Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 14

Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 Smart sumarföt, fyrir smart konur. Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Flug Dansari frá Listdansskóla Íslands á flugi á æfingu með Sinfó í Hörpu, og drekinn gefur henni auga. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Drekinn fæddist á Sæbraut-inni,“ segir Laila MargrétArnþórsdóttir, eins ogekkert sé eðlilegra, þegar hún er spurð um tilurð sögu hennar, Drekinn innra með þér, sem er hluti af tónverki sem flutt verður á fjöl- skyldutónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands næsta laugar- dag. „Ég var orðin svo leið á umferð- arstöppunni á Miklubrautinni að ég hætti að fara á bíl til vinnu en fór þess í stað fótgangandi daglega til starfa. Að ganga eftir Sæbrautinni er afskaplega skapandi, ég kynntist al- veg ótrúlegum hlutum, stjörnubjört- um morgnum og köldu mánaskini, ólíkustu sjávarhljóðum og öllum teg- undum af mögnuðu veðri. Og þar kom drekinn upp í hugann. Ég, minn leynivinur og Sæbrautin bjuggum hann til.“ Laila segist sem barn hafa átt ósýnilegan „leynivin“ rétt eins og drekinn í sögunni er. „Ég leitaði til míns leynivinar þegar á þurfti að halda og drekasag- an mín er óður til vináttunnar sem ég átti með þessum leynivini. Sú vinátta hjálpaði mér með svo margt sem ég gekk í gegnum sem barn. Mér fannst þessi saga líka eiga erindi í ljósi alls þess sem er að gerast í samfélaginu í dag, alls sem við heyrum um og kem- ur upp á yfirborðið. Þá verður okkur ljóst hvað það skiptir miklu máli að við komum orðum að því hvernig okkur líður. Ef við höfum ekki orð þá höfum við liti, ef við höfum ekki liti þá höfum við tónlist, ef við höfum ekki tónlist þá getum við teiknað. Það er alltaf leið, við þurfum bara að finna hana saman. Ef barn getur ekki sagt mömmu eða pabba frá ein- hverju, þá er gott að geta sagt drek- anum það. Það skiptir miklu máli að eiga einhvern trúnaðarvin, í hverju sem hann felst,“ segir Laila og bætir við að bók um drekann komi út um jólin hjá Bjarti. „Okkur langar til að búa til handbrúðu, drekabrúðu sem fylgir bókinni, og börn geta þá notað til að segja frá tilfinningum sínum. Af því hver einasta rödd skiptir máli.“ Í lagi að hafa tilfinningar Í sögunni af drekanum er einnig komið inn á það að ekkert er til sem heitir rétt eða röng tilfinning. „Við megum til dæmis alveg verða reið, og í drekasögunni er það mamman sem verður öskureið og þær mæðgur reyndar hvor við aðra. Drekinn kennir þá stelpunni hvernig hægt er að losa sig við reiðina. Mömmur eru ekkert hafnar yfir það að geta verið ósanngjarnar og reið- ar. Það er allt í lagi að hafa tilfinn- ingar, vera reiður, sár og gráta. Pabbinn í drekasögunni grætur af því kisan hans týnist og deyr og það er allt í lagi að hann verði leiður og miður sín. Pabbar mega líka gráta.“ Laila segir að Hjördís Ástráðs- dóttir, fræðslustjóri hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands, sé guðmóðir drekans. „Ég kom til hennar með þessa hugmynd fyrir þremur árum og hún tók hana í fangið. Þess vegna er þetta ævintýri að verða að veruleika. Ég segi bara: Elsku allir, draumar geta ræst ef maður trúir á þá. Hlust- ið á drekann ykkar, hann segir ykk- ur hvað þið getið. Ekki láta neinn draga úr ykkur.“ Þurfum öll að læra á okkur Þegar fyrrnefnd Hjördís er spurð út í hvers vegna hún hafi valið drekann til uppsetningar hjá sinfón- íuhljómsveitinni segir hún að sér hafi fundist sagan alveg borðleggj- andi. „Mér fannst þessi saga eiga heima á tónleikum hjá okkur, því þetta á erindi við uppalendur en ekki síður er þetta kennslufræðilegt efni. Öll þurfum við að takast á við innri áskoranir, læra að hemja okkur og stjórna okkur. Laila nálgast þetta á svo fallegan hátt með drekanum sem skiptir litum eftir því hvernig stúlk- unni í sögunni líður,“ segir Hjördís og bætir við að sér finnist skemmti- legt að allt eru það konur sem standa á bak við verkið. „Við munum frumflytja þetta nýja tónverk með sögumanni, mynd- efni og dönsurum. Lifandi dreki kemur í lok tónleikanna og það er sérstakur drekasöngur í lokin, en þann texta á Þórarinn Eldjárn. Sag- an er túlkuð á táknmáli og söng- og leikkona syngur drekalagið á tákn- máli, en Sinfónían hefur átt dýrmætt samstarf við félag heyrnarlausra við það verkefni að koma tónlistinni áfram til þeirra sem ekki eru heyr- andi. Við munum taka verkið upp í haust fyrir skóla, því þetta á mikið erindi þangað.“ Það skiptir máli að eiga trúnaðarvin Þegar börn geta ekki sagt mömmu og pabba eitthvað er gott að eiga trúnaðarvin til að segja frá, hvort sem hann er af holdi og blóði, ímyndaður eða tuskudýr. Og við megum alveg verða reið. Dreki á fjölskyldu- tónleikum kennir hvernig losa skal sig við reiðina. Morgunblaðið/Hari Gengur til vinnu Laila við Laugarnesið „þar sem sjórinn syngur eins og eng- ill“, eins og hún segir sjálf. Þar á Laila líka krummavini sem bíða eftir henni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sögumaður Sagan er líka sögð á táknmáli svo börn sem ekki eru heyrandi fái að njóta. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölskyldutónleikar Tónsprot- ans, Drekinn innra með mér, verða fluttir í Hörpu nk. laugardag, 12. maí, kl. 14. Verkið er óður um vináttu lítillar stúlku og dreka. Drek- inn býr innra með stúlkunni, kennir henni að þekkja til- finningar sínar og hvernig hún getur brugðist við þeim. Í þessu nýja verki er hljóm- sveitin í hlutverki drekans en Þórunn Arna Kristjánsdóttir er sögumaður og fer með hlutverk stúlkunnar. Drekinn fær sérstakt stef sem birtist í ýmsum myndum og hríslast um hljómsveitina, allt eftir því í hvernig skapi hann er. Í upphafi er drekinn ósköp glaður en þegar líður á verk- ið brjótast fram ólíkar til- finningar og hann ýmist dansar af gleði eða fuðrar upp í reiði. Inn við beinið er drekinn þó besta skinn og er það von höfundar að tón- leikagestir finni sinn eigin dreka innra með sér á tón- leikunum. Tónlistin er eftir Elínu Gunnlaugsdóttur tónskáld en söguna samdi Laila Mar- grét Arnþórsdóttir. Myndefni á tónleikunum er eftir Svöfu Björgu Einarsdóttur og hljómsveitarstjóri er Bern- harður Wilkinson. Dansarar frá Listdansskóla Íslands dansa. Einnig verður drekasmiðja bæði fyrir og eftir tónleika og þar geta krakkar búið til sína eigin drekagrímu. Ýmist dansar af gleði eða fuðrar upp í reiði FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR OG DREKASMIÐJA Í HÖRPU Drekinn Hann er besta skinn inn við bein.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.