Morgunblaðið - 05.04.2018, Page 76
76 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018
Björn Gíslason ólst upp í Vogahverfinu, var í Vogaskóla, er tré-smíðameistari frá 1982, starfaði hjá Slökkviliði Reykjavíkurog síðan Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs. frá 1981, var
þar varðstjóri og síðar sviðsstjóri og sinnti þar kennslu og forvörnum,
annaðist stjórnun á sviði almannavarna og var framkvæmdastjóri
SHS fasteigna ehf., dótturfélags Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Hann hefur verið formaður Fylkis frá 2011 og er í áttunda sæti á lista
sjálfstæðismanna til borgarstjórnar í vor.
„Ætli ég byrji ekki daginn í Árbæjarlauginni og kíki svo við í Fylki
sem er þar við hliðina. Síðan fer afmælisdagurinn í kosningabarátt-
una. Ég fer líklega í Múlakaffi í hádeginu, hitti þar félagana og spjalla
jafnframt við gesti og gangandi. Það er alltaf gaman að ræða við
borgarbúa um borgarmálin enda taka þeir manni oftast vel og hafa
ýmislegt til málanna að leggja.
Dagurinn fer einnig í fundarhöld af ýmsu tagi eins og oft vill verða,
en ég á nú samt von á því að tími gefist með fjölskyldunni og afmæl-
istertu, þó ekki sé nema við eldhúsborðið, þegar degi tekur að halla.“
Ertu mikið afmælisbarn, Björn?
„Ég er nú yfirleitt ekkert of upptekinn af mínum eigin afmælum, en
hef samt alltaf gaman af því að hitta fjölskylduna, vini og kunningja
og fagna því öllum slíkum tilefnum. Þetta verður nú samt bara á lág-
um nótum í ár, enda í nógu að snúast þessa dagana.“
Í fullum skrúða Björn starfaði í Slökkviliðinu um langt árabil.
Formaður Fylkis
og frambjóðandi
Bjössi Gísla í Árbænum er 63 ára í dag
E
inar Eylert Gíslason
fæddist á Akranesi
5.4. 1933 og ólst þar
upp til fimm ára ald-
urs. Þá flutti fjöl-
skyldan til Akureyrar. Hann var í
sveit öll sumur frá sjö ára aldri,
fyrst á Hrafnabjörgum í Hjalta-
staðaþinghá, eitt sumar á Skeggja-
stöðum í Bakkafirði og tvö sumur á
Ölvaldsstöðum í Borgarfirði.
Eftir fermingu vann Einar í vega-
gerð á sumrin á Héraði. Hann var
tvo vetur í gagnfræðaskóla á Eiðum,
lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri
vorið 1951, var í verklegu bú-
fræðinámi í Danmörku og Svíþjóð
næstu tvö árin, útskrifaðist búfræ-
ðikandídat frá framhaldsdeildinni á
Hvanneyri 1955 og sótti síðar fjölda
endurmenntunarnámskeiða á veg-
um Búnaðarfélags Íslands og
Bændaskólans á Hvanneyri.
Einar var ráðunautur í naut-
griparækt fyrir Nautgriparækt-
arsamband Borgarfjarðar 1955-58,
bóndi á Stóra-Hrauni í Kolbeins-
staðahreppi 1958-60, bústjóri og til-
raunastjóri fjárræktarbúsins á
Hesti í Borgarfirði 1960-74, héraðs-
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Skagfirðinga 1974-84, bóndi á
Syðra-Skörðugili 1974-2000 og
stundaði sauðfjárrækt, hrossarækt
og loðdýrarækt. Árið 2000 tóku Ein-
ar Eðvald og Elvar Eylert, synir
hans, við búinu. Hann hélt þó áfram
að taka virkan þátt í búrekstrinum
en hefur samhliða eytt meiri tíma í
áhugamál eins og framleiðslu Lífs-
krafts úr hvannafræjum og blágresi
og tínt og þurrkað ýmsar jurtir í
græðismyrsl úr minkafitu og fleira.
Einar sat í stjórn Félags hrossa-
bænda frá stofnun 1975, var formað-
ur þess 1984-93, sat í stjórn Sam-
bands íslenskra loðdýraræktenda í
13 ár og formaður þess 1984-93 og
var fulltrúi á aðalfundi Stétt-
arsambands bænda um árabil frá
1984. Hann var framkvæmdastjóri
Hrossaræktarsambands Skagfirð-
inga 1974-84 og síðan formaður til
1993, vann að stofnun Loðdýrarækt-
arfélags Skagfirðinga og var for-
maður þess fyrstu níu árin, var
stofnandi og formaður Félags
hrossabænda í Skagafirði 1975-94,
aðalhvatamaður að stofnun fóð-
urstöðvarinnar Melrakka hf. á
Sauðárkróki og stjórnarformaður
hennar fyrstu fimm árin, vann að
stofnun Félags Sauðfjárbænda í
Skagafirði og sat í stjórn fyrstu sex
árin, var aðalhvatamaður að stofnun
Landssamtaka sauðfjárbænda og
sat í stjórn fyrstu árin, fulltrúi á að-
alfundum til 1995 og fulltrúi þeirra
Einar Eylert Gíslason, fyrrv. bóndi og ráðunautur – 85 ára
Með sonunum fjórum Talið frá vinstri: Einar Eðvald, Elvar Eylert, Ásdís S, Einar Eylert, Eyþór og Sigurjón Pálmi.
Fjölhæfur og ráðhollur
Hjónin Einar og Ásdís Sigrún koma
heim úr rómantískri lautarferð.
Breiðavík 13 Benjamín
Hugi Smárason fæddist 28.
janúar kl. 0.55. Hann vó
3.718 g og var 53 cm langur.
Foreldrar hans eru Kolbrún
Sjöfn Jónsdóttir og Þor-
björn Smári Ívarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is