Morgunblaðið - 10.05.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
(Lokað uppstigningardag)
La Mollla - fallegar útskriftargjafir
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Um liðna helgi opnaði Norræna safn-
ið í Seattle að nýju dyr sínar fyrir
gestum og gangandi en nú á nýjum
stað, við hina fjölförnu Markaðsgötu í
Ballard-hverfinu. Það sem vekur
helst eftirtekt við hina nýju staðsetn-
ingu safnsins er að við bakhluta safns-
ins er stór og mikill slippur og höfn og
minnir svæðið og samspil hins nýja
safns og athafnalífsins nokkuð á
Slippinn í Reykjavík og Hótel Marina.
Staðarvalið er raunar engin til-
viljun heldur vísar með sterkum hætti
til þess að það fólk sem fluttist frá
Norðurlöndum á öndverðri nítjándu
öld og í upphafi þeirrar tuttugustu,
dróst að svæðinu í kringum Seattle
vegna sjávarútvegsins. Þar kunnu
hinir norrænu menn til verka og unnu
sér fljótt inn gott orðspor, bæði vegna
verkþekkingar og dugnaðar.
Gríðarlegir fólksflutningar
Talið er að um 120 þúsund Norður-
landabúar hafi flust á svæðið í hinum
miklu landflutningum og að í dag
megi að minnsta kosti 800 þúsund
manns rekja ættir sínar til þeirra.
Þessi stóri hópur hefur haft mótandi
áhrif á samfélagið í Washingtonfylki.
Þau áhrif urðu snemma ljós. Strax á
fyrsta áratug 20. aldarinnar kviknuðu
hugmyndir um uppbyggingu safns
um landnámið úr austri. Ekkert varð
úr þeim fyrirætlunum uns safninu
Nordic Heritage Museum var komið
á laggirnar árið 1980. Til dagsins í dag
hefur safnið haft aðsetur í aflögðu
skólahúsnæði ekki allfjarri staðnum
þar sem hin nýja safnbygging hefur
nú risið.
Eric Nelson hefur veitt safninu for-
stöðu í áratug og borið hitann og
þungann af uppbyggingunni. Hann
segir stefnt að því að nýja safnið verið
menningarmiðstöð í Ballard, hverfi
sem nú byggist upp af miklum hraða.
Þar eins og annarsstaðar gætir mjög
áhrifanna af þeim stóru fyrirtækjum
sem haslað hafa sér völl í borginni í
bráð og lengd. Má þar nefna Facebo-
ok, Microsoft, Starbucks, Costco,
Uber, Boeing o.fl.
„Nýja safnið er hugsað með allt
öðrum hætti en það gamla. Það var
orðið barn síns tíma. Í stað þess að
einblína á þröngt tímabil þegar fólkið
fluttist hingað horfum við mun lengra
aftur og einnig inn í samtímann.
Þannig föngum við áhrifin frá fyrri
öldum en einnig segjum við söguna af
því hvernig fólkið hefur aðlagast nýj-
um heimkynnum og haft áhrif á þau
um leið.“
Þannig er hryggjarstykkið í safn-
inu grunnsýning sem rekur sögu
Sama og germanskra þjóðflokka sem
tóku að byggja Norðurlönd og til
dagsins í dag. En sýningin teygir sig í
tvær áttir frá þeim tímapunkti er
landnámið í Vesturheimi varð að
veruleika. Þannig varpar sýningin
ljósi á þróun samfélag á Norður-
löndum og í Washington-fylki yfir
tímabilið frá öndverðri 19. öld. Sú
áhugaverða nálgun undirstrikar hin
miklu menningarlegu tengsl en birtir
einnig augljóslega að samfélög þessa
fólks, sem á sömu rætur, hefur þróast
með mismunandi hætti.
Á sýningunni er að finna marga
merka gripi, sem teygja sig 5.000 ár
aftur í tímann. Íslenskir gripir eru á
safninu og þar af fjórir sem eru í láni
frá Þjóðminjasafni Íslands.
