Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist á rúðuna / sólaselluna u Eykur öryggi og útsýni allt að tvöfalt í bleytu og rigningu u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla, snjór og ísing safnist á rúðuna u Heldur regnvatni frá rúðunni u Býr til brynju á rúðunni fyrir leysiefnum og vökvum u Þolir háþrýstiþvott u Virkar við -30°C til + 30°C u Endingartími er 6 – 12 mánuðir Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Rúmlega hundrað ára gamalt gler- listaverk með mynd af Þorláki helga Þórhallssyni biskupi (1133-1193) og fleiri kirkjunnar mönnum í kapellu gamla prestaskólans í miðborg Lin- coln á Englandi er ekki lengur að- gengilegt almenningi. Skólinn er hættur starfsemi og skólahúsið, sem byggt var 1777, og kapellan, sem byggð var 1906, hafa verið seld fast- eignafyrirtæki sem er að breyta hús- næðinu í lúxusíbúðir fyrir efnafólk. Listaverkið sem er í steindum glugga í kór kapellunnar er friðað og verður ekki tekið niður, en almenn- ingur getur ekki lengur skoðað það þar sem húsnæðið og lóðin er nú í einkaeign. Fjölmargir Íslendingar hafa lagt leið sína til Lincoln á undanförnum áratugum gagngert til að líta mynd- ina af Þorláki helga augum. Má jafn- vel tala um „pílagrímsferðir“ í því sambandi. Í þeim hópi var m.a. Sig- urbjörn Einarsson, fyrrverandi bisk- up Íslands, sem fór á staðinn um miðjan sjöunda áratuginn. Þetta er elsta minnismerkið um Þorlák helga utan landsteinanna. Ástæðan fyrir því að það er í Lincoln er sú að hann stundaði nám í þessari sögufrægu dómkirkjuborg upp úr miðri 12. öld. Eini íslenski dýrlingurinn Þorlákur, sem varð biskup í Skál- holti 1178 og sat á stólnum til dauða- dags, var tekinn í dýrlingatölu á Ís- landi og áheit á hann leyfð árið 1198. Bein hans voru tekin upp og þeim komið fyrir í veglegu skríni í Skál- holtskirkju. Var það almenn trú að með því að heita á hann fengju menn hjálp og bót meina. Á kaþólska tím- anum fram til 1550 voru yfir 50 kirkjur helgaðar heilögum Þorláki hér á landi. Hann var einnig dýrk- aður í Noregi og Færeyjum. Langur tími leið þó áður en páfastóll í Róm viðurkenndi helgi hans formlega. Það var Jóhannes Páll páfi II. sem útnefndi Þorlák verndardýrling Ís- lands í ársbyrjun 1984. Vitneskjan um námsdvöl Þorláks í Lincoln er byggð á samtímaheimild sem er saga hans rituð hér heima um eða upp úr 1200 þegar arftaki hans og systursonur, lærdómsmaðurinn Páll Jónsson, var biskup. Þar segir á einum stað að „fýstist hann utan- ferðar og vildi þá kanna siðu annarra góðra manna. Og fór hann af Íslandi, og er ekki sagt af hans ferðum, unz hann kom í París og var þar í skóla svo lengi sem hann þóttist þurfa til þess náms, sem hann vildi þar nema. Þaðan fór hann til Englands og var í Linkolni og nam þar enn mikið nám og þarfsællegt bæði sér og öðrum og hafði þá enn mikið gott það af sér að miðla í kenningum sínum, er hann var áður trautt jafnvel við búinn sem nú.