
krakka en mér finnst það eitt það
skemmtilegasta sem ég geri. Krakk-
arnir mínir njóta líka góðs af þar
sem þau taka góða Crossfit-æfingu
dagsins sem samanstendur ef gór-
illum, dúndurboltum, sippi og stýr-
isgöngu.
18.00 Við höldum heim ogallir í bað, síðan er
kvöldmaturinn framreiddur og þar
sem börnin mín vilja oftar en ekki
ekki það sem boðið er upp á þá enda
þau á að borða morgunmat sem
kvöldmat á meðan ég og Brynjar
fáum okkur grillaðan kjúkling með
ofnbökuðum sætum kartöflum og
salati.
19.10 Ó nei, dagurinn minner sko ekki búinn því
að það er boxæfing í Mjölni í kvöld
og hún byrjar kl 19.30, aftur á rúnt-
inn og nú í Mjölnishöllina.
19.3 0 Boxæfing hjá keppn-ishópnum í boxi en ég æfi
með Hnefaleikafélagi Reykjavíkur
sem er með aðstöðu í Mjölni, á boð-
stólum er boxþrek, drillur og smá
tækni en boxþrekið er
eitt það skemmtilegasta og erf-
iðasta sem ég geri þegar kemur að
æfingum. Kýla í púða, burpees,
planki, hnébeyjuhopp og allskonar
sett saman í 3x3 mínútur … dauði!
20.40 Held heim sveitt ogsæl en þreytt eftir
langan dag
21.00 Sturta og síðan só-fakúr og einn þáttur
með mínum heittelskaða Brynjari
Berg, upp í rúm og les uppáhalds-
bókina mína Relentless.
22.00 Sofa.
Dagur í lífi
Kristínar
Sifjar
Kristín Sif Björgvinsdóttir, eða Stína Bobb eins og
hún er stundum kölluð, stendur vaktina allar helgar á
K100. Kristín starfar einnig bak við tjöldin á K100 og
sér meðal annars um samfélagsmiðla stöðvarinnar
og aðstoðar við hin ýmsu verkefni. Hún er mikil
kjarnakona en hún leggur stund á crossfit og box í frí-
tíma sínum og sinnir svo auðvitað fjölskyldunni. Við
fáum að skyggnast inn í líf Kristínar í blaðinu í dag.