Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2018 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Þú finnur rétta bílinn hjá okkur BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna, tók mikla áhættu með þeirri ákvörðun sinni að draga landið út úr samningnum við klerkastjórnina í Íran um kjarnorkuáætlun hennar, að mati margra fréttaskýrenda. Þeir telja ákvörðunina m.a. auka hættuna á átökum milli herja Írans annars vegar og Bandaríkjanna, Ísraels eða Sádi-Arabíu hins vegar. Ákvörðunin gæti einnig orðið til þess að klerkastjórnin í Íran drægi landið út úr kjarnorkusamningnum og hæfi auðgun úrans sem hægt væri að nota í kjarnavopn. Þar að auki dregur ákvörðun Trumps úr trú- verðugleika Bandaríkjanna sem við- semjanda og hún gæti m.a. torveldað forsetanum að ná samkomulagi við einræðisstjórnina í Norður-Kóreu um kjarnorkuafvopnun. Hvernig geta viðsemjendurnir treyst því að bandarísk stjórnvöld standi við gerða samninga? Með samningnum við Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína, Rúss- land og Þýskaland frá árinu 2015 skuldbatt klerkastjórnin í Íran sig til að takmarka verulega kjarnorku- áform sín gegn því að viðskipta- þvingunum gegn landinu yrði aflétt. Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi, Kína, Rússlandi og Þýskalandi segj- ast ætla að standa við samninginn og telja að Íranar hafi staðið að fullu við skilmála hans. Alþjóðakjarnorku- málastofnunin (IAEA) hefur einnig staðfest það. Jafnvel hátt settir emb- ættismenn í Bandaríkjunum hafa tekið undir þetta, þeirra á meðal Mike Pompeo utanríkisráðherra og Dan Coats, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar. Gætu hafið auðgun úrans Afleiðingar ákvörðunar Trumps ráðast að miklu leyti af því hvernig klerkastjórnin í Íran bregst við henni á næstu mánuðum. Fréttaveit- an AFP hefur eftir stjórnarerind- reka vestræns ríkis í Teheran að írönsku ráðamennirnir séu í erfiðri stöðu því að þeir telji sig þurfa að svara ákvörðuninni af hörku, án þess þó að hætta á að missa stuðning Evr- ópuríkjanna í deilunni. Nokkrir fréttaskýrendur segja að Íranar geti svarað ákvörðun Trumps með því að skaða hagsmuni Banda- ríkjanna í grannríkjum Írans, m.a. Sýrlandi og Írak, þar sem áhrif Ír- ana hafa aukist á síðustu misserum. Hassan Rouhani, forseti Írans, sagði eftir að Trump tilkynnti ákvörðun sína að Íranar hygðust hefja viðræður við ríkin sem styðja enn samninginn en varaði við því að tíminn til að semja um málið væri naumur og Íranar kynnu að hefja kjarnorkuáætlun sína að nýju með því að auðga úran „án nokkurra tak- markana“. Yfirmaður Kjarnorku- málastofnunar Írans sagði að landið gæti hafið auðgun úrans innan fimm daga. Styrkti stöðu harðlínumanna Sérfræðingar í öryggismálum eru ekki á einu máli um hversu langan tíma Íranar þyrftu til að smíða kjarnavopn. Kjarnorkusamningur- inn frá 2015 átti að tryggja að Íranar myndu þurfa að minnsta kosta eitt ár til að framleiða nógu mikið af auðg- uðu úrani til að geta búið til kjarn- orkusprengju. Flestir sérfræðing- anna telja að samningurinn hafi tryggt þetta þar sem hann skyldi Ír- ana til að minnka birgðir sínar af auðguðu úrani um 98% og fækka um tvo þriðju skilvindum sem notaðar eru til að auðga úran. Nokkrir sérfræðinganna telja að Íranar myndu þurfa nokkur ár til að smíða fyrsta kjarnavopnið, en aðrir segja að þeir gætu gert það á um það bil einu og hálfu ári. Óvissan stafar m.a. af því að ekki er vitað hversu mikla þekkingu Íranar hafa á smíði kjarnavopna. Ennfremur er óljóst hvort Íranar geti framleitt eldflaug- ar sem gætu borið kjarnaodda. Bandarískir embættismenn, þeirra á meðal Mike Pompeo, hafa látið í ljós efasemdir um að Íranar hefjist strax handa við framleiðslu kjarnavopna. „Íranar voru ekki að flýta sér að framleiða vopn fyrir samninginn,“ sagði Pompeo á fundi með bandarískum þingmönnum í síðasta mánuði. „Ég veit ekki um neitt sem bendir til þess að þeir myndu flýta sér að framleiða kjarna- vopn núna ef samningurinn heyrði sögunni til.