„Við lánum þessa gripi til sýning-
arinnar og í mörg ár höfum við átt
mjög gott samstarf við Eric og sam-
starfsfólk hans. Hið sama á við um
systursöfnin í Danmörku, Svíþjóð,
Noregi og Finnlandi. Á margan hátt
hefur mér fundist sem þetta nýja og
glæsilega safn hafi styrkt tengslin
milli safnanna á Norðurlöndum og
eflt samstarfið sem er mjög öflugt
nú,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir,
þjóðminjavörður, sem var meðal
boðsgesta við opnun safnsins.
Þar sem saga og samtíð mætast
Nýja Norræna safnið í Seattle varpar ljósi á forsögu fólksins sem fluttist til Vesturheims á fyrri tíð
Heimsþekktir hönnuðir komu að hönnun safnsins Safn sem Íslendingar geta fræðst af og notið
Það er hið þekkta Ralph Apple-
baum-fyrirtæki í New York sem
hannar sýninguna. Þar er talsvert
lagt upp úr gagnvirkri tengingu við
safngesti sem virkjar þá sem þátt-
takendur í framvindu fræðslunnar.
Þegar inn í safnið er komið standa
gestirnir undir gríðarstóru korti af
Norðurlöndum og fólki er boðið að
skrá inn í tölvu hvaðan það kemur og
hvert það reki ættir sínar. Birtist á
tölvuskjá í kjölfarið hvernig leið
fólks liggur frá heimahögum þess og
forfeðranna til Seattle. Á grunnsýn-
ingunni eru gestir einnig fræddir um
grunngildi Norðurlanda, mannrétt-
indi og réttarríki. Þeir eru þá spurð-
ir um afstöðu sína til þeirra mála og
hvernig þeir vilji helst forgangsraða
hlutum, m.a. skattfé.
Þessi aðferð sýningarhönnuðanna
er ekki ný af nálinni en hún setur
skemmtilegan blæ á safnið. Þá hefur
unga fólkið sérstakan sess á safninu
og á litaspjöldum er það, ásamt þeim
sem eldri eru, spurt spurninga um
grunngildi sem það vill hafa í háveg-
um. Svörunum við þeim spurningum
er raðað upp á vegg þannig að gestir
geti virt þau fyrir sér. Þannig tengj-
ast frásagnir af eldri kynslóðum við-
horfum unga fólksins í dag.
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
Viðhorf Á sýningunni er kallað eftir viðhorfi gesta. Það er gert með gagn-
virkum hætti en einnig eldri aðferðum eins og litríkum spurningaspjöldum.
Gagnvirk sýning
virkjar gestina
Varpar ljósi á norræn grunngildi
Nýja safnbyggingin er um 5.200
fermetrar og vekur mikla eftir-
tekt, jafnt að innan sem utan.
Það er Richard Franko sem
teiknar en hann er meðal eig-
enda arkitektastofunnar Mit-
hun. Richard vinnur nú m.a. að
hönnun einkasafns Bill og Mel-
indu Gates í Seattle.
Í samtali við Morgunblaðið
segir Richard að hönnun Nor-
ræna safnsins hafi verið krefj-
andi. Hann hafi sótt innblástur í
norrænan menningararf og
náttúru. Hann segir staðsetn-
ingu safnsins frábærlega vel
heppnaða við höfnina í Ballard.
„Um tíma var stefnt að því að
byggja í miðborg Seattle en
þetta er hárrétt staðsetning.“
Franko teikn-
aði safnhúsið
HANNAR FYRIR BILL GATES
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
Margt merkra muna Sýningin er hönnuð af hinu þekkta Ralph Applebaum hönnunarfyrirtæki í New York.
Fjölbreytt Sýningin er afar fjölbreytt og yfirgripsmikil og þar er einnig
að finna gripi frá því eftir að fólk fluttist vestur um haf.