Morgunblaðið - 05.04.2018, Qupperneq 65
65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 • www.rafkaup.is Ármúla 24 • S. 585 2800
Áður en Ari hélt til Ástralíu hafði
hann komið fram á The Fringe
Festival í Edinborg í Skotlandi með
uppistandið sitt Pardon my Ice-
landic. Undirtektir voru slíkar að
honum var boðið til London þar sem
hann steig nokkrum sinnum á svið í
Soho Theater. Ari er nú kominn með
erlendan umboðsmann og miðað við
móttökur má ætla að hann verði
fenginn til að skemmta á fleiri hátíð-
um næstu misserin.
Ari vinsæll í spjallþáttum
í suðurhöfum
„Ya matey“ hljómar í kollinum á
mér er ég hugsa til Ara í Ástralíu.
Þetta er sennilega einn þekktasti
frasi Ástrala og það að vera kallaður
matey er eitthvað svo vinalegt. Auk
þess þykir mér Ari í Ástralíu hljóma
pínulítið líkt og Tinni í Tíbet. Smá
ævintýraljómi yfir þessu öllu. Og
eftir að hafa séð frammistöðu Ara í
áströlskum sjónvarpsþáttum er
maður ekki í nokkrum vafa um að
Ástralar verði hrifnir af ljóshærða
víkingnum „að norðan“.
Leikið með ólíkan framburð
En hvað vilja Ástralar fá að vita
um okkar mann? Í spjallþættinum
The Project byrjuðu stjórnendurnir
á að spyrja Ara út í framburð á hans
eigin nafni og bar Eyjafjallajökul
einnig á góma. Það er ljóst að gosið í
jöklinum hefur verið mikil land-
kynning og um leið er ljóst að út-
lendingar eiga enn í stökustu vand-
ræðum með að bera nafnið fram. Í
framhaldinu sýndu þau myndskeið
sem Ari hafði birt á samfélags-
miðlum, en þar lætur hann dóttur
sína, Arneyju Díu, detta niður í púð-
ursnjó. Hann bar fram nafn dóttur
sinnar og þar gafst enn og aftur til-
efni til að æfa harðan framburð ís-
lenskra nafna í beinni útsendingu.
„Are you Bjork famous?“
Í viðtalinu var hann beðinn að
bera saman frægð sína og Bjarkar.
„Are you Bjork famous?“ spurði
einn dagskrárgerðarmaðurinn. Á
sinn hógværa máta sagði Ari svo
ekki vera. Því næst vildu þau kynn-
ast fasi og karakter Íslendinga og
vorum við sett undir hatt Skandin-
ava sem svo oft áður. Þáttarstjórn-
endur sögðust hafa á tilfinningunni
að það væri allt svo fullkomið og vel
gert í Skandinavíu og spurðu hvort
það væri raunverulega þannig. Ari
sagði Íslendinga almennt ekki taka
sig alvarlega, langt frá því; það væri
hlutverk Svíanna að vera fullkomnir
og vakti það mikla kátínu undir lok
viðtalsins.
Það verður forvitnilegt að heyra
Ara gera grín að Skotum, Bretum og
Áströlum eftir kynni sín af þeim að
undanförnu og gefst landanum kost-
ur á að sjá Ara taka þátt í lokasýn-
ingum Mið-Íslandshópsins í Há-
skólabíói 28. apríl og 4. maí. Hulda
Bjarnadóttir hulda@k100.is
Ljóshærði víkingurinn vinsæll í suðurhöfum
Ari Eldjárn er löngu
þekktur fyrir grín sitt um
ólík þjóðareinkenni og
framburð ólíkra tungu-
mála. Það hefur því verið
gaman að fylgjast með
honum á erlendum uppi-
standshátíðum undan-
farið. Þessa dagana er
hann staddur í Ástralíu
og er Magasínið á K100
náði tali af Ara var hann
staddur í Melbourne
vegna þátttöku sinnar á
árlegri uppistandshátíð í
borginni.
Í sjónvarpinu Ari Eldjárn spjallaði meðal annars um dóttur sína, Eyjafjallajökul, Svía og Björk í þættinum.
Spjallþáttur Ari Eldjárn hér í viðtali hjá stjórnanda spjallþáttarins The Project.
„Þetta er lag sem ég er búinn að
eiga lengi sem ég ákvað bara að
henda út núna. Það eru tíu, tólf ár
síðan ég samdi þetta lag. Þetta er í
fyrsta og eina skiptið sem ég hef
sest niður og ætlað mér að semja
texta með stuðlum og höfuðstöfum
en ég er ekki viss um að mér hafi
tekist það eftir reglunum,“ segir
Friðrik Dór um nýja lagið sitt
„Fyrir nokkrum sumrum“ sem
hann sendi frá sér rétt fyrir páska.
Friðrik er að vinna að nýju efni
þessa dagana og mun hann senda
fleiri lög frá sér með hækkandi sól.
Einnig er hann að undirbúa af-
mælistónleika í Kaplakrika í haust
en hann verður þrítugur 7. október
og fer miðasala fyrir tónleikana af
stað á næstu vikum. „Ég er búinn
að vera í blússandi mínus með
þetta þrítugsatriði. Ég er að verða
svo miðaldra,“ sagði Friðrik glott-
andi spurður hvort hann óttaðist
að verða þrjátíu ára. Þú getur
hlustað og horft á skemmtilegt við-
tal Sigga Gunnars við Friðrik Dór
á k100.is.
„Í blússandi mínus með
þetta þrítugsatriði“
Í útvarpinu Friðrik var gestur Sigga Gunnars á K100 í gærmorgun.