“ Margir fréttaskýrendur telja að Íranar hafi hag af því að hefja ekki auðgun úrans og vísa ekki erlendum vopnaeftirlitsmönnum úr landi þótt Trump hafi dregið Bandaríkin út úr samningnum. Þeir segja að Íranar vonist til þess að halda viðskiptum við Evrópuríki og vilji ekki stefna þeim í hættu með tilraunum til að verða sér úti um kjarnavopn. Ákvörðun Trumps gæti þó styrkt stöðu harðlínumanna og þjóðernis- sinna í klerkastjórninni sem voru andvígir kjarnorkusamningnum og tilraunum Rouhanis forseta til að bæta tengsl Írans við vestræn ríki. Sumir þeirra vilja ekki aðeins að Ír- anar dragi sig út úr kjarnorkusamn- ingnum heldur einnig alþjóðasamn- ingnum um bann við útbreiðslu kjarnavopna, NPT. Nýtt vígbúnaðarkapphlaup? Gerald F. Seib, fréttaskýrandi The Wall Street Journal, telur að Trump hafi tekið meiri áhættu en nokkru sinni fyrr með ákvörðun sinni í Íransmálinu. Til að mynda geti hún leitt til aukinnar spennu og jafnvel átaka milli Írans annars veg- ar og Bandaríkjanna, Ísraels eða Sádi-Arabíu hins vegar. „Í versta falli gætu Íranar hafið ákveðna kjarnorkustarfsemi og annaðhvort Bandaríkjamenn eða Ísraelar teldu hana óviðunandi, beittu hervaldi og Íranar svöruðu því með því að beita öllum tækjum sín- um í þessum heimshluta og víðar í heiminum,“ hefur The Wall Street Journal eftir Richard Haass, forseta hugveitunnar Council on Foreign Relations. Hann segir að á meðal úr- ræða Írana séu hryðjuverkastarf- semi og tölvuhernaður. Haass telur einnig að ef Íranar byrja aftur að auðga úran með það fyrir augum að framleiða kjarnavopn geti það orðið til þess að Sádi-Arabía og hugsan- lega fleiri ríki í Mið-Austurlöndum dragi sig út úr samningnum um bann við útbreiðslu kjarnavopna til að geta orðið sér úti um slík gereyð- ingarvopn. Trump tók mikla áhættu  Sagður hafa aukið hættu á kjarn- orkuvígbúnaði og átökum  Grefur undan trausti á Bandaríkjunum Heimildir: IAEA/NTI/ISIS/USNRC/World-nuclear.org Fækka á skilvindum úr um 19.000 í 5.060 á 10 árum Minnka á birgðir Írana af lítt auðguðu úrani úr 10.000 kg í 300 kg. Þær mega ekki vera meiri í 15 ár Markmiðið með samningnum er að koma í veg fyrir að Íranar geti framleitt kjarnavopn Samningurinn kveður á um aukið eftirlit, m.a. mögulega með herstöðvum Alþjóðakjarnorkumála- stofnunin (IAEA) getur sett upp eftirlitsbúnað í námum og kjarnorkustöðvum Á að vera eina stöðin þar sem hægt er að auðga úran Kjarnorkusamningurinn við Íran frá árinu 2015 Gashin FORDO Þar mega vera 1.044 skilvindur sem ekki má nota til að auðga úran Anarak Karaj Bushehr Isfahan Breyta á kjarnakljúfi til að koma í veg fyrir framleiðslu plútons sem hægt væri að nota í kjarnavopn ARAK Parchin- TEHERAN KASPÍHAF NATANZ Ardakan Saghand Kjarnorku- úrgangur geymdur Verksmiðja þar sem úrangrýti er unnið Þar er búnaður til að auðga úran herstöðin Helsta kjarnorku- rannsóknastöðin Rannsókna- kjarnakljúfur, úranvinnsla Kjarnorku- ver SÁDI- ARABÍA ÍRAK AFGANISTAN TÚRKMENISTAN PAKISTAN Hlutfall kjarnkleyfu samsætunnar 235U er aukið í skilvindum með því að skilja hana frá samsætunni 238U Auðgun úrans Samningsákvæði Kjarnorkustöð Kjarnakljúfur ÚrannámaHelstu stöðvar Talið er að Íranar eigi um 4.400 tonn af úrani Í kjarnavopn: Hlutfallið þarf að vera a.m.k. 80% til að hægt sé að nota úranið í vopn Til orkuframleiðslu: hlutfall 235U er aukið í 4-5% til að framleiða eldsneyti í kjarnaofna Hvers vegna ætti Kim að trúa Trump? » John Brennan, fyrrverandi forstjóri bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA, sagði í gær að „brjálæði Trumps“ hefði „graf- ið undan trausti heimsbyggð- arinnar á skuldbindingum Bandaríkjanna, reitt nánustu bandamenn okkar til reiði, eflt íranska harðlínumenn og fært Norður-Kóreumönnum nýja ástæðu til að halda kjarna- vopnum sínum“. » Antony Blinken, fyrrv. að- stoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna tók í sama streng. „Hvers vegna ætti Kim Jong-un [leiðtogi Norður- Kóreu] að trúa loforðum Trumps forseta úr því að hann riftir samningi sem viðsemj- andinn hefur farið eftir?“ spurði hann á Twitter. Námsmenn kveikja í bandarískum fánum fyrir utan byggingu, sem hýsti áður sendiráð Bandaríkjanna í Teheran, til að mótmæla þeirri ákvörðun Donalds Trumps að draga Bandaríkin út úr kjarnorkusamningnum. Harð- línumenn á þingi Írans kveiktu einnig í bandarískum fánum í þinghúsinu í Teheran og kröfðust þess að klerkastjórnin svaraði ákvörðun Trumps með því að rifta samningnum. Ali Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi landsins, kvaðst vera efins um að viðræður klerkastjórnarinnar við Evr- ópuríki um að viðhalda samningnum bæru árangur. Vilja að Íran rifti samningnum HARÐLÍNUMENN Í ÍRAN MÓTMÆLA ÁKVÖRÐUN TRUMPS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.