Morgunblaðið - 10.05.2018, Page 33
sú að byggðin í slíkum hverfum sé
oft ekki eins þétt og á miðbæj-
arsvæðum. Opin græn svæði gefi út-
sýni og andrými sem sé eftirsókn-
arvert.
„Það felur því í sér alvarlegan for-
sendubrest af hálfu Reykjavík-
urborgar gagnvart íbúum á um-
ræddu svæði að troða þéttri
blokkarbyggð niður á grasræmuna
milli Hraunbæjar og Bæjarháls.“
Þessi nýja byggð muni rýra gildi
fasteigna í nágrenninu.
Íbúarnir vilja að hætt verði við
þessi áform ellegar að dregið verði
verulega úr byggingamagni.
Í svari skipulagsfulltrúa Reykja-
víkurborgar er því hafnað að um for-
sendubrest sé að ræða. Í að-
alskipulagi sé gert ráð fyrir þéttingu
byggðar á ýmsum reitum. Verið sé
að snúa við áratuga langri útþenslu
Reykjavíkur og vexti borgarinnar
beint inn á við.
Þá vísar skipulagsfulltrúinn til
skipulagslaga þess efnis að geti eig-
andi fasteignar sýnt fram á að hann
hafi orðið fyrir tjóni vegna breytinga
á skipulagi eigi hann rétt á bótum.
Kröfu um bætur skuli beina til
Reykjavíkurborgar sem taki afstöðu
til hennar ef hún berst. Skipulags-
fulltrúinn ítrekar, eins og í mörgum
svipuðum tilvikum, að útsýni sé ekki
lögvarinn réttur borgara. Er at-
hugasemdum íbúanna í Hraunbæ
144 hafnað og lagt til að deiliskipu-
lagstillagan verði samþykkt óbreytt
að mestu.
Tölvuteikning/A2F arkitektar
Ný byggð Skipulagið
gerir ráð fyrir að byggt
verði rúmlega 28 þús-
und fermetra húsnæði
með um 200 íbúðum.
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018
Borgarráð hefur samþykkt að
veita lóðavilyrði fyrir 200 íbúðum
á þróunarreit í Skerjafirði, rétt við
Reykjavíkurflugvöll.
Um er að ræða Bjarg hses. sem
fær leyfi fyrir 100 íbúðum og
sömuleiðis fær Félagsstofnunar
stúdenta lóð fyrir 100 íbúðir. Vil-
yrðin eru veitt með fyrirvara um
gildistöku deiliskipulags sem
heimili lóðaafmörkunina og stað-
festi byggingarréttinn. Borg-
arráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Skipulagssamkeppni var haldin
um skipulag í Skerjafirði í fyrra
og er verið að vinna að
deiliskipulagstillögu á grundvelli
niðurstöðu samkeppninnar. Tillaga
ASK arkitekta, sem unnin var í
samstarfi við Landslag og Eflu,
var vinningstillaga í hug-
myndaleitinn.
Áætlanir gera ráð fyrir að allt
að 1.400 íbúðir rísi á svæðinu auk
20.000 fermetra atvinnu- og þjón-
ustuhúsnæðis. Húsin verða 2-5
hæðir. sisi@mbl.is
Fengu úthlutað
lóðum í Skerjafirði
Skerjafjörður Ný byggð mun rísa á þessu svæði.
Björgunarsveitir á Bakkafirði,
Vopnafirði og Þórshöfn voru kall-
aðar út á áttunda tímanum í gær-
morgun vegna báts sem hafði
strandað í fjöru í Bakkafirði.
Bátsverjarnir tveir komust heil-
ir í land en gott veður var á
strandstað. Þyrla frá Landhelg-
isgæslunni var afturkölluð.
Gæslan fékk tilkynningu um sjö-
leytið í gærmorgun um að bát-
urinn væri strandaður í fjörunni
undan Skeggjastöðum, rétt vestan
Bakkafjarðar. Björgunarsveitir á
svæðinu voru ræstar út og aðstoð-
uðu við að koma bátnum til hafn-
ar. Reynt var að koma dælum um
borð og grynnka á aflanum í bátn-
um.
Sluppu heilir frá
strandi á Bakkafirði
Hästens eru umhverfisvæn sænsk hágæðarúm sem hafa
verið framleidd frá árinu 1852. Komdu og finndu muninn.
GRENSÁSVEGI 3 SÍMI 581 1006
Náttúrulegt,
létt og norrænt
Allt um
sjávarútveg