Morgunblaðið - 10.05.2018, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 0. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 109. tölublað 106. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
JAFNVÆGIS-
VOGIN FER
AF STAÐ
ÝMISSA KVIKINDA
LÍKI Í ÍSLENSKRI
GRAFÍK
VIÐSKIPTAMOGGINN LISTASAFN ÍSLANDS 64FINNA VINNU
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF RIEDELGLÖSUM
Birtuskilyrðin voru dramatísk þegar göngumaður gekk í átt
að Mælifelli á Höfðabrekkuafrétti í gær. Nú þegar sumarið
nálgast hverfur stór hluti af snjónum á hálendi Íslands og um
leið opnast á ný fyrir ýmsar gönguleiðir. Útivistarfólk ætti því
að hlakka til komandi tíðar. Ljósmyndari Morgunblaðsins var
skammt á eftir göngumanninum og náði því vel þegar skýin
skyggðu á síðustu sólargeislana á fellinu. Breytt birtuskilyrði
höfðu þó ekki áhrif á áform göngumanna, sem héldu ótrauðir
áfram.
Gengið í átt að Mælifelli undir dimmum himni
Morgunblaðið/RAX
„Flugvöllurinn
er orðinn flösku-
háls. Aðstaðan
er þannig að
menn ráða ekki
við þetta,“ segir
Pétur Þór Jón-
asson, fram-
kvæmdastjóri
Eyþings, sam-
taka sveitar-
félaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum. Í yfirferð
Morgunblaðins um Norðurland
eystra í aðdraganda sveitarstjórn-
arkosninga brenna þrjú hags-
munamál helst á íbúum; uppbygg-
ing flugvallarins á Akureyri,
úrbætur í raforkumálum og að
lokið verði við Dettifossveg.
Mikill uppgangur er í atvinnu-
málum og ferðaþjónustu víðast
hvar á svæðinu. »36-37
Flugvöllurinn
flöskuháls
Pétur Þór
Jónasson
Dæmi eru um að ferðaskrifstofur
hafi fengið 50% færri bókanir í
sumar en á sama tíma í fyrra.
Sævar Skaptason, framkvæmda-
stjóri Hey Iceland, skipuleggur
ferðir til Íslands. Hann segir sam-
dráttinn nema 22-25% milli ára.
Eftirspurnin sé að breytast. Ferða-
menn komi nú í ódýrari ferðir.
Sævar telur aðspurður að fyrir
vikið minnki meðaltekjur af hverj-
um ferðamanni umtalsvert milli
ára. Heildartekjurnar geti því
dregist saman þótt ferðamönnum
fjölgi. Ljóst sé að tímabil mikillar
tekjuaukningar í íslenskri ferða-
þjónustu sé að baki, a.m.k. í bili.
Clive Stacey, framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar Discover the
World, hefur skipulagt ferðir til Ís-
lands í áratugi. Hann segir farið að
draga úr eftirspurn fjölskyldna og
skólahópa. Það kosti orðið svipað
að fara í Íslandsferð og að fara til
Nýja-Sjálands. »ViðskiptaMogginn
Allt að 50% færri
bókanir en í fyrra
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Reykjavík er með næstverstu fjár-
hagsstöðuna þegar litið er til 12
stærstu sveitarfélaga landsins sam-
kvæmt rekstrarsamanburði efna-
hagssviðs Samtaka atvinnulífsins.
Akranes, Seltjarnarnes og
Garðabær skera sig úr í saman-
burðinum, en þau eiga það öll sam-
eiginlegt að vera lítið skuldsett og
með sterka eiginfjárstöðu. Skuld-
settustu sveitarfélögin eru aftur á
móti Hafnarfjörður, Reykjavík og
Reykjanes.
Samkvæmt stigagjöf Samtaka
atvinnulífsins líða þessi sveitar-
félög fyrir vonda skuldastöðu en
Reykjanes og Reykjavíkurborg eru
almennt með hærra hlutfall veltu-
fjár af tekjum, sem samkvæmt SA
kemur til af nauðsyn þar sem þung
skuldabyrði kallar á mikið veltufé
til að viðhalda greiðsluhæfi.
Akranesbær í efsta sæti
Meðal þeirra níu atriða sem SA
leit til í greiningu sinni eru skuldir
á hvern íbúa, afkoma/tekjur, veltu-
fé/tekjur, nettófjárfestingar á
hvern íbúa og útgjöld á íbúa. Í
fjárhagslegri stigagjöf SA er Akra-
nesbær í efsta sæti með 80 stig og
Hafnarfjörður í því neðsta með 43
stig. Reykjavíkurborg er í næst-
neðsta sæti með 48 stig og stafar
það helst af slæmri skuldastöðu
höfuðborgarinnar. Reykjavík er
með næstverstu stöðuna þegar
kemur að skuldum á hvern íbúa og
skuldum sem hlutfalli af rekstrar-
tekjum svo dæmi séu tekin.
Reykjavíkurborg hefur hins vegar
þriðju hæstu tekjurnar sem hlutfall
af veltufé.
Reykjavík með næst-
verstu fjárhagsstöðuna
Rekstrarsamanburður á 12 stærstu sveitarfélögunum
MSkattheimtan mest í … »2