“ Á þessum tíma var biskup í Lin- coln Robert de Chesney (d. 1166) og fór mikið orð af röggsemi hans og lögspeki. Sóttust margir lærðir menn eftir að nema undir handar- jaðri biskupsins. Er líklegt að Þor- láki hafi borist til Parísar fregnir um menntasetrið í Lincoln. Listaverkið í Lincoln Hús gamla prestaskólans í Lincoln var upphaflega byggt sem sjúkra- hús. Þegar sjúkrahúsið var flutt seint á 19. öld fékk skólinn það til umráða. Viðbyggingar voru reistar og var ein þeirra kapella sem byggð var 1906. Ákveðið var að hafa í henni steinda glugga með kirkjusögulegum myndum eins og svo algengt er í breskum kirkjum. Var leitað til eins fremsta glerlistamanns sem þá var uppi, Henry Victor Milner í London. Lauk hann verkinu 1907 og var kap- ellan þá vígð með mikilli viðhöfn. Skjöl gamla prestaskólans geyma væntanlega allar upplýsingar um það hvernig það bar til að ákveðið var að hafa mynd af Þorláki helga miðlæga í aðalglugga kapellunnar við hlið Christopher Wordsworth biskups, sem stofnaði skólann, og Hugh hins helga sem er aðal- dýrlingur Lincolnbúa og biskup þar um tíma. Skjölin eru hins vegar ekki aðgengileg sem stendur og verður því að byggja á líkum. Helst er talið að lærðir breskir Íslandsvinir, sem þekktu söguna um dvöl Þorláks helga í Lincoln, hafi beitt sér í mál- inu. Þá hafði staðarblaðið Lincolns- hire Chronicle nokkru fyrir bygg- ingu kapellunnar birt grein þar sem sagt var frá dvöl Þorláks í borginni og þannig vakið athygli á sögu hans. Hvernig leit Þorlákur út? Íslendingar lásu fyrst um áhuga manna í Lincoln á Þorláki helga í Nýju kirkjublaði vorið 1906 og urðu mjög uppnæmir yfir þeim sóma sem landi og þjóð væru sýnd með þessu framtaki. „Nú er veríð að reisa nýja kirkju í Lincoln, en þar í landi er al- siða að skreyta kirkjur með glugga- litmyndum, og á nú að setja mynd af Þorláki helga í einn kirkjugluggann, og mun hann eiga að vera í bisk- upsskrúða,“ sagði í blaðinu sem Jón Helgason og Þórhallur Bjarnarson gáfu út. Þeir Jón og Þórhallur töldu ekki ósennilegt að þeir sem réðu fyrir kapellugerðinni í Lincoln hefðu kynnst sögu Þorláks í enskri þýðingu biskupasagna sem þá var nýlega komin út. „En vera má og að vér eig- um að þakka hinni góðfrægu ensku skáldkonu Mrs. D. Leith þennan sóma, sem sýndur er landa vorum á Englandi,“ bæta þeir við. „Eitt af kvæðum hennar, sem Brynjólfur Jónsson þýddi í Eimreiðinni 1900, er um andlát Þorláks biskups, og það voru hin fornu kirkjusögulegu rit vor, sem fyrst drógu huga hennar til íslenzkra fræða.“ Afskipti skáldkonunnar og Ís- landsvinarins frú Disney Leith af gerð myndarinnar af Þorláki virðast hafa verið einhver. Fram kemur í Nýju kirkjublaði að hún hafði skrifað öðrum ritstjóranna bréf og spurst fyrir um það, eftir ósk kirkjuprests- ins i Lincoln, hvort nokkur teikning gerð eftir munnmælum væri til af Þorláki biskupi, og „hvort hann hafi nokkur sérleg einkenni eða merki, og hvort nokkuð sérkennilegt hafi verið við íslenska biskupsskrúðann“. Engar myndir eru til af Þorláki biskupi, en glögg lýsing er á honum í fornum jarteinasögum um hann: „Hann sýndist nálega jafnan með þeim yfirlitum og búningi sem hann hafði hér í heimi, meðalmaður var hann að vexti, jarpur á háralit, rétt- hárr og réttleitur, fagureygur og föl- litaður, ljóss og lítt hentur og hvítar hendurnar, þýður og þekkilegur, góðingur og grannvaxinn, holdlítill og herðilútur nokkuð.