Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Alls bárust 30.419 símtöl til þjón- ustuvers Ríkisskattstjóra dagana 1.- 23. mars sl. Þar af voru 19.864 vegna aðstoðar við gerð framtala. Sömu daga komu 7.295 manns í af- greiðslur RSK í Reykjavík og Akur- eyri og fengu aðstoð við gerð fram- tala. Þetta kemur fram í grein Gunnars Karlssonar, forstöðumanns ein- staklingssviðs Ríkisskattstjóra, í ný- útkominni Tíund, blaði embættisins. Fyrir tveimur árum var álagningu einstaklinga flýtt um einn mánuð og í ár var ákveðið að flýta henni um einn mánuð til viðbótar og því verða gjöld lögð á einstaklinga 31. maí nk. Til að hægt væri að standa við þessi áform var nauðsynlegt að fá framtöl fyrr inn til vinnslu og skilafresturinn var því styttur. „Til að mæta því aukna álagi sem leiddi af styttri skilafresti var viðbún- aður aukinn mjög,“ segir Gunnar. Spjaldtölvur notaðar Má t.d. nefna að á Laugavegi 166, aðalskrifstofu RSK, voru starfsmenn með spjaldtölvur frammi í af- greiðslurýminu og aðstoðuðu þar við- skiptavini við skil á framtölum. Þetta létti miklu álagi af hefðbundinni af- greiðslu og stytti biðtíma viðskipta- vina verulega á þeim dögum sem álagið var mest. Auk þjónustuvers og annarra sér- fræðihópa var á þessu tímabili mannaður sérstakur svarhópur, framtalsaðstoð, sem var skipaður frá 15 og upp í 35 manns á mestu álags- dögunum. Tóku starfsmenn flestra sviða embættisins þátt í að veita þjónustu á þessum tíma, segir Gunn- ar. Eins og í afgreiðslunum var við- búnaður aukinn í símaþjónustunni og þrátt fyrir styttri skilatíma hefur sjaldan gengið betur að þjónusta þann mikla fjölda sem hringdi inn á þessu tímabili að mati Gunnars. Er þá ótalin sú aðstoð sem veitt var framteljendum með netspjalli eða í tölvupósti. Mánudagarnir og síðustu skiladag- arnir í almennum- og framlengdum fresti voru erilsamastir hjá starfs- mönnum RSK. Rauðglóandi símalínur hjá ríkisskattstjóra  Símtöl vegna aðstoðar við gerð framtala voru 19.864 Morgunblaðið/Golli Laugavegur 166 Gríðarlegt álag var hjá starfsmönnum Ríkisskattstjóra í Reykjavík og Akureyri í byrjun mars. Annasamasti tími ársins hjá þeim. Kvenfélag Garðabæjar, sem fagnar 65 ára afmæli sínu á árinu, afhenti Konukoti veglega peningagjöf ný- verið. Fjármunirnir söfnuðust á velheppnaðri Sumargleði félagsins, sem haldin var í Garðaholti. Þar fylltu konur húsið, ekki að- eins kvenfélagskonur heldur einnig gestir þeirra. Vegleg dagskrá var í boði. Sigga Kling var veislustjóri, Þuríður Sigurðardóttir söng, tísku- sýning fór fram og lukkuleikur var með vinningum. Skemmtinefnd Sumargleðinnar, ásamt formanni og varaformanni kvenfélagsins, heimsótti Konukot í kjölfarið og gaf afrakstur skemmt- unarinnar. Brynhildur Jensdóttir, framkvæmdastjóri Konukots, og Jóhanna Þorgrímsdóttir starfs- maður tóku á móti peningunum og þökkuðu kærlega fyrir stuðning- inn. Verða þeir m.a. notaðir til að kaupa uppþvottavél og þurrkara. Kvenfélagið hefur jafnan styrkt fjölmörg málefni, s.s. ungbarna- deild Heilsugæslu Garðabæjar, Ljósið, MS-félagið, bókagjafir til Fjölbrautaskóla Garðabæjar, fjár- magnað tæki til sjúkraþjálfunar á Hjúkrunarheimilinu Ísafold og stutt Styrktarsjóð Garðasóknar. Öflugu vetrarstarfi félagsins er senn að ljúka. Auk félagsfunda og Sumargleðinnar er t.d. búið að gefa út dagatal og fara í fjögurra daga menningarferð til Edinborgar. Framundan er svo skógrækt- ardagur í Smalaholti og hlaðborð á 17. júní í Garðabæ að vanda. Gjöf Fulltrúar Kvenfélags Garðabæjar heimsóttu Konukot og gáfu þar af- rakstur fjáröflunarkvölds. Félagið fagnar 65 ára afmæli sínu í ár. Konukot fékk veg- lega peningagjöf  Kvenfélag Garðabæjar 65 ára Eiginleikar burðarpokans: • hentar börnum frá 3,5-20 kg • viðheldur M-stöðu mjaðma og fóta • leyfir baki nýbura að vera kúpt • hægt er að bera barnið á þrjá vegu, að framan, á baki og á mjöðm • dreifir þunga barnsins vel fyrir þann sem ber barnið • einfaldur í notkun • úr lífrænni bómull og hampi • til í mörgum fallegum litum Þegar velja á burðarpoka er mikilvægt að pokinn fari vel með líkama barnsins. Manduca burðarpokinn er hann- aður af þýskum barnaburðarsér- fræðingum með það markmið að leiðarljósi að barn geti viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma. MANDUCA BURÐARPOKINN Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.