Morgunblaðið - 10.05.2018, Síða 24
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrátt fyrir að stór hluti orkuvinnslu
landsins sé á Suðurlandi eiga raf-
orkufyrirtækin erfitt með að full-
nægja aukinni eftirspurn eftir raf-
orku þar. Í stað þess að leggja nýja
háspennulínu frá Búrfelli til Hvols-
vallar er það til athugunar hjá
Landsneti að byggja nýtt tengivirki
austan við Þjórsárbrú til að taka út
rafmagn af Búrfellslínu 2 og leggja
jarðstrengi þaðan til Hellu og Sel-
foss.
Forstjóri Landsnets segir að mál-
ið sé í forgangi hjá Landsneti og von-
ast til að hægt verði að ráðast í
breytingarnar á næsta ári.
Nokkuð hröð uppbygging
„Eftirspurn eftir raforku á Suður-
landi hefur aukist vegna nokkuð
hraðrar uppbyggingar. Fiskvinnslan
í Vestmannaeyjum hefur verið að
eflast og tækifæri eru til orkuskipta í
fiskimjölsverksmiðjunum þar. Lítil
netþjónabú hafa verið reist á Suður-
landi og mikil uppbygging hefur ver-
ið í ferðaþjónustunni,“ segir Guð-
mundur Ingi Ásmundsson, forstjóri
Landsnets, þegar hann er spurður
um ástæður þess að Landsnet er að
huga að uppbyggingu sinni á Suður-
landi. Til viðbótar má nefna fyrirætl-
anir um að hafa nýjan Herjólf
rafknúinn. Þessi uppbygging og
breytingar reyna mjög á innviði
Landsnets á svæðinu og kalla á
breytingar.
„Kerfið er komið að þolmörkum
og tímabært að styrkja það. Í sumar
erum við að endurbyggja spenni-
stöðina á Hvolsvelli og höfum aukið
flutningsgetu línanna út frá henni.
Þá er komið að því að auka flutnings-
getuna inn á flutningskerfið í Rang-
árvallasýslum,“ segir Guðmundur
Ingi.
Jarðstrengir milli bæja
Nærtækasta framkvæmdin væri
að leggja nýja háspennulínu frá Búr-
fellsvirkjun að tengivirkinu á Hvols-
velli en Landsnet hugar að öðrum
leiðum, meðal annars vegna um-
hverfissjónarmiða og til að nýta bet-
ur núverandi innviði.
Í stað nýrrar háspennulínu er
hugmyndin að setja upp nýtt 220
kílóvolta tengivirki nær notendum.
Það gæti orðið í Lækjartúni, austan
við Þjórsárbrú, og tengst inn á Búr-
fellslínu 2. Frá þessu tengivirki væri
hægt að leggja jarðstreng til Hellu
en þegar er búið að leggja línuna á
milli Hellu og Hvolsvallar í jörðu.
Einnig væri unnt að leggja jarð-
streng frá nýja tengivirkinu í hina
áttina, til Selfoss, og taka niður loft-
línur.
Þessi framkvæmd myndi auka ör-
yggi kerfisins og skapa svigrúm til
að taka niður eina af línunum sem
liggja frá Sogsvirkjunum. Það er lína
sem liggur frá Írafossstöð, um Ing-
ólfsfjall, hjá Hveragerði, um Hellis-
heiði og að Geithálsi. Þetta er gömul
lína, barn síns tíma, og þykir heldur
ljót. Auk þess þrengir hún að Suður-
landsvegi sem Vegagerðin hyggst
breikka á milli Hveragerðis og Sel-
foss.
Verkefni í forgangi
Ákvörðun hefur ekki verið tekin
um þessa framkvæmd en starfs-
menn Landsnets vinna að athugun á
þessum kostum. Þegar ákvörðun
liggur fyrir um að byggja nýtt tengi-
virki þarf Landsnet að óska eftir
breytingum á skipulagi hjá viðkom-
andi sveitarfélagi. „Þetta er eitt af
þeim verkefnum sem við teljum að
þurfi að vera í forgangi. Við gerum
ráð fyrir að við munum fljótlega
sækja um nauðsynleg leyfi,“ segir
Guðmundur Ingi.