“ Áhrif frá Baring-Gould Í grein í Lesbók Morgunblaðsins 1982 telur Kolbeinn Þorleifsson að myndina af Þorláki í Lincoln megi einkum rekja til áhrifa frá víðlesnu riti breska kirkjusagnfræðingsins Sabine Baring-Gould um sögu dýr- linga kaþólsku kirkjunnar. Það kom út í 16 bindum undir lok 19. aldar. Kafli er um Þorlák helga í 15. bindi ritsins. Höfundurinn hafði komið hingað til lands og þekkti vel til sögu Íslands og íslenskra fornbókmennta. Kolbeinn telur að fullyrðing í ritinu um að Þorlákur helgi og Hugh hinn helgi hafi þekkst og Þorlákur verið undir áhrifum hans hafi ráðið því hvernig myndin af þeim í glugganum er. „Þess vegna er Hugh lýst sem gömlum og virðulegum gráskegg þegar Þorlákur er ungur fríður mað- ur með opinn Saltara á fyrsta Davíðs sálmi,“ segir Kolbeinn. Þeir Þorlákur helgi og Hugh hinn helgi voru samtíðarmenn, en engar heimildir eru til um að þeir hafi þekkst. Dvöldu þeir ekki samtímis í Lincoln. Aftur á móti kynnu leiðir þeirra að hafa legið saman í París. Á lokastigi Framkvæmdir í gamla prestaskól- anum og kapellunni í Lincoln eru nú á lokastigi. Flestar lúxusíbúðirnar hafa verið seldar að því er lesa má á vef fasteignafyrirtækisins. Þar á meðal er kapellan og hefur nýr eig- andi hennar jafnframt eignast gler- listaverkið. Ekki kemur til greina að það verði tekið niður og flutt á brott þar sem minjayfirvöld í Lincoln hafa úrskurðað að það skuli áfram vera á sama stað. En færri eiga eftir að njóta þess að líta það augum og munu vafalaust margir harma það. Þorlákur helgi ekki lengur sýnilegur  Gamla prestaskólanum í Lincoln breytt í lúxusíbúðir fyrir efnafólk  Steindur gluggi með mynd af Þorláki helga og fleiri kirkjunnar mönnum hluti af einni íbúðinni  Aðgangur almennings lokast Ljósmynd/Peach Group Listaverkið Steindi glugginn við altari kapellunnar í Lincoln. Þorlákur helgi er neðst t.v.,Woodsworth biskup í miðju, og síðan Hugh hinn helgi. Ljósmynd/Vefur bailgatecourt.co.uk Kapellan Í þessu rými verður lúxusíbúð. Steindi glugginn (t.v.) við altarið. Ljósmynd/Vefur bailgatecourt.co.uk Byggingin Gamla prestaskólahúsið og kapellan í Lincoln. Úr Þorláks sögu helga: „Í Kynn á Englandi lét maður nokkur, sá er Auð- unn hét, gera líkneskju til dýrðar hinum sæla Þorláki biskupi, og er lík- neskið var gert og sett í kirkju, þá gekk að klerkur einn enskur, og spurði hvers líkneski það væri. Honum var sagt að það væri líkneskja Þorláks biskups af Íslandi. Þá hljóp hann með hlátri miklum og spotti í soðhús eitt, og tók mörbjúga, og kom síðan aftur fyrir líkneskið, og rétti bjúgað fram hinni hægri hendi, og mælti svo með spotti til líkneskjunnar: „Viltu, mörlandi! Þú ert mörbiskup!“ Eftir það vildi hann á burt ganga og mátti hvergi hrærast úr þeim sporum, sem hann stóð, og var höndin krept að bjúganu, og mátti ekki hræra. Dreif þá síðan til fjöldi manna, að sjá þessi fádæmi, og spurðu hann síðan sjálfan, hverju þessi undur sætti; en hann játaði þá glæp sinn fyrir öllum þeim, er við voru staddir og það sáu, en hann sýndi með viðurkenningu sanna iðran, og bað þá er við voru, að þeir skyldu styðja hann með sínum bænum, en hann hét því, að hann skyldi aldrei þess kyns glæp gera síðan. Báðu þeir honum af öllum hug heilsu- bótar, en almáttugur guð heyrði bæn þeirra, og hinn sæli Þorlákur bisk- up, og réttist þá höndin, og fór hann þá hvert er hann vildi, og lofuðu allir guð og hinn sæla Þorlák biskup.’ Þegar glermyndin af Þorláki helga eftir Milner var sett upp í kapellu prestaskólans í Lincoln 1907 sagði Nýtt kirkjublað í Reykjavík: „Klerk- dómurinn í Lincoln bætir prýðilega fyrir miður vinsamlega kveðju landa síns á sælan Þorlák til forna.“ Bætt fyrir miður vinsamlega kveðju „VILTU, MÖRLANDI! ÞÚ ERT MÖRBISKUP!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.