Morgunblaðið - 10.05.2018, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú
velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja.
Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
ŠKODA KODIAQ 4x4 frá:
5.590.000 kr.5á
ra
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
up
p
fy
llt
um
ák
væ
ð
um
áb
yr
g
ð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
g
d
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hátíð verður í Laugarvatnsskógi á
morgun, föstudaginn 11. maí,
skógardagur sem skipulagður er í
tilefni af aldarafmæli fullveldis á
Íslandi. Hundrað tré verða gróð-
ursett í sérstökum fullveldislundi,
eitt tré fyrir hvert ár fullveldis.
Þá verður nýr eldaskáli formlega
tekinn í notkun í skóginum.
Nytjar af ræktuðum skógum
Þegar öld er liðin frá því að Ís-
land hlaut fullveldi á ný er þjóðin
farin að hafa nytjar af þeim rækt-
uðu skógum sem uxu upp á full-
veldistímanum. Starf Skógrækt-
arinnar fyrstu áratugi fullveldis-
tímans snerist að mestu um
verndun og beitarfriðun birki-
skóga en um miðja 20. öld hófst
ræktun nytjaskóga fyrir alvöru.
Sú ræktun byggðist á góðu þró-
unarstarfi sem unnið hafði verið
áratugina á undan og fólst í því
ásamt fleiru að velja hentugar
trjátegundir til nytjaskógræktar
hérlendis. Því má segja að skóg-
rækt í þeirri mynd sem við þekkj-
um nú sé sprottin upp úr jarðvegi
fullveldistímans, segir í upplýs-
ingum frá Skógræktinni.
Í Laugarvatnsskógi hefur Skóg-
ræktin ásamt heimafólki, skólum á
staðnum og fleiri starfað að skóg-
arfriðun og skógrækt allan full-
veldistímann og því er þessi stað-
ur valinn til hátíðarhalda í tilefni
fullveldisafmælisins. Svæðið hefur
breyst úr berangri með lágvöxnu
kjarri í blómlega skóga.
Byggt úr íslenskum viði
Dagskrá skógardagsins hefst kl.
11.30 og lýkur um kl. 14 á morgun
og nýtur viðburðurinn styrks úr
sjóði fullveldisafmælisins. Skógar-
dagurinn er samstarfsverkefni
Skógræktarinnar, Bláskógabyggð-
ar og skóla í sveitarfélaginu. Nem-
endur skólanna á Laugarvatni og í
Reykholti taka þátt í viðburðinum
með kórsöng o.fl. ásamt heima-
fólki. Flutt verða skemmtiatriði úr
heimabyggð, veitt fræðsla um
skóga og skógrækt, efnt til skóg-
argöngu og reidd fram kjötsúpa.
Bálhúsið eða eldaskálinn sem
formlega verður tekið í notkun á
morgun er nær eingöngu byggt úr
íslenskum viði af trjám sem uxu
upp á Suðurlandi á fullveldistím-
anum. Í heildina er mannvirkið
um 150 fermetrar undir þaki og er
þá salernisaðstaða meðtalin.
Möguleikarnir eru fyrir hendi
Ívar Örn Þrastarson,
húsasmíðameistari og skógfræð-
ingur, segir að allt burðarvirki
hússins sé úr timbri úr Hauka-
dalsskógi og öll klæðning úr
timbri úr skóginum í Þjórsárdal.
Efnið standist allar kröfur til að
nýta hvort sem er í burðarvirki
eða klæðningar. Hann segir að sí-
fellt aukist notkun á íslenskum við
í byggingar og þá sérstaklega í
klæðningu.
Dæmi séu einnig um heilu húsin
og nefnir Ívar Örn myndarlegt
hús á Vallarnesi á Héraði, þar
sem viður úr eigin ræktun sé
uppistaðan. Einnig megi nefna
fjölbýlishús við Gerplustræti í
Mosfellsbæ sem er að hluta klætt
með greni úr Þjórsárdal. Þá sé
Skógræktarfélag Mosfellssveitar
að undirbúa byggingu húss og
hyggst nýta efni úr skóginum í
Hamrahlíð í Úlfarsfelli í bygg-
inguna.
„Möguleikarnir eru fyrir hendi
og innan ekki svo marga áratuga
gætum við orðið sjálfbær með
timbur,“ segir Ívar Örn. „Þessir
„sérvitringar“ sem lögðu af stað í
skógrækt fyrir rúmum 100 árum
hafa sannað að þetta er svo sann-
arlega mögulegt. Ef rétt verður á
málum haldið er framtíðin björt.“
Skógardagur til-
einkaður fullveldi
og frumherjum
Ljósmynd/Ívar Örn Þrastarson
Í Laugarvatnsskógi Nýr eldaskáli nýtist þeim sem leggja leið sína í Laugarvatnsskóg. Þar er góð aðstaða til að
safnast saman, grilla og leita skjóls ef þannig viðrar, auk þjónustuhúss og salerna.
100 tré gróðursett í fullveldislundi
Nýr eldaskáli í Laugarvatnsskógi