Hann segir að vilji sé til að fara
sem fyrst í framkvæmdir en telur
raunhæft að miða við að hægt verði
að hefjast handa á næsta ári.
Tengivirki í stað nýrrar línu
Aukin eftirspurn eftir orku á Suðurlandi kallar á breytingar á flutningskerfi Landsnets á svæðinu
Áform um nýtt tengivirki við Þjórsárbrú og jarðstrengi til Hellu og Selfoss Innviðirnir nýttir betur
Bú
rfe
llsl
ína
2
Heimild:
Búrfell
Flúðir
Hella
Hvolsvöllur
Selfoss Lækjartún
Hveragerði
Ljósafoss
Þorlákshöfn
Fyrirhugaðar endurbætur á raforkukerfinu á Suðurlandi
Hvolsvöllur
Endurnýjað
tengivirki
Lækjartún
Nýtt 220kV
tengivirki
Selfosslína 2
Að hluta í jörðu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Búrfell Tengivirki Landsnets eru ólík að gerð og útliti. Eitt það stærsta og mikilvægasta er við Búrfell. Það tengir
virkjanir við flutningskerfið og þaðan liggja 5 háspennulínur auk tengingar við dreifikerfið á Suðurlandi.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Með hækkandi sól, hækkar hitinn! Xprent er
með lausnina fyrir bæði heimili og fyrirtæki.
Sólarfilmurnar eru frá SunTek og eru til
í mismunandi tegundumog styrkleikum.
Landsnet hefur lokið við stór-
verkefni við Búrfell. Tengivirkið
við Búrfellsstöð var stækkað til
að hægt væri að tengja nýju
virkjunina við Búrfell inn á flutn-
ingskerfið. Jafnframt þurfti að
endurnýjan allan stjórnbúnað
virkisins. Þetta er einn mik-
ilvægasti tengipunktur landsins
og þurfti að vinna að endurbót-
unum án þess að taka tengivirk-
ið úr notkun. Var það mikil
áskorun en tókst án þess að telj-
andi truflanir yrðu og án slysa.
Verkefnið við Búrfell snýst
ekki síst um umhverfismál.
Virkjunin sjálf nýtir betur fallið í
Þjórsá. Þá hefur það augljósa
kosti í för með sér að nýta þá
innviði sem fyrir eru með því að
breyta tengivirkinu í stað þess
að byggja ný flutningsmann-
virki.
Kostur að
nýta innviði
BÚRFELL
Norðurflug Helicopter Tours hefur
bætt nýrri þyrlu við flotann sinn, af
gerðinni Airbus EC30, sem er sú
eina sinnar gerðar hér á landi.
Norðurflug hefur verið starfandi
frá árinu 2006 en fyrir á félagið fjór-
ar þyrlur; eina af gerðinni Bell Jetr-
anger, tvær Astar A350 og eina
Dauphin.
Airbus-þyrlan er sex sæta vél.
Eru sætin öll framvísandi og leð-
urklædd og rúðurnar stórar til að
tryggja útsýni, segir í fréttatilkynn-
ingu. Þyrlan er sögð hljóðlát og rúm-
góð. „Markmiðið með kaupunum er
að bjóða viðskiptavinum Norður-
flugs þá bestu þyrlu sem völ er á til
að þjónusta þá með sem bestum
hætti,“ segir í frétt Norðurflugs.
Ný þyrla til Norðurflugs
Ljósmynd/Norðurflug
Þyrla Norðurflug hefur tekið fimmtu þyrluna í notkun í rekstri sínum.
Eina þyrlan hér
af gerðinni